Dagur - 15.10.1997, Síða 2

Dagur - 15.10.1997, Síða 2
2 - MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 VÍKURBLAÐIÐ ro^tr Landvinningar fyrr og nú VIGFÚS B. JÓNSSON SKRIFAR Vigfús B. Jónsson á Laxamýri gagnrýnir fyrirhuguö kaup Húsavíkur á jörðinni Saltvík og telur þau kippa stoð undan Reykjahreppi. Skammt er sfðan að risaveldið Kína gerði harða hríð að Islend- ingum fyrir þá ósvinnu að þeir, þótt sjálfstæð þjóð séu, skyldu leyfa sér að vilja ráða því hverjir færu um land þeirra og einnig hinu, við hverja þeir töluðu. Auðvitað leyfðu Kínverjar sér að snúa dæminu við og telja að við Islendingar værum að hlutast til um innri málefni Kína. Þetta gerðu þeir í krafti þess að við erum bara litli bróðir, en þeir sá stóri. Því betur létu ís- lenskir valdamenn engan bilbug á sér finna og stóðu af sér hrin- una. Menn velta því fyrir sér hvað fyrir Kínverjum vaki. Sé skyggnst í erlenda fjölmiðla og skýringar þeirra kemur í Ijós að sumir telja þetta lið í leikfléttu, sem enda eigi með hernámi Kín- verja á Tævan eða valdatöku þeirra þar með einhverjum öðr- um hætti. Það eru sem sé land- vinningar sem Kínverjar stefna á. Landvinningar eru auðvitað engin ný uppfinning hjá Kínverj- um, því landvinningar hafa alltaf fylgt mannkyninu frá örófi alda. Nú að undanförnu hefur mátt líta í blöðum viðtöl og einnig heyra í ljósvakaíjölmiðlum sam- töl sem öll hníga að því að túlka Hestaútgerðin í Saltvík hefur skilað tekjum til Reykjahrepps og aukið ferðamannastraum í sýsluna. og kynna hversu mjög Húsavík- urbær þurfi á því að halda að eignast jörðina Saltvík í Reykja- hreppi. Þeir sem ókunnugir eru kunna að trúa þessum málflutn- ingi, en með tilliti til þess að nýt- ing Húsavíkur á jörðunum Bakka, Tröllakoti og Kaldbak er í algjöru lágmarki, auk þess sem hinar fornu hjáleigur Skógar- gerði og Þorvaldsstaðir eru Iangt frá því fullnýttar, þá er málflutn- ingur þessi ekki trúverðugur í augum þeirra sem til þekkja. Málflutningurinn er að því er virðist á svið settur til að réttlæta kaup Húsavíkurbæjar á Saltvík. Ekki þarf að efa að á eftir kaupunum komi það að hinir áhugasömu ráðamenn bæjarins muni leggja Saltvík undir Húsa- víkurbæ og þar með kippa góðri stoð undan Reykjahreppi, litla bróðurnum, sem eklti hefur Ijár- hagslega getu til að keppa við stóra bróðurinn Húsavíkurbæ. En hvaða stoð er verið að kippa undan Reykjahreppi, kann ein- hver að spyrja? Jú, því er auðsvarað. A hluta Saltvíkur er rekinn góður og ört vaxandi fjöl- greinabúskapur með hesta og rekstraraðilinn gjaldandi Reykja- hrepps, auk þess sem fjárbænd- ur í Reykjahreppi njóta útlands Saltvíkur sem afréttar öllum að meinalausu. Það kemur sér þó vel því hreppurinn er afréttarlít- ill. Heyrst hefur að fyrirhuguð kaup á Saltvík tengist eitthvað neikvæðri afstöðu til grasbíta. Slíkt er þó með ólíkindum að mér finnst. Varla líta menn hestabúskapinn í Saltvík horn- auga, því hann dregur fjölda er- lendra ferðamanna til Húsavíkur og nærsveita. Þá má og minna á það að sauðkindin er ekki voða- legri skepna en það að hún á lff- ið í íslensku þjóðinni, því hana hefur hún fætt og klætt um margar aldir. Einnig byggja ófáir Húsvíkingar lífsafkomu sína á sauðfjárræktini í nærsveitum Húsavíkur. Sannfærður er ég um að ekki rekur þrýstingur frá hinum al- mennu borgurum í Húsavík ráðamenn bæjarins til kaupa á Saltvík. Það er vitað mál að ein- hverjar krónur skuldar nú Húsa- víkurbær hér og þar og því ekki óhugsandi að borgarar á Húsavík telji skattpeningum sínum betur varið til einhvers annars en að leggja tugmilljónir í jafn ótíma- bæra fjárfestingu og kaup bæjar- ins á Saltvík eru í dag. Húsvíkingar mega treysta því að við Reykhverfingar viljum vöxt og viðgang Húsavíkur og myndum aldrei standa gegn því að þeir fengju lóðir og svigrúm til athafna í landi jarðarinnar, ef þeir þyrftu á þvf að halda. Nú er mjög til umræðu að sameina sveitarfélög á sem víðustum grundvelli og eru flest- ir sammála um ágæti þess. En til að slíkt megi verða þarf að und- irbúa þá framkvæmd á jákvæðan hátt með því að auka skilning og samkennd hlutaðeigandi aðila. I því tilliti finnst mér þessi land- vinningastefna sumra ráða- manna Húsavíkurbæjar virka neikvætt á það sem koma skal. Það er eins og þeir hafi einhvern veginn orðið fastir í fortíðinni hvað umgengnishætti varðar, eða ekki er mér kunnugt um það að þeir hafi séð ástæðu til að ræða þetta við sveitarstjórn Reykjahrepps né gefa henni kost á að fylgjast með gangi mála. Það þætti sumum þó sjálfsagt. Ef ég ætti að leggja eitthvað til þessa máls, þá tel ég að ráða- menn Húsavíkur ættu að leggja þá hugmynd á hilluna um sinn að ná Saltvík undan Reykja- hreppi með ærnum tilkostnaði, sem telja verður ótfmabær fjár- útlát. Saltvík verður á sínum stað og fer ekki neitt, auk þess sem íslenska ríkið ætti ekki að fara á höfuðið þó það sitji uppi með jörðina enn um sinn. Að lokum vil ég svo minna á að borgarar í Húsavík eru í ágætri aðstöðu til að hafa vit fyrir framámönnum sínum í þessu máli. Laxamýri 13. okt. 1997, Vigfús B. Jónsson. Ferð Félags eldri borgara Heiðurskonurnar Gunna í Garði og Ragna í Skálabrekku skemmta sér greinilega kon- unglega á þessari mynd sem Óli á Borgarhóli tók í ferð Félags eldri borgara. GAMLA MYNDIN Hann setti svip sinn á bæinn á sínum tíma, þessi vaska kempa, Halldór Jónsson, betur þekktur sem Dóri póstur. Þarna er hann greinilega bú- inn að fá sér kaffisopa á Borgarhóli og röltir ánægður út f sólina. Egill Jónasson orti á sínum tíma fleyga vísu um Dóra þegar Sveinn Björnsson forseti kom til Húsavíkur í opinbera heimsókn. Bæjarbúar tóku á móti forseta á bryggjunni og hann gekk á milli fólks og tók í hendur þess og var hinn alþýðlegasti. Og meðal annarra tók forseti í spaðann á Dóra pósti. Um þennan atburð kvað Egill: Hlegið var dátt á hafnarsandi, hugsað margt eins ogfólks er vandi, er heilsaði Dóra með handabandi höfðingjasleikja af Suðurlandi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.