Dagur - 10.10.1997, Side 12
12- FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997
Xhyftr
GOLF
iinsrcn
Seve vill fá Oosterhuis
Seve Ballesteros, sem var liðsstjóri Evrópuúrvalsins í Ryderbikarnum,
segir að hann vilji fá Bretann Peter Oosterhuis sem eftirmann sinn,
þegar mótið verður haldið í Brookline í Massachussets. „Peter hefur
allt sem til þarf. Hann var frábær spilari, lék oft í Ryderbikarnum og
starf hans við sjónvarp gerir það að verkum að hann hittir alla spilar-
ana reglulega," sagði Ballesteros.
Hale Irwin þénar vel
Bandaríkjamaðurinn Hale Irwin varð fyrsti maðurinn til að þéna tvær
milljónir dala í verðlaunafé, á opinberum mótum, á einu ári. Irwin
sem leikur á bandarísku öldungamótaröðinni náði markinu með sigri
á móti um síðustu helgi. Það var áttundi sigur Irwin í ár og enginn
kylfingur, ekki einu sinni Tiger Woods og hinir töffararnir á bandar-
ísku PGA-mótaröðinni, hafa tekið jafn mikið inn á einu ári úr opin-
berum mótum, eins og Irwin.
Komnir á stall
Seve Ballesteros og Nick Faldo fengu fyrir nokkru inngöngu í „Frægð-
arhöll golfíþróttarinnar1. Alþjóðleg kjörnefnd sem skipuð var 371
manni kaus um inngöngu þeirra og 92% voru fylgjandi inngöngu
Ballesteros og 78% guldu Faldo jáyrði sitt. Til þess að nýir meðlimir
séu teknir inn þurfa 75% nefndarmanna að vera því samþykkir. Af
þeirri ástæðu komst breski kylfingurinn Tony Jacklin ekki inn í fyrra.
jacklin sem líklega er þekktastur fyrir að hafa stýrt Evrópuúrvalinu í
Ryderbikarnum á árunum 1985-89 hlaut tæplega 74% atkvæða.
Bændur glíma
Flestir klúbbar landsins gengust fyrir Bændaglímunni sl. laugardag.
Hjá Golfklúbbi Reykjavikur voru það Jón Pétur Jónsson og Þorsteinn Hallgrímsson,
sem brugðu sér i hlutverk bændanna. Lið Jóns Péturs sigraði i goifkeppninni,
en jafnglími varð hjá bændunum þegar þeir tóku létt tök
í golfskálanum eftir keppnina. - mynd: hjördís
Kristín lék vel á EM
Sveit fslands í Evrópukeppni eldri kvenna 1997: Birgir Björnsson liðsstjóri, Inga Magnúsdóttir GK, Kristín Pálsdóttir GK, Gerða
Halldórsdóttir GS og Sigríður Matthiesen GR.
Islenskar konur voru í fyrsta
skipti með á 17. Evrópumeist-
aramóti eldri kvenna (konur 50
ára og eldri) sem fór fram á Arila
golfvellinum í Nýköbing í Sví-
þjóð dagana 2.-5. sept. sl.
Keppnin sem er sveitakeppni og
tvískipt, þar sem konur með 0-
7.5 í forgjöf keppa um meistara-
bikarinn, en í hinum hlutanum
eru konur með 8-18 í forgjöf og
keppa þær um bikar sem kennd-
ur er við gefandann og heitir
„Marisa Sgaravatti-bikarinn", en
það var í þeirri keppni sem ís-
lensku konurnar tóku þátt.
Það voru 9 þjóðir sem sendu
keppendur í meistarakeppnina,
en 14 þjóðir kepptu um Marisa
Sgaravatti bikarinn. Islensku
sveitina skipuðu þær Kristín
Pálsdóttir GK. Inga Magnús-
dóttir GK, Gerða Halldórsdóttir
GS og Sigríður Matthiesen GR,
liðsstjóri var Birgir Björnsson og
var hann eini karlmaðurinn sem
var liðsstjóri í mótinu. Fyrir-
komulag keppninnar er þannig,
að fyrstu tvo dagana er Ieikinn
höggleikur án forgjafar, þar sem
leikið er um röð, en síðan er
holukeppni í tvo daga. Sveitina
skipa fjórar konur og telja þrjár
þeirra í höggleiknum, en allar
taka þátt í holukeppninni.
Islensku konurnar stóðu sig
með ágætum og höfnuðu í 11.
sæti eftir höggleikinn á 524
höggum, en keppni var mjög jöfn
og aðeins nokkur högg voru í Iið-
ið, sem var í 5. sæti. Kristín Páls-
dóttir var best íslensku kvenn-
anna en hún lék báða dagana á
81 höggi, eða samtals 162 högg-
um, sem er frábær árangur og
var hún með besta skor allra í
keppninni ásamt konu frá Sviss.
Það kom því í hlut Islands að
leika í holukeppninni við Eng-
land og Holland um 9.-12. sæt-
ið. Fyrst var leikið gegn Hollandi
og tapaðist sá leikur 1-3 og var
það Kristín sem vann sinn leik
4/2 en sigur vannst yfir
Englandi eftir jafna og harða
keppni, þar sem Kristín vann
sinn andstæðing á 19. holu í
umkeppni. Inga vann sinn Ieik,
en Gerða og Sigríður töpuðu.
Urslit mótsins urðu þau, að
frönsku konurnar sigruðu, en
Spánn og Sviss urðu í 2. og 3.
sæti, en ísland hafnaði í 11. sæti
á undan konum frá Englandi,
Austurríki og Portúgal. Að sögn
íslensku keppendanna var þetta
mjög skemmtilegt mót, þar sem
keppt var á mjög góðum velli og
öll umgjörð mótsins var með
miklum glæsibrag. Þær voru
boðnar velkomnar í hóp stall-
systra sinna í Evrópu með von
um að áframhald verði á þátt-
töku þeirra. Næsta mót fer fram
í Austurríki á næsta ári og segjast
konurnar stefna ótrauðar að því
að konur frá Islandi verði þar
með, enda hafa þær með þátt-
töku sinni og frammistöðu á
mótinu í Svíþjóð sýnt og sannað
að þær eiga þar fullt erindi.
— AÐS
INNLENT
Fjórir til Frakk-
lands
Fjórir kylfingar úr Golfklúbbi
Reykjavíkur halda til Frakklands
á sunnudaginn til að taka þátt í
alþjóðlegu unglingamóti, sem
nefnist „Teen’s golf trophy 97“.
Haraldur Heimisson; Ofeigur
Guðjónsson, Pétur Óskar Sig-
urðsson og Kristinn Árnason,
keppa á mótinu fyrir íslands
hönd. Leiknir verða fjórir hringir
á mótinu, sem ætlað er keppend-
um sem eru átján ára og yngri.
Sigurður Pétursson fer með
hópnum sem fararstjóri.
Styrktarmót imi
helgina
Golfklúbbur Reykjavíkur gengst
fyrir styrktarmóti á Grafar-
holtsvellinum á morgun, fyrir
karlasveit klúbbsins sem tekur
þátt í Evrópumóti klúbbliða.
Mótið á morgun verður Ieikið
með „Texas-scramble“ fyrirkomu-
lagi, fjórir saman í liði, þar af
einn meistaraflokksmaður í hver-
ju liði. Lágmarksþátttökugjald er
kr. 4000, en keppt verður um
ferðavinninga.
Sunna í raðir ÍR
Sunna Gests-
dóttir, ein besta
hlaupakona
landsins á und-
anförnum
árum, hefur til-
kynnt félaga-
skipti yfir í IR.
Sunna, sem er
frá Blönduósi,
hefur hingað til keppt fyrir
USAH, en hefur ákveðið að fylg-
ja þjálfara sínum, Jóni Sævari
Þórðarsyni, yfir í Reykjavíkurlið-
ið. Ymsar blikur eru á iofti í fé-
Iagaskiptum á milli félaga og ekki
ólíldegt að ÍR-liðið muni styrkjast
enn frekar í vetur.
Lokahóf hjá
knattspymu-
mönnum
Lokahóf leikmanna í úrvalsdeild
karla og 1. deild kvenna, verður
haldið á Hótel Islandi, annað
kvöld. Veittur verður fjöldi viður-
kenninga, meðal annars til bestu
og efnilegustu Ieikmanna deild-
Sunna Gestsdóttir.
Óli Bjama hestnr
í Grindavík
í Iokahófi
knattspyrnu-
manna Grind-
víkinga fyrir
nokkru var
Ólafur Örn
Bjarnason val-
inn leikmaður
ársins. Ólafur
sannaði sig
sem einn af
betri miðjumönnum deildarinnar
í sumar og sló rækilega í gegn í
leik Grindvíkinga og KR í Frosta-
skjólinu í sumar. Þar var hann yf-
irburðamaður á miðjunni og lagði
drjúgt inn til þess að verða valinn
leikmaður ársins hjá félagi sínu.
Ekki er annað vitað en Ólafur
leiki áfram í herbúðum Grindvík-
inga á næstu leiktíð. — GÞÖ
Ólafur Örn
Bjarnason.