Dagur - 21.01.1998, Qupperneq 1
T
VinimirBubbi
Morthens og Hemmi
Gunn æfa saman á
hverjum morgni í
Ræktinni iísbjamar-
húsinu á Nesinu.
Bubbi kominn afturí
ísbjöminn. Hemmi í
aldrei í betraformi.
„Fólk verður að fatta hversvegna
það stundar líkamsrækt. Sumir
strákar aefa til þess að geta verið
flottir með vöðvana í hlýrabol í
Ingólfskaffi og Tunglinu. Það get-
ur verið allt í lagi á vissum aldri.
En þú átt að æfa til þess að vera
sjálfur í lagi, til þess að geta dreg-
ið andann djúpt og borið höfuðið
hátt,“ segir Bubbi Morthens, sem
stundar líkamsrækt á fullum
dampi í Ræktinni á Seltjarnarnesi
á hveijum morgni með Hemma
Gunn, fornvini sínum.
Aftur í ísbjönmm
Bubbi hefur æft í Ræktinni um
langa hríð og dreif Hemma af
stað með sér í nóvember síðast-
liðnum. Ræktin er í gamla Is-
bjarnarhúsinu á Nesinu og því er
Bubbi aftur farinn að vinna í Is-
biminum eins og hann lofaði að
gera aldrei aftur í eftirminnilegu
Iagi. Samdi raunar Isbjarnarblús-
inn í þessu sama húsi. Sjálfur
segir hann Ræktina vera bestu
stöðina í bænum, bjarta og rúm-
góða og þar æfi líka fullt af Jón-
um og Gunnum, íslensku al-
þýðufólki sem gott sé að eiga
samneyti við.
Gufubað og box
„Eg þurfti trylltan íþróttamann
til að fara með mér í þetta og finn
„Ég þurfti trylltan íþróttamann tíl að fara með mér í þetta og finn að þessi likamsrækt styrkir mig andlega og líkamlega, “ segir
Hemmi Gunn, sem æfir nú með Bubba Morthens á hverjum morgni. „Við rökræðum tilgang tilverunnar og komumst að
sibreytilegri niðurstöðu, “ og bætir við að Bubbi noti körfuna sem tulrót á sig. mynd: hilmar.
að þessi líkamsrækt styrkir mig
andlega og líkamlega,“ segir
Hemmi. „Við lyftum og teygjum,
síðan er það körfubolti. Við end-
um í gufubaði, rökræðum þar til-
gang tilverunnar og komumst að
síbreytilegri niðurstöðu. En ann-
ars get ég sagt þér að Bubbi not-
ar körfuna sem gulrót á mig. Eg
hef alltaf gert það best í boltan-
um en stenst Bubba enn ekki
snúning í körfu. En ætli keppnis-
maðurinn komi ekki von bráðar
upp í mér og ég vinni hann með
vorinu.“
„Við reynum að bæta þol. Lát-
um reyna á brjóst og bak þannig
að hjarta og lungu styrkist. Síðan
læt ég Hemma boxa, slá í púða af
fullum dampi,“ segir Bubbi.
Hann segir enga spurningu að
Hemmi hafi einmitt þurft á
þessu að halda. „En hann þarf
meira en fimm vikur í æfingum
til að bæta þolið. Það veit gamli
landsliðmaðurinn og markaskor-
arinn. Síðan væri allra meina bót
að hann hætti að reykja og mig
grunar reyndar að hann sé dijúg-
ur í því.“
Þjálfarinn er ljón
Hemmi segir að sér sé til efs að
hann hefði farið af stað í líkams-
rækt hefði Bubbi ekki rifið sig af
stað. „Það er ljón í honum og ein-
mitt þannig þjálfara þarf ég. Þjálf-
aratækni hans minnir mig stund-
um á gamla KR-inginn Ola B.
Jónsson þjálfara minn í Val. Ef ég
skrópaði á æfingu hjá honum
hringdi Óli alltaf í mig og spurði
hví ég hef ekki mætt. Alltaf tók
ÓIi afsökunum af stakri ljúf-
mennsku og skilningi. En í stað-
inn þurfti ég hinsvegar að taka
aukaskammt eftir æfingu næsta
dag og það var mikið púl. Þess
vegna lét maður sig hafa það að
mæta og svipaðri tækni beitir
Bubbi," segir Hemmi, sem hafði
ekki stundað líkamsrækt um skeið
áður en þeir félagar fóru af stað.
„Eg skokkaði með gamla muln-
ingsvélarhópnum úr Val til mar-
gra ára en sá félagsskapur moln-
aði upp fyrir eins og tveimur
árum þegar við misstum æfinga-
tímann í Valsheimilinu að Hlíð-
arenda. En með þessum æfing-
um með Bubba er allt komið í
gang á nýjan leik og á sinn þátt í
því að hef ég ekki verið jafn vel á
mig kominn á sál og líkama í
tuttugu ár,“ segir Hemmi.
Frískur fjörugux
Bubbi segist hafa stundað Iík-
amsrækt síðan hann var tvítugur
eða alls 21 ár og það allt að níu
sinnum í viku. Þrjá daga í viku
mætir hann í Ræktina tvisvar yfir
daginn, en aðra daga aðeins einu
sinni.
„Þetta hefur mikil áhrif á þol
og gæti ég ekki verið án þessa.
Þetta er spurning um að vera í
lagi. Heilbrigð sál í hraustum lík-
ama hefur áhrif á allt æði og
gjörðir manna," segir Bubbi. -
Hemmi talar á svipuðum nótum.
Eftirminnilega söng hann „frísk-
ur fjörugur" hér um árið og ein-
mitt þannig er hann nú. Eins og
nýsleginn túskildingur, léttur á
löppina og kominn á sextugsald-
ur. -SBS.
Veitum hagstæð
lán til kaupa á
landbúnaðarvélum ,
a .Jm
V’
Reiknaðu með
SP- FJARMOGNUN HF
Vegmúli 3 • 108 Reyk/'avik • Simi 588-7200 • Fax S88-7201
800 6611
Hringdu núna
og
fáðu þér miða! HÁSKÓLA^SLANDS