Skjöldur - 24.11.1923, Síða 2
S K JfO L D U R
Veíðarfæri
það margborgar sig áður en þið festið kaup á veiðarfærum
annarstaðar að athuga verð og gæði þessara vörutegunda í verslun
undirritaðs. — T. d. kostar þúsundið af hinum alþektu
ióðarönglum 7 kr. 25 a. 4 pd. línan 9 kr. 50 a,
„ÍTotfærið ykkur þessi ágætis kaup í verslun
Með s. s. Gullfoss
kom mikið af alsk karlmannavörum, svo sem : Nærfatnaði —
Manchetskyrtum — Bindum — Siaufum — Flibbum
Hnöppum — Axlaböndum Ermaböndum Khaki-
skyrtum — Nankinsfatnaði — Enskum húfum — Peys-
um — Treflam — O. fl. o. fl.
Smekklgar vörur
Ödýrar vörur
Brauðsöíubúðunum
verður lokað lyrst um sinn kl* 9
h.f. Fjelagsbakaríið Magnús Bergsson
U L L
lta\ipu \jexsluw &. 3.
hæsta verði
eftir svo vitlausri gjaldskrá. En
aHeiðingarnar af þessu, að föstu
launin hækkuðu en taxtinn tækk-
aði í hlutfalli við verð peninga,
hafa orðið þær, að ýmsir gamiir
læknar, sem ætluðu að fara að
segja af sjer, sitja enn t embætt-
um og fá hæstu laun, þótt þeir
sjeu ekki vinnufærir, en aðrir,
sem óprúttnir eru, hliðra sjer
hjá læknisverkum, af því að þeir
geta alt að þvi lifað á föstu
laununum.
Jeg skrifaði um gallana á þessu
fyrirkomulagi í Læknablaðið fyrir
2 árum og sýndi fram á, að sú
leiðin, sem er affarasælust fyrir
landslýðinn og mest bætandi
fyrir læknastjettina, er það, að
hafa föstu launin ekki mjög há,
en borga læknunum aðallega fyr-
ir þá vinnu, sem þeir láta í tje,
með öðrum orðum ákveðið fyr-
ir hvert einstakt læknisverk. Til
þess að þetta komi ekki of hart
niður á fátæklingum, þá á aó
skylda þá til að vera i sjákra-
samlögum, styrktum ríflega af
rikisfje, og taxtinn. sem sjúkra-
samlagið borgar læknunum eftir,
á að vera mun lægri en sá taxti
sem efnamenn gjalda eftir. þetta
er holl og hagkvæm jafnaðar-
stefna í þess orðs besta skiln-
ingi, en ekki ójafnaðarúlfur í
jafnaðarsauðargæru, eins og
kredduföst sameignarstefna ávalt
er. Jeg vona. alþýðumenn á ís-
landi verði fúsari til að fylgja
þessari og annari álíka jafnaðar-
mensku, sem lagar sig eftir eðli
mannanna og innlendum stað-
háttum, heldur en innfluttu út-
lendu kreddukenningunum, sem
reynt er til að telja þeim trú um
að allir alþýðumenn eigi að trúa
og fylgja og pólitískir skottulækn-
ar í Reykjavík og vikadrengir
þeirra úti um land reyna til að
mata þá á. þeir menn reyna að
fá alþýðuna til að kyngja öfga-
kenningum sínum á þann sama
hátt og hafður er við krakka,
sem eru óþekkirað borða. Börn-
unum er lofað, að þau skuli fá
sykurmola eða önnur fríðindi, ef
þau klári úr grautarskálinni, en
alþýðumönnunum er lofað átta
stunda vinnudegi og öllum öðr-
um veraldlegum gæðum, ef þeir
renna niður stefnuskrá þessa
flokks, er skreytir sigmeðstolnu
nafni frá íslenskri alþýðu. Börn-
in eiga að borða eina skeið fyrir
pabba og aðra fyrir mömmu, en
aiþýðan á að gleypa landsversl-
unarbitann fyrir Hjeðinn, sam-
eignarsúpugutlið fyrir Ólaf og
ráðstjórnarkássuna fyrir Hall-
björn.
Ef sjúkrasamlag kæmist á í þessu
formi, sem bent hefir verið á,
þá væri öllum efnalitlum mönn-
um trygð læknishjálp og spítala-
vist fyrir mjög sanngjarnt verð
Vonandi verður þess ekki langt
að bíða, því læknastjettin hefir
lýst sig því samþykka. Jeg bar
upp á læknaþinginu 1922 tillögu
um að skora á Alþing og lands-
stjórn að koma sem fyrst á slík-
um skyldusjúkrasamlögum í átt
við það sem tíðkast víða erlend-
is og sú tillaga var samþyktmeð
miklum meiri hluta, þótt árangur
hafi enginn sjesf enn.
Síðan jeg kom hingað til Eyja,
hefi jeg oft sjeð og fundið þörf-
ina á sjúkrasamlagi hjer og ætl-
aði fyrir 2 árum að reyna að
koma því á. Jeg færði það því
t tal við hjeraðslæknirinn og lyf-
salann,hvort þeir vildu ekki vera
með í því að veita sjúkrasanii-
lagi et það yrði srofnað hjer,
talsverðan afslátt frá venjulegum
taxta. Jeg átti ennfremur tal við
nokkura menn úr verkamannafje-
laginu „Drífandi" og spurði þá
að, hvort fjelagið myndi ekki
vera fúst á að snúa sjúkrasjóði
sínum upp í reglulegt sjúkrasam-
lag. Allir þeir sem jeg spurði af
þessu, bjuggust við að það inyndt
ekki . fást. Mjer leist þá ekki
mikil v»o þess, að úr framkvæmd-
um yrði og hafðist því ekki frek-
ar að, enda stóð þá utanferð mín
fyrir dyrum.
Nú eru tímarnir orðnir breytt-
ir, gjaldþol manna minna en áð-
ur var og því meiri þörf á slíku
samlagi. Jeg vona því, að verka-
mannafjelagið sjái hvílik nauðsyn
það er að tryggja verkamennina
hjer fyrir þeim skaða, sem sjúk-
dómar og heilsuleysi ávalt hafa
í för með sjer, og breyti nú sjúkra-
sjóði sínum í það form. Jeg tel
sjálfsagt, að bæjarstjórnin virði
það eife og vera ber og styðji
það samlag árlega með talsverðu
fjárframlagi. Sjálfur er jeg fús
til að láta í tje þær upplýsingar
og þau ráð sem jeg er megnug-
ur 00 hjeraðslæknirinn og jeg
munu báðir verða sanngjarnir í
samningum við væntanlegt sam-
lag, enda getur ekkert sjúkrasam-
lag átt sjer stað án samkomu-
lags við þá lækna sem á siaðn-
um eru.
Jeg ætla ekki að fjölyrða meira
um þetta mál að sinni, en vil
að eins lýsa ánægju minni yfir
því, að einn af daglaunamönnun-
um hjer í bæ liefir vakið umræð-
ur um þetta þarfamál í Skildi,
blaðinu sem sumir telja sett til
höfuðs alþýðunni. Mjer er á-
nægja að því að birta hjer í blað-
Inu fleiri greinar frá alþýðumönn-
um, sem vilja ræða opinberlega
og með stillingu nauðsynjamál
stjettar sinnar. Skjöldur er til
fyrir alla Eyjabúa jafnt, engu síð-
ur fyrir fátæka en rika og er
ekkert klíkublað, eins og líka er
auðsjeð á því, hvernig útgáfu-
nefndin er skipuð, og honum er
því ljúft að flytjá greinar um ölj
þau mál, sem geta orðið almenn-
ingi tii gagns og eyjunum til
sóma.
Ritsljórinn.
Viðbót. Síðan ofanskráð var
ritað hef jeg átt tal við Eirík
Ögmundsson bæjarfulltrúa og tel-
ur hann iíklegt, að verkamanna-
fjelagið væri fúst á að breyta
sjúkrasjóði sínum í varasjóð fyr-
ir sjúkrasamlagið, ef það kæmist
á. það gæti einnig verið heilla-
ráð.
Ritstj•
Nsesta blað Skjaldar kem-
ur út næstkomandi mánudag.
Strauboltarnir
góðu eru nú komnir aftur
í verslun
& 3* 3o^$eu
Auglýsingar.
Vil selja 4 nýja stóia, nöt-
aðan „divan“, „buffet“ og klæða-
skáp. LÁRUS J. JOHNSEN.
I
Tek að mjer saum á yngri og '
eldri karla og konur.
Ólafa Óladóttir, Sólheimum.
Tek að mjer að þvo þvocta -
fyrir þá sem oska þess.
Gíslína Gísladóttir Hjálmholti.
Eg undirrituð tek aö mjer
að hreinsa og pressa föt.Verð 3kr
Sigríður Sigurðardóttir
Fögrubrekku. ,
Gólfmottur
n'Österkar, 3 tegundir-fást í versl.
G. .1. Johm§en.
| Kaupi liæsta vnrni J '
& silfur og nikkel peninga', Í®
Magnús Bergsson.
Saumavéiar
hvergi betri en í verslun
Cjf. J. Johiiiseii.
I verslun
3 ówssowav
er best að kaupa tóbaksvörur,
Svínasylía
WST Skinke Rúlluskinke
Leverposiej er nýkomið í
verslun
Cjf. J. Jolintsen.
Lesið
Allur umbúðapappír og pokar
mjög ódýr, fæst í versluninni á
REYNI
Komið Skoðið Kaupið
O S t a r
3 tegundir nýkomnar í verslun
Cjf- *J. Johusieii.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
P. V. G. Kolka.
Prentsmiðja Vestmannaeyja.