Dagur - 24.10.1997, Page 6
22-FÖSTUDAGUR 2A.OKTÓBER 1997
jDjg^tar
Leikfélag
Akureyrar
4 TROMPÁHENDI
Hart
/
bak
eftir Jökul Jakobsson.
á Renniverkstæðinu
5. Sýning
Föstudaginn 24. október
laus sæti
6. Sýning
Laugardaginn 25. októbe
UPPSELT
7. Sýning
Föstudaginn 31. október
laus sæti
8. Sýning
Laugardaginn 1. nóvember
aukasýning kl. 16.00
UPPSELT
9. Sýning
Laugardaginn 1. nóvember
kl: 20.30
UPPSELT
10. Sýning
Föstudaginn 7. nóvember
laus sæti
11. Sýning
Laugardaginn 8. nóvember
UPPSELT
Gagnrýnendur segja:
„Uppsetning LA á Hart í bak er
hefðbundin og verkinu trú. Örlög
og samskipti persónanna eru í
fyrirrúmi ..."
Auður Eydar í DV
„Leikritið Hart í bak er meistara-
lega samsett af hliðstæðum og
andstæðum, táknum og samblandi
af stílfærðu raunsæi og botnlausri
rómantík.
Sveinn Haraldsson t Mbl.
„Inn í dökkva söguþráðarins fléttar
hann (höfundur) fögur ljósbrot og
spaugileg atriði auka dýpt
verksins."
Haukur Ágústsson í Degi
„Af því að ég skemmti mér svo
vel ."★★★
Arthúr Björgvin Bollason Dagsljós
♦ Á ferð með frú Daisy
Frumsýning á Rermiverkstceðinu 21. des.
Tltilhlutverk: Sigurveig Jónsdóttir
Söngvaseiður
Frumsýning í Samkomukúsimi 6. mars
Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir
4 Markúsarguðspjall
Frumsýning á Rermiverkstceðinu 5. apríl
Leikari: Aðalsteinn Bergdal
Leikfélag Akureyrar
Við bendum leikhusgestum á að enn
gefst tækifæri til þess að kaupa
aðgangskort á allar sýningar
Leikfélagsins, tryggja sér þannig sæti og
njóta ljúfra stunda í leikhúsinu á
einstaklega hagstæðum kjörum.
S. 462-1400
Munið Leikhúsgjuggið
FLUGFÉIAG ÍSLANDS
sími 570-3600
Tktqwr
■OEtí WttKKKM
er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar
LÍF OG FJÖR
Dúkristur Sigursveins
Sigursveinn H. Jóhannesson sýnir dúkrist-
ur á sýningu í Listhúsinu að Strandgötu
Hafnarfirði. Þetta er fyrsta sýning Sigur-
sveins og verður hún opin til 3. nóvember.
Karlakórinn Hreimur í söngför
Hinn ágæti sam-þingeyski karlakór,
Hreimur, verður með söngskemmtanir á
Norður og Austurlandi á næstunni.
Fyrsta söngskemmtunin verður n.k.
mánudagskvöld að Breiðumýri kl. 21.
Miðvikudagskvöldið 29. okt. verður
Hreimur í Stórutjarnaskóla kl. 21. Laug-
ardaginn 1. nóvember syngur kórinn á
Seyðisfirði kl. 15 og um kvöldið kl. 21
verður Hreimur á Egilsstöðum. Laugar-
daginn 8. nóvember kl. 17 syngur kórinn
í Glerárkirkju á Akureyri.
Stjórnandi kórsins er Robert Faulkner.
Undirleikarar Juliet Faulkner á píanó og
Aðalsteinn ísfjörð á harmoniku. Ein-
söngvarar með kórnum eru Ásmundur
Kristjánsson, Baldur Baldvinsson, Einar
Hermannsson og Sigurður Þórarinsson.
Efnisskrá er fjölbreytt, bæði hefðbundin
og í léttum dúr. js
Edda með
píanótónleika
Næstkomandi mánudag held-
ur Edda Erlendsdóttir pianó-
tónleika í Listasafni Kópavogs.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30. Á efnisskrónni eru verk
eftir Haydn, Schubert og
Tchaikovsky. Verk Tchaikov-
skys, sem Edda leikur á tón-
leikunum er Árstíðirnar, en
verkið verður að finna í flutningi
lisladiski sem kemur
næsta mánaðar.
Máíþing í Þjóðarbókhlöðu
Almenn íslensk orðabók,
staða og stefnumið
Á málþingi í Þjóðarbókhlöðunni laugardaginn 25. október eru
orðabókarmál á dagskrá og verður fjallað um almenna íslenska
orðabók frá ýmsum sjónarhornum. Islensk orðahók Árna Böðv-
arssonar kom fyrst út árið 1963 og önnur útgáfa, aukin og bætt,
árið 1983. Nú er í undirbúningi þriðja útgáfa þeirrar orðabók-
ar. íslensk orðabók verður undirstaða umræðunnar á málþinginu,
en jafnframt fjallað unr þörfma fyrir íslensk-íslenska orðabók og
hlutverk slíkrar bókar á okkar tímuin. Ymis álitaefni verða
rædd, bæði fræðilegar forsendur almennrar íslenskrar orðabók-
ar, þáttur hennar í íslenskri málstefnu og kröfur notenda í upp-
lýsingasamfélagi nýrrar aldar.
DAGSKRA
múmmmmmmmmmmmm
MALÞINGSINS:
13.00-13.15 Setning.
13.15- 13.35 Mörður Árnason, íslenskufræðingur á Máli og
menningu: Endurútgáfa „íslenskrar oröabókar".
Stefna - staða - horfur.
13.35- 13.55 Guðrún Kvaran, forstöðumaður Orðabókar Há-
skólans: Uppruni orðaforðans í „íslenskri orða-
bók“.
13.55- 14.15 Jón Hilmar Jónsson, ritstjóri á Orðabók Háskól-
ans: Glíman vlð orðasamböndin.
14.15- 14.35 Eirikur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri mál-
fræði við Háskóla íslands: Málfræði í oröabók-
um. Hvernig og til hvers?
14.35- 14.55 Kristín Bjarnadóttir, sérfræðingur við Orðabók
Háskólans: Um skýringarorðaforðann.
14.55- 15.25 Kaffihlé.
15.25- 15.45 Dóra Hafsteinsdóttir, ritstjóri orðabanka
íslenskrar málstöðvar: Fagorðaforöinn.
15.45-16.05 Ásta Svavarsdóttir, ritstjóri á Orðabók Háskól-
ans: Orðaval og notkunarleiðbeiningar. Hvað á
að gera við tökuorö og slettur?
16.05-16.25 Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður íslenskrar
málstöövar: Málræktarhlutverk íslenskrar oröa-
bókar.
16.25- 16.45 Umræður og ráðstefnuslit.
Fundarstjóri verður Gunnlaugur Ingólfsson,
ritstjóri á Orðabók Háskólans.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Mál og menning Orðabók Háskólans
Orðmennt, félag áhugamanna
um orðabókarfræði
Dúkristur Sigurveigar
Á laugardag opnar Sigurveig Knútsdóttir
sýningu á dúkristum í Gallerí Horninu,
Hafnarstræti 15. Þetta er fyrsta einka-
sýning Sigurveigar og þar sýnir hún 22
dúkristur þar sem unnið er með and-
stæður hins rökræna og sálræna og
samspil þeirra þátta í tilfinningalífinu.
Sýningin stendur til 12. október.
Gjár og gjótulíf
Á laugardag opnar Elin G. Jóhannsdóttir
málverkasýningu í baksal Gallerís Foldar
við Rauðarárstíg. f nokkurn tíma hafa
gjár verið myndefni Elínar. Endurkast
sögufrægs staðar, Þingvalla, ásamt
bergmáli líðandi stundar er viðfangsefni
hennar að þessu sinni. Þetta er þriðja
einkasýning Elínar.