Dagur - 10.10.1997, Side 7

Dagur - 10.10.1997, Side 7
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 - 7 ÞJÓÐMÁL Samtök um þjóöareign Frá fundi Samtaka um þjóðareign, þar sem áhugamenn um breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi fylltu salinn. Svanfríður Jónasdóttir segir að stofnun siiks félagskapar ætti ekki að koma mönnum á óvart - mynd: pjetvr Það á ekki að koma mönnum á óvart að nú skuli blásið til Sam- taka um þjóðareign. Allir sæmi- lega skynugir menn hljóta að hafa áttað sig á því að það hefur nánast soðið á þjóðinni vegna þess óréttlætis sem í því felst að fámennum hópi skuli, án þess að gjald komi fyrir, afhent yfirráð yfir hinni sameiginlegu auðlind okkar, fisldmiðunum. Enda hef- ur það þráfaldlega komið fram í skoðanakönnunum að yfirgnæf- andi meirihluti þjóðarinnar telur að taka beri upp veiðileyfagjald. Fólk horfir á réttlætisrökin. I þessu máli nægja þau. Almannaliagui gegn sérhags- inununi I umræðu um sjávarútvegsmál hefur mest borið á umræðu um „kvótamálið'*. Stjórnun fiskveið- anna hefur yfirskyggt aðra stóra þætti sem varða bæði lífskjör og búsetu í landinu. I umræðu um veiðileyfagjald hefur líka sífellt verið blandað umfjöllun um kvótakerfið. Það er þó óþarfi að skilyrða afstöðu til veiði- leyfagjalds fiskveiðistefnunni á hverjum tíma. Réttlætisrökin í málinu eiga við svo lengi sem um er að ræða stjórnun fiskveiða úr sameiginlegri auðlind og sam- keppni um að fá að nýta hana. Svo lengi sem veiðarnar eru ekki frjálsar hverjum sem vill. Og ég held að við séum öll meðvituð um það að miðað við nútíma- veiðitækni og þekkingu á lífrík- inu þá mun veiðum áfram verða stjórnað á Islandsmiðum, rétt eins og veiðum er stjórnað nán- ast um allan heim, á öllum mið- um. Það er þessvegna óskiljanlegt, og flótti frá kjarna málsins, að skilyrða afstöðu sína til veiði- Ieyfagjalds breytingum á núver- andi fiskveiðistjórnunarkerfi. Hvað ef það ekki breytist á næstu árum? Er ekki jafn rang- látt að tiltekinn hópur fái að um- gangast auðlindina eins og sína einkaeign í einhverju öðru fisk- veiðistjórnunarkerfi? Hvað sem mönnum kann að finnast um kvótakerfið og ranglæti þess, þá er kvótakerfi með veiðileyfagjaldi bæði heppilegra og réttlátara fyr- irkomulag en kvótakerfi án veiði- Ieyfagjalds. Réttlátara af því þá er greitt fyrir aðganginn að sam- eiginlegri auðlind þannig að eig- andinn, þjóðin, fær beinan arð. Það er líka auðveldara að aftur- kalla og breyta kvótakerfi með veiðileyfagjaldi því það staðfestir eignarhald þjóðarinnar betur en núverandi löggjöf. Með óbreyttu ástandi er verið að vernda þrönga sérhagsmuni sem geta reynst almannahagi mjög þungir í skuti. Það hefur nefnilega aldrei verið sannað að auður og forréttindi fárra leiði til almennrar velsældar. Og arður af nýtingu sameiginlegrar auðlind- ar er ekki einkamál þeirra sem hafa fengið tímabundinn afnota- rétt. I ávarpi til Íslendinga, sem hópurinn sem undirbjó Samtök um þjóðaeign birti í dagblöðun- um í vikunni, kemur fram ótti við að með óbreyttu ástandí séu fiskimiðin í raun að hverfa úr eign íslensks almennings til kvótaeigenda, þrátt fyrir þau ákvæði 1. gr. laga um stjórn fisk- veiða að nytjastofnar á Islands- miðum séu sameign þjóðarinnar. Einokunargróði með að- stöðu fárra TiIIögur um veiðileyfagjald byggja á réttlætisrökum. En þær byggja Iíka á þeirri vissu að ein- okun tiltekins hóps á miðunum hafi í för með sér verulegan arð ef stjórnun veiðanna er skyn- samleg. Einokunargróði er það kallað þegar verðmæti eru sköp- uð með sérstakri aðstöðu fárra. Takmörkun fiskveiðanna með valdboði er slík aðstaða. Með þeirri sölu veiðiheimilda sem nú þegar er í gangi, þar sem einn út- gerðaraðili selur öðrum það sem hann fékk úthlutað ókeypis, er verið að taka út þennan arð sem fer vaxandi. Það sýnir verðið á þeim veiðiheimildum sem ganga kaupum og sölum. Þetta er ekki siðlegt, þessu verður að breyta. Þessvegna fjöl- mennti hópur fólks á Grand hót- el á miðvikudagskvöldið og stofnaði Samtök um þjóðareign. Mengun á varnars væ öuniun SKARPHÉÐINN H. EINAHSSON SKRIFAR Þann 16. maí var skýrt frá því í staðarblaði í Reykjanesbæ og einnig á annarri sjónvarpsstöð- inni að haldið væri að sjúkdóm- ur í fóstrum sem ylli fósturláti í Reykjanesbæ og nágrenni mætti rekja til mengunar á svokölluðu Nikkel svæði. Þetta kom mér alls ekld á óvart. Hér er um meira en Nikkelsvæðið að ræða, þó svo að gífurlegt magn af olíu og ýmsu eldsneyti hafi farið þar niður í jarðvegi á vegum hersins, allt frá 1946 þegar þessi stöð var reist ogjafnvel frá stríðsárunum. Á svokölluðu Turner svæði sem liggur þar fyrir ofan og braggaþyrping var í voru ösku- haugar á vegum Varnarliðsins og enn sjást glögg merki um þá þó svo að þeir hafi verið jafnaðir við jörðu. Á þá hauga var öllum hugsanlegum hlutum kastað sem Varnarliðið var hætt að nota og liggja þeir að núverandi flug- stöðvarvegi, á vinstri hönd þegar ekið er til flugstöðvarinnar. Veg- urinn klýfur svæðið þar sem Turner kampurinn var á hæðinni fyrir ofan Nikkel-svæðið. Þarna hefur ugglaust verið hent þeim banvænustu spilliefnum og er deginum ljósara eins og ég hef áður minnst á að þar þyrftu að fara fram rannsóknir. I viðtali sagði ljósmóðir í Reykjanesbæ „ef‘ en ég held það sé meira en „ef“ heldur 99% líkur á því að þetta sé Varnarliðinu að kenna. í þessu samhengi vil ég vitna f stöð sem Bandaríkjaflotinn rak (en hann rekur einnig stöðina í Keflavík) við Clyde fjörðinn í Skotlandi, nánar til tekið í Dunoon við Holy Loch. Dunoon er af svipaðri stærð og Reykja- nesbær og hagar staðháttum þar að mörgu leyti til eins og í Reykjanesbæ. Fiotastöðin var endanlega lögð niður árið 1992 og flutt burtu. Þegar Bandaríkja- menn fóru þá tók breska ríkið við stöðinni og afhenti Clyde Ports. Kostnaður við hreinsun sem er geysilegur, mun bitna á breska ríkinu. I blaðinu US News and World Report frá 30. nóv. 1992 kemur fram að tíðni krabbameins á þessu svæði er sú hæsta í Bretlandi og tíðni fóstur- láta í bæjum í nágrenninu er einnig með því hæsta og veldur þessu kjarnorkumengun. I Keflavík er talið að mengun af völdum Bandaríkjahers, hvort sem hún er af olíusvæðinu eða af gömlum sorphaugum, sé or- sök þess hvað tíðni fósturláta er mikil. Hreinsum gömlu öskuhaug- ana Það er kominn tími til að íslend- ingar fari að athuga sín mál. Við erum með umhverfismálaráð- herra, utanríkisráðherra, heil- brigðisfulltrúa á Suðurnesjum, en þessir menn halda að allt sé í lagi og fljóta einfaldlega sofandi að feigðarósum hér á landi. Það er mín skoðun og ég veit það með vissu að komandi kynslóðir verða að gjalda íyrir þetta. Nú þegar þarf að hefjast handa við að grafa upp gamla öskuhauga og fjarlægja það drasl sem þar er. Þeir hafa verið á mörgum stöð- um á Vellinum: á Turnersvæði, á Patterson flugvelli fyrir ofan Hagkaup voru öskuhaugar á sín- um tíma, við Hafnarveg og á fleiri stöðum og enn eru Banda- ríkjamenn að grafa drasl við Stafnes í landi Miðneshrepps. Þetta þarf að hreinsa. Aðalverktakar eru á Keflavík- urflugvelli með sínar vinnuvélar og munu brátt hverfa þaðan, en ég tel að Bandaríkjamenn og ut- anríkisráðherra og varnarmála- skrifstofan og allt þetta batterí sem hernum fylgir ætti að fá Að- alverktaka til að gera þriggja ára áætlun um að hreinsa upp þessa hluti því að það er mjög líklegt að á næstu árum muni mengun við Reykjanesbæ og í nágranna- byggðarlögunum margfaldast. Heyrst hefur að tíðni krabba- meins sé óvenjuhá í byggðarlög- um við herstöðina miðað við landið í heild. Það er deginum ljósara að gíf- urleg mengun er á varnarsvæð- inu og Islendingum ber skylda til að fara strax af stað með áætlun um viðeigandi ráðstafanir og hreinsa þetta upp. Reykjanesbær getur ekki tekið við Nikkel svæði fyrr en hreinsun hefur fiarið fram eða athugun hefur sýnt hvort það er heilsuspillandi svæði eður ei. Það þýðir ekkert að koma ná- lægt þessu svæði eða samþykkja móttöku á því fyrr en það Iiggur fyrir. Eg er viss um það sem ég hef hér sett á blað á við rök að styðjast - því miður.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.