Dagur - 14.11.1997, Blaðsíða 12
12 -FÖSTUDAGVR 14.\ÓVEMBER 1997
£n2uœt
TÓNLEIKAR
Karlakór Akureyrar-Geysir
verður með hausttónleika íLóni sunnudaginn 16. nóv. kl. 16.
Flutt verður Jjölbreytt efnisskrá: Vínartónlist, valsar og
polkar ásamt íslenskum og erlendum karlakórslögum.
Þetta verður ánœgjuleg dagstund með kórfélögum og er
fólk hvatt til að mæta og njóta samverunnar við þá, ekki
spillir að aðgangseyrir er aðeins kr. 500,-
Stjórnandi kórsins er Roar Kvam og
undirleikari Richard Simm
Framsóknarflokkurinn
Kjördæmisþing framsóknarfélaganna á Vesturlandi
verður haldið að Lýsuhóli, Staðarsveit,
laugardaginn 15. nóv. og hefst kl. 10.
Aðal umfjöllunarefni þingsins verða sveitarstjómarmál
og væntanlegar sveitarstjómarkosningar.
Gestir fundarins verða:
Halldór Asgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins
Egill Heiðar Gíslason, framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins
Jóhanna Engilbertsdóttir, formaður LFK
Ami Gunnarsson, formaður SUF
Anna Margrét Jóhannesdóttir, jafnréttisráðgjafi
Framsóknarflokksins
Einar Sveinbjömsson, bæjarfulltníi í Garðabæ
Ingibjörg Pálmadóttir, alþingismaður
Magnús Stefánsson, alþingismaður
Áætluð þingslit verða um kl. 18.30
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. nóvember 1997 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 28. útdráttur
1. flokki 1990 - 25. útdráttur
2. flokki 1990 - 24. útdráttur
2. flokki 1991 - 22. útdráttur
3. flokki 1992 - 17. útdráttur
2. flokki 1993 - 13. útdráttur
2. flokki 1994 - 10. útdráttur
3. flokki 1994 - 9. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 14. nóvember.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍAAI 569 6900
ÍÞRÓTTIR
Hörður Már í Valen
PáQ til Leifturs
Hörður Már Magnússon, sem
lék með Leiftursliðinu á síðasta
keppnistímabili, hefur gengið frá
tveggja ára samningi við Valslið-
ið, sem hann lék með áður en
hann fór norður. Knattspyrnu-
deildir félaganna náðu sam-
komulagi um félagaskiptin í gær-
dag. Hörður lék með Leifturslið-
inu undir stjórn Kristins Björns-
sonar og mun einnig gera það að
Hlíðarenda.
Páll til Leiíturs
Urvalsdeildarlið Leifturs hefur
gengið frá samningum við Pál
Gíslason, einn lykilmanna 1.
deildarliðs Þórsara á undanförn-
um árum. Páll, sem leikur á
miðjunni, mun leika með Olafs-
þ'arðarliðinu næsta sumar. Vera
kann að þeir Arni Þór Arnason
og Halldór Áskelsson, sem leikið
hafa með Þór, eigi eftir að bætast
í raðir þeirra, en engir samningar
hafa verið gerðir þar um. Fleiri
Þórsarar af eldri kynslóðinni
munu hugsa sér til hreyfings og
heyrst hefur að bróðir Halldórs,
Hördur Már Magnússon.
Þórir, muni halda sig á höfuð-
borgarsvæðinu næsta sumar.
Tveir riftu samningiun
Aðeins tveir leikmenn nýttu sér
heimild í leikmannasamningum
KSI og riftu samningum við félög
sín. Sérstök klásúla er um að
leikmenn þeirra liða sem falla úr
úrvalsdeildinni geti rift samning-
Páll Gíslason.
um sínum fyrir 1. nóvember.
Tveir leikmenn Stjörnunnar
nýttu sér þá heimild. Ingólfur
Ingólfsson, sem þegar hefur gert
samning við Val, og Kristinn Lár-
usson, en vera kann að hann
verði áfram í herbúðum Stjörnu-
manna. Enginn leikmaður
Skallagíms nýtti sér heimildina.
- FE
Þorvaldur lék með vara-
liði Stoke á Old Trafford
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson,
framherji Leiftursmanna á sl.
sumri og þriðji markahæsti leik-
maður síðasta Islandsmóts,
spreytti sig með varaliði Stoke á
Old Trafford, heimavelli
Manchester United, gegn kunn-
um köppum í fyrrakvöld. Þor-
valdur, sem hefur verið til
reynslu hjá Stoke að undan-
förnu, fær væntanlega að vita
það í dag hvort hann skrifar und-
ir mánaðarsamning við enska 1.
deildarfélagið.
Um fimm þúsund áhorfendur
fylgdust með leik varaliðanna hjá
Manchester United og Stoke.
Manchesterliðið var betri aðilinn
í leiknum að sögn Þorvaldar og
uppskar sigur, 4:2. Norðmenn-
irnir Ole Gunnar Solskjær og
Eric Nevland, sautján ára piltur
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson lék
gegn Ole Gunnar Solskjær og félögum
í fyrrakvöld.
sem liðið fékk nýlega frá Viking
Stavanger, skoruðu tvö mörk
hvor. Nokkrir kunnir kappar
voru í Manchesterliðinu, þar á
meðal Ronny Johnsen og fyrir-
liðinn Brian McClair.
Aðspurður um það hvernig
honum hefði þótt að leika á Old
Trafford sagði Þorvaldur að völl-
urinn hefði verið mjög blautur,
en gaman væri að segja frá þessu
í endurminningunum. „Eg er
þokkalega ánægður með mína
frammistöðu. Ég var settur á
hægri kantinn og fékk engin af-
gerandi marktækifæri, enda sótti
Manchesterliðið heldur meira.
Forráðamenn Stoke báðu mig
um að spila æfingaleik í kvöld
gegn einhverju Iiði sem ég kann-
ast ekki við og ég verð væntan-
lega í „senterstöðunni" í þeim
leik,“ sagði Þorvaldur. - FE
Með hárið að veði...
Það er ekki algengt að íþrótta-
menn séu svo öruggir uiii eigin
frammistöðu að þeir leggi hár
sitt að veði. Það mun
körfuknattleiksmaðurinn Gísli
Nils Einarsson gera á morgun.
Leikmenn Skotfélags
Akureyrar, sem er
með lið í 2. deild ís-
landsmótsins í
körfuknattleik, hafa
ekki verið mikið í
fréttum í fjölmiðlum,
en nú er svo komið að
margir híða spenntir
eftir leik liðsins á
morgun, gegn Glóa frá
Siglufirði.
Ástæðan er sú að einn yfirlýs-
ingaglaður leikmaður liðsins,
Gísli Nils Einarsson, hárprúður
framheiji þeirra norðanmanna,
hefur sett hár sitt að veði fyrir því
að hann nái að skora tuttugu stig
fyrir SA. Ef Gísli nær ekki þeim
stigafjölda hefur
hann lofað því að
láta hár sitt fjúka og
það hefur frést að
margir leikmenn SA
séu tilbúnir til að sjá
um raksturinn, strax
að Ieik loknum.
Því er ekki að
neita að margir liðs-
menn Skotfélagsins eru orðnir
ansi þunnhærðir og þeir vilja
auðvitað að Gísla takist ekki ætl-
unarverk sitt. Munu þeir hafa
hótað því að hafa Eirík Sigurðs-
son, fyrrum úrvalsdeildarkappa,
inná allan leiktímann en Eirfkur
mun ekki vera mikið fyrir það að
gefa knöttinn, þegar hann er
með körfu andstæðinganna í
sjónlínu. Gísli hefur svarað fyrir
sig og gefið í skyn að ef hann nái
átján stigum, þá muni hann jafn-
vel skora í eigin körfu, til að
bjarga hári sínu frá rakvélinni.
Gísli hefur mest náð átta stig-
um í leik það sem af er vetrar, en
telur sig eiga nokkuð inni eftir
ágætis frammistöðu á æfingum
og hann hefur þegar fengið lof-
orð um að hann megi vera inná
allan leiktímann. Þess má geta
að Skotfélag Akureyrar er með
marga þekkta kappa innanborðs,
meðal þeirra eru Konráð Óskars-
son og Björn Sveinsson, fasta-
menn í úrvalsdeildarliði Þórs
mörg undanfarin ár. Liðið leikur
heimaleiki sína í Iþróttahúsinu á
Þelamörk og leikur Iiðsins gegn
Glóa hefst klukkan 13:30 á
morgun. - fe