Alþýðublaðið - 23.10.1966, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 23.10.1966, Blaðsíða 5
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. október 1966 ÓUH/Uuáí^I Ritstjórar. Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Ritstjórnar- 'fulltrúi: ÉiSur Guð'nason. Ritstjóri Sunnudagsblaðs: Kristján Bersi Ólafsson. — Símar: 14900.14903 — Auglýsingasími: 14906. Aðsetur AlþýðuhúsiS við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu- biaðsins. — Áskriftargjald kr. 95.00 — í lausasölu kr. 7.00 eintakið. Sameinuðu þjóðirnar ÞÓTT starfstími Sameinuðu þjóðanna sé ekki langur, hafa samtökin samt kom ið ótrúlega mörgu til leiðar, þótt jafn- framt sé skylt að játa, að mörg eru þau málin, sem samtökin hafa ekki megnað að finna viðunandi lausn á. Þótt stundum sé hart deilt á S.Þ. fyrir aðgerðir samtakanna eða aðgerðárleysi, eru allir sammála um, 'að án þeirra mundi hor-fa stórum verr hér í heimi, en nú gerir. Sameinuðu þjóðirnar hafa verið á- sakaðar og sætt gagnrýni fyrir það, að enn skuli barizt víða í veröldinni, og hafi samtökin því ekki náð sínu höf- uðmarkmiði; að varðveita friðinn í heiminum. En til þess að geta gegnt þessu hlutverki sínu til hlítar þurfa Sameinuðu þjóðirnar að ráða. yfir föst- um friðargæzlusveitum, sem farið gætu hvert sem er með skömmum fyrirvara og stillt til friðar. Vék Emil Jónsson utanríkisráðherra meðal annars að nauð syn slíkra sveita í ræðunni, sem hann flutti á Allsherjarþinginu íhaust. Þessari hugmynd hefur ekki verið hægt að hrinda í framkvæmd vegna andstöðu nokkurra aðildarríkjanna. Er sú afstaða furðuleg og ber vott um lítinn vilja til að efla þessi alþjóðasam- tök, sem mannkyn bindur svo miklar vonir við. Fróðir menn telja að kostn- aðurinn við tuttugu þúsund manna frið argæzlulið mundi álíka mikill og fjár- lög íslenzka ríkisins, en í heiminum eru nú tuttugu milljónir manna undir! vopnum og árlega er varið meira en fimm þúsund milljörðum íslenzkra króna til vígbúnaðar. Dagur Sameinuðu þjóðanna í ár er sérstaklega helgaður Flóttamannastofn- uninni, og verður þá fjársöfnun til liðsinnis við f lóttaf ólk, sem víða býr við illa aðbúð. Nýstofnað Flóttamannaráð hefur hér veg og vanda af þessari söfn- un og fer þess á leit, að hver einstakl- ingur leggi fram tíu krónur. Þetta er ekki há upphæð, en ef hver íslendingur leggur fram tíu krónur verður það álit- leg fiárupphæð, sem getur komið góðú til leiðar. Alþýðublaðið heitir á íslendinga að bregðast vel við málaleitan um fé til aðstoðar flóttamönnum. Vsslicswasgesi eig^ndtir! NÁIV9SKEIÐ sem veitir tilsögn í viðgerðum á smá gang- truflunum svo og almennri meðferð bíls- ins verður haldið í Ökukennslunni s.f., Vest- urgötu 3. Kynnist bílnum yðar og verið fær um að framkvæma smá viðgerðir, svo sem: skipta um kerti, platínur, viftureim, benzíndælu háspennukefli, þurrkublöð o. s. frv. Upplýsingar í símum 19896, 21772 og 34590 á kvöldin. Deildarhjúkrunarkonur óskast Deildarhjúkrunarkonur vantar í Vífilstaða'- hælið. Upplýsingar gefur forstöðukonan í síma 51855. Skrifstofa ríkisspítalanna. Emil Jónsson, utanríkisráðherra: Daaur Sameinuðu í degi Sameinuðu þjóðanna ”í ór mun tvennt vera efst í huga: í fyrsta lagi að í ár er dagurinn helgaður Flóttamanna stofnuninni. Víða um heim er fjöldi manna, sem af ýmsum ástæðum hefir þurft að yfir- gefa heimaland sitt, án þess að eiga vísan nokkurn öruggan samastað, og ón þess að eiga nokkra tekjuvon til að fram- fleyta lífinu. Iúfir fjöldi þessa fólks við hin ömurlegustu skil yrði. Flóttamannastofnun Sam- einuðu þjóðanna hefir látið mál ið mjög til sín taka, og safnað miklu fé í því skyni aö greiða götu þessa fólks, og raunar að stoðað það á ýmsan annan hátt. Er gert ráð fyrir að 24. októ ber í ár verði almennur fjársöfn unardagúr í þessu skyni. Hér á landi mun einnig verða leitað eftir fjárframlögum, og má telja víst að íslendingar muni ekki láta sitt eftir liggja til aðstoð ar þessu bágstadda fólki. Ann að, sem ofarlega er í huga þeirra manna, sem um Samein uðu þjóðirnar hugsa, er hvaða mál eru til umræðu á allsherj arþingi því 0r y:ú situr. — Málaskráin er mjög löng, mál in eitthvað nálægt eitt hundrað að tölu. Ég skal aðeins nefna nokkur: Afvopnun. Bann við dreifingu kjarnorkuvopna. Kyn þáttamismunun (apartheid). Portúgölsku nýlendurnar í Afr íku. Suður - Rhodesía, Suðvest ur Afríka o.fl. o.fl. — Það vek ur strax athygli að Vietnam- styrjöldin er ekki á dagskránni. Ástæðan fyrir því er sú, að tal ið er tilgangslaust fyrir Sam einuðu þjóðirnar að taka mólið upp á meðan afstaða styrjaldar aðilanna og þeirra er á bak við þá standa, er óbreytt. Þetta var líka skoðun U Thants, fram kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna þegar hann kom til íslands sl. sumar. Vietnammálið er eitt af þeim málum, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa, eins og stendur ekki ráðið við, og hafa bó verið gerðar bæði af þeirra hálfu og margra annarra víðtækar og ít arlegar tilraunir til að binda enda á ófriðinn. — að mál, sem mest var rætt í upphafi allsherjarþings- ins, og er sennilega enn, var Suðvestur-Afríkumálið. Suðvest ur - Afríka var þýzk nýlenda fyrir heimsstyrjöldina fyrri. Eft ir styrjöldina urðu Þjóðverjar að láta þessa nýlendu af hendi og var hún þá gerð að verndar- gæzlusvæði þjóðabandalagsins. Það fól síðan Suður-Afríku- „lýð veldinu" umsjá landsins og hef ir það haft hana á hendi síðam Suður-Afríka er hinsvegar land '„apartheid'Vstefnunnar, og er talið að þar hafi hvítir menn kúgað svarta meira en í nokkru öðru landi og haldið þeim rétt lausum um stjórn landsins og meinað þeim um frumstæðustu Emil Jónsson utanríkisráð- herra ritar meðfylgjandi grein í tilefni þess að á morg un er dagur hinna Samein- uðu þjóða. mannréttindi. Nú er því haldið fram að Suður-Afríka hafi hald ið uppi sömu stefnu á verndar gæzlusvæðinu og beitt hina svörtu íbúa landsins sem þó eru þar í algerum meirihluta sömu harðræðum, og hina þel dölcku menn í sínu eigin iandi. Við þetta vildu Afríkuríkin ekki una og. stefndu málinu fyrir al þjóðadómstólinn í Haag. Eftir að dómstóllinn hafði vísað mál inu frá, með naumum meirihluta vegna formgalla, hefir málið ver ið tekið upp 'hjá Sameinuðu þjóð unum, og þess krafizt að umboð ið verði tekið af Suður Afríku. Má telja víst að það verði sam þykkt. En þó er talinn möguleiki á því að S. Afríka hlýði ekki sam þykktinni, nema hennl verði fylgt eftir með vopnaváldi, sem ekki er líklegt að Sameinuðu þjóðirnar geti beitt, og situr þá allt við það sama. Þetta er eitt dæmi um það hversu erfitt Sameinuðu þjóðirnar eiga upp dráttar. Þær skortir vald til framkvæmda. Væntanlega lagast það ekki fyrr en þær fá yfir einhverjum hæfilegum herafla að* ráða, er getur látið málið til sín taka. En þrátt fyrir þetta hefir Sameinuðu þjóðunum tekizt að leysa fjölmarga hnúta og koma mörgu góðu til leiðar. Ef Sam einuðu þjóðunum vex fiskur um hrygg, geta þær orðið ómetan legt tæki til að setja niður deil- ur þjóða í milli, auka samvinnu á sviði menningar- og vísinda styrkja þá, sem erfiðast eiga uppdráttar og yfirleitt hjálpa öll um þjóðum til betra mannlífs.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.