Dagur - 29.11.1997, Page 1

Dagur - 29.11.1997, Page 1
m nn Verð ílausasölu 200 kr. 80. og 81. árgangur - 227. tölublað Hollyivood falast eftír bók Guðbergs Þekktur Hollywood- leikstjóri í viðrædum um kvikmyndun sög- lumar. Hollywoodleikstjórinn Alfonso Cuaron hefur hug á að kvik- mynda skáldsögu Guðbergs Bergssonar, Svaninn, og gert höfundinum tilboð þar að lút- andi. Viðræður standa nú yfir um málið, en Guðbergur hefur meðal annars sett ákveðin skil- yrði um hvernig handritið verði skrifað. Cuaron, sem er af mexíkóskum ættum, hefur getið sér gott orð í Hollywood þar sem hann hefur meðal annars leik- stýrt útgáfu af hinni frægu sögu Charles Dickens, Great Expecta- tions, þar sem Robert de Niro, Anne Bancroft, Ethan Hawke og Gwyneth Paltrow fara með aðal- hlutverk. Sömuleiðis er hann leikstjóri hinnar vinsælu kvik- myndar Litla prinsessan sem sýnd var hér í kvikmyndahúsum ekki alls fyrir löngu. Cuaron las spænsku útgáfuna af Svaninum og hreifst svo af henni að hann Guöbergur Bergsson: Hollywoodkvikmynd eftir Svaninum? hefur falast eftir kvikmyndarétt- inum. Ekki náðist í Guðberg Bergs- son vegna þessa máls í gær en Jóhann Páll Valdimarsson, út- gáfustjóri Forlagsins, sem gaf út Svaninn, segir Guðberg hafa mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig kvikmyndahandritið eigi að vera og hafi sett sem skilyrði að hann fái að skrifa það sjálfur. „I hugmyndum sínum að kvik- mynd breikkar Guðbergur sög- una og víkkar alla skírskotun hennar. Hann vill fá hugmyndir sínar samþykktar áður en gengið verður til samninga. Leikstjórinn er með hugmyndir Guðbergs til skoðunar og nú er einungis beð- ið eftir svari hans,“ sagði Jóhann Páll. Svanurinn hefur þegar verið þýddur á sex tungumál og fengið feikna góða dóma, hlaut meðal annars Islensku bókmenntaverð- launin. Sagan kemur út í Þýska- landi eftir áramótin. Að sögn Jó- hanns Páls hafa margir erlendir útgefendur sýnt áhuga á því að gefa út fleiri verk eftir Guðberg Bergsson. Snæfell vígt Snæfell, eitt stærsta sjávarút- vegsfyrirtæki landsins, var form- lega vígt í gær. Fyrirtækið, sem hefur yfir að ráða um 11.200 tonna aflaheimildum, er í eigu KEA, en hugmyndin er að setja fyrirtækið á almennan hluta- bréfamarkað. Vígsluathöfnin í gær fór fram bæði á Dalvík og í Hrísey en þar er fyrirtækið með frystihús. Auk þess rekur það skreiðarverkun á Hjalteyri og Snæfellingur í Olafsvík og Gunnarstindur á Stöðvarfirði munu sameinast Snæfelli í næsta mánuði. Ari Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Snæfells, hélt í gær ræðu í tilefni vígslunnar og rakti þar þróunina hjá fyrirtæk- inu yfir í fullvinnslu afurða. Hann sagði að á sínum tíma hafi menn ákveðið að auka verðmæti framleiðslunnar með því að pakka henni í fínni pakkningar. Nú þyrfti fyrirtækið að fara að hugsa um fiskinn í víðara sam- hengi - í samhengi við önnur matvæli. Ari gerði „sægreifa" og „kvóta- kónga" að umtalsefni í ræðu sinni og sagði að hjá Snæfelli væru þessir greifar og kóngar hinn almenni félagsmaður. Mikið var um dýrðir hjá Snæfelli í gær þegar fyrirtæk/ð var formlega vigt. Karlakórssöngur blandaðist saman við framtíðarsöng stjórnendanna sem voru fullir bjartsýni. - mynd: gg íhuga sér- framhoð á ísalirði Töluverðar Iíkur eru fyrir því að tveir bæjarfulltrúar sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn ísafjarðar bjóði fram sér við komandi sveit- arstjórnarkosningar í vor. Eftir síðustu atburði í bæjarstjórninni er Sjálfstæðisflokkurinn á ísa- íjarðarbæ klofinn í herðar niður. Þetta er í annað sinn á þessum áratug sem flokkurinn ldofnar þar vestra. Kolbrún Halldórsdóttir, annar af tveimur bæjarfulltrúum sjálf- stæðismanna sem stendur að nýjum meirihluta í bæjarstjórn- inni, segir að það komi vel til álita að bjóða fram sérlista í kosningunum í vor. Hún segist vera búin að fá nóg af sambúð- inni við forystu flokksins í héraði eftir það sem á undan hefur gengið í húsnæðismálum grunn- skólans og framgöngu fráfarandi meirihluta í Norðurtangamálinu. I því máli hafi samflokksmenn sínir orðið uppvísir að valdníðslu og gengið á svig við öll lýðræðis- leg vinnubrögð. - GRH Sjá bls. 4 Byggði mér ekki fangelsi Blað 2 Bera sakir ver á arnian Bls. 8-9 HHHnHnHHHMHHHBHHHBHBH Vormaskiptflr J j Alfa Laval SIŒ! ^ 80RGARTÚNI 31 • SÍMI +

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.