Alþýðublaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 01.12.1966, Blaðsíða 13
Jólabláð ALÞÝÐUBLAÐSINS 1966 13 Þátttakendur sitja á stólum í hring (sjá mynd) Einn byrjar leikinn me'ð því að snúa pott- loki á gólfinu inni í miðjum hringnum og um leið nefnir hann nafn einhvers þeirra, er í hringnum sitja. Þá á sá að vera það fljótur á fætur og að lokinu, að hann nái handfesti á því, áður en það stöðvast. Hann nefnir nú nafn einhvers annars og snýr lokinu. Ef ein- hver verður of seinn a« ná til loksins, áður en það stöðvast, verður hann að setja pant. — Þumal- fingur tekinn af Beygðu báða þumalfinguma og leggðu þá saman eins og sýnt er á mynd I.-II. Svo skaltu fela „samskeytin'* með vfsifingri hægri handar. (Sjá III.) — Snúðu síðan höndunum að áhorf endum, færðu hægri höndina út eftir vísifingri vinstri hand ar og svo sömu leið til baka. Þetta Iftur út eins og fremsti liður vinstri þupialfingurs sé tekinn af og settur á að nýju. Fingragildran Þið fáið ykkur stífan skrif- • pappír, svo sem 15x30 sm. lang an — í hann klippið þið svo tvær langar rifur. — Síðan er blaðið vafið upp, þannig, að úr því verður sívalningur, og er byrjað að vefja upp frá þeim endanum, sem rifurnar eru á. —. Sívalningurinn á að vera þannig, að 12—13 millimetra breitt gat sé í gegn. — Síð- an er hinn endinn límdur fast- ur og látinn þorna. — Ef þið eigið nú einhvem fingrafiman kunningja, sem kemur í heim- sókn á jólunum, þá ættuð þið endilega að sýna honum töfra- bragð. Biðjið hann að stinga báðum vísifingrunum inn í göt- in á sívalningnum. — Honum mun reynast erfitt að losa fing urna nema þið hjálpið honum og mundi honum þykja það fremur ólíklegt að óreyndu. — Dansandi brúba Sterki Jói Sá, sem leikur þetta bragð, verður að vera í langerma skyrtu og jakka. Hann bindur tvo hringa eða (handföng sitt í hvorn enda á sterku bandi, snæri eða reipi. Hann dregur svo endana gegnum ermarnar á jakka sínum og ’heldur í liringana. Síðan fer hann inn í stofuna til áhorfenda og býður tveimur sterkustu strákimum að togast á við sig. — Þeir rembast svo hver sem betur getur, en fá ekkert að gert og undrast nú afl andstæðingsins. Hugdettur Þátttakendur sitja kringum borð og leikurinn byrjar með því, að einhver seg- ir: „Ég er einmitt að hugsa um. . . og bætir við einhverju orði. — Þá skal sá næsti svara: — „Já, dettur mér í hug. . ", og bætir við fyrra orðið sem nefnt var. Þannig heldur röðin áfram kringum borð- ið og sá, sem ekki getur látið sér detta nýtt orð í hug, áður en tíu sekúndur eru liðnar verður að gefa pant. — Tökum nú dæmi um þennan leik: Ég er einmitt að hugsa um epli. 2. Þá dettur mér í hug eplamauk, 3. Þá dettur mér í hug skyr. 4. Þá dettur mér í hug kaffi. 5. Þá dettur mér í hug rjómi. 6. Þá dettur mér í hug kýr. 7. Þá dettur mér í hug fjós — o. s. frv. í þennan leik má nota venju lega litla brúðu, eða þá að þið rissið teikninguna upp á þykk- an pappa eða krossviðarbút. — Aftan á brúðuna er límd eða saumuð gúmmilykkja, sem hægt er að stinga vísifingri og löngu töng liaegri handar í. Þessir tveir fingur eru fætur brúðunn- ar. — Bezt er að búa til skó á „fæturna" úr pappír og lita þá — Enda þótt svona brúður séu ætlaðar til . skemmtunar fyrir smábörn, hafa fullorðnir líka gaman af því að sjá þær leika listir sínar. Það er furðu eðlilegur dans. —

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.