Alþýðublaðið - 31.12.1966, Side 11

Alþýðublaðið - 31.12.1966, Side 11
staða Johnsons veiktist á árinu JOHNSON Bandaríkjaforseti á við sívaxandi erf- iðleika að stríða eins og David Williams, sérfræð- ingur í bandarískum stjórnmálum, bendir á í eft- irfarandi grein. ÁRIÐ sem er að líða hefur verið Johnson forseta Banda- ríkjanna erfitt, svo erfitt, að sú spuming hefur vaknað hvort hann muni gefa kost á sér til endurkjörs 1968. Nokkrar staðreyndir hafa gert það að verkum, að vafi ríkir um framtíðaráform for- setans Ein er sú, að vinsæld- ir forsetans hafa sífellt minnk að. eins og fram hefur komið í skoðanakönnunum. Önnur stað reyndin er hin slæma útreið, sem Demókrataflokkurinn hlaut í kosningunum í nóvem ber. Demókratar töpuðu fjölda þingsæta í fulltrúadeild þings ins og biðu ennþá alvarlegri ó sigra í kosningum um embætti ríkisstjóra í nokkrum mikil- vægum ríkjum. Þriðja staðreyndin er sú, að forsetanum helzt augsýnilega illa á hæfu starfsfólki í Hvíta húsinu. Þegar Bill Moyers blaðafulltrúi, sem almennt hef ur verið álitinn duglegasti að- stoðarmaður forsetans, hættir störfum í janúar hefur forset inn misst alla þá rtiörgu sam starfsmenn, sem hann réði í sfna þjónustu, þegar hann flutt ist í Hvíta húsið fyrir rumum þremur árum. Á fundi, sem nokkrir ríkis- stjórar demókrata héldu með sér skömmu fyrir jól, veitt- ust þeir harkalega að John- son forseta. Margir þeirra töldu hamr persónulega ábyrg- an fyrir sigri repúblikana í nóy emberkosningunum — þrátt fyrir þá staðreynd að sigur repúblikana byggðist á mjög eðlilegri sveiflu, sem oftast gerir vart við sig í kosningum, sem fram fara þegar ekki ef kosið um forsetann, og allir gerðu fyrirfram ráð fyrir vegna hins óeðlilega mikla fylg ishruns repúblikana í forseta- kosningunum 1964, en þetta fvlgishrun stafaði af þeirri firru repúblikana að velja T,'>rry Goldwater þáverandi öldungardeildarþingmann, for- setaefni sitt. GAGNRÝNI RÍKISSTJÓRNANNA Samt sem áður hitti gagn- rýni ríkisstjórnanna að nokkru leyti í mark — ekki sízt þær ásakanir þeirra í garð forset ans, sem einnig er leiðtogi flokksins, að hann hafi að engu haft skoðanir landsstjói'n ar flokksins og starfsmanna liennar og stungið tillögum þeirra undir stól. Margir fram bjóðendur demókrata, sem biðu ósigur í kosningunum, hafa látið í ljós mikla beiskju vegna skorts landsstjómar flokksins á vilja eða getu til að aðstoða þá. Það er staðreynd, að John son forseti hefur öðiazt litla reynslu, sem hefði getað gert honum kleift að gera sér grein fyrir því, hvernig haga þarf og verður kosningabaráttu flokks í alríkiskosningum. Sú reynsla, sem hann hefur öðlazt í stjóm málum, hefur aðallega verið fólgin í því að tryggja sér sam vinnu áhrifamikilla öldunga- deildarmanna og þingmanna í fulltrúadeildinni eftir að þeir hafa náð kosningu, fá þá til liðs við sig í vissu máli gegn loforði í öðmm málum. Á þessu sviði hefur hann verið sannkallaður meistari. En hann hefur ekki nærri því eins gott vald á þeirri skipulagningu og tækni, sem beita verður til þess að ná til hinna mörgu milljóna Bandaríkjamanna, sem greiða atkvæði í alríkiskosningum, og hafa áhrif á þá. Á þessu sviði getur forsetinn áreiðanlega lært margt af ríkisstjómm demókrata, sem nú veitast að honum. Goldwater — Var sigur Johnsons í síðustu forse ikosningum fremur sprottinn af andúð á stefnu hans en sambúð kjósenda með stefnu forsetans? * jjl ^ ( OF MIKIÐ KAPP LAGT Á UMRÆÐUR. Önnur hlið gagnrýninnar snýr að félagsmálafrumvörpum forsetans, sem koma eiga á hinu svokallaða , Mikla sam- félagi“ Að langmestu leyti er hér um að ræðá frumvörp, sem eru sjálfsögð og hljóta hefðu átt staðfestingu fyrir löngu, en samt áður komust margir kjósendur á þá skoðun, að of mörg frumvörp væru lögð fram í einu, að þau væru slæ lega undirbúin og illa sam- ræmd og umfram allt að þau mundu hafa alltof mikil út- gjöld í för með sér. Margir frambjóðendur dem- ókrata í kosningunum urðu þess áþreifanlega varir, að hinn stöðugi straumur laga- frumvarpa, sem Johnson hefur sent þinginu og þreytist aldrei á að státa af, vakti fremur ugg en ánægju meðal kjósenda. Að einhverju leyti kann á- stæðan fyrir því, að kjósend- um virðist hafa þótt lítið til umbótanna koma, vera hátt- ur sá, sem hefur verið á til þess að fá frumvörpin sam- þykkt. Þar sem fjölmargir rep úblikanar og aðrir íhaldsmenn greiddu fyrst og fremst at- kvæði gegn Goldwater. frem ur en með Johnson, í forseta- kosningunum 1964, varð hið nýkjörna þing talsvert fram- farasinnaðra, umbótasinnaðra, en kjósendur voru yfirleitt. Forsetinn notaði til fullnustu hinn gífurlega mikla meiri hluta, sem hann hafði á þingi til þess að knýja í gegn stefnu sína um „Hið mikla þjóðfé- lag“. En samtímis þessu tókst honum ekki að vinna stuðning þjóðarinnar við stefnuskrána. Hann virtist hafa aflað sér stuðnings þjóðarinnar við um- bætur sinar í kosningunum 1964, en í raun réttri voru úr- slitin ekki traustsyfirlýsing við „Hið mikla þjóðfélag". Forsetanum virðist hafa orð ið á í messunni að ganga að því sem vísu að yfirgnæfandi meirihluti kjósenda hefði lýst yfir eindregnum stuðn- ingi við hann og stefnu hans. í raun og veru voru úr.slitin langtum fremur vantraust á Goldwater Stefnan, sem á að leiða til „Hins mikla þjóðfélags", er tví mælalaust góð stefna, og for- setinn hefur ennþá tvö ár til umráða til að sannfæra kjós endur um þetta. Að þeim tíma liðnum kunna kjósendur að sannfærast urn, að svo sé, af eigin reynslu." Johnson hefur orðið fyrir miklu áfalli, en ef hann dregur lærdóm af því, ætti hann auðveldlega að geta endurheimt stuðning meiri- hluta kjósenda líkt og sumum fyrirrennurum hans hefur tek izt eftir álíka alvarleg áföll. 31. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.