Alþýðublaðið - 07.10.1966, Blaðsíða 2
reisa nýtt stórhýsi
a
JRvík, — OTJ.
ENN hafa Loftleiðir tekið stór
Jiýsi í notkun, að þessu sinni rúm-
lega sexþúsund rúmmetra skála,
þar sem margvísleg starfsemi er
liýst, Sívaxandi flugrekstur félags
ins hefur leitt það af sér að það
hefur verið í miklu liúsnæðishraki
«g því ákvað stjórn þess fyrir
alllöngu að fá leyfi til að reisa
stóran skála til að bæta úr. Leyfi
fékkst snemma á þessu ári, en
framkvæmdir voru ekki hafnar
fyrr en í júní sl. En þá var líka
heldur betur tekið til höndunum
J»ví að byggingaframkvæmdir tóku
ekki nema 69 vinnudaga.
Þessi nýja bygging er stál-
grindahús sem keypt er frá Banda
ríkjunum og hafa framkvæmdir
verið undir yfirstjórn Guðmund.
ar Jóhannssonar húsasmíðameist-
ara, sem áður hefur byggt fyrir
Loftleiðir, og á skömmum tíma.
í þessari nýju byggingu verða
tollvörugeymsla, umhleðslu-
geymsla, viðgerðarstöð og tækja-
geymsla.
Þegar Loftleiðir tóku við flug
rekstri í Keflavík var geymslu
og viðgerðaraðstaða þeirra lengi
framan af léleg en nú hafa verið
keypt ný afgreiðslutæki fyrir rúm-
ar tólf milljónir króna og því mik
Sara Lidmann rithöfundur
væntanleg til íslands
Sara Lidman, sænska skáldkon
an heimsfræga, er væntanleg til
fslands seint í þessum mánuði í
boði Menningar og friðarsamtaka
fslenzkra kvenna.
Sara Lidman er einkum kunn
hér á landi fyrir bók sína „Son-
ur minn og ég“, sem kom út árið
1962 og hlaut góðar viðtökur. M.
a. skrifaði frú Sigríður Thorlacius
um bókina: „Af fyrri ritverkum
Söru Lidman var ljóst, að hún
var góður rithöfundur. Með skáld
sögunni „Sonur minn og ég“ hefst
hún í hóp ritsnillinga. Hin ó-
vægna mannlýsing með*.kynþátta
vandamál Suður_Afríku að sögu-
sviði, verður ógleymanleg“.
Sara Lidman ferðaðist um Viet-
Nam á síðasta ári og hélt síðan
marga fyrirlestra um þá fór bæði
í Svíþjóð og Noregi. Auk þess
kom hún fram í útvarpi og sjón-
Framh. á 13. síðu.
ill munur á. Geysileg aukning hef
ur orðið á flugrekstrinum á Kefla
víkurflugvelli síðan Loftleiðir tóku
við starfseminni þar og sem dæmi
má geta þess að á síðasta ári
fóru rúmlega hundrað og fjörutíu
þus. farþegum fleira um völlinn
en árið 1963.
Er því varla furða þótt félagið
þurfi að bæta við sig stórhýsum.
Skálinn fyrrnefndi er byggður á
þann hátt aö bæta má v:ð liann
meðan landrýmið endist. Hingað
til liefur kostnaðurinn við bygg-
inguna verið rúmlega þrjár og
hálf milljón króna.
Á fundi með fréttamönnum,
skýrði Sigurður A. Magnússon,
blaðafulltrúi félagsins frá því að
nú í október hefðu Loftleiðir
byrjað með nýtt „stopover pro-
gram“. Er það tveggja sólahringa
dvöl á nýja hótelinu, morgunverð
ur, hádegisverður og kynnisferðir,
allt fyrir rúmar fjórtán hundruð
krónur. Hin nýja vetraráætlun fé-
lagsins gengur í gildi hinn fyrsta
næsta mánaðar. Ferðum fækkar
þá milli Luxemborgar og Banda-
ríkjanna og verða ferðirnar dag-
lega milli íslands og þessara
landa. Hins vegar verður áfram
sami ferðafjöldi milli íslands og
Stóra Bretlands, Noregs, Danmerk
ur, Svíþjóðar, Finnlands og Hol-
lands. Forstjóri Loftleiða á Kefla
víkurflugvelli er Grétar Kristjáns
son, lögfræðingur.
i „Meistari franskrar kvik-
myndagerðar" mundu eflaust
sumir segja um Jean Renoir,
sem stjórnaði fyrstu eiginlegu
kvikmyndinni, er íslenzka sjón
varpið sýndi. Jean Renoir mun
vera talinn meðal fremstu gam
anmyndahöfunda Frakklands,
þó myndir hans séu misjafnar
að gæðum; sumar markverð
Jistaverk, en aðrar mistækar.
French Can-Can telst þó með-
ál þeirra misheppnuðu, en það
er eigi að síður þakkarverð
.viðleitni að byrja á því að
|cynna þennan markverða kvik
myndaleikstjóra, þó valið hefði
ef til vill getað orðið betra.
Renoir hefur víst aldrei ver-
!'ð sérlega vinsæll leikstjóri
íér á landi. Ein af hans beztu
myndum, Sjónhverjingin mikla
(La grande illusion) var sýnd
í Nýja Bíói fyrir nokkrum ár-
um í tæpa viku og Skógarferð-
ln (Le déjeuner sur l’herbe)
var 2—3 daga á sýningartjald-
inu í Hafnarbíói um Iíkt leyti.
Merkilegasta verk Renoirs er
talið vera heikreglurnar (La
régle du jeu, Filmía), enda
sveið mörgum sárt undan
henni, er hún kom fyrst fram
og var lengi vel bönnuð. Það
sem einkum einkennir kvik-
myndir þessa mikilhæfa leik-
stjóra, er mannlegur hlýleiki.
Hafa margir yngri kvikmynda-
leikstjórar Frakka hyllt hann
sem læriföður sinn og áhrifa
lians gætir einkum í myndum
Francois Truffauts. Þessi mann
lega vinátta fer þó fyrir ofan
garð og neðan í French Can-
French CAN-CAN
Can og þau álirif eru mátt-
laus í samanburði við Út-
smogna jótgönguliðann (Le
caporal épinglé, Filmia ’64).
Ofangreind mynd (sem sýnd
var í Austurbæjarbíói fyrir
mörgum árum) á söguþráð sinn
að rekja til frægasta skemmt-
anahverfis Parísarborgar,
Mont martre, og gerist á upp-
vaxtardögum „Rauðu myllunn
ar“. Þar kemur við sögu ung
blómarós, Nini, sem margir
verða ástfangnir af (að sjálf-
sögðu), ekki sízt liöfuðpersón-
an, Danglard (leikinn af Je-
an Gabin). Og eins og vera
ber, endar kvikmyndin í ham-
ingjusælu og sprellfjörugum
Can-Can dansi.
Eftirtektarverðast við kvik-
mynd þessa var geðfelldur og
hógvær leikur Jean Gabins.
Þokkagyðjan Francoise Arnoul
fór með hlutverk Nini og fjör-
kálfurinn Casimir var leikinn
af Philippe Clay, sem nú orð-
ið er kunnastur í hlutverkum
illkynjaðra misindismanna.
Annars var hápunktur kvölds
ins þátturinn „Við erum ung“
— eða réttara sagt, einn hluti
hans. Var það atriðið með þjóð
lagasöngkonunni Krlstínu Ól-
afsdóttur, sem var sérlega
tæknilega vel útfært og raun-
ar frábært miðað við aðstæð-
ur. Fór þar saman góð kvik-
myndun og smekklega unnar
samskeytingar. Þess utan virt-
ist söngkonan mjög efnileg og
lagavalið afburða gott.
Sigurður Jón Ólafsson.
Vetrarstarfsemi Æskulýðs-
ráðs aö hefjast
Æskulýðsráð Reykjavíkur muu
í vetur reka víðtækt tómstunda-
og félagsstarf fyrir æskufólk borg
arinnar
Að Fríkirkjuvegi 11 mun verða
opið hús fyrir unglinga 15 og
eldri, fjö'gur kvöld í viku, þ.e.
þriðjudaga föstudaga laugardaga
og sunnudaga.
í sambandi við opið hús verð
ur efnt til ýmiss konar skemmtana
sýninga og dansleikja.
Á Þriðjudagskvöldum verða kvik
myndasýniÐgar, kvöldvöfcu|r eða
leiksýningar.
Á föstudagskvöldum verða dans
leikir, og einnig ú sunnudögum
kl. 4-7 e.h.
Ýmis félög og klúbbar munu
einnig starfa að Fríkirkjuvegi 11
og í Golfskálanum í samvinnu við
Æskulýðsráð.
Námskeið í nokkrum greinum
tómstundaiðju verða haldin að Frí
Stal 15000 krónum
Rvík. — ÓTJ.
FIMMTÁN þúsund krónum var
stolið úr peningaskáp í Tpnabíói
í fyrrinótt. Þjófurinn hafði sprengt
upp einar dyrnar og komist þann
ig inn á skrifstofuna þar sem fyr
ir var rammger peningaskápur
sextíu sentímetrar á liæð og ótta-
tíu á breidd. Þar var ráðist til
atlögu með innbrotsverkfærum, og
tókst þjófnum að opna hurð skáps
ins. Þaðan hirti hann sem fyrr
segir 15000 krónur og hafði á
brott með sér, en einskis annars
var saknað.
kirkjuvegi 11 og að gefnu tilefni
er rétt að benda á það að nám
skeiðin eru fyrir ungt fólk frá
14 ára og allt að 25 ára aldri.
Sjóvinnunámskeið fyrir pilta
verða haldin að Lindargötu 50 að
venju, og hefjast þau í lok þessa
mánaðar.
í gagnfræðaskólum borgarinnar
mun Æskulýðsráð { samvinnu við
skólana standa fyrir ýmisskonar
félags- og tómstundastarfi, sem
kynnt mun verða í skólunum hverj
um fyrir sig.
Allar nánari upnlvsingar igefur
skrifstofa Æskulvðsráðs. opin
virka daga kl. 2—8 sími 15937.
Kl. 14,30 í gær tnáðist fyrir
milligöngu sáttasemjara rílkisins
Torfa Hjartiarsonar samkomulag
milli Vinnuveiíendasambands ís-
lands vegna Sementsverksmiðjunn
ar og verkalýðsfélags Akranéss, um
kaup og kjör starfsmanna verk-
smiðjunnar, Samkomulagið var
boi-ið undir fund starfsmanna verk
smiðjunnar sí'ðdegis og var sam-
þykkt. Verkfallinu sem til fram
kvæmda átti að koma kl. 24 síðast
liðna nótt hefur því verið aflýst.
Stjórn Sementsverksm0junnar
'•’ramh. á 13. sfðu.
g, 7. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ