Austanfari - 11.11.1922, Page 1
/
l
RITSTJÓRI OG EIGANDI: GUÐM. G. HAGALfN
21. tbl.
Seyölsfiröl, 11. nóvember 1922
1. árg.
Verzlunarolagið
eftir BJörn Kristjánsson fyrrum bankastjóra.
(Birt með leyfi höfundarins.)
Frh.
Þetta er nú ábyrgðin, sem fé-
lagsmenn taka venjulega upp á
sig fyrir sitt eigið félag, en svo
bætist ofan á samskonar ábyrgð
fyrir öllu, sem Sambandið skuldar
og stendur í ábyrgð fyrir, eins
og áður er sagt.
Ábyrgðirnar gefa allir í góðri
trú, og fiestir án þess að vita um
hvað slík ábyrgð hefur að þýða,
sem á þá legst, þegar hún er
svona orðuð og svona víðtæk.
Það er ekki lítil siðferðisleg á-
byrgð, sem hvílir á þeim, sem
hafa slíka ábyrgð almennings
upp á vasann, bæði gagnvart lán-
stofnunum, og þá ekki síður gagn-
vart þeim, sem láta ábyrgðina
í té.
Með svona lagaðri ábyrgð af-
salar ábyrgðarmaðurinn sér öllu
sjálfstæði og fjárhagslegu frelsi,
ef til vill fyrir lífstíð. Og ekki
verður aðstaða erfingjanna glæsi-
legri. Þeir eiga það alveg undir
Sambandinu, hvort þeir yfir höfuð
nokkurntíma geta skift eftirlátn-
um munum, ef Sambandið stend-
ur áfram í stórskuld.
Viðskiftin í landinu verða með
þessu móti svo óviss, að enginn
getur gert annars bón, án fjár-
hagslegiar áhættu. Og bankarnir
og sparisjóðir. Hvernig eru þeir
settir? Ef þeir líta á ástandið
sem fjármálamenn, þá virðast
þeir heldur ekki geta gert nokk-
urs manns bón, því þeir geta bú-
ist við, að sá sem láns beiðist, sé
yfirhlaðinn ábyrgðum annarsstað-
ar, sem hann aldrei losnar við.
Regla í bönkum er, að halda svo-
nefndar „Obligobækur," þ. e. skrá
yfir skuldir og ábyrgðir hvers
manns/ sem viðskifti hefur við
bankann; er þeim flett upp í
hvert skifti, sem einhver biður
um lán, án fullrar veðtryggingar,
til þess að sjá, hvort eigi er svo
mikið á hann hlaðið af skuidum
og ábyrgðum, að honum sé ekki
lánandi. Þessar bækur missa
mjög þýðingu sína í bönkunum,
eins og nú er komið, nema þeír
haldi líka „Obligobækur" yfir alla,
sem eru í kaupfélögunum, er sé
einnig höfð til hliðsjónar, er veita
á lán út á persónulega tryggingu.
Þannig mundu erlendir fjármála-
menn líta á, og hver gætinn og
reglusamur banki og sparisjóður.
Ef eigi er þannig farið að, missa
bankar og sparisjóðir hið óhjá-
kvæmilega öryggi.
Þessu ástandi þarf að breyta.
Það þolir enga bið. Annars er
líka lánstraust landsins og bank-
anna í útlöndum sett í hættu.
Menn geta auðvitað sagt, að
hér standi skuldbindingar kaup-
félaganna að baki, en mjög munu
menn líta misjafnlega á, hversu
mikils virði þær eru.
Endurskoðunin.
• í mörgum greinum er oss ótamt
að eiga við verzlnar- og peninga-
mál, en í engu eins og endur-
skoðun reikninga, og þó sérstak-
lega stórreksturs fyrirlækja. Vér
erum ekki komnir lengra en að
töluskoðun, En eins og auðvitað
er, er það ekkert aðalatriði, að
uppgötva hvort starfsmaður fyrir-
tækis hefur reiknað skakt um
fimm eða tíu aura á þessum eða
hinum staðnum, þó sú endur-
skoðun sé nauðsynlegt aðhald
fyrir starfsemina, enda. getur það
fyrir komið, að reikningsskekkja
sé gerð í sviksamlegum til-
gangi. Aðalþýðinguna fær endur-
skoðunin, er hún nær einn-
ig til fullkominnar endurskoð-
unar, ekki einungis á tölum, held-
ur á stjórn og rekstri fyrirtækís-
ins (krítisk endurskoðun)
Eigi erum vér komnir svo
svo langt í þessu efni, að vér
höfum slíka endurskoðun t. d.
við bankana hér. Þar er aðeins
tó'/w-endurskoðun ennþá. Og því
hefur farið sem farið hefur fyrir
bönkunum í seinni tíð. Og þessi
töluendurskoðun hefur verið skoð-
uð bitlingaverk, menn venjulegast
valdir til þess, aöeins með það
fyrir augum, að styðja þá fjár-
hagslega.
Fyrsta skilyrðið fyrir góðri og
ábyggilegri endurskoðun er, að
endurskoðendurnir kunni vel þann
rekstur, sem þéir eru að endur-
skoða, og að þeir geti komið
fram sem menn, er valdiö hafa
þannig, að þeir með afskiftum
sínum veiti stjórn fyrirtækisins að-
hald. Þetta brestur oss gersam-
lega. Ef t. d. bankarnir hefðu
haft slíka endurskoðun frá upp-
hafi, þá mundu hin vafasömu lán
þeirra síðustu árin hafa verið að
mun takmarkaðri, og hagur bank-
anna beggja betri.
Nú geri eg ráð fyrir, að alveg
eins standi á með Sambandið.
þar munu vera sömu t ö 1 u-endur-
skoðendurnir, sem láta sig litlu
skifta hvernig fyrirtækið er rekið
þó að lög um Samvinnufélög
geri ráð fyrir öðru. En við slíka
miljónastofnun þyrftu að vera al-
veg óháðir, vel verzlunarfróðir
endurskoöendur, með fullri kunn-
áttu, sem endurskoðuðu daglega
öll skjöl og bækur, og alla fram-
kvæmd stjórnarinnar, þar 'með
talin öll bréf og símskeyti, sem
kæmu og færu. Ög þeir ættu að
gefa aðalfundi skýrslu um rekst-
urinn umliðið ár. Á annan hátt
er endurskoðunin ekki fulltrygg
að því er reksturinn heima fyrir
snertir. En endurskoðunarinnar
er ekki síður þörf hjá þeim, sem
eru einhversstaðar úti í heimi
og annast sölu innlendu vörunnar
og kaupin á útlendum vörum.
Qagnvart þeim eru félögin alveg
berskjölduð, ef starfsemi þeirra
er ekki hægt að rannsaka, því
enginn getur heldur sagt um í
hvaða félagsskap þeirlenda. Og þá
má telja alvalda um gerðir sínar, ef
þeir eru án eftirlits, þar á staðnum
sem sem þeir eru.
Til þess mun vera ætlast, að
hinir svonefndu fulltrúafundir fé-
lagsins veiti nokkra eftirlitstrygg-
ingu i þessu efni, innanlands. En
svo getur tæplega veriö, þó að
fulltrúarnir séu góðir og greindir
menn, kunni vel að endurskoða
sveitarreikninga, og sparisjóðs-
reikninga, þar sem öll plögg liggja
fyrir, þá eru þeir þó alveg óæfðir
í því að endurskoða, svo að nokk-
urt verulegt gagn sé að, risareikn-
ing Sambandsins.
Sem þingnefndarmaður átti eg
kost á í vetur að athuga reikn-
ínga Landsverzlunarinnar með
öðrum þingmanni, og höfðum við
mjög nauman tíma til þess. Okk-
ur furðaði á því, að reikningur
Landsverzlunarinnar taldi um 848
þúsund krónur i sjóði, þar sem
bankarnir voru þó alveg við hlið
hennar. En brátt fundum vlð
hvar í þetta lá. Landsverzlunin
hafði sem sé gengið inn á, að
kvitta nokkur kaupfélög og aðra,
þar á meðal Sambandið, fyrir
um 836 þúsund kr., 31 des. 1921
án þess að upphæðirnar væru
borgaðar. Raunverulega var ekki
í sjóði nema rúmar 11 þús. kr.
Af þessum 836 þús. kr. var Sam-
Gömul, góð
fiðla
er til sölu.
Ritstjóri v. á.
bandið kvittað fyrir réttum 200
þús. 31. des, í höfuðbókinni, sem
það ekki borgaði fyr en í janúar-
lok 1922, samkvæmt kassabókinni.
Sambandið hefur nú hlotiö að fá
reikning frá landsverzluninni, sem
sýndi 200,000 kr. minni skuld, en
það skuldaði í raun og veru um
nýjár.
Nú er spurningin. Hvernig
gerði nú Sambandið sinn ársreikn-
ing upp? Bygði það reikning
sinn, að því er Landsverzlunina
snerti, á reikningi hennar? Ef
svo hefur verið, þá hefir Sam-
bandsreikningurinn sýnt 200,000
kr. minni skuldir en vera bar, og
þá um leið 200,000 kr. meiri eign
En hafi Sambandið ekki bygt á
þessum reikningi, þá hefur hann
verið skoðaður sem hver önnur
markleysa. Og hvað var þá
skuld Sambandsins talin 31 des.
1921 á reikningi þess? Er hún
talin 990,000 kr. eða um 790.
000 kr?
Ómögulegt er fyrir fulltrúana
að átta sig á öðru eins, en nú
fá þeir tækifærið til að athuga
þetta dæmi, Og hvernig hefur
svo mismunurinn 636 þús. kr.
verið talinn í reikningum þeirra,
er þá upphæð skulduðu?
Nokkur orð um
Massage.
Massage eru lækningatilraunir
nefndar, þar sem notuð eru
ákveðin handtök: strokur (Effeur-
age), högg — ádrepa (Tapote-
oment), elting (Petrissage), gnudd
(Frietio), hristingar (Vibratío), til
þess að hafa bein áhrif á ytri
hluta líkamans, og óbeinlínis á
alla innri hluta hans (innýflin).
Massage er æfagömul aðferð
til þess að lina þjáningar og sárs-
auka manna. Frá alda öðli hafa
menn t. d. ósjálfrátt strokið kné
sitt er þeir hafa fallið á það og
kent sársauka. En eftir því sem