Austanfari - 25.08.1923, Page 1

Austanfari - 25.08.1923, Page 1
AUSTANFARI V RIT5TJÖRI OG EIGANDI: GUOM. G. HAGALfN 9. tbl. Seyöisfiröi, 25. ágúst 1923 2. árg. Stjórnmálaólagið. Ástandið nú. Oftlega hefur áður verið á það minst liér í blaðinu, hver fjar- stæða væri flokkaskiftingin nú í landinu. Jafnaðarmenn eru sá flokkurinn, sem stefnir að því pólitiska marki, er ætti að nægja til þess að mynda flokk, en þó er jafnaðarmannaflokkurinn í landi hér hálfvegis viðrini, þar sem engar línur eru þar dregnar á milli Bolsivikka og hægfara jafn- aðarmanna, þeirra flokka, sem í öðrum löndum vilja ekkert gott saman eiga. Þá er Framsóknar- flokkurinn svonefndi, þar sem eru menn, sem ekkert tengir saman annað en verzlunarmálin, eða réttara einskonar ímynduð verzl- unarhætta, sem hefur vakið hjá mörinum furðulegt ofstæki. Því að eins ná verzlunarmálin til stjórn- málanna, að þar sé um að ræða, að löggjafarvaldið eigi að grípa inn í, þ. e. einhver flokkur setj-i sér að fá verzlunarlög-gjöfinni breytt í grundvallaratriðum sínum. En grundvöllur verzlunarlöggjafar vorrar er frjáls samkepni. Og blað Framsóknarflokksins hefur einmitt nú í sumar lýst því yfir með feitu Jetrí, að það vilji frjálsa verzlun, framar öllu öðru frjálsa verzlun. En frjáls er eigi verzlunin, nema lögin geri öllum þeim er kaup- sýslu reka jafn hátt undir höfDi. Og því að eins sést það, hvaða v ..zlunarfyrirkomulag er heppileg- ast, að hvortveggju aðilar, kaup- menn og kaupfélög, hafi jafna að- stöðu. Og á hverju byggist þá samvinnuflokkurinn? Spyr sá er eigi veit. En hitt vita allir, að einungis um það mál gat flokk- urinn staðið saman á síðasta þingi. í öllum öðrum stórmálum var hann klofinn í svo að segja jafn marga hluti og þingmenn voru margir í honum. Og hvar er þá hinn heilbrigði grundvöllur hans — og hvar tilverurétturinn ? En nú skal sýnt enn þá glöggar fram á það, hversu háttvirtir kjós- endur og þingmenn hafa verið skynviltir af heldur en ekki ófyr- irleitnum leiðtogum. Flokkaskifting í öðrum löndum og hér. í öðrum löndum er tíðust sú flokkaskifting, að aðalflokkarnir eru þrír. Eru þar fyrst jafnaðar- menn, er hafa sérstöðu, þá frjáls- lyndir menn og loks íhaldsmenn, hverjum nöfnum sem svo flokkar þessir nefnast. Raunar eru í sum- um löndum bændaflokkar, en þar sem siíkir stéttaflokkar hafa magn- ast, hefur sprottið af óheilbrigður reipdráttur, hatursfullar ofsóknir og jafnvel blóðsúthellingar og bylt- ingar. Er þar seinasta dæmið hin- ar blóðugu byitingar í Búlgaríu. Nú er rétt að athuga, hversu nærri fer þessari flokkaskiftingu hér í landi. Er þá fyrst að athuga hversu þessu er farið í þinginu. Nýiega hefur „Alþýðublaðið" lát- ið það í Ijós, að það telji „Fram- sóknarflokkinn“ hinn magnaðasta afturhaldsflokk, nema Jónas frá Hriflu og einhverja aðra. Vita það og allir, að í flokknum eru blátt áfram Bolsivikkar, eins og Jónas frá Hriflu, sem er á yztu rönd byltingamanna í sumum tillögum sínum, en þrælslega harðýðgisleg- ur og ómannúðlegur í öðrum. Má þar nefna frumvarpið um bann- lagabrotin. Hefur hann því öll einkenni Bolsivikka: ófyrirleitni og fyrirhyggjuleysi annarsvegar, en harðstjórnaranda og síngirni hinsvegar. Þá má nefna frjálslynda menn eins og Þorleif í Hólum, afturhaldsseggi eins og Svein í Firði, íhaldsmenn eins og Einar á Eyrarlandi, ófyrirleitna braskara eins og Gunnar á Selalæk. Sjá því allir hve heilbrigð er sam- kundan. Þá er að athuga andstöðumenn- ina. Má þar nefna frjálslynda menn eins og Bjarna frá Vogi, Benedikt Sveinsson.JakobMöller.MagnúsPét- ursson, Sig. Eggerz o. fl. íhaldsmenn eins og Magnús Guðmundsson og hans nánustu skoðanabræður, og afturhaldsmenn eins og Sigurð Stefánsson í Vigur. Og nú er rétt- ast fyrir hvern þann, er vill athuga þetta mál, að líta umhverfis sig í sveit sinni og vita hvort hann finnur þaí eigi sömu andstæðurn- ar f fylgjendum og andstæðingum „Tímaklíkunnar“. Nú munu menn segjð, að jafn undarlegt sé það, að þeir, sem séu á móti „Tímaklíkunni“ séu eigi síður sundurleitir en fylgjend- ur hennar. En það er eigi undar- legt. Það er af eðlilegum ástæð- um. Engan þeirra manna hefur tekist að blinda, engan þeirra hefur tekist að fá til. að „gaa paa Akkord med Uretten“ þ. e. aðhyll- ast óheilbrigða stjórnmáiastefnu af ótta við, að illa vegnaði félags- skap, er vissir mann hafa leitt út á glapstigu. Andstæðingar „Tíma- klíkunnar" ganga þess eigi duldir, að ef flokkaskifting væri heilbrigð, þá ættu þeir ekki samleið. En ein mitt það sameinar þá, að þeir vilja ganga milli bols og höfuðs á óheilbrigðri stefnu í stjórnmálum. svo að heilbrigðir flokkar geti risið upp og menn notið sín í starfsemi fyrir þjóðfélagið. En meðan svo er háttað sem nú, geta engir borið ábyrgð á því sem fram fer, engin heilbrigð framsókn náð yfirtökum, ekkert heilbrigt íhald orðið í meiri hluta. Enginn heilagur áhugi kemst að, ekkert sem sameinar um málefni en ekki menn. Og meðan svo er, að baráttan stendur um menn en eigi málefni, veröur stjórnmála- lífið siðspillandi forarfen, er breið- ir úlfúð og undirhyggju út manna á meðal, lamar siðferðisþrekið og alla heilbrigða viðleitni til vegs og gengis þjóðinni. Vel má vera, að eigi sjái þeir þetta, en sú mun koma tíð, að með ömurleika og gremju mun þjóðin líta til þeirra manna er leitt hafa hana út í slíka ófæru. Símfréttir. Erlent: írland: Uppreisnarmaðurinn írski, de Val- era, hefur verið handsamaður og sit- ur nú í ríkisfangelsinu í Dublin og bíður dóms fyrir landráö. Þýzkaland: Stresemann's-stjórnin í Þýskalandi talin völt í sessi. íhaldsmenn ein- dregið móti henni. Mest ber þó á andstöðunni í Bayern. Iðnaður Þýzka- lands talinn í voða staddur, sökum kolaverös. Vinnuteppa fer stöðugt vaxandi. /talir draga saman herlið og er álitið að þeir muni ætla að nota það tíf árásar gegn Serbum. Marokko : Uppreisnin í Marokko magnast. Ákaíar orustur síðustu daga og hafa uppreisnarmenn haft betur. Spánverj- ar hörfa undan hvarvetna með feikna mannfalli. Bandaríkin: Hinn nýi forseti Bandaríkjanna heitir Coolidge. Hefur hann tilkynt að stjórnarstefna Bandaríkjanna haldist óbreytt, að því er snerfir Evrópumálin. Grikkland: Stjórnin í Aþenu hefur rofið verk- mannafélögin. En leiötogar verkmanna hafa svaraö með því, að hefja als- herjarverkfall yfir alt Grikkland. Óeyrðir gífurlegar og búist viö Stjórn- arbyltingu. Danmörk: Alþjóðaþing bindindismanna kom saman í Kaupmannahöfn 22. þ. m. Innlent: Atvinnumálaráðherra sigldi, að sögn í þeim erindum, að semja viö Norðmenn um lækkun kjöttollsins. Fyrri Iaugardagsnótt brann í Birt- ingaholti í Árnessýslu fjós, haughús, hlaða og skemma. 8 nautgripir brunnu inni, nokkuö af heyi og' ýmsir munir í skemmunni. Orsök álitin vera sú, að aska var borin í flórinn, og neisti hafi komist í einn básinn og þannig kviknað í. Bóndinn þar, Ágúst Helgason, bíður stórtjón af brunanum. Samningatilraunir milli nefnda út- gerðamanna og verkamanna hafa reynst árangurslausar, og er þeim hætt. Togararnir liggja bundnir viö hafnargarðinn. Strandvarnarskipið „Þór“ kom í gærmorgun inn til Akureyrar meö norskt síldveiðaskip, sem hann tók að veiðum við Rauðanúp. Var skipið dæmt í 300 kr. sekt og veiðarfæri upptæk. Annað síldveiðaskip kom strandvarnarbáturinn „Þórður kakali" ineð í fyrradag til Siglufjarðar og hafði það fengið sama dóm. / Á Eyjafirði og Siglufirði eru komn- ar á land um 240 þús. tunnur síldar. Þar af um 180 þús. saltaðar og í krydd, og um 60 þús. til bræðslu. Úr sveitarbréfi. Ekki linnir ennþá rógsins eiturnagi lygum Tryggur langur Tími loddara „Spurna“ einkasími.

x

Austanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austanfari
https://timarit.is/publication/242

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.