Alþýðublaðið - 24.09.1966, Qupperneq 3
Gromyko hafnar
viðræðutilboði
New York og Saigon 23. 9 (NTB-
Reuter). — Utanrfkisráðherra Sov
étríkjanna Andrei Gromyko, hafn
aði í dag síðasta tilboði Bandaríkja
Bílvelta við
Kópcrvogsbrú
Kl. rúmlega 23 í gærkvöldi valt
bifreiðin R-8575 sem er af gerðinni
Taunus Station við brúna, yfir
Kópavogslæk. Farþegi í bílnum
slasaðist og var fluttur á Slysavarð
stofuna og síðan á Landakotsspít
ala. Ökumaður meiddist ékki telj
andi.
Bifreiðin var 'á leið til Reykjavík
ur frá Hafnarfirði og var að fara
fram úr annarri bifreið þegar hún
valt. Bifreiðin mun hafa farið 2
eða þrjár veltur og er hún talin
gerónýt. Bifreiðin braut umferðar
merki og lokaði umferð, sem var
mikil. Bílstjórinn virðist hafa
misst vald á bílnum, en erfitt er
að gera sér grein fyrir orsök slyss
ins, að því er Kópavogslögreglan
tjáði blaðinu.
Framh. á 13. síðu.
stjórnar um samningaviðræður um
friðsamlega lausn Vietnamdeilunn ,
ar. Hann sagði ,að ekkert nýtt j
kæmi fram í tilboðinu og stað
festi stuðning Sovétríkjanna við
stjórnina í Norður-Vietnam.
í aðalræðu sinni í stjórnmálaum 1
ræðum Allsherjarþingsins tók Gro
myko skýrt fram að .tillögur
Bandaríkjastjórnar, sem aðalfull-
trúi Bandaríkjanna hjá SÞ, Artb i
ur Goldberg lagði fyrir þingið í
gær, hefðu engin sérstök láhrif
haft á Sovétstjórnina, Goldberg
lagði rtil að þingið kynnti sér
rækilega tillögur Bandaríkjamanna
og’sagði að loftárásum Bandaríkja
manna á Norður Vietnam yrði
hætt ef Norðui'-Vietnammenn hétu
því að draga einnig úr styrjaldar
aðgerðum. Áður hafa Bandaríkja
menn krafizt þess, að Norður-Viet
nammenn leggi fram sannanir um
að þeir hafi hætt sendingum vopna
og herliðs til Suður-Vietnam.
Gromyko sagði, að enn benti
ekkert til þess, að Bandaríkja
stjórn væri alvara með friðarum
leitunum sínum og að árásum á
hina vietnamönsku þjóð yrði hætt
Það er skylda allra ríkja að styðja
Framhald á 15. síðu.
TfZK ISÝNING
f SJÓNVARPI
Rvík. AKB.
Nú fer mjög bráðlega að líða
að því að útsendingar hins íslenzka
sjónvarps hefjist. Sl. föstudag var
blaðamönnum ásamt fleiri gestum
boðið að vera við upptöku þáttar
undir stjórn Steinunnar Briem.
Það var þáttur um nýju tízkuna
og ræddi Steinunn við Báru Sig-
urjónsdóttur og Rúnu Guðmunds-
dóttur um helztu nýjungar úr
tízkuheiminum. Sýningarstúlkur,
þær, María Guðmundsdóttir, Pál-
Framhald á 15. siðu
Danskt rannsókna-
skip í Reykjavík
DANSKA skipið H.D.M.S.
Hvidbjörnen sem einkum fæst
við dýptarmælingar og land-
helgisgæzlu verður í Reykjavík
urhöfn nú um helgina og gefst
almenningi kostur á að skoða
það milli klukkan 2 og 4 á
sunnuddginn. Síðastliðin tvö ár
hefur skipið einkum verið við
landhelgisgæzlu við Færeyjar
og dýptarmælingar við vestur-
strönd Grænlands og er það nú
á leið frá Grænlandi til Dan-
merkur.
Það er búið mjög fullkomn-
um mælinga- og rannsóknar-
tækjum og hefur jafnframt
þyrilvængju um borð, sem oft
hefur bjargað mannslífum.
Hún er annars einkum notuð
til eftirlitsferða um fiskimið,
til þess að kanna ísasvæði og
leiðbeina skipinu í gegnum þau,
til að leita að skerjum og til
að flytja menn og vistir. Hvid
björnen er yfirleitt staðsettur
við Grænland eða Færeyjar
svo sem fyrr segir og auk rann
sóknarstarfans er því ætlað
að gegna ýmsum öðrum hlut
verkum, svo sem: fólksflutn
inga og sjúkraflutninga, (á því
er nýtízku sjúkrahús með sex
rúmum) birgðaflutninga, lækn
ishjálpa til lands og sjós,
Framhald á 15. síðu
Fimm ungir myndlisiar-
menn sýna í Danmörku
Reykjavík — ST.
Fyrsta sýning norrænna mynd-
listarmanna verður haldin í Lousi-
ana safninu í Humlebæk í Dan-
mörku í nóv. þessa árs. Það er
Norðurlandaráð, sem hefur efnt
til þessarar sýningar. í ár sýna
fimm ungir myndlistarmenn frá
hverju landi. Aldurstakmörk eru
30 ár. íslenzku fulltrúarnir iiafa
þegar verið valdir.
Eins og fyrr segir, er það Norð
urlandaráð, sem efnt hefur til þess
arar sýningar og er ætlunin að
hún verði haldin annað hvert ár
í sitthverju landanna. Norræna
listasambandinu var falið að sjá
um framkvæmd hennar, og sá
FÍM um, að verk eftir unga ísl.
myndlistarmenn yrðu valin. Kaus
iFÍM sýningarnefnd og valdi hún
verk eftir fimm íslenzka lista-
menn, en tilskilið var að eigi mætti
senda fleiri myndir en fimm eft:r
hvern. Nefndinni bárust alls um
70 myndir eftir 17 málara. Varð
nefndin sammála um að senda
verk eftir þessa myndlistarménn:
Einar Hákonarson (5 myndir),
Hrein Friðfinnsson 3, Sigi|rjón
Jóhannsson 3, Vilhjálm Bergsöh 4,
og Þórð Ben. Sveinsson 1,. ÞéSsir
ungu menn hafa allir. nema Þórð-
ur, sem einnig er yngstur ])átttak-
enda, átt verk á samsýningum hér
heima.
Þess má geta, að Norðurlánda-
ráð leggur fram 30 þús. kr dahsk
ar til verðlauna fyrir beztu mynd
eða myndir, á Ungdoms bierinale
í Lousiana safninu.
Framhald á 15. síðu
24- september 1966 -- ALÞÝÐUBLAÐIÐ -3