Dagur - 21.01.1998, Side 2
18-MIDVIKUDAGUR 2 l.JANÚAR 1998
LIFIÐ I LANDINU
Dagur • Strandgötu 31 • 600 Akureyri
og Þverholti 14 • 105 Reykjavík
Síniinn hjá lesendaþjónustiumi:
SI31626 netfang: ritstjori@dagur.is
Símhréf: 486 ÍlJleðaSSl 8270
„Þjóðin er komin á hættulega braut og það þarfað bregaðst við eins fljótt og hægt er.
Málgagn lýðræðisins þarf að komast að og i síðasta lagi i næstu Alþingiskosningum",
segir greinarhöfundur m.a.
Mótmæli
Ein mesta skemmdarverkastarf-
semi síðustu ára hefur farið
fram, sameining sveitarfélaga.
Með blekkingum og ósönnum
áróðri hefur valdaklíkum í þjóð-
félaginu tekist að eyðileggja eitt
það mikilvægasta sem þjóðinni
hefur hlotnast, það er fulltrúa-
Iýðræðið í sveitafélögum.
Ráðist hefur verið á samstarf
sveitafélaganna, svo sem sam-
eiginleg útboð á þjónustu. Eitt
af því sem þessar valdaklfkur
hafa að markmiði er að stjórna
ofan frá og þagga niður hinar
ýmsu raddir fólksins sem eru
hættulegar valdaklíkunum og
geta komið í veg fyrir að styrkja
það vald sem þær keppa að, það
er „einveldi".
Þjóðin er komin á hættulega
braut og það þarf að bregaðst
við eins fljótt og hægt er. Mál-
gagn Iýðræðisins þarf að komast
að og í síðasta lagi í næstu Al-
þingiskosningum.
Ámi Bjöm Guðjónsson,
Kristileg stjómmálahreyfing
^ jVlemfimmð
Áramótaheit er eitt-
hvað sem meinhorn
dagsins þolir ekki og
hefur raunar aldrei
skilið. Enda er það
svo í flestum tilfell-
um að þessi heit vara aðeins í
álíka langan tíma og timbur-
menn. Áður en fólk veit af er
það komið í vítahring sjálfs-
blekkinga þegar grámóska
hvunndagsins tekur við eftir
skammvinna áramóta- og
nýársdýrðina.
Alveg er það með
ólíkindum hvað
sumt fólk getur verið
snúið í roðinu þegar
það býður góðan
daginn. Sumir umla
það ofan í hálsmálið á meðan
aðrir tauta það fyrir munni sér.
Betur væri að þetta fólk léti
það ógert að heilsa á þennan
máta og sýni þess í stað sitt
rétta andlit með því bara að
þegja.
Alltaf er landinn
jafn ruglaður. Á
sama tíma og hann
kvartar og kveinar
yfir blankheitum á
hann gnótt af seðl-
um til að leika sér með í flug-
elda og blys og annan óþarfa.
Það er alveg maka-
laust hvað sumir
geta verið tillitslausir
í umferðinni. Oku-
maður sem hliðrar
til fyrir gangandi
vegfaranda er nánast flautaður
niður af næsta bíl fyrir aftan.
Það væri kannski sök sér að
fólk væri óþolinmótt þegar um-
ferðin er mikil en í þessu dæmi
var Iítil sem engin umferð.
Meira um sóða. I
sumum bíóum er
varla þverfótað fyrir
allskyns umbúða-
drasli, popkornsleif-
um og klístruðu
gossulli þegar farið er á kvöld-
sýningar. Það er eins og það sé
ekkert þrifið á milli sýninga.
Það er með ólíkindum hvað
sumt fólk getur verið miklir
sóðar. I sundlaugun-
um kemur það enn-
þá fyrir að fólk er
staðið að því að fara
ekki í sturtu áður en
það fer ofan í Iaug-
ina.
í fyrsta lagi
I leiðara sínum í Degi 4. nóvember sl. gagnrýnir
Stefán Jón Hafstein útgáfu upplýsingarits rfkis-
stjórnarinnar er ber heitið: Áfangar á réttri Ieið.
Yfirskrift Ieiðarans var: „I besta heimi allra
heima.“ Stefán Jón líkir Áföngum við útgáfur ým-
issa einræðis- og kommúnistaríkja og kallar þá
sjálfshól og áróður, lofgjörð ríkisstjórnarflokkanna
um sjálfa sig. Skrif Stefáns Jóns í þessum leiðara
eru í besta falli undarleg og bera vitni þeim furðu-
lega skilningi ritstjórans á landsmálum sem hann
er duglegur við að opinbera. Flestir þeir er blanda
sér í opinbera umræðu og bærilegt mark er á tak-
andi viðurkenna að það er nauðsynlegt fyrir sitj-
andi stjórnvöld að gera grein fyrir þeim málum
sem þau hafa unnið að og þeim markmiðum sem
þau hyggjast ná. Ekkert er athugavert við að gefið
sé út upplýsingarit sérstaklega 1' þeim tilgangi. Rit-
stjórn og skrif Stefáns Jóns er eitt besta dæmi þess
að stjórnvöld geta varlega treyst á fjölmiðla til að
koma upplýsingum sínum á framfæri. Stefán Jón
segir m.a.: „Þessi framfara- og þróunarrit fara
venjulega beina leið í körfu hvers sómakærs blaða-
manns.“ Það er því annað tveggja, Stefán Jón hef-
ur ekki lesið ritið og er því að tjá sig um rit sem er
honum ókunnugt. Eða hann uppfyllir ekki að vera
sómakær blaðamaður samkvæmt eigin mælistiku
og hefur lesið ritið. Dæmi nú hver fyrir sig, ég tel
þó að hér beri að sama brunni.
í öðru lagi
I leiðara sínum varpar Stefán Jón fram spurningu:
„Vildi Davíð Oddsson borga fyrir með útsvarinu,
og fá inn um lúguna hjá sér, glanspappír frá
„Borgarstjórn Reykjavíkurlistans um það hvernig
Ingibjörg Sólrún stýrir farsælli stefnu í Ráðhús-
inu?“ Af djúpri speki segir hann að svarið sé nei,
Iíkt og slíkt fyrirfinnist ekki. Staðreyndin er hins
vegar sú að Davíð Oddsson og aðrir borgarbúar fá
inn um lúguna hjá sér Borgarfréttir borgarstjórans
í Reykjavík. Kristín A. Árnadóttir, pólitískur að-
stoðarmaður Ingibjargar S. Gísladóttur, vinnur
efni í það blað og gætir þess að fjallað sé um þau
mál er R-listinn hefur komið í framkvæmd. Enn
skal Stefáni Jóni Hafstein bent á að ekkert er
óeðlilegt við að pólitískt kjörið stjórnvald sjái til
þess að þau mál er það hefur komið í framkvæmd
og stefna að séu kynnt fyrir kjósendum. Stefán Jón
Hafstein gerir sig hins vegar að ómerkingi er hann
fær ofbirtu í augun yfir gjörðum ríkisstjórnarinnar
en er blindur á þessar sömu gjörðir R-listans.
í þriðjalagi
Stefán Jón Hafstein vann fyrir R-listann í síðustu
borgarstjórnarkosningum og var einn fyrsti bitl-
ingaþegi Ingibjargar S. Gísladóttur. Ráðning hans
til að gera stjórnsýsluúttekt í Ráðhúsinu sumarið
1994 var í meira lagi umdeilanleg hvort heldur Iit-
ið er til menntunar hans, reynslu eða flokka-
tengsla. Er Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi R-
listans reyndi af bestu getu að verja þá ákvörðun
og benda á mannkosti Stefáns Jóns og hæfileika til
starfans varð útkoman hálf ömurleg. Einu rök Sig-
rúnar í 19:19 á Stöð 2 voru að Stefán Jón væri
naskur að finna hluti þannig að það væri mjög af
hinu góða að hann væri ákveðinn tíma í því að at-
huga hvernig hlutirnir gangi fyTÍr sig. Hann er
svona að skynja andrúmsloftið og boðleiðirnar og
mun síðan koma með tillögur til úrbóta eftir stutt-
an tíma sagði Sigrún ennfremur. Svo snilldarlega
var öllum spurningum um menntun og reynslu
vísað út í hafshauga. Þrátt fyrir að Sigrúnu hafi þá
þótt Stefán Jón vera naskur og skynugur er ljóst af
þessum leiðara að Iyktarskyn hans í landsmálum
er brenglað og önnur nösin í blaðamannanefi hans
illilega stífluð, en hin snýtir rauðu.
Theodór Sveinjónsson.