Dagur - 10.12.1997, Blaðsíða 4

Dagur - 10.12.1997, Blaðsíða 4
4 — MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1997 VÍKURBLAÐIÐ ro^tr Ár hvalsins á Húsa vík Ársins 1997 á Ilúsavík verður væntanlega minnst sem árs hvalsins. IsJnveijar eru svo skynsamir að kenna hvert ár sem líður við tilteknar dýrategundir, t.d. ár svínsins, ár rotlunnar og ár pöndunnar. Með sömu formerkjum yrðu væntanlega flest ár í sögu Islendinga ár sauðkindar- innar eða ár þorksins. Það er hinsvegar þegar ljóst á Húsavík að árið 1997 er óumdeilanlega ár hvalsins. Samtals fóru um 20.540 manns í hvalaskoðunarferð- ir á íslandi s.l. sumar og þar af fóru 14.050 frá Húsavík með Norðursiglingu og Sjó- ferðum Arnars. Hvalaskoð- unarferðir frá Húsavfk voru mjög í fréttum hér heima og erlendis á árinu og m.a. kom hingað lið frá CNN til að fjalla um þetta efni og útsendarar fleiri frægra er- lendra fjölmiðla mættu á staðinn. Hvalamiðstöð var stofnuð í bænum á árinu sem vakti athygli og síðasta verkefni hennar var aðalumfjöllunar- efni Ijölmiðla hérlendis í marga daga þegar búrhval- urinn Kjálkarýr var dreginn hingað og skorinn. Næsta sumar er stefnt að því að halda „Hvalaskoðun- arhátíð" á Húsavík um sum- arsólstöður. Þar er m.a. áætlað að bjóða ferðamönn- um að sitja fyrirlestra er- lendra og innlendra sér- fræðinga um hvali og hvala- skoðun ásamt því að standa fyrir sérstökum miðnætur- hvalaskoðunarferðum norð- ur fyrir heimskautsbaug. -js Endur- nýjun hjá Fram- sókn Nú er orðið ljóst að algjör endurnýjun verður í liði bæjarfulltrúa Framsóknar- flokksins á Húsavík eftir kosningar í vor. Framsókn- arflokkurinn er með þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Einn þeirra, Arnfríður Aðalsteins- dóttir, gekk úr bæjarstjórn } fyrir nokkrum mánuðum þegar hún fluttist búferlum | til Reykjavíkur. Og nú hafa hinir tveir, Stefán Haralds- son og Sveinbjörn Lund, lýst því yfir að þeir gefi ekki kost á sér til endurkjörs í vor. Ymis nöfn hugsanlegra arftaka hafa verið nefnd, en ekkert mun frágengið í þeim efnum á þessum tíma- punkti. — JS h Oft hafa fleiri bátar veriö í höfninni á Húsavik á þessum árstíma og þar veröur væntartlega ekki veruleg þröng á þingi á næstunni. Léttistum 17 kíló á þremur mánuðum Guimar Valdimarsson er 61 árs og hefur lést mii 17 kíló á tæpum 3 mánuðum, án þess að notast við töfralansn- ir. Nú fer í hönd sá tími sem menn belgja sig út af mat og mæru og glöggi og aukakílóin hrannast upp í kjölfarið. Því má reikna með gósentíð hjá Spinning-stof- um og Herbalife-höndlurum og öðrum ágætum aðilum sem vinna að því að draga úr þver- vexti landsmanna. Ef menn hinsvegar vilja starfa að þessu þarfa málefni einir og óstuddir og án mikils tilkostnaðar, þá er tilvalið að feta í fótspor Gunnars Valdimarssonar, 61 árs Húsvík- ings, sem hefur losað sig við 17 kíló á tæpum 3 mánuðum al- gjörlega upp á eigin spýtur. A þessum tíma hefur hann farið úr 106 kílóum niður í 89 og stefnir í 85 kíló. „Þá er þetta Gunnar Valdimarsson. orðið gott,“ segir Gunnar. En hvaða töfraaðferð hefur hann notað til að ná þessum árangri? „Þetta er ósköp einfalt, ég breytti mataræðinu og fór að hreyfa mig. Eg borða mun minna en áður og forðast sæt- indi sem ég hef alltaf verið sólg- inn í, kökur og þess háttar. Og ég held t.d. að ég sé búinn að borða meira hrásalat á þessum 3 mánuðum en samanlagt í 61 ár áður. Hinsvegar er ég eins og alkarnir, ég er með sælgætisskál á borðinu hjá mér handa gest- um, en snerti hana ekki sjálfur. Síðan tek ég lýsi og vítamín. Og svo geng ég ósköpin öll á hverj- um degi.“ Gunnar segir að sér líði mjög vel, úthaldið og þolið hafi batn- að verulega og hann er farinn að geta notað föt sem hann hefur ekki reynt að klæðast í mörg ár. Og svo lítur hann betur út. „Þetta var allt framan á mér og þess sjást auðvitað merki þegar maður missir sem nemur meira en meðal lambsskrokki framan af sér,“ segir Gunnar Valdimars- son, sem býr sig nú undir hátíð- arátið eins og aðrir landsmenn. Hann hefur ekki verulegar áhyggjur af því að þyngjast yfir jólin, en gerir ekki ráð fyrir að léttast heldur. „Enda sagði einn kunninginn við mig að ef ég létt- ist áfram yfir jólin, þá væri ég einfaldlega bilaður." — JS Hlöðufelli fyrsta kvöidiö sem opiö var eftir vel heppnaðar breytingar á veitingahúsinu. Afsökuiiarframboð? Sjálfstæðisflokkurinn á Húsavík stóð fyrir skoðanakönnum meðal félagsmanna á dögunum um kandídata á framboðslista til bæjarstjórnar í vor. Fengu flokksbundir félagsmenn bréf þar að lútandi og þeir beðnir að tjá sig um málið. Einn af þeim sem fékk slíkt bréf var Guð- mundur G. Halldórsson. Guð- mundur er rnikill andstæðingur framsóknarmanna og hefur ekki fyrirgefið sjálfstæðismönnum að hlaupa saman í meirihluta með Framsókn á miðju þessu kjör- tímabili. Guðmundur end- ursendi því bréfið með eftirfar- andi vísu: Þið hlupuð til og eflduð óláns-hramm, eftirhöstin verri en ykkur grunar. Ntí væri hest að bjóða ekki fram, en biðja Húsvíkinga ajsök unar. Lítil jólagleði „Lúserpúl- manna“ Húsvíkingar voru upp til hópa afskaplega glaðlegir og komnir í gríðarlegt jólaskap, þegar þeir fjölmenntu við hátíðlega athöfn er Ijós voru tendruð á bæjarjóla- trénu sl. laugardag. Hin almennu gleðibros á and- litum viðstaddra gerðu það að verkum að nokkur hópur ólund- arlegra manna skar sig því meir úr fjöldanum, þar sem þeir stóðu þegjandalegir og þurrir á manninn, líkt og enn væru margir mánuðir til jóla og skila- frestur skattframtala að renna út. En ástæður ólundarinnar var reyndar önnur. Þessir kallar voru sem sé svokallaðir Liverpool-að- dáendur og höfðu fyrr um dag- inn horft á lið sitt tapa með stæl eða hitt þó heldur fyrir Manchester United. Og því var þeirra „jólagleði" örlítið demp- aðri en annarra þennan dag. Enda menn farnir að uppnefna þeirra ástkæra félaga „Lúser- púl.“ Skeggstífðir jólasveinar? Fordómar vaða víða uppi og nauðsynlegt sporna við þeim hvar sem þeirra verður vart. 1 kynningu á dagskrá Stöðvar 2 í öllum Ijölmiðlum á dögunum komu fram gríðarlegir fordómar í garð skeggjaðra manna í kynn- ingu á kvikmyndinni Vindurinn og ljónið. Þar sagði um söguþráð myndarinnar m.a.: Myndin ger- ist í Marokkó þar sem fúlskeggj- aður arabahöfðingi rænir banda- rískri konu og börnum hennar. Og Naggar spyrja: Af hverju þurfti að taka fram að maðurinn væri fúlskeggjaður? Vegna þess að slíkir eru verri og hættulegri en nauðrakaðir? Hvaða fordóm- ar eru hér á ferð á þessari skegg- lausu skálmöld? Á að reka jóla- sveinana til rakarans svo þeir skeggjaðir skelfi eldd börnin? Naggar fordæma harðlega for- dóma Stöðvar 2 í garð skeggj- aðra - og krefjast þess að Sig- mundir Ernir raki sig kvöld og morgna.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.