Alþýðublaðið - 24.09.1966, Side 8
Bjartsýni á þingi
Mlanzhafssamtaka
Miinchen, 19. sept. — í aldar-
gömlu þinghúsi Bavaríu, “Max-
imiiianeum”, var nýlega sett tólfta
þing Atlantic Treaty Association
(ATA), en það eru einkasamtök
merkra borgara, og er markmið
þeirra að veita Atlantshafsbanda-
laginu stuðning. Rúmiega 300 full-
trúar frá öllum NATO-löndunum
auk fjölmennar sendinefndar frá
Frákklandi, voru þarna saman-
komnir, ásamt tugum borgara og
blaðamanna, til að hlusta á ræður
Mánlio Brosio, framkvæmdastjóra
NÁTO, fráfarandi forseta ATA
Gladwyns lávarðar og von
Hassels, varnarmáláráðherra Þýzk-
alánds.
Yfir setningu þingsins var nær
fagnaðarblær rétt eins og full-
trúarnir væru ákveðnir í að sýna,
að afstaða Frakklands hefði ekki
haft áhrif á grundvallarákvörðun
bandalags þjóðanna fjórtán um að
Ihalda áfram undirbúningi til varn
ar Evrópu. Ákveðni um áframhald
andi starf bandalgsins kom
einnig fram í því, hve sjaldan
minnst var á afstöðu Frakklands.
Meðal Julltrúa þingsins ríkti sá
andi að hyggilegra væri að líta
fram á veginn fremur en til baka
Nokkrir ræðumenn létu varlega í
Ijós þá von, að Frakland mundi- að
nýju taka sinn fulla þátt 1 mál
efnum bandalagsins, og að svo
virtist sem hið svonefnda hættu
ástand Atlantsþafsbandalagsins
væri í eðli sínu sögulegur atburð
ur fremur en vandam'ál, sem ógn
aði samtökunum.
í kveðjuræðu sinni sagði Glad
wyn lávarður, að traust Evrópu
væri meiri nauðsyn nú en nokkru
sinni fyrr, einkum ef mrrgþráð
Atlantshafssamfélag ætti nokkru
sinni að verða að veruleika, og
slagorðin „amerísk yfirráð" verði
fyrir borð borin sem gatslitnar
hræðsluhugmyndir.
Gladwyn benti á að ening
Evrópu væri nauðsyn, áður
en sannnefnt Atlantshafssamfé-
lag gæti orðið til, og að þessi
stefna myndi að lokum verða úr
eltri þjóðernishyggju yfirsterkari.
Gladw.vn lávarður lýsti yfir því
að hann væri ekki „óþarflega svart
sýnn“ um framtíðina, nema aðr
ar ríkisstjórnir bandalagsþjóðanna
kynnu að freistast til „að fara að
dæmi Frakklands", eins og hann
orðað; það. En Gladwvn lávarður
var þess fullviss, að flestar ríkis
stiórnir og þióðjr gerðu sér grein
fyrjr hlutdeild NATO, sem ekki
á sinn líka, í friði og velmegun
Evrópu, og muni halda áfram að
hafna „þióðernishyggju-hlutleysis
-stefnum.
í skeleggri og greinargóðri ræðu
sagði Manilo Brosio framkvæmda
stjóri NATO að „Atlantshafsbanda
lagið hefði ástæðu til að vera
hreykið af þeim skerf, sem það
hefði lagt til friðar og frelsis
í Evrópu" og vegna núríkjandi ör
yggrs geti bandaiagsríkin athugað
gaumgæfilega leiðir og aðferðir
til að bæta sambúð austurs og
vesturs.
Á undanförnum árum hefði NA
TO stuðlað að stöðugum samskipt
um á sviði stjórnmála og menning
armála milli NATO ríkjanna og
Austur-Evrópu landa, þar með tal
in Sovétríkin, og að haldið skyldi
áfram á sömu braut, svo framar
lega sem menn gerðu sér samtímis
grein fyrir hefðbundnum cg nú
verandi markmiðum Sovétríkj-
anna.
Brosio bætti við, að stefna Sov
étríkjanna á vesturlöndum hefði
þrjú höfuðmarkmið, sem ekki hafa
breytzt.
Að skilja Evrópulöndin frá
Bandaríkjunum. Að stuðla að sund
urþykkju meðal frjálsra þjóða Evr
ópu. Að veikja frjálsu Evrópuþjóð
irnar með því að niðurlægja Þýzka
land og hvetja rótttæk yfirgangs
öfl alls staðar.
Framkvæmdastjórinn hvatti
menn til að vera raunsæir varð
andi samskipti milli þjóðanna í
Austur- og Vestur-Evrópu og sagði
að þjóðir Vestur-Evrópu ættu ekki
að bera hirðuleysislega fyrir borð
öryiígi sitt í blekkjandi tilgangi.
Effir að Brosio hafðí minnst á
alvarlegar ákvarðanir bandalags
ríkjanna fjórtán varðandi framtíð
bandalagsins, lvsti hann bví yfir, að
Framhald á 14. síðu.
l l.. ÍLaElKl
Pakistan heitir eitt af hinum
mörgu, nýju ríkjum, sem nú á
síðari árum hafa hlotið sjálf-
stæði. — Þetta ríki er hluti af
hinu forna Indlandi og ber því,
sem að líkum lætur, flestöll ein-
kennj þeirrar þjóðar. Meirihluti
íbúanna eru Múhameðstrúar. —
Pakistan á sjálfstæði sitt að
þakka einkum einum manni, öðr
um fremur, en það er þjóðarleið-
togi þeirra, Mohamed Ali' Jin-
nah. í mörg ár hafði hann unnið
kappsamlega að undirbúningi
þess, að Pakistan-ríki yrði stofn-
að, þar til sá draumur varð loks
að veruleika árið 1947. Hann var
líka elskaður og dáður af þjóð
sinni, sem kallaði hann Quaid-
I-Azam, en það mun þýða: „hinn
mikli foringi." Þegar ríkið Pak-
istan var að fullu stofnað 1947,
varð Mohamed Ali að sjálfsögðu
yfirmaður póstmála landsins, svo
sem annarra mála. Komið hafa
út a.m.k. tvær frímerkja-seríur
til heiðurs og minningar honum,
en hann andaðist árið 1948. Sú
fyrri kom út árið eftir andlát
hans, eða 1949, en hin síðari 11.
september 1964. Þessi síðari ser-
ia er tveggja merkja, og sýna
þau hið virðulega grafhýsi Mó-
hameds. — Nú má ef til vill
spyrja sem svo: „Hvers vegna
grafhýsi, en ekki mynd mannsins
á merkjunum?" — Við, sem bú-
um í hinum vestræna heimi, er-
um vön því, að póststjórnir land-
anna séu ósparar á, að birta
myndir af þjóðhöfðingjum landa
sinna á frímerkjum. En enginn
safnari hefur nokkurn tíma séð
Móhamed Ali á frímerkjum. —
Þetta stafar af því, að Múham-
eðstrúarmenn, að minnsta kosti
sumar þjóðir þeirra, hafa rót-
gróna óbeit á því, að láta taka
af sér myndir, eða sjá þær á
prenti. Og svo er það um Pakist-
an-menn. — Frímerki þeirra bera
öll möguleg önnur „mótív”, eins
Framhald á 10. síffu.
Skálhol
aðeins i
Á fundi með fréttamönnum
skýrðu forráðamenn bókaútgáf-
unnar Skálholts frá því að fram
kvæmdastjóri úfcgáfunnar Njörður
P. Njarðvík cand. mag. hefði nú
látið af störfum um :sinn við fyr
irtækið, þar sem hann tæki við
lektorstöðu í Gautaborg. Stjórnar
formaður Skálholts hf. Knútur
Bruun, hdl. gat þess, að forlagið
mundi því nokkuð draga saman
seglin. hvað útgáfu almennra bóka
snerti, en einskorða sig við út-
gáfu kennslubóka.
Á árinu 1965 gaf bókaútgáfan
Skálholt hf. út þrj'ár kennslubæk
ur í íslenzCcu fyrir gapFnfræða
skóla og menntaskóla. Voru þær
ýmist samdar eða búnar til prent
unar af hinum færustu skólamönn
um. Var leitazt við að fullnægja
nútímakröfum um gerð kennslu
bóka svo sem kostur var á, enda
náðu þær allar talsverðri út-
breiðslu þeear í stað. Á námskeiði
fyrir ’slenzkukennara í gagnfræða
skólum, sem fram fór í Kennara
skólanum í bessum mánuði- voru
bækurnar kynntar og sýnt er, að
á komandi vetri verða þær notaðar