Dagur - 15.10.1997, Qupperneq 3

Dagur - 15.10.1997, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 1S. OKTÓBER 1997 3 X^ur. VÍKURBLAÐIÐ Hundalíl á Hiísavík Ýfingar hafa verið með Kínverj- um og Islendingum að undan- förnu. En á Húsavík lifa þeir í sátt og samlyndi, Pekinghundur- inn Kittí á rölti um malbikið og hinn rammíslenski útgerðar- hundur sem er að huga að fram- leiðslutækjunum fyrir neðan bakkann. Mættu ráðamenn í Kína og Islandi taka sér þessa friðsömu húsvísku hunda til fyr- irmyndar á sviði diplómatískra samskipta. — JS ÞANKAR ÞINGEYINGS Þar sem aðeins deyja stórmenni JÓHAJVNES SIGURJÓNS SON SKRIFAR Það hefur verið hálf dapurlegt að ganga að morgni út í drungaleg- an daginn á Húsavík síðasta mánuðinn eða svo, því oftar en ekki hefur sama sýn borið fyrir augu, fánar í hálfa stöng. A rúm- um rnánuði hafa 11 manns látist á Sjúkrahúsinu, bæða eldra fólk satt lífdaga en einnig fólk sem fallið hefur fyrir illvígum sjúk- dómum á besta aldri. Haustið er tími sláttumannsins, þá falla grösin og liljur vallarins fyrir ljánum. Missir okkar allra Fánar í hálfa stöng. Þeir vekja alltaf sömu spurninguna hér. Hver er dáinn? Og menn eru ekki í rónni fyrr en aðspurðir, vinnufélagar eða fólk á götunni, geta svarað. Og þá hristir maður höfuðið og hugleiðir í hljóði missi samfélagsins en fyrst og fremst sorgina sem ríkir í hugum ástvina hins látna. Og menn ræða um þann sem farinn er í kaffitímanum í vinnunni, eða við eldhúsborðið heima, rifja upp minningar, samskipti og góð kynni við þann sem horfinn er af sjónarsviðinu, oftar en ekki gáskafullar skemmtisögur af við- komandi sem eru um leið mót- vægi við sorgina, söknuðinn, missinn. Þegar fánar hafa blakt í hálfa stöng í hálfan dag á Húsvík þá vita allir bæjarbúar hver er horf- inn úr okkar röðum. Og við get- um farið að votta nánustu að- standendum, vinum og kunn- ingjum og raunar okkur sjálfum líka, samúð. Söknuöur okkar allra Þegar ég bjó í Reykjavík fyrir margt löngu fanst mér ýmislegt þar með öðru sniði en í smábæn- um fyrir norðan. Meðal annars það að maður sá sjaldan eða aldrei fána í hálfa stöng, rétt eins og þar dæju aungvir, þó tölfræð- in segði manni að það létist að jafnaði a.m.k. einn maður á degi hverjum í borginni. En samt sá maöur aldrei fána í hálfa stöng, af því auðvitað að það eru svo fáir sem vita af því þegar einhver deyr í borginni. Það var auðvitað flaggað í hálfa á föstudaginn langa í tilefni af síendurteknum dauðdaga Jesúsar og einnig þeg- ar þjóðhöfðingjar eða stórmenni létust og ástæða þótti til að segja frá láti viðkomandi í fréttatím- um. Og þá rann það upp fyrir mér að heima á Húsavík deyja í raun engir nema þjóðhöfðingjar og stórmenni. Fólk sem allir þekkja, fólk sem skiptir máli í samfélag- inu, hefur hlutverki að gegna, fólk sem er saknað af okl<ur öll- um á einhvern máta. Mikilvægi okkar allra Það hefur mikið verið skrifað um ókosti þess að búa í smærri sam- félögum, um hvimleiða nálægð- ina, tilbreytingarleysið, kjafta- sögurnar, fábreytni atvinnulífs- ins, óþolandi heildarvitneskju allra um alla og þar fram eftir götum og má til sanns vegar færa. En í þessum smáu samfé- lögum skiptir einstaklingurinn máli, vægi hans innan heildar- innar er svo margfalt á við það sem gerist í stærri samfélögum. Þess vegna vita allir hver er far- inn þegar fánar eru í hálfa stöng á Húsavík og eru vonandi allir tilbúnir til að rétta hjálpandi hönd þeim sem eiga um sárt að binda. En í stórborginni er spurt hvaða stórhöfðingi er nú fallinn frá þegar fánar blakta lil hálfs og svarið kemur í útvarpinu eða Mogganum daginn eftir. Bömin okkar allra Þetta endurspeglast líka í mis- munandi viðbrögðum Húsvík- inga og Reykvíkinga þegar heyr- ist í sírenum sjúkrabílanna. Fyr- ir sunnan tekur maður ekki eftir þessu stöðuga væli, það verður aðeins hluti af endalausri um- ferðarsinfóníunni. I Iitla bænum fyrir norðan er fy'rsta hugsunin þegar maður heyrir í sjúrkabíh Hvar eru börnin mín? Eru þau ekki enn í skólanum? Er strákur- inn kannski á mótorhjólinu? Og menn fara að hringja úr vinn- unni, eða bregða sér frá til að leita upplýsinga og verða ekki í rónni fyrr en öruggt er að öll börnin eru heil á húfi. En menn verða ekki alveg sallarólegir því vitneskjan um slys er um leið vit- neskja um að eitthvað hefur komið fyrir kannski einhvern annan ættingja, vin eða kunn- ingja, í það minnsta einhvern sem maður þekkir eða börnin þeirra. Samfélag okkar allra Þegar einhver flytur úr bænum þá veit allur bærinn það. Og sömuleiðis þegar einhver flytur í bæinn. Þegar Húsvíkingur eða íbúi í öðrum smáum samfélög- um hverfur af sjónarsviðinu þá er æfinlega skarð fyrir skildi, þess sér stað, það er missir af öllu góðu fólki. Og hver og einn getur sagt við sjálfan sig: Samfé- lagið án mín er ekki sama samfé- lagiö og áður. Sumir setja auðvit- að meiri svip á umhverfi sitt en aðrir, en allir hafa hlutverki að gegna, allir skipta máli, ekki bara fyrir sína nánustu heldur fy'rir samfélagið í heild. Þessi sann- indi skynjar maður best þegar fánar blakta í hálfa stöng á Húsavík. Afmæli í dag I dag, 1 5. október, eiga þessir af- mæli á Húsavík: Fanney Geirs- dóttir frá Hringveri, f. 1912, bú- sett á Hvammi; Hreffia Ólafs- dóttir, Garðarsbraut 59, f. 1933; Jóhann Bjarni Einars- son, Garðarsbraut 25, f. 1972; Sigtryggur Brynjarsson, Sól- brekku 18, f. 1972; Þórdís Dögg Gunnarsdóttir, Steina- gerði 6, f. 1979; Rafnar Orri Gunnarsson, Stórhóli 17, f. 1988. 19. október n.k. verður 45 ára Kristín Þorbergsdóttir, Mararbraut 7. Og 21. október verður fimmtugur Sveinn Páls- son, Sólvöllum 3. - BK/jS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.