Dagur - 09.12.1997, Blaðsíða 4

Dagur - 09.12.1997, Blaðsíða 4
4 - PRIÐJVDAGUR 9. DESEMBER 1997 ro^iF' AKUREYRI NORÐURLAND Sparisjóður i glæsilegt húsnæði Nýr sparisjóður, Sparisjdður Norðlend- inga, opnaði í nýjum húsakyimum sl. laug- ardag og komu margir til að berja húsnæðið augum. Sparisjóður Norðlendinga varð til við sameiningu Sparisjóðs Ak- ureyrar og nágrennis og Spari- sjóðs Glæsibæjarhrepps og er 6. stærsti sparisjóður landsins. Við sameiningu sjóðanna 1. júlí sl. var eigið fé sjóðsins 270 milljón- ir króna og CAD-hlutfall 35,74% en þarf að vera 12% og staðan því mjög sterk. Innlán námu 775 milljónum króna og útlán 696 milljónum króna. Sameinaður sparisjóður verður hagkvæmari rekstrareining og húsakynnin mun persónulegri sem jafnframt skapa starfsfólkinu betri starfs- aðstöðu. Allir starfsmenn „gömlu“ sparisjóðanna flytjast yfir og gott betur, því stöðugild- um fjölgar um tvö. Helga Stein- dórsdóttir, sem áður var spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Akureyrar Græddur er geymdur eyrir. Stór „sparibaukur“ vakti óskipta athygii yngstu gesta sparisjóðsins sl. laugardag. Á innfelldu myndinni er Jón Björnsson sparisjóðsstjóri á nýrri skrifstofu, umvafinn blómum. Mynd: GG verður þjónustufulltrúi, en ann- ar sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Glæibæjarhrepps, Sigrún Skarp- héðinsdóttir, verður skrifstofu- stjóri en hinn, Dísa Pétursdóttir, aðalbókari. Sparisjóðsstjóri er Jón Björnsson en formaður stjórnarjón Sólnes. — GG Besta árið í Eyjafjarðará Árið 1997 reyndist vera það besta frá upphafi í Eyjaljarð- ará, sem er ánægjuleg breyt- ing frá rriörgum öðrum ám á landinu. Eyjafjarðará gaf 3.778 fiska á árinu sem er gríðarleg aukn- ing frá árinu 1996 en þá veiddust 2.254 fiskar. Eftir veiðisvæðum skiptist veiðin þannig að á veiðisvæði 1. veiddust 593 fiskar, 2. svæði 1.140 fiskar, 3. svæði 614 fiskar, 4. svæði 798 fiskar og 5. svæði 693 fiskar. Aður veiddust flestir fiskar árið 1994, eða 3.489, þannig að aukningin er 8,3%. A árinu veiddust 3.625 bleikjur, 138 sjóbirtingar og 15 laxar. Bleikjan var væn á sl. sumri, algengt að veiði- menn fengju um 4 punda bleikjur en sú stærsta var um 7 pund, hana fékk Einar Guðnason á 5. svæði á flugu þann 17. september. Vænsti sjóbirtingurinn var 11 punda, veiddur á 2. svæði af Páli Stefánssyni á maðk 17. júlí og Stefán Ragnarsson fékk 10 punda sjóbirting á maðk 22. ágúst, einnig á 2. svæði, en margir vænir sjóbirtingar fengust. Stærsta laxinn fékk Magni R. Magnússon 15. september á 4. svæði á maðk, en hann var 8 pund. — GG Dýrð, vald, virðmg hlýtur góðar viðtökur Kór Akureynirkirkju hefur gefid ut geisla- diskinn „Dýrð, vald, virðing“ ásamt Skál- holtsútgáfuimi, sem er úrval kirkjulegra söngva fyrir hlandaða kóra sem Skálholtsút- gáfan gaf út árið 1996. Kórinn syngur við reglulegt helgi- hald í Akureyrarkirkju en annar og ekki minni þáttur í starfi kórsins er sjálfstætt tónleikahald sem hef- ur borið hróður hans víða, einnig erlendis eftir tónleikaferðir til Danmerkur og Kanada. Mikil áhersla er lögð á flutning á „a capella11 tónlist, þ.e. kórsöng án undirleiks en kórinn hefur einnig flutt stærri verk tónbókmennt- anna. Stjórnandi kórsins frá 1986 er Björn Steinar Sólbergsson, og hann var ynntur eftir tilurð þessa nýja geisladisks. Björn Steinar segír að útgáfa Skálholtsútgáfunnar á kórbókinni Björn Steinar Sólbergsson. „Dýrð, vald, virðing" sem inni- heldur 50 kirkjulega söngva, perl- ur kirkjutónlistarinnar, hafi leyst nokkuð þann skort sem hafi verið að á efni fyrir kóra til að syngja í kirkjunum, annað en sálma fyrir söfnuðina. „Þegar bókin kom út vaknaði sú hugmynd að gefa út úrval af þess- ari bók á geisladiski og það leiddi til þessa samstarfs Skálholtsútgáf- unnar og kórsins sem nú hefur séð dagsins ljós og báðir aðilar njóta góðs af. Strax í upphafi var ákveðið að ekki yrði jólaefni í bók- inni en í náinni framtíð verður gefin út sérstök bók tengd jólun- um. Á geisladiskinum eru því lög sem ganga alla 12 mánuði ársins, m.a. eftir Norðlendinga, m.a. Jak- ob Tryggvason, stjórnanda kórsins í liðlega 40 ár og Jón Hlöðver Ás- kelsson. Mörg laganna eru „a capella" en einnig leika með kórnum hljóðfæraleikararnir Antonia Hevesi frá Siglufirði á orgel og Ak- ureyringarnir Sveinn og Hjálmar Sigurbjörnssynir á trompet. Ein- söng syngja Oskar Pétursson ten- ór, Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran og Sigrún Arngrímsdóttir mezzó- sópran, en hún er einnig kórfé- lagi,“ segir Björn Steinar. Er markaður fyrir kirkjulega tónlist? „Já, það hefur verið góð sala á geisladiskinum og einnig hefur okkur verið sagt að einmitt svona tónlist hafi útvarpið vantað við ýmiss tilefni. Við óttumst ekki að geisladiskurinn verði „undir“ í „flóðinu" fyrir jólin enda hefur hann nokkuð verið keyptur sem jólagjöf. Næsta sumar verður hann til sölu fyrir ferðafólk sem kemur í Akureyrarkirkju og von- andi kann ferðafólk vel að meta þaö.“ - GG aksjónfZI Sjónvarpsdagskrá 10. til 14. desember Miövikudagur 10. desember kl. 18.00 Akureyri í dag kl. 18.30 Heimskaup kl. 21.00 Akureyri í dag (e) kl. 21.30 Styrkur viljans (The Waterdance) Myndin íjallar um þremenn- inga í hjólastól, sem örlögin hafa tengt saman. Þeir takast á við fyrri erfiðleika og óvissa framtíð með gamansemi og heiðarleika, sem breytir lífi þeirra í eitt skipti fyrir öll. Að- alhlutverk: Eric Stoltz, Wesley Snipes og Helen Hunt. 1992 (e). Fimmtudagur 11. desember kl. 12.10 Endursýning frá gærdeginum kl. 18.00 Akureyri í dag kl. 18.30 Heimskaup kl. 21.00 Akureyri í dag (e) kl. 21.30 Ákærð fyrir morð (Final Appeal) Christine Biondi er ákærð fyr- ir að hafa myrt eiginmann sinn í afbrýðiskasti en sver að um sjálfsvörn hafi verið að ræða. Eina vitnið er hjákona manns hennar, sem segir að þetta hafi verið morð að yfir- lögðu ráði. Aðalhlutverk: Bri- an Dennehy, Jobeth Williams. 1993. Föstudagur 12. desember kl. 12.10 Endursýning frá gærdeginum kl. 18.00 Akureyri í dag kl. 18.30 Heimskaup kl. 21.00 Akureyrí f dag (e) kl. 21.30 Lokauppgjörið (The Playboys) í litlu írsku þorj)i eignast ung kona, Tara, barn í lausaleik, en neitar að gefa upp faðerni þess. Hún verður ástfangin af Ieikara í leikllokki sem slær upp tjaldi sínu í þorpinu. En lögreglustjórinn í þorpinu reynir allt hvað hann getur til að vinna ástir Töru. Það kem- ur til lokauppgjörs. Aðalhlut- verk: Albert Finney, Aldan Quinn, Robin Wright. 1992 (e). Laugardagur 13. desember kl. 12.10 Endursýning frá gærdeginum kl. 13.00 Syrpa í vikulok kl. 13.40 Heimskaup Sunuudagur 14. desember kl. 13.00 Syrpa f vikulok (e) kl. 13.40 Heimskaup Þriðjungi iuiuui rækjukvóti á Húnaflóa Mjög góö skelveiöi hefux verið undanfar- iö á Húnaflóa fram af Skagaströnd, og hefur skelin farið til viimslu á Skaga- strönd og í Stykkis- hólmi. Skelin sem larið hefur til vinnslu á Skagaströnd hefur verið hand- pilluð hjá Norðurströnd og farið fersk á markað í Evrópu. Dagrún ST-12, 20 tonna bátur, hefur verið á skelinni en byrjar á næstu dögum á innfjarðarrækju inni í Miðfirði og á Hrútafirði. Rækjunni er sfðan landað á Hvammstanga og síðan ekið til Skagastrandar og þannig spöruð allt að 5 tíma sigling. Rækjuverk- smiðja Skagstrendings hefur þó varla haft nægjanlegt hráefni til vinnslu, því veiði úthafsrækju- sldpa hefur almennt verið fram- ur treg. Rækjuveiði á innanverð- um Húnallóa hefur einnig verið fremur treg og nokkuð blönduð, en smærri en oft áður á þessum árstíma. Rækjuverð hefur farið hækkandi. Veiði hefur verið mun betri norður í Ofeigsfirði á Ströndum og bátar sem þar hafa verið hafa verið að fá mjög stóra rækju, eða allt að 200 stk/kg. Lýður Hall- bertsson, skipstjóri á Dagrúnu, segist hafa fengið úthlutað 62 tonna rækjukvóta nú á móti 92 tonnum í fyrra, og ástæða þess sé sú að minna sé um rækju á Húnaflóa og eins hafi verið tölu- vert um ýsu- og þorskseiði innan um rækjuna. Hafrannsóknaskip- ið Dröfn fer í annan rannsóknar- leiðangur á innfirði norðanlands í janúarmánuði til að kanna ástand rækjunnar og gera rækju- sjómenn á Húnaflóa sér vonir um að í byrjun febrúarmánaðar fái þeir einhverja viðbótarúthlut- un. Innfjarðarrækjuvertíðin á Skagafirði hefur staðið í tvo mánuði og hafa aflabrögð verið mjög góð, svo góð að varla hefst undan í vinnslunni hjá Dögun á Sauðárkróki þar sem þrír bátar landa, þ.e. Sandvík, Þórir og Jök- ull en Berghildur á Hofsósi land- ar til vinnslu hjá Meleyri á Hvammstanga. — GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.