Dagur - 06.11.1997, Side 8
8- FIMMTUDAGUR 6.NÓVEMBER 1997
Thypr
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1997 - 9
FRÉTTASKÝRING
L
JMudo
íhnfi
'—I VALGERÐUR
JÓHANNS
I : DÓTTIR
% SKRIFAR
Það ræðst á lands-
fundi Alþýðubanda-
lagsins um helgina,
hvort viðræðum
vinstri flokkanna um
samstarf verður hald-
ið áfram. Mjög skiptar
skoðanir eru iim það
innan flokksins og
jafnvel talið að hann
geti klofnað.
Landsfundur Alþýðubandalagsins
hefst í dag og ef að líkum Iætur
verður þar heitt í kolunum. Und-
anfarnar daga og vikur hafa
flokksmenn tekist á um mál mál-
anna, samfylkingu á vinstri væng.
Formaður Alþýðubandalagsins
vill láta á það reyna hvort vinstri
menn geti náð saman. Mikill
meirihluti kjósenda Alþýðu-
bandalagsins er jákvæður í garð
sameiginlegs framboðs, ef marka
má skoðanakannanir. Ungliðar í
flokknum þrýsta einnig mjög á
sameiginlegt framboð strax í
næstu þingkosningum. Andstæð-
ingar þess og þeir sem vilja fara
mun hægar í sakirnar eru hins
vegar mjög sterkir í flokknum.
Ymsir virðast óttast að flokkur-
inn kunni að klofna hver sem nið-
urstaðan verði, því bilið milli
þeirra sem lengst vilja ganga í
sameiningarátt og hinna sem lítið
vilja af krötum vita sé alltof
breitt.
En hvað verður tekist á um á
þessum landsfundi? Það er ljóst
að það verður ekki samþykkt þar
að bjóða fram með öðrum félags-
hyggjuflokkum, þótt einstaka
ungliðar gætu hugsað sér það.
Landsfundurinn hefur það hins
vegar í hendi sér að binda endi á
viðræður flokkanna og þar með
væntanlega koma í veg fyrir sam-
eiginlegt framboð þeirra fyrir
næstu þingkosningar.
Eina tillagan sem liggur fyrir
ennþá er frá framkvæmdastjórn
flokksins. Þar segir m.a. að í
framhaldi af niðurstöðu síðasta
landsfundar og framvindunnar
síðan, samþykki landsfundur
1997 „að kanna til hlítár mögu-'
leika á samstarfi, samfylkingu eða
sameiginlegu framboði félags-
hyggjufólks fyrir alþingiskosning-
ar 1999.“ I tillögunni er gert ráð
fyrir að forystunni verði falið að
vinna að sameiginlegum málefna-
grundvelli og verði því verki lokið
eigi síðar en f júní 1998. Þá verði
boðað til aukalandsfundar og tek-
in endanleg afstaða til samstarfs
flokkanna.
Viðbúið er að fleiri tillögur um
þessi mál verði lagðar fram á
landsfundinum, allt frá því að
lagt verði til að viðræðum verði
slitið og til þess að samþykkja
sameiginlegt framboð strax.
Óþarfa titrmgur
Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagins, telur að
titringurinn í flokknum sé meiri
en efni standa til. Það standi ekki
til að taka ákvörðun um sameig-
inlegt framboð á þessum lands-
fundi. Stjórn flokksins hafi unn-
ið eftir þeirri samþykkt sem
landsfundur gerði 1995, en „við
höfum óskað eftir þvf að lands-
fundurinn taki ákvörðun um
framhaldið, vegna þess að lengra
verður ekki komist miðað við þá
samþykkt. Það er hins vegar ljóst
að það er mjög sterkur vilji fyrir
því innan Alþýðubandalagsins að
skoða það hvort grundvöllur sé
fyrir meira samstarfi þessara
flokka, eins og fram kemur í sam-
'þýkkt framkvæmdastjofhah“ *
Margrét viðurkennir fúslega að
skiptar skoðanir séu um hvaða
leiðir eigi að fara og að þungvigt-
armenn, ekki síst í þingflokknum,
séu henni lítt eða ekki samstíga.
Sá ágreiningur sé kannski fyrst og
eru hörð viðbrögð í báðar áttir og
menn skyldu varast að tala bara
um klofningshættu ef annað
sjónarmiðið nær fram að ganga
en ekki hitt,“ segir Margrét.
Mikið tækifæri
Hún leggur áherslu á að Alþýðu-
bandalagið sé sterkur flokkur og
með sterka málefnalega stöðu og
engin ástæða sé til að óttast við-
ræður við aðra flokka um sam-
starf. „Þetta er tækifæri sem við
getum ekki látið ganga okkur úr
greipum. Við eigum alls ekki að
vantreysta okkar flokki í svona
viðræður og ekki dæma fyrr en
við vitum hvað út úr þeim kem-
((
ur.
Margrét segir að ýmsir séu
smeykir við að ekki verði aftur
snúið, ef farið verði í málefna-
vinnuna. Það sé alls ekki svo. Ná-
ist ekki samkomulag um mál-
efnasamning sem Alþýðubanda-
lagið geti sætt sig við, þá verði
ekkert af samfylkingu.
„Ég legg áherslu á að flokkur-
inn verði samferða í gegnum
þetta. Við megum ekki búa til
„afl“ sem verður ekkert afl. Sagan
hræðir í þeim efnum. Þjóðvaki
átti að verða þetta afl sem sam-
einaði vinstri menn. Það var al-
gjört klúður og þess vegna hef ég
lagt áherslu á að hvert skref sé
stigið varlega og af vel yfirlögðu
ráði og menn fylgist að í þessari
vinnu. Takmarkið hlýtur að vera
að við stöndum sterkari á eftir en
áður.“
Samstarf við verkalýðshreyf-
inguna
Það er ekki annað að heyra en
formaður Alþýðubandalagsins
telji miklar líkur á að stjórnarand-
stöðuflokkarnir geti náð saman.
Víst greini Alþýðubandalag og Al-
þýðuflokk á um Evrópumálin og í
afstöðunni til Nato og veru hers-
ins, en það verði bara að láta á
það reyna hvort þar finnist flötur,
sem báðir geti sætt sig við. Viljinn
sé til staðar og flokkarnir hafi
starfað vel saman á þingi undan-
farið, til dæmis í málum sem
varða verkalýðspólitík.
„I mínum huga verða kjaramál-
in og umhverfismálin stóru málin
í sögu þjóðarinnar á næstu árum
og þar eigum váð möguieika á að
ná saman.“
Margrét segist hafa haft
ákveðnar efasemdir um samþykkt
landsfundarins 1995, en hafi síð-
an sannfærst um að það hafi ver-
ið hárrétt pólitísk ákvörðun. Hún
nefnir sérstaklega að undanfarið
hafi komið fram mjög sterkur vilji
innan verkalýðshreyfingarinnar
til þess að vinstri menn sameinist
í sterkum pólitískum flokki með
náið samstarf við verkalýðshreyf-
inguna. „I mínum huga vegur
þetta mjög þungt, því ég hef lagt
mikla áherslu á að auka þessi
tengsl milli flokks og verkalýðs-
hreyfingar. Ég tel að staða þeirra
sem eru á vinstri væng stjórnmál-
anna og staða verkalýðshreyfing-
arinnar beinlínis kalli á sterka
samstöðu í framtíðinni."
MiMðíhúfi
Ymsir halda því fram að á lands-
fundi Alþýðubandalagsins ráðist
ekki aðeins hvort af samfylkingu
verður, heldur sé pólitísk framtíð
Margrétar einnig í húfi. Henni
þykir það fulldjúpt í árinni tekið.
ítrekar að hún hafi unnið í einu
og öllu samkvæmt samþykktum
flokksins. „I þessu hef ég auðvit-
að lagt mikið undir og menn hafa
deilt um þau skref sem ég hef
stigið. Sumum hefur fundist ég
ganga of langt, öðrum of
skammt. Ég hlýt að fara fram á
það við þennan landsfund að þau
skilaboð sem hann sendir mér
eða öðrum í forystunni verði skýr,
á hvorn veginn sem þau verða.
Hinsvegar stend ég að samþykkt
framkvæmdastjórnar flokksins og
ég þarf auðvitað í ljósi niðurstöðu
Iandsfundar að skoða framhaldið
gaumgæfilega.“
Nái tillaga framkvæmdastjórn-
ar ekki fram að ganga og þú fáir
þau skilaboð frá landsfundinum
að hætta þessari samfylkingar-
vinnu eða að minnsta kosti hægja
verulega á, hvað gerir þú þá? Það
vita allir að það er ekki það sem
þú vilt.
„Það er rétt. Ég vil fara í þessa
málefnavinnu vegna þess að ég
tel að það sé tilraunarinnar virði.
Við erum ekki að tala um að
leggja niður flokka heldur búa til
verkefnaskrá til 4 ára, fyrir sam-
einaðan stóran hóp vinstri
manna.
Alþýðubandalagið er góður
flokkur. Hann á ekki annað skilið
en að formaðurinn sé tilbúinn til
þess að vinna eftir bestu sann-
færingu. Ef sannfæring manns
Iiggur einhvers staðar annars
staðar, en samþykktir flokksins,
þá hlýtur maður að velta því fyrir
sér. Það yrði ekki með neinum
sárindum, heldur vegna þess að
mér ber að hugsa um hag flokks-
ins fyrst og fremst. Það mun ég
gera hvaða ákvörðun sem ég tek.“
Margrét Frímannsdóttir fór með sigur af hóimi i formannskjöri í Alþýdubandalaginu fyrir 2 árum síðan. Spurn/ng er hins vegar hvort hún stendur með pálmann í höndunum eftir
landsfundinn sem hefst í dag, en þar verður m.a. tekist á um samfylkingu vinstri manna.
fremst um form á samstarfi A-
flokkanna. Hvort bjóði eigi fram
saman undir einu merki, eða
sameinast um einhvers konar yf-
irlýsingu um samstarf að kosn-
ingum loknum en bjóða fram
hver í sínu nafni.
„Þetta er deila sem mér finnst
algjörlega ótímabær. I dag blasir
ekki við að taka ákvörðun um
þetta, heldur um það hvort við
eigum að skoða hvort við náum_
sarrian úrn~málefni. Þegar niður-
staða liggur fyrir í þeirri vinnu
verður landsfundur Alþýðu-
bandalagsins að ákveða hvort
samkomulag um málefni dugi til
öflugs samstarfs eða hvort flokk-
arnir haldi sínu striki."
Öfgax á báða bóga
Sem fyrr sagði óttast ýmsir að Al-
þýðubandalagið kunni að klofna
ef reynt verði að þvinga fram
ákveðna afstöðu í samfylkingar-
málum á landsfundinum.
Margrét segir að vissulega geti
komið upp vandamál nú. „Það
eru í raun á ferðinni öfgar á báða
bóga og kannski erfitt að sætta þá
sem lengst vilja ganga í hvora átt-
ina sem er.. En ég bendi á að
Stéingrírhúr j. Sigfússon hefur
t.d. verið á þeirri línu að það eigi
að auka samstarf vinstri manna.
Agreiningurinn er kannski meira
um formið og það þurfum við að
ræða síðar.
Ég vil gjarnan finna þá línu
PjBPjÓ? ■
Pbd wifnsrnr
A 1CliJir * tm irjlXdML
''■■■■■riSfyF
^em flokksmenn gætu flestir
sameinast um. Við erum lýðræð-
islegur flokkur og munum reyna
að finna þann samnefnara sem
flest okkar geta sameinast um.
En því er ekkert að leyna að það
SET vatnsrör úr PE og PP
efni eru framleidd í öllum
víddum frá 16 til 500 mm að
þvermáli. Rörin henta vel í
vatnsveitur, hitaveitur, snjó-
bræðslu, ræsi o.fl.
Röraverksmiðja SET á
Selfossi hefur yfir að ráða
fullkomnustu tækni sem
völ er á við framleiðslu á
plaströrum og leggur
áherslu á vöruvöndun og
góða þjónustu við íslenska
lagnamarkaðinn.
Evrópuleikur
laugardaginn 8. nóvember kl. 16.15.
KA - Celje Pivovarna Lasko
Forsala aðgöngumiða í KA-heimili og Bókval
föstudaginn 7. nóvember.
Miðaverð kr. 300 fyrir börn og kr. 1000 fyrir fullorðna.
SET ehf. Eyravegur 41-45, 800 Selfoss