Alþýðublaðið - 07.09.1966, Qupperneq 6
UMBÚÐIR OG UMBÚÐAFRAMLEIÐSLA
' Blaðjnu barst í gær grein um
aunbúðaiðnaðinn eftir Hauk Egg
ertsson. Hér fara á eftir kaflar úr
gfrein hans og sagt er frá þeim
ffrrirtækjum, er sýna umbúða-
Cramleiðslu sína á Iðnsýningunni.
i
Upphaf innlendrar umbúða-
fframleiðslu.
Umbúðaframleiðsla í nútíma
snynd á sér ekki ianga sögu 'á
íslandi. Ílátasmíði, eins og það
hugtak mun almennt Skýrt, er þó
mjög gömul, — en sem sjálfstæð
iðn eða atvinnurekstur er beykis
iðn langelzt. Samkvæmt heimild
um í Iðnsögu íslands hafa íslend
ingar fyrst iært beykisiðn á dögum
einoíkunarverzl'iffnarin^ar og í
fyrri heims styrjöldinni voru tré
tunnur framleiddar hér í stórum
stíl, á þess tíma mælikvarða, til
útflutnings á íslenzkum afurðum
Sú smíði mun þó fyrst og fremst
hafa verið handverk, en fyrstu
tunnugerðarvélarnar voru fluttar
til landsins árið 1915 af Pétri
Bjarnasyni, beyki, og sonum hans
Tryggva og Bjarna. Nú mun beyk
isiðn að fullu vera liðin undir lok
nema bá samsetning á s+ldartunn
um á Sigluf'rði og Akureyri.
Að beykisiðn frátalinni mun
fyrsti vísir að verksmiðjufram-
leiddum umbúðum vera dósafram
leiðsla hjá Blikksmiðju Péturs
Jónssonar, er hóf framleiðslu á
þeim með sérstökum vélum árið
1907. Árið 1928 stofnaði sama fyr
irtæki, er þá hét Blikksmiðja J.B.
Péturssonar, Tunnuverksmiðjan.
Framleiddi hún trétunnur með
blikktunnum innan í, og voru þær
gerðar til útflutninigs á lýsi. Þessi
framleiðsla lagðist þó brátt niður
Sömu aðilar stofnuðu Stáltunnu
gerðina 1932, einnig til lýsistunnu
framleiðslu, en nú er starfsemi
hennar hætt. Kassagerð Reykjavík
ur hf. var stofnuð 1932, en í raun
hóf hún störf tveim árum fyrr. Upp
haflega miðaðist framleiðslan við
trékassa fyrir niðursoðna mjólk,
smjörlíki og fisk til útflutnings,
en verksmiðjan varð brátt að
breyta til, því að nú hafa bylgju
pappakassar og pappaöskjur leyst
trékassana af hólmi. Pappírspoka
gerðin hf. og Dósaverksmiðjan
hf. fylgdu brátt í kjölfarið. Síðan
hafa nokkur önnur umbúðafyrir-
tæki bætzt við og víkkað svið þess
arar greinar.
Á hinum tiltölulega stutta tíma
frá því að umbúðaframleiðsla
hófst hérlendis sem atvinnugrein
hafa orðið stórstígar breytingar
og framfarir. Umbúðir og pökkun
eru orðin m-jög mikilvægur þátt
ur t viðskiptalífi nútíma þjóðfé-
lags og til þeirra gerðar miklar
kröfur. Veltur því á miklu, að um
búðaframleiðendur séu færir um
að uppfylla þær kröfur, enda er
notendum umbúða Ijóst, hvílíkum
únslitum smekklegur frágangur á
vörum getur valdið í harðri sam
keppni frjálsra viðskipta. Innlend
umbúðaframleiðsla er því öðrum
atvinnugreinum jafn mikilsverð og
þeir eru henni. í þessu sem öðru
er hver öðrum h'áður. Enginn þátt
ur athafnalífsins getur staðið einn
oig óstuddur án hinna.
Við yfirsvn áhorfenda hljóta
þeir að veita athygli hinni miklu
fjölbreytni í íslenkri umbúðagerð
Þeir hlióta einnig að sjá hve
víða inniendar umbúðir skreyta
vörur annarra framleiðenda. Nú
verða framieiðendur flestra vöru
tegunda. einkum hinna svokölluðu
neyzluvara. að fullganga frá þeim
+il aferei«slu. til neytenda. Tími
handoökkunar og uppvigtunar í
verzlurium er liðinn, og — tími
afgreiðsiu á flestum tegundum
fatnaðar úr liillum verzlana. þar
sem hann lá óvarinn og velktur
er einnig liðinn. Nú verður sér
hver hlutur að vera frágenginn á
smekklegan og hreinlegan hátt.
Það er hætt að tína nokkra brjóst
sykurmola og eða kexkökur upp
úr búðarskúffum með höndunum
í kramarhús. Hreinlætiskröfur nú
tímans leyfa ekki slíkt, — neytend
ur kaupa ekki slikar vörur. Frá
gangur vörunnar, útlit og geymslu
hæfni, verða að aniöast við kröf
ur neytenda, því að þeir ráða,
þegar miðað er við eðlilega við
skiptahætti.
Nauðsyn vörukynninga.
í heild á íslenzkur iðnaður nú
mjög í vök að verjast fyrir erlend
um varningi, sem hóflaust er flutt
ur inn og auglýstur í mun ríkara
mæli en íslenzkir framleiðendur
geta almennt veitt eér. Það hefur
lengi legið í landi ótrú á því,
sem innlent er. Stundum hefur
þetta 'átt rétt á sér en oft ekki. Iðn
sýning sem þessi, er nú stendur
yfir, þar sem sýndar eru aðal fram
leiðsluvörur iðnaðarins, er líkleg
ust til að eyða tortryggni, því að
þar geta neytendur kynnt sér á
hlutlægan hátt fjölbreytt vöruval
og gæði þess. Einnig er nauðsyn
legt fyrir hina einstöku iðnrekend
ur að kynnast vel framleiðslu ann
arra með það fyrir augum að geta
notað þeirra framleiðsluvörur til
sinnar eigin starfrækslu.
Hin síðari ár er verkaskipting í
iðnaði og samvinna á milli fyrlí
■tækja að færast mjög í vöxt. Hvað
umbúðaframleiðsluna varðar, þá
er henni sérstök nauðsyn kynning
gagnvart öörum framleiðenduMi
og dreifendum. Umbúðir eru orðn
ar all stór liður í rekstri annarra
framleiðenda og verzlana. Er því
mikils um vert, að þær séu valdi
ar af kostgæfni, En þótt góðar um
búðir séu oft dýrar, verða þær
venjulegast ódýrar í raun
vegna miklu betri varðveizlu vör
unnar og aukinnar söluhæfni.
Eftirtalin fyrirtæki sýna umbúð
ir á Iðnsýningunni: Dósaverksmiðj
an hf. sýnir ýmsar gerðir af dóa
um, bæði óáletruðum, áletruðum
og skreyttum fyrir niðursuðu, máln
ingu o.fl. Etna hf. sýnir ölflösku
'hettur, en starfsemi hennar ein
skorðast við þá framleiðslu. Kassa
gerð Reykjavíkur hf. sýnir bylgju
pappakassa, pappaöskjur og lím-
miða í mjög fjölbreyttri ltprent-
un fyrir innlenda iðnaðarfram-
leiðslu og útflutningsvörur frysti
húsanna, ásamt mjólkurumbúðum.
Plastprent hf. sýnir fjölbreytt úr
val af plastpokum , — dósum, pok
um úr pappír og sellofon og fl.
Sigurplast ’hf. sýnir mikið úrval
af piastdósum, flöskum og öðr
um umbúðum úr plasti. Stálum
búðir hf. sýna stáltunnur til út
flutnings á meðalalýsi, einnig
bakka úr áli og riðfríu stáli fyr
ir matvælaiðnaðinn.
Húsmæður!
í tilefni umbúðadags Iðnsýningarinnar sýnum við hinar vinsælu 10 lítra mjólkurumbúðir, sem notaðar eru
á Akureyri og Húsavík.
KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR hf. sýningarstúka 379
Sjúkrahús
Mötuneyti
Veitingastaðir
Skip
og aðrir, sem nota ófitusprengda brúsamjólk.
í tilefni umbúðadags Iðnsýningarinnar sýnum við 25 lítra mjólkurumbúðir, sem notaðar eru á Keflavíkur-
flugvelli. Þessar umbúðir leysa brúsana af hólmi auk þess, sem mjólkin í þeim er fitusprengd og sezt
ekki til. Sérstakir kæliskápar eru framleiddir fyrir 25, 50 og 75 lítra umbúðir. jj
Kassagerð Reykjavíkur hf.
Sýningarstúka 379
^ 7. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ