Dagur - 10.12.1997, Blaðsíða 1
VÍKUR BÍAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. desember 1997
19. árgangur - 45 Tolublað
Simdlaugin
í biðstöðu
Kostnaður við fyrir-
hugaða viðhyggingu
Sundlaugar Húsavík-
ur er áætlaður um 87
miUjóuir.
Eins og fram hefur komið hafn-
aði hygginganefnd Ilúsavíkur
framlögðum teikningum af við-
byggingunni og bæjarstjórn vís-
aði málinu aftur til nefndarinn-
ar með ósk um að nefndarmenn
ræddu málið við hönnuð húss-
ins og bygginganefnd sundlaug-
ar.
Þesir aðilar funduðu 3. des-
ember s.l. og kynntu sín sjónar-
mið og skiptust á skoðunum, án
þess að niðurstaða fengist í mál-
ið. -JS
Óbreytt
útsvar
Bæjarráð hefur samþykkt að nýta
ekki hámarksheimild til álagning-
ar og innheimtu útsvars árið
1998, en heimildin hefur verið
hækkuð á milli ára úr 11,99% í
12,04%.
Alagningarprósentan verður því
áfram 11,99% á Húsavík. —js
D-listi óskaði viðræðna við A-lista
Nokkur kosninga-
skjálfti er kominn í
meim á Húsavík.
Sj álfstæðismenn
sýndu áhuga á sam-
starfi við Aljiýöu-
flokk.
Stjórn og uppstillingarnefnd
Sjálfstæðisfélags Húsavíkur mun
funda í kvöld og fara yfir niður-
stöður skoðanakönnunar meðal
félagsmanna um æskilegustu
frambjóðendur á lista. Þátttaka í
könnuninni var mjög góð og
svörun yfir 80%. Fátt hefur lekið
út um niðurstöður könnunarinn-
ar og forsvarsmenn D-lista þög-
ulir sem gröfin í þeim efnum.
Sigurjón Benediktsson, oddviti
D-lista í bæjarstjórn, segir að
málið sé í höndum uppstillingar-
nefndar og menn myndu gefa sér
góðan tíma til að fara yfir málin.
Hann sagði og að bæði Sjálfstæð-
ismenn og væntanlega Fram-
sóknarmenn einnig myndu fylgj-
ast grannt með sameiningarvið-
ræðum A- og G-lista og ljóst að
niðurstaða í því máli hlyti að hafa
áhrif á hvernig staðið yrði að
framboðum D- og B-lista.
„Það er ekkert leyndarmál að
ég hafði samband við formann
Alþýðuflokksfélagins, Friðfinn
Hermannsson, og spurði hvort
honum hugnaðist að eiga eitt-
hvert samstarf við okkur í fram-
boðsmálum. Nokkrum klukku-
tímum sfðar fékk hann svo bréf
frá G-listanum þar sem óskað var
eftir viðræðum við A-lista, og er
auðvitað einskær tilviljun, að
þetta gerist á sama tíma.“
Nokkur spenna og kosninga-
skjálfti virðist þegar hafa runnið
á menn. Þannig skrifaði Sigurjón
Benediktsson pistil í auglýs-
ingapésann Pésa í fyrri viku, þar
sem fréttaritari útvarpsins á
Húsavík, sem jafnframt á sæti í
viðræðunefnd G-lista, fékk dulít-
ið á baukinn fyrir að vera „blaða-
fulltrúi viðræðunefndar," og
koma sérhverri hreyfingu í við-
ræðunum til skila í svæðisútvarp-
ið. -js
Sagði af sér
formennsku
Friðrik Sigurðsson
hefur sagt af sér for-
mennsku í SjáKstæð-
isfélagi Húsavíkur og
tekur varaformaður,
Guðjón Ingvarsson,
við.
Fjöllunum hærra hefur gengið
að Friðrik hyggist hætta í bæjar-
stjórn einnig og sé ástæðan lé-
legt útkoma hans í skoðana-
könnun Sjálfstæðisfélagins.
Friðrik segir að hann muni sitja
áfram í bæjarstjórn til kosninga
en ekld gefa kost á sér áfram.
Ástæðan fyrir því að hann segir
af sér formennsku í Sjálfstæðis-
félaginu sé íyrst og fremst sú að
hann sér ekki fram á að geta
sinnt formannsstarfinu og hald-
ið utan um kosningnahráttuna
eins vel og nauðsynlegt er. Hann
og kona hans eigi von á sínu
fyrsta barni á vordögum og hann
gæti því ekki gefið sig heill og
óskiptur að kosningabaráttunni,
enda nóg af góðu fólki í flokkn-
um til að sinna því.
Friðrik sagði nýverið upp
störfum sem framkvæmdastjóri
Skipaafgreiðslu Húsavíkur og
segir ástæðuna fyrst og fremst
þá að fyrirtækið hefur minnkað
og minna um að vera þar eftir að
nýir aðilar tóku við flutninga-
þætti starfseminnar.
Hann sagðist vera að skoða
ýmsa hluti í sambandi við at-
vinnu og „ég mun skjóta upp
kollinum annarsstaðar, fyrr en
seinna," sagði Friðrik Sigurðs-
son. — JS
Bæjarbúar hafa verið duglegir vió aö skreyta bæinn aö undanförnu. En alltaf er nú
gamla góöa kirkjan fallegasta jólaskrautið.