Austanfari


Austanfari - 15.07.1922, Blaðsíða 3

Austanfari - 15.07.1922, Blaðsíða 3
4. tbl. AUSTANFARÍ 3 „AUSTANFARI “ kemur út vikulega. Verð 5 kr. ár- gangurinn, ef borgað er í haust- kauptíð í haust, annars 6 kr. — Afgreiðslu og innheimtu annast Guðm. G. Hagalín Sími 54 Góðar teg. af úrum og klukkum. Guðm. W. Kristjánsson úrsmiður, Seyðisfirði. Brennimark. Brennimark mitt hið rétta er Berg, en eigi Bers, eins og stendur í nýjustu markaskrá Múlasýslna og Seyðisfjarðarkaupstaðar. Bergsveinn Eiríksson Ekru, Hjaltastaðaþinghá. Fataefni, Dragta- og Kjóla-tau, smekkleg, fjöl- breytt og ódýr í v e r z 1 u n HalldóriJónssonE Silfurmunir ýmiskonar s. s. Brjóstnælur, Belt- ispör, Millur, Svuntupör, Skúfhólk- ar, Sjalprjónar, Skyrtuhnappar, Tóbaksdósir og fleira fæst hjá Herm. Þorsteinssyni. Kaffihusið Skálanes er til sölu. Semja má við St. Th. Jónsson. Mótorbátur til sölu til sölu í Klagsvík í Færeyjum. — Stærð: 24 tonn. Gengur 7 mílur. ■<— Upplýsingar gefur Hermann Þorsteinsson, Evangershúsi. — M á I (Zinkhvíta) og f e r n i s o 1 í a fæst lang bezt og ódýrust hjá Herm. Þorsteinssyni. S k o n r o k er betra, heilnæmara og ódýrara en útlent kex. Fæst ætíð nýbakað hjá Sveini Árnasyni. Með síðustu skipum fengu Hf. Hinar sameln. fsl. verslanir Seyðisfirði mjög fjölbreytta álnavöru, svo sem allskonar kjóla- og svuntu- dúka, mjög ódýrt cheviot, dömuklæði, enskt vaðmál, stúfa- sirts og tvistdúka, margar tegundir, hvít léreft, karlmanna- fataefni, allskonar nærfatnað, karia og kvenna. Gúmmístígvél þau, er bezt þykja, gúmmístígvél handa börnum og skóhlíf- ar af öllum stærðum. Herrahattar og húfur, hanzkar, hnapp- ar og nálar, prjónar hárnet, slör. Blúndur, lissur, leggingar, slímur og margt fleira. Sultaðir ávextir; niðursoðnar vörur. Nýlenduvörur allskonar. — Margar tegundir af ostum. — Allskonar leir- og gler-varning.-Salt og kol. Hitt og þetta. Nýjar erlendar fréttir engar markverð- ar að þessu sinni. Látinn er Jón bóndi Stefánsson á Hreiðarsstöðum í Fellahreppi. Lést hann aðfaranótt mánudags, eftir 8 daga legu í lungnabólgu. Jón var maður nokkuð við aldur, Þingeyingur að ætt, gáfaður mað- ur og athugull, einkennilegur og ekki hversdagsmaður. Hugsaði hann jafnan mikið um stjómmál og var í kjöri við síðustu alþing- iskosningar í Norður-Múlasýslu. Er vonandi að eftir hann mæli einhver sá, er ber á hann góð kensl. Manntalsþing var hér fimtudag í fyrri viku. Fór bæjarfógeti þar hörðum orð- um um drápuvarga þá, er eigi sintu lögum eða landsrétti, en skytu alt sem fyrir yrði fuglakyns, hvort sem friðað væri eða ekki. Kvað hann mjög hafa verið kvart- að undan ágangi slíkra manna — og mundi hann gera sitt til að sökudólgar slíkir fengju eigi óá- reittir að brjóta landslög og traðka á rétti og hlunnindum friðsamra búenda. — í þingaferðir fer bæj- arfógeti í dag. Stórsíld er nú gengin hér í fjörðinn og liafa menn veitt töluvert af henni í drifnet. Á Suðurfjörðunum veið- ist hún einnig. Kvcedi það, er birtist nú hér í blaðinu, er eftir 15 ára telpu, sem alt af liggur að niestu leyti í rúminu og getur aldrei á heilli sér tekið. Má segja að kvæðið sé vel gert og fallega. Er telpan dóttir Hjálmars • veitingamanns Guðjónssonar hér á Seyðisfirði. Heytir hún Eva. Augnlœknirinn verður með skipi fjórðu strand- erðar til Akureyrar, dvelur þar vikutíma, og þaðan landveg tii Reykjavíkur. — Það, sent stóð í síðasta blaði um ferðir Fjeldsteds, er því villandi. Því miður er hans ekki von hingað í sumar, sem niargir höfðu þó búist við. Haraldur Nielson, prófessor, kemur með „Sirius“ og heldnr hér fyrirlestra með skuggamyndum. Gefin voru saman í hjónaband hér í bænum síðastliðinn sunnudag Sveinbjörg Jónsdóttir frá Austdal og Andrés Rasmussen. Landskjörid. Víða mun landskjörskosningin hafa verið allvel sótt, jafnvel í sveitum. Mun sumstaðar hafa kos- ið um 70% allra kosningarbærra karla og kvenna. Alþingismenn Norður-Múlasýslu héldu þing- málafund 9. þ. m. á Fossvöllum. kom þeim ’eigi saman um gæði og gildi „Tíma“-klíkunnar, og kvað Björn sig eigi geta fylt flokk hennar, sakir reykvíkskra áhrifa vissra manna á flokkinn. Láir það víst enginn Birni. En Þorsteinn vildi verja sína húsbændur, er höfðu krossað hann framan og aftan. Mun vörn sú að sögn hafa tekist ófimlega. Var helzta mál Þorsteins „Siglufjarðarhneykslið“, sem „Tíminn“ hefur stagast á und- anförnu, öllum sæmilega heiþvirð- um mönnum og góðum drengj- um til hinnar mestu skapraunar. Heyrst hefur, að margt hafi Akur- eyrarþingmaður Norðmýlinga sagt skrítið við menn bæja á milli — og hefur ritstjóri blaðs þessa feng- ið lítisháttar sýnishorn af fram- burði hans og sögusögnum um það, er eigi er á allra vitorði út um sveitir landsins. Sver það sig í ættina til húsbændanna.-------- Björn á Rangá er nú formaður stjórnar Kaupfélags Héraðsbúa. Pétur Jónsson, Steingrímur Jóns- son, Björn á Rangá — alt góðir kaupfélagsmenn, alt andstæðingar „Tímans" og tveir hinir fyrstu af honum ofsóktir og annar ofan í gröfina, einhver merkasti stofn og Alúðar þakklæti fyrir auð- sýnda vináttu á silfurbrúð- kaupsdegi okkar 9. þ. m. — Seyðisfirði 12. júlí 1922. Ólavía og Ágúst Blöndal. Sundmaga kaupir hæsta verði Herm. Þorsteinsson Husið HÁTÚN í Seyðisfjarðarhreppi er til sölu, ásamt hlöðu og fjósi. Húsið er 10x5 ál., baðst. bygging. Skúr- bygging af sömu stærð. Tún, hálfræktað, fylgir á leigu, gaf af sér á síðastl. sumar 18 hesta af töðu. Semjið við Guðm. Bekk íshúsvörð Bezta ÖUÐ er Ny Pilsner og Porter (frá Carlsbergs Bryggerier) fæst að eins á kaffihúsinu Skálanesi. stuðningsmaður kaupfélagshreyf- ingarinnar á landi hér. Ritstjóri blaðs þessa fór í fyrradag upp í Hérað, áleiðis suður um Firði. Ætlar hann að kynna sér þar landsháttu og horfur til sveitar og sjávar og skrifa um, hversu hon- um lízt. Verður hann samferða Sveini Árnasyni, yfirfiskimats- manni, er mun á eftirlitsferð. Verzlun vor 1919. Verzlunarvelta vor íslendinga var árið 1919: 137,6 milliónir. Aðflutt fyrir 62,6 milliónir og út- flutt fyrir 75. Útflutt var því fram yfir aðflutt 12,4 milliónir. Til sam- anburðar er hér yfirlit yfir aðflutt- ar og útfluttar vörur síðan 1913, árið fyrir stríðið: Aðfl. Útfl. Samt. milli. milli. milli. 1913 16,7 19,1 35,8 1914 18,1 20,8 38,9 1915 26,3 39,6 65,9 1916 39,2 40,1 79,3 1917 43,5 29,7 73,2 1918 41,0 36,9 77,9 1919 62,6 75,0 137,6 Vidskiftamenn frá fjalli tii fjöru, munið að lesa auglýsingarnar í „Austanfara". Auglýsingarnar sýna ykkur hvert þið eigið að fara til að finna það, sem ykkur vantar. Þær geta spar- að ykkur mörg óþarfa spor. Mun- ið að tíminn er peningar, ekki sízt nú í vorönnunum. Látið því þá njóta viðskifta yðar, sem sýna yður mesta nærgætni og auglýsa mest!

x

Austanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austanfari
https://timarit.is/publication/242

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.