Dagur - 10.10.1997, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 8.OKTÓBER 1997 - S
FRÉTTIR
Kína slær Tævan
brátt út
Heimsókn varaforseta Tævans kann að ógna viðskiptahagsmunum, en útflutningur
til Kína hefur margfaldast.
Útflutuingur til
Tævans er flnmifaldur
á við Ktna. En það er
skammt í að þetta
snúist við að mati út-
flytjenda.
Verðmæti útflutnings til Tævan
nam fyrstu sex mánuði ársins
1460 milljónum króna. lslend-
ingar keyptu vörur á móti fyrir
612 milljónir króna. Þetta er
fimm sinnum meira en flutt var
út til Kína ef miðað er við sama
tímabil en athygli vekur að þótt
aðeins hafi verið selt út til Kína
lyrir tæpar 300 milljónir á fyrstu
sex mánuðum ársins, er það 15-
földun frá fyrri árshelmingi í
fyrra. Þá keyptu Kínverjar vörur
fyrir aðeins 19,6 milljónir króna
en seldu Islendingum fyrir 859
milljónir.
Snýst bráðum við
Vöruskiptajöfnuðurinn er með
öðrum orðum hagstæður við
Tævan en óhagstæður gagnvart
Kína. Ef útflutningssprengingin í
ár er tekin með í reikninginn má
hins vegar álykta að stutt sé f að
dæminu verði þveröfugt farið. Þá
skoðun styður Friðrik Jónsson,
útflytjandi hjá Silfurtúni, en fyr-
irtæki hans hefur flutt út vörur
fyrir um 100 milljónir króna til
Kína í ár, aðallega vélar fyrir
pappírsendurvinnslu. „Það er
engin spurning að Kína á eftir að
verða mun mikilvægara við-
skiptaland en Tævan innan
skamms tíma. Við erum að selja
þeim Ijölbreytta þekkingu á ýms-
um sviðum s.s. í jarðhita og sjáv-
arútvegi," segir Friðrik.
Tævönsk viöskiptaskrif-
stofa?
A fundi Davíðs Oddssonar með
varaforseta Tævans í fvrrakvöld
bar ferðamál og önnur viðsldpta-
mál aðallega á góma. Forætisráð-
herra sagði eftir fundinn að ekk-
ert væri þvf til fyrirstöðu að
Tævanar kæmu á fót viðskipta-
skrifstofu á lslandi. Kínveijar juku
enn þrýsting á íslensk stjórnvöld í
gær og ítrekuðu mótmæli sín.
Málið hefur hlotið æ meiri um-
fjöllun í kínverskum fjölmiðlum
og nálgast heimsathygli.
Fimm daga óopinberri heim-
sókn tævanska varaforsetans og
fylgdarliðs hans hér á landi Iýkur
í dag. Kínversk stjórnvöld ftrek-
uðu í gær harðorð mótmæli gegn
heimsókninni. Þeir telja að Isl-
ensk stjórnvöld séu með því að
hitta varaforseta Tævans að skipta
sér af innanríkismálum Kínverja.
Kínverjar segja að afleiðingar
þessa séu á ábyrgð íslenskra
stjórnvalda. — Bl>
Héraðsbúar
verðlaunaðir
Tryggvi Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskólans, og Árni Sigfússon, formaður FÍB, kynntu í gær skýrslu um
hagnað blleigenda af aukinni samkeppni á tryggingamarkaði. - mynd: hilmar
Bíleigendur spara á FÍB
Upplýsingamiðstöðin og tjald-
svæðið á Egilsstöðum hlutu um-
hverfisverðlaun Ferðamálaráðs
1997 en þetta er í þriðja sinn
sem verðlaunin eru veitt.
1 fyrra fékk Norðursigling á
Húsavík verðlaunin. Verðlaunin
eru höggmynd eftir Hallstein
Sigurðsson, sem Halldór Blön-
dal, samgönguráðherra, afhenti
á ferðamálaráðstefnu Ferða-
málaráðs sem hófst á Blönduósi
í gær og lýkur í dag með því að
gerð verður grein fyrir könnun
sem gerð hefur verið á viðhorf-
um erlendra ferðamanna á Is-
landi, en fyrir liggur niðurstaða
fyrsta heila ársins sem könnun-
in nær til.
I úrskurði
dómnefndar
um umhverfis-
verðlaunin segir
m.a. að upp-
bygging tjald-
svæðisins hafi
Halldór Blöndal staðið allt frá
samgönguráð- árinu 1968, en í
herra afhenti í dag sé það í
gær Upplýsinga- höndum Ferða-
miðstöðinni á Eg- miðstöðvar Aust-
ilsstöðum um- urlands. Eðli
hverfisverðlaun þjónustunnar
Feröamálaráðs. hafí færst (rá því
að vera venju-
legt tjaldsvæði í að vera þjón-
ustustaður sem leggur sérstaka
áherslu á umhverfismál og
fræðslu um staðhætti og sögu.
Allt ytra umhverfi, sorpflokk-
un, gönguferðir og fræðsla gera
það að verkum að þeir sem nýta
sér þjónustuna fara af staðnum
fróðari um umhverfismál og
staðhætti. Það sem gerir tjald-
svæðinu á Egilsstöðum kleift að
standa svo vel að málum er
markvisst starf bæjarins að um-
hverfismálum. — GG
Iðgjaldalækkim vegna
samkeppni FÍB á
tryggingamarkaðnnm
lieíur sparað meðal-
heimili 16-17 þús. kr.
í lægri tryggingaið-
gjöldum.
Með komu FÍB á tryggingamark-
aðinn sluppu bifreiðaeigendur
með rúma 5,3 milljarða í trygg-
ingaiðgjöld af bílum sínum í
fyrra í stað 6,4 milljarða sem þeir
hefðu þurft að greiða, ef gjöldin
hefðu þróast í takt við verð á öðr-
um vörum og þjónustu. Beinn
sparnaður bíleigenda - líka allra
annarra en þeirra 5-6 þúsund
sem tryggðu hjá FIB - er því sam-
tals 1,1 milljarður. Það samsvar-
ar næstum 17.000 kr. á hverja
4ra manna Ijölskyldu, sem hún
hefur þá getað eytt í eitthvað
skemmtilegra.
Þetta var helsta niðurstaðan í
útreikningum sem Hagfræði-
stofnun Háskólans gerði fyrir
FÍB. Árni Sigfússon, formaður
FÍB, var að vonum afar ánægður
með útkomuna. Hann sagði mik-
ilvægt að halda áfram á þessari
braut. Og þess væri að vænta,
þar sem tryggingafélögin virtust
rekin með ágætum hagnaði,
þrátt fyrir þessa miklu iðgjalda-
lækkun, þvert á hrakspár for-
svarsmanna þeirra fyrir ári. Árni
segir Lloyds-tryggingafélagið
mjög sátt við niðurstöðuna og
einungis xakuspursmál hvenær
FIB geti boðið mönnum allan
„tryggingapakka" heimilisins.
Vísitala neysluverðs hækkaði
um rúmlega 1,6% í staðinn fyrir
2% ef bílatryggingar hefðu hækk-
að eins og annað. Hagfræði-
stofnun reiknaði út að vegna
þessa séu skuldir heimilanna nú
rúmlega 1,2 milljörðum króna
lægri en þær hefðu annars verið.
- HEl
Endurskoðun
á viðskipta-
banni
Þrívegis hefur
verið flutt á Al-
þingi tillaga
um að endur-
skoða þátttöku
íslands í við-
skiptabanni á
írak. Hún hef-
ur aldrei feng-
ist afgreidd úr
nefnd hvað þá
meira. Nú hafa þau Steingrímur
J. Sigfússon, Kristín Ástgeirs-
dóttir og Ossur Skarphéðinsson
flutt þessa þingsályktunartillögu
í fjórða sinn.
Hávaði
Þau Hjörleifur Guttormsson,
Lára Margrét Ragnarsdóttir,
Lúðvík Bergvinsson, Kristín
Halldórsdóttir, Ásta R. Jóhann-
esdóttir og Ragnar Arnalds hafa
lagt fram þingsályktunartillögu
um að skora á ríkisstjórnina að
láta fara fram víðtæka úttekt á
hávaða- og hljóðmengun hér á
landi og leggja fyrir næsta þing
niðurstöður hennar og tillögur
til úrbóta. I greinargerð með til-
lögunni segir að hávaði og hljóð-
mengun fari vaxandi á íslandi ár
frá ári. Þar sé ekki aðeins um að
ræða hávaða frá umferð og at-
vinnurekstri heldur einnig tón-
list og talað orð úr hátölurum á
almannafæri.
Stefnumótim
Þingmenn úr öllum flokkum,
undir forystu Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, hafa lagt fram þingsá-
lyktunartillögu um að fela ríkis-
stjórninni að undirbúa heild-
stæða og samræmda stefnu í
málefnum langsjúkra barna.
Breyting á þing-
sköpum
Lagt hefur verið fram frumvarp
til laga um breytingar á Iögum
um þingsköp á Alþingi. I því er
gert ráð fyrir að þingnefnd sé
heimilt að eigin frumkvæði að
fjalla um og rannsaka önnur mál
en þau sem þingið vísar til
hennar. Sem dæmi er nefnt
framkvæmd laga, meðferð opin-
berra Ijármuna og önnur mikil-
væg mál sem varða almenning.
Það eru þau Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Guðmundur Árni Stef-
ánsson og Ágúst Einarsson sem
flytja frumvarpið.
Takmörkuu á
hrossabeit
Hjörleifur Guttormsson vill að
hrossabeit og fjöldi hrossa í
landinu verði takmarkaður.
Hann hefur í því skyni flutt
þingsályktun þar sem lagt er til
að landbúnaðarráðherra móti
tillögur um aðgerðir og nauð-
synlegar lagabætur til að tak-
marka fjölda hrossa og hrossa-
beit í úthaga með tilliti til jarð-
vegsverndunar og hóflegrar nýt-
ingar gróðurlendis. — S.DÓR