Dagur - 28.11.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 28.NÓVEMBER 1997 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
Fyrrum nemend-
ur Sjómanna-
skólans hafa nú
blásið til stofn-
unarHollvina-
samtaka skól-
ans og ætla með
þeim samtökum
að styðja við
skólann og þá
menntun sem
hann veitir.
SPJAÍX
Gudjón Arnar Kristjánsson er einn af Hollvinum Sjómannaskólans.
Sj ómanna-
sKólinn lifi
„Hér koma árlega tugir eldri
nemenda við útskrift, allt að 40
ára útskriftarnemar og þeir færa
skólanum gjafir, annaðhvort til
tækjakaupa eða annarra hluta,“
segir Guðjón Arnar Kristjánsson,
sem er einn þeirra er stendur að
stofnun Hollvinasamtaka Sjó-
mannaskólans.
„Það sem kannski liggur helst
að baki er sú ákvörðun Mennta-
málaráðherra að vilja skyndilega
flytja skólann upp á Höfðabakka
9 til að rýma fyrir kennslu á há-
skólastigi fyrir þroskaþjálfa og
fóstrur," heldur Guðjón áfram.
„Hér var búið að vinna mikið í
því að búa til plan í þeim tilgangi
að breyta menntun skipstjórnar-
manna, taka fornámið sér og að-
fararnámið sér, minnka sigling-
artíma og að skólinn yrði fyrst og
fremst fagskóli. Á þetta féllst
menntamálaráðherra og allir
voru glaðir.
I framhaldi af því hafa Kenn-
araháskólinn, stýrimannaskólinn
og vélstjóraskólinn rætt það sín á
milli að hægt væri að samnýta
aðstöðuna og gerð tillaga um
Afþví að mennfundu
ekkert hentugt hús-
næði átti aðfæra Sjó-
mannaskólann upp á
Höfða.
það að byggja upp félagslegt
húsnæði sem nýttist nemendum
allra skólanna þriggja."
Sjómannaskólinn er barn síns
tíma og víða komið að viðhaldi.
Með því að byggja nýtt mötu-
neyti á lóðinni, sem um leið
nýttist hinum skólunum, myndi
losna um neðstu hæðina, þar
sem nú er mötuneytið og þá væri
hægt að flytja kennara og skóla-
stjóra niður og fara að vinna að
viðhaldi á efri hæðum eftir
skipulagi og samræma viðhaldið
endurhyggingunni. Meðfram
þessu væri byggt dagheimili
þannig að í raun yrði svæðið að
stúdentagörðum, líkt og í Há-
skólanum. Þetta var allt skipu-
lagt og sett á pappír og samþykkt
við ánægju og gleði þeirra
manna sem hlut á áttu að máli.
„Svo þegar þetta var loks kom-
ið á pappír og menn voru komnir
með þetta í hendurnar, þá dúkk-
ar allt í einu upp tillaga niður í
Menntamálaráðuneyti, þar sem
einhver nefnd var að skoða hús-
næðismál fyrir kennslu á há-
skólastigi fyrir þroskaþjálfaskól-
ann og fóstruskólann. Og af því
að menn fundu ekkert hentugt
húsnæði fyrir það, þá bentu þeir
bara á Sjómannaskólann og
vildu færa hann. Þeir sem að
skipulagningunni stóðu frá Sjó-
mannaskólanum, urðu eins og
sveppir í framan og skildu hvorki
upp né niður. Þess vegna kemur
nú þessi andstaða. Við erum
ekki sáttir við að flytja upp í
Höfðabakka 9, þó svo að aðal-
verktakar séu að flytja þaðan. Eg
hélt nú að ríkið væri með nóg af
tómu leiguhúsnæði, það þyrfti
ekki að leita langt til að finna
húsnæði fyrir fóstru- og þroska-
þjálfaskólana,“ segir Guðjón að
Iokum. VS
Einn í ellefubíó
Clooney í kaM
Nú kom Ioks eftir langa mæðu
fín spennumynd í Borgarbíó á
Akureyri. Hún var mun betri og
athyglisverðari en Air force one.
Ég er að tala um myndina
Peacemaker með sjálfum Cloo-
ney í aðalhlutverki. Á móti hon-
um lék ástralska leikkonan
Nicole Kidman. En Clooney stal
senunni. Hann er einfaldlega
einn sá flottasti í dag. Ég er bú-
inn að fjalla um hárgreiðsluna á
Clooney alloft en nú eru það
kakí-buxurnar. Hann gekk í
drapplituðum kakí-buxum (kakí-
buxur eru vinsælar meðal
bandaríska karlmanna. Algeng-
asti liturinn er ljós. Ljósblá
skyrta með hnepptum kraga er
algeng við buxurnar) og ljós-
blárri skyrtu og var frekar mikill
nagli. I upphafi myndar Iæddist
að mér sá grunur að ég væri á
rangri sýningu. Upphafið minnti
óneitanlega á James Bond-
mynd. Ég er ekki að segja að
það sé af hinu slæma. Byrjunin
lofaði góðu og myndin hélt
dampi allan tímann.
Söguþráðurinn var ekki nýr af
nálinni, en inn á milli leyndust
frumlegir og nýir sprettir eins og
lestaratriði sem var í hinu marg-
umtalaða byrjunaratriði. Mynd-
in var laus við alla óþarfa væmni
og þjóðarrembing og var ég sátt-
ur við það. Tónlist og tækni-
brellur voru vel útfærðar, eins
klippingar sem voru óaðfinnan-
legar. Nú er ég kominn út á
brautir sem ég er ekki vanur að
fjalla um. Hvað um það slepp-
um því eins og Brimkló söng um
árið við lag Bob Dylans.
Sem sagt, myndin er hin
besta afþreying og mæli ég ein-
dregið með henni í Borgarbíói á
Akureyri. Clooney er flottur,
spenna til staðar og engin
óþarfa vella í gangi. Bráðum
koma blessuð jólin og nýjar
myndir koma. Ég hlakka til. Ég
tek undir með samstarfskonu
minni henni Kollu að The Eng-
lish Patient er besta myndin á
myndbandaleigum í dag.
Elskendurnir í þeirri mynd leika
svo vel að vera ástfangin að þau
eru einfaldlega ástfangin.
SMÁTT OG STÓBT
Himdalíf
Það er ekki á hverjum degi sem hasshundurinn
gefur kost á því að rætt sé við hann. Mikil Ieynd
hvílir yfir starfi hans og hefur hann verið tregur
til að ræða starfsaðferðir sínar. Fyrir þrábeiðni
og vegna kunningsskapar blaðamanns við spor-
hund nokkurn féllst hasshundurinn á að tjá sig
um mikla ffkniefnaleit sem gerð var í Menntaskólanum á Laug-
arvatni.
„Mér hafði borist til eyrna frá smalahundum úr Árnessýslum
sem dvöldu með mér á hundahótelinu í sumar að ekki væri allt
með felldu í
Menntaskólanum á
Laugarvatni,“ sagði
hasshundurinn. „Ég
hefði náttúrlega átt
að átta mig á að slík-
ar grunsemdir væru
eðlilegar hjá lítt lífs-
reyndum smala-
hundum sem þekkja
ekki djúphugula
menntamenn frá
hálf rænulausum
fíklum,“
Hasshundurinn
segir það leitt að
menntskælingar rVi fyrir þessum óþægindum og þakkaði skiln-
ing þeirra á málinu. Hann bað einnig fyrir kveðjur til Selfosslög-
reglunnar sem hefði brugðist vel við beiðni sinni og hvað það
synd að þeir væru ekki af hundakyni því þá væru þeir fyrsta
flokks hasshundar.
Hættulegt
starf
Störf í öryggisgæslu verða
sífellt hættulegri eftir þvf
sem menn búast við verri
glæpum. I Kringlunni
hafa verið sviðsett rán að
undanförnu til að þjálfa
starfsfólk í því að bera
kennsl á ræningja. Ymsu
starfsfólki hefur verið
brugðið, enda ekki fengið
að vita fyrirfram af þess-
um æfingum, þar sem
slíkt væri tilgangslítið.
Ekki hafa þessar æfingar gengið slysalaust fyrir sig, en stórslysa-
laust sem þetur fer. Margir eru þó fegnir að ekki séu æfðir alvar-
legri og hættulegri glæpir en rán, s.s eins og hryðjuverk.
Nú líður að jólum og spurning hvort ekki verði að hafa æfingu
sem þjálfar fólk í að þekkja í sundur glæpamenn í jólasveinabún-
ingum, því á þessum árstíma er það líklegastir dulbúningurinn. “
Linduliuffs-
stríðiö
Sérkennileg deila er haf-
in á lesendasíðum DV.
Stríðsöxin var reidd á loft
með skrifum lesenda um
að sér þætti Lindubuff
seigt og vont. Ekki stóð á
svari og unnandi Lind-
buffs lét þegar í sér
heyra.
Þar sem þættir um
deilumál þjóðarinnar eru
fastir liðir í sjónvarpi og
fólk getur fyrir sanngjarnt verð hringt og tjáð skoðanir sínar á að-
skiljanlegustu málum, er tilvalið að fá úr því skorið í eitt skipti
fyrir öll hver hugur þjóðarinnar er til Lindubuffs. Við slíka dauð-
ans óvissu verður ekki búið.
Sofið fyrir vestau
Lesandi hafði samband við blaðið og fannst ekki nægjanlega fylgt
eftir frétt um að bannað væri að sofa í tímum í Framhaldsskóla
Vestfjarða. Fréttin var reyndar í Morgunblaðinu, en ekki Degi og
fjallaði um ýmsar agareglur í Framhaldsskólanum.
Fróðlegt væri að vita hvernig, hvar og hjá hverjum nemendur
framhaldskóla landsins sofa og hvaða reglur skólar víða um land
hafa um svefnvenjur nemenda sinna. Þá mætti fylgja með hvað
þá dreymir og hvort munur er á draumum eftir því hvort sofið er
heima eða í kennslustofu.