Dagur - 12.11.1997, Blaðsíða 12
h m
Miðvikudagur 12. nóvember 1997
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524
Ésfer
e
éger
ann-
ar...
Kennarar og nemendur Síðuskóla skemmtu sér konung-
lega þegar þau vörpuðu af sér hversdagshamnum og
klæddust drauma- og ímyndunarskrúðanum. Það kom í
ljós á þessum drauma-og skemmtidegi að krakkarnir í
skólanum eiga sér stórt áhugamál, nei ekki bara Krydd-
stelpur, heldur línudans. Kúrekastígvél og tunlgönguskór
prýddu fima faetur sem tifuðu í línudansi fram og aftur
um skólastofur og ganga. En hin klassíska lína heldur
sínu og heillaði Dagstíðindamann sem fylgidst með fjör-
inu, trúðurinn, já trúðurinn stendur fyrir sínu. Ekki vit-
um við hvað hún heitir stúlkan hér að ofan, enda ekki
hún, heldur annar, eins og sjá má. Og félagarnir (til vin-
stri) frekar svalir yfirlitum og greinilega fólk með erindi
við samtímann, og framtíðina. Það var sem sagt furðu-
fata- eða grímubúningadagur hjá þeim og allt sem gerir
lífið líflegra er vel þegið. I skólanum. Og í Lífinu í land-
inu — hjá Degi!
Hátt í 200 titlar út-
gefnir íár. 120 á síð
ustu mánuðunum.
Útgefendur hræð-
ast ekki sam-
keppni við
hókina.
Búist er við að út-
gáfa á íslenskum
hljómplötum
nemi eitt-
hvað um
200 titl-
um á
þessu
á r i .
Það
er svipaður fjöldi og í fyrra. Á síð-
ustu tveimur til þremur mánuð-
um ársins verða hinsvegar gefnar
út hátt í 120 plötur, enda er aðal-
vertfðin í sölu innlendra platna á
þeim árstíma. Þá er alltaf eitt-
hvað um að hljómsveitir og flytj-
endur gefi sjálfir út afurðir sínar
og dreifi þeim.
Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands flytj-
enda og hljómplötuframleið-
enda, segir að útgefendur séu
hóflega bjartsýnir á vertíðina sem
er framundan. Hann segir menn
ekki óttast samkeppni við bókina,
enda sé verð á plötum mun hag-
stæðara en á bókum. Sem dæmi
þá jókst sala á hljómplötum um
rúm 12% á milli áranna 1995 og
1996.
Hörð samkeppni
Þótt sala á innlendu efni hafi
minnkað um 9% fyrstu sex mán-
uði ársins og erlent efni aukist
um sama hlutfall miðað við sama
tíma í fyrra, er talið að hlutur
innlendrar framleiðslu muni
rétta sinn hlut eins og ávallt þeg-
Sigga Beinteins er eitt afstóru
nöfnunum i ár, med tvær plötur, hvorki
meira né minna!
ar líða tekur að lokurn ársins.
Talið er að hver plata þurfi að
seljast í 1-3 þúsundum eintökum
til að hún borgi sig. Það fer þó
mikið eftir fjölda upptökutíma og
öðrum tilkostnaði sem lagður er í
útgáfuna. Verð á geisladiski í ár
er svipað og í fyrra eða í kringum
2 þúsund krónur. Viðbúið er að
verð á vinsælustu plötunum geti
orðið eitthvað lægra þegar sam-
keppnin á milli verslana fer að
harðna með þátttöku stórmark-
aða.
Athygli vekur að við þessa
plötuvertíð gefa söluhæstu tón-
listarmennirnir frá því í fyrra ekki
út plötu. Þar má nefna t.d. Pál
Óskar, Emilíönu Torrini og Botn-
leðju. Hinsvegar stendur Bubbi
Morthens vaktina eins og
endranær með nýrri plötu og
einnig Sigga Beinteins og Megas
ásamt fjölda annarra listamanna,
bæði eldri sem yngri.
Um 90% þeirra sem gefa út
plötur og dreifa eru í Sambandi
flytjenda og hljómplötuframleið-
enda. Þar á meðal er Skífan,
Spor, Japis, Geimsteinn, íslenska
tónverkamiðstöðin, Smekkleysa
og Hljóðsmiðjan. Þá er Rimur,
fyrirtæki Rafns Jónssonar, á leið f
sambandið. -GRH