Dagur - 24.10.1997, Blaðsíða 1
Með Haukdal á bæjarhólnum
„Hér stóð bær á lágum hól, “ sörtg Haukur Morthens. Þau orð gæti Eggert gert að sínum, er hann sýndi biaðamanni bæjarhólinn á
Bergþórshvoii. Með rannsóknum dr. Kristjáns Eidjárns er staðfest að þar hafi staðið stórbýli á fyrstu öldum íslandsbyggðar sem, hafi
brunnið til grunna. Þær rannsóknir staðfesta frásögn Njálu. mynd: sbs
Eggert Haukdal er
kominn á þurrt land
eftirsautján vetra setu
áAlþingi og situr nú
heima á Bergþórshvoli.
Honum svellurmóður
yfirheimsins órétt-
læti, lánskjaravísitöl-
unni, kvótakóngum og
Sjálfstæðisflokknum,
sem hefur yfirgefið
hugsjónir Ólafs Thors.
I sautján vetur sat hann á þingi
og þó hann færi ekki oft í pontu
vakti hann gjarnan athygli fyrir
málflutning sinn. Akveðnir mála-
flokkar vorum honum hugleiknir
og á tungu tamir. Stöku sinnum
stormaði hann í ræðustól og tal-
aði um nauðsyn á vegabótum í
kjördæmi sínu, landsbyggðarmál,
andstöðu sína við Evrópusam-
bandið og meint landráð Jóns
Baldvins, Iánskjaravísitöluna sem
hann segir vera undirrót margs
ills á Islandi. En nú er okkar
maður komið á þurrt land og sit-
ur nú á höfðingjasetri sínu aust-
ur í Landeyjum.
Óralangt frá Ólafi Thors
Tvö ár eru síðan Eggert Haukdal
féll af þingi. Hugurinn er þó enn
við málefni líðandi stundar, og þá
ekki síðst þau málefni sem hann
talaði svo lengi fyrir. „Sjálfstæðis-
flokkurinn er í dag kominn langt
frá Olafi Thors og Bjarna Bene-
diktssyni. En flokkurinn og ríkis-
stjórnin virðast samt standa sig
vel, ef marka má kannanir. En
blikur eru samt víða á lofti og
margir kvarta svo sem aldraðir,
sjúkir, öryrkjar, — og láglaunafólk
situr í sínum ranni. En þeir
hugsa um kvótakóngana. Ljós í
myrkrinu eru hin nýju samtök
um þjóðareign,“ segir Eggert.
Þó honum svelli móður yfir
óréttlæti þá þverneitar hann þvf
að hann sitji heima og rífist við
sjónvarpið þegar sýnt er frá þing-
inu. „En annars hef ég nóg ann-
að að snúast,“ segir Eggert.
Ef þeim fæöist Guð...
Vinstri menn? Eggert telur að
þeir muni varla leysa heimsins
óréttlæti eða skipta auðinum
með réttlátari hætti. „Og þessi
hreyfing á enga forystumenn sem
ná fjöldafylgi. Hver verður for-
maður hennar? Jóhanna, Magga,
Svavar, Sighvatur eða Baldvin.
En ef þeim fæðist Guð mættu
þeir vafalaust vænta einhvers,"
segir Eggert, sem segir að Ingi-
björg Sólrún sér býsna fær
stjórnmálamaður og færust með-
al kvenna í íslenskum stjórnmál-
um í dag. „Eg tel mig raunar
miklu meiri jafnaðarmann en
sumir sem þar berja sér á brjóst,"
segir viðmælandi okkar.
Eggert minnir á að það hafi
verið vinstri stjórn sem kom verð-
tryggingunni á 1978. „Það var
farið að ræða um verðtryggingu
fjárskuldbindinga áður en Olafur
Thors hætti í pólítík. Eftir hon-
um er haft; „að hvorki atvinnu-
vegirnir né heimilin þola hana,“
einsog þar segir. Þegar maður
horfir til baka skammast maður
sín fyrir þá aðgerð ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks árið 1983, að afnema
verðtryggingu launa en láta hana
ganga áfram að fullu á lánum.
Það mátti sem sagt ekki verð-
tryggja laun láglaunafólks en lán
þess skyldu að fullu verðtryggð.
Eg flutti ár eftir ár frumvarp um
afnám þessarar vísitölu og á þingi
IJölgaði stuðningsmönnum þess
stöðugt. En peningavaldið sá um
að málið komst aldrei úr nefnd til
atkvæðagreiðslu í þingsal. Svona
er lýðræðið. Alþingismenn hefðu
þurft að standa framrni fyrir því í
augsýn alþjóðar að segja já eða
nei við afnámi lánskjaravísitölu.11
Hér stóð bær á lágum hól
Mild er haustblfðan og við göng-
um uppá gamla bæjarhólinn.
Oddvitinn og þingmaðurinn fyrr-
verandi sýnir og segir að hér und-
ir séu merkar minjar. „Því er
hvergi almennilega haldið á
lofti,“ segir hann „að með rann-
sóknum dr. Kristjáns Eldjárns
haustið 1951 er sannaður stór-
bruni hér á fyrstu árum íslands-
byggðar í bæjarhúsum sem voru
stórhýsi á sinni tíð. Gamla bæjar-
stæðið minnir ekki á forna frægð,
það er skömm að því að þar er
ekki komið minnismerki um Njál
og glöggt skilti með upplýsingum
um þá atburði sem hér gerðust.
Allar rannsóknir sýna að frá
fyrstu árum Islandsbyggðar hafa
kynslóðirnar haft íbúðarhús hér
á sama stað. Nútímamaðurinn
rauf hin sögulegu tengsl sem
Njáll skóp fyrir þúsund árum.“
Eggert stikar fram og aftur um
hólinn, einsog leiðsögumaður
með túristahóp, og getur svo sem
sagt einsog Haukur Mothens
söng forðum daga: „Hér stóð bær
með burstir fjórar, hér stóð bær á
lágum hól.“ -SBS.
Ní
h
«5
Gúmmu'innustofan hf.
RéUÉÉipi 2 & Skipholti 35
Þnöerekki nö nstæöulnusu nö Norðdekk eru most seldu dekk n íslnndi, þnu oru einfnldlocin cióöur og öruoaur kostur viö íslonsknr nöstroötn