Dagur - 22.10.1997, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 - 3
VÍKURBLAÐIÐ
Ungir garðyrkjubændur
á uppskeruhátíð
Skólagarðar Húsavíkur hafa ver-
ið starfræktir lengi og þar vaxa
oft í fyrsta sinn „grænir fingur' á
unga bæjarbúar sem þeir búa að
síðan. I skólagörðunum eru
ræktaðar ýmsar matjurtir, kart-
öflur, kál og fleira góðgæti sem
hróðugir ungir grænmetisbænd-
ur draga heim í bú eftir upp-
skeru að hausti.
Og að sjálfsögðu er haldin
uppskeruhátíð að fornum sið,
—
Fjórar hnátur „fríka" út í fótboltaspilinu.
Bóndakona í borðtennis.
eða því sem næst. Ungir garð-
yrkjubændur komu saman til
uppskeruhátíðar í Keldunni s.l.
sunnudag og þáðu veitingar,
dunduðu sér í leiktækjum og
sögðu tröllasögur af uppsker-
unni.
Að sögn Sigríðar Sigurjóns-
dóttur, „guðmóður“ Skólagarð-
anna, voru um 40 börn í þeim
s.l. sumar, en ekki sáu allir sér
fært að mæta á uppskeruhátíð.
Sísí segir að margir krakkanna
séu þarna að koma í fyrsta sinn í
Kelduna og mikil upphefð að fá
að fara í leiktækin sem eldri
krakkar eiga bara kost á allajafn-
an. „Þeim finnst þau vera orðin
unglingar þegar þau eru komin í
Kelduna," sagði Sísí.
Hún sagði að Skólagarðarnir
hefðu byrjað óvenjuseint í sumar
vegna kuldkastsins í júní, en
uppskeran í haust hefði verið
mjög góð og alls ekki síðri en
þegar lengri vaxtartími liefur
gefist.
Ljósmyndari Víkurblaðsins var
á staðnum og myndaði káta
garðyrkjubændur sletta úr klauf-
unum á uppskeruhátíð. — JS
Afmælisböm dagsins
I dag, 22. október, eiga þessir
Húsvíkingar afmæli: Heimir
Bessason, f. 1945; Bragi Ing-
ólfsson, Heiðargerði 5, f. 1947;
María Michaelsdóttir, Urðar-
gerði 4, f. 1962; Hákon Vals-
son, Iðavöllum 6, f. 1968; Krist-
ey Þráinsdóttir, Alfhóli 1, f.
1981; Hulda Sigmarsdóttir,
Holtagerði 16, f. 1982; Hákon
Pálsson, Ásgarðsvegi 2, f. 1984.
23. okt. verður 65 ára Guðrún
Ingólfsdóttir, Grundargarði 4.
Sama dag verður 55 ára Sigrún
Jónsdóttir, Baughóli 3. 24. okt.
verður 45 ára Hermundur
Svansson, Uppsalavegi 25. Og
sama dag er fertug Bryndís
Guðlaugsdóttir, Höfðavegi 26.
25. okt. er fimmtugur Viðar
Sigurðsson, Brúnagerði 4. Og
sama dag er 45 ára Lára Júlía
Kristjánsdóttir, Árholti 14.
26. okt. verður sjötugur Ólaf-
ur Guðmundsson, Skólastíg 3.
28. okt verður 45 ára Jóhanna
Björnsdóttir, Sólbrekku 7. Og
28. okt. verður einnig 45 ára
Lilja Jónsdóttir, Baughóli 1.
- BK/js
Ungir og kátir garðyrkjubændur.
Friðgeir og Karl eru atvinnumannslegir í snooker.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁLFHEIÐAR EÐVALDSDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Kristján Eysteinsson og fjölskylda,
Hreinn Jónsson og fjölskylda,
Freyja Eysteinsdóttir og fjölskylda,
Sigfús Eysteinsson.
Þingeyingar!
Víkurblaðið er vettvangur skoðanaskipta í héraði.
Liggur ykkur eitthvað á hjarta? Þurfið þið að hrósa
einhverjum eða hella úr reiðiskálunum? Gagnrýna
eða gleðja?
Hafi menn eitthvað að segja um landbúnað, útgerð,
kaupfélagið, sveitarstjórnarmál, umhverfismál, gam-
anmál og allra handa mál, þá er Víkurblaðið vett-
vangur Þingeyinga.
Hafið samband í síma 464-1585, eða sendið sím-
bréf í númer 464- 1522.
%
VIKUR
BIAÐIÐ
(Æ mantiÁvná
Garðarsbraut 7 Húsavík