Alþýðublaðið - 06.07.1966, Qupperneq 11
ksRitsflori ÖrnEidsson
UZXj l :■ hlS8si
í ágætum leik
Hér er Bent Jensen að skjóta á mark í leik milli B i913 og 1909 en
í kvöld.
Jensen leikur með FBU gegn KRR
FBU leikur v/ð úrvals-
lið KRR kl.8,30 í kvöld
HÉR ER STATT á vegum Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur úrvalslið
knattspyrnufélaganna á Fjóni,
Fyns Boldspil Union. Liðið leikur
S leiki í Reykjavík.
Fyrsti leikurinn verður í kvöld
á Laugardalsvelli gegn Reykjavík-
urúrvalsliði. Hefst leikurinn kl.
20,30. Forsala aðgöngumiða er
við Útvegsbankann.
Annar leikurinn verður á föstu
dagskvöld kl. 20,30 og mæta Dan-
irnir þá íslandsmeisturum KR. —
Þann leik dæmir danski milliríkja-
dómarinn Frede Hansen, sem er í
stjórn F.B.U. og fararstjórn liðs-
ins.
Síðasti leikurinn verður við úr-
valslið af Suðvesturlandi og velur
landsliðsnefnd það lið. Sá leikur
fer fram á mánudagskvöld á Laug-
ardalsvelli og hefst kl. 20,30.
í danska liðinu eru 23 menn, 18
leikmenn og 5 manna fararstjórn.
Aðalfararstjóri er varaformaður
F.B.U., Hartvig Johansen, en með
lionum stjórnarmennirnir Frede
Vwwmmmwmwwwmvwm
Ron Clarke:
13:16,6 min.
í 5 km. hlaupi!
Ron Clarke, Ástralíu setti
frábært heimsmet í 5000 m.
hlaupi á móti í Stokkhólmi
í gærkvöldi, hljóp á 13.16,6
mín. Gamla metið, 13.24,2
mín. átti Kipehongo Kfeino,
Kenya.
wwwwvwwwwwwwvw
Hansen og Svend Áge Petersen. —
Stjórnandi liðsins er Jörgen Legch-
ly Sörensen, sem frægur var fyrir
nokkrum árum sem atvinnumaður
á Ítalíu og lék tvívegis með úrvals
liði Evrópu, og þjálfari liðsins er
Jack Johnson, þjálfari B 1913.
Þrír af leikmönnum F.B.U.
voru þátttakendur í landsleiknum
á mánudag á Laugardalsvellinum,
Poul Johansen, markvörður, Bent
Jensen, innherji, og Niels Kilde-
moes, útherji. Þeir verða eftir hér
og leika með F.B.U.
w Leikmenn F.B.U.
Poul Johansen, KFUM, markv,.
Knud Engedahl, B 1913 markv.
Ole M. Hansen, B1913, bakv,
John Ejlertsen, B 1913, framv.
Knud Næshave, B 1913, miðf.v.
Kai Hansen, O B, bakv.
Tommy Madsen, KFUM, miðfv.
Prebon Hansen, 0 B, framv.
John Ktindböll, 0 B, framv.-innh.
Jörgen Nielsen, KFUM, bakv.frv.
Palle Kahler, B 1909, úth.
Niels Kildemoes, KFUM, úth.
Bent Jenson, B 1913, innh.
Arne Dyrholm, B 1913, innh.
Helge Jörgensen, KFUM, innh.
Carlo Hedelund, 0 B, innh.
Carsten Wiingren, KFUM, úth.
Per Bartram, O B, miðframh.
Leikmennirnir eru allir frá fé-
lögum í Odense, og eru B 1909
og B 1913 í efri.helming 1. deild
arinnar, en KFUM og 0 B. keppa
um efsta sætið í 2. deild. Bæði
1. deildarfélögin hafa á undan-
förnum árum verið í hópi sterk-
ustu félaga í Danmörku og hafa
nokkrum sinnum tekið þátt í Evr
ópubikarkeppnunum fyrir félags-
lið.
Vestmannaeyingar og Suður-
nesjamenn léku í II. deild í Eyj-
um sl. fimmtudag í strekkings
vindi, sem kom á völlinn þveran
og varð því hvorugu liðinu að
neinu gagni. Eyjamönnum tókst
nú betur upp en í Hafnarfirði
forðum og sigruðu ÍBS með mikl-
um yfirburðum, 8 gegn 1. Auk
þess að skora þessi átta mörk
átti ÍBV ósköpin öll af tækifær-
um sem mistókust, stangarskot og
hvað eina. Ef það er hægt að tala
um að lið „eigi” leikinn þá á
það við ÍBV í þessum leik, að
eins nokkrum sinnum tókst ÍBS
J að gera skyndiupphlaup sem öll-
i um var hrundið nema einu, þegar
ÍBS skoraði sitt eina mark. Stað-
an í hálfleik var 2—0 ÍBV í vil.
ÍBV-liðið náði þarna að sýna
sinn jákvæðasta leik í II. deild-
inni í sumar og dylst það fáum
að það býr meira í liðinu. Kann-
ski geymir liðið það bezta handa
Fram, og eftir þeim leik er beð-
ið með mikilli eftirvæntingu og
spenningi. ÍBV-liðið er skipað
mörgum góðum mönnum, en vant
ar eins og flest lið okkar þenn-
an fína þráð, sem tengir þessa
menn saman. Aðalsteinn Sigur-
jónsson og Sævar Tryggvason
höfðu sig mest í frammi við að
skora en Guðmundur Þórarinsson
átti ágætan Ieik. Af þeim aftur-
liggjandi voru Viktor Helgason
miðvörður og Valur Andersen
framverðir beztir.
ÍBS liðið er mjög svo sundui'-
laust og má kannski segja, að þar
sé barizt á ellefu vígstöðvum. —
Stundum bregður þó fyrir að leik
menn reyna að finna hvern ann-
an en yfirleitt kemur ónóg knatt
leikni í veg fyrir að það takist.
En Suðurnesjamenn eru sannir
áhugamenn í knattspyrnu, þeir
börðust vel og létu sig ekki þó
á móti blési. Keppnisskap þeirra
brást ekki þó möx'kunum rigndi.
Og ekki er hægt að skilja við
þetta án þess að minnast á dónv
arann. Það var Einar Hjartarson
sem stjórnaði leiknum af rögg-
senii og góðri eftirtekt, sennilega
bezti maður vallarins.
•*
vwwwvwwwwwwwwwvwg
Lesið Álþýðublaðið
áskriflasíminn er 14900
áuglýsið í Alþýðublaðinu
1
Auglýsingasíminn 14906
Úrvalslið KRR
i kvöld .
A ::
<
<1
-<
■»,
KRR hefur valið úrvalslidí
sitt, sem leikur við úrvalsliðii
frá Fjóni á LaugardalsveUin-■
um í kvöld. Liðið er skipað semj
hér segir: i
I
Heimir Guðjónsson, KR i
Árni Njálsson, Val, . . . j
Ársæll Kjartansson, KR ;
Hans Guðm., Val ' !
Ánton Bjarnason, Franr
Ellert Schram, KR
Einar Árnason, Fram
Eyleifur Hafsteinsson, KR x'
Hermann Gunnarsson, Val ®!
Helgi Númason, Fram
Axel Axelsson, Þrótti. i*j
lii
-VaV;
Yaramenn: Guttormur
son, Þr., Þorst. Friðþj,
Baldur Scheving, Fram, Ei'Iendjj
ur Magnússon, Fram og
Jónsson, Val.
Myndin er frá leik íslendinga og Dana í fyrrakvöld,
Mynd: Jóhann Vilberg.
Hörður Markan er að leika á danskan likmann.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 6. júlí 1966 IJ,