Dagur - 21.01.1998, Side 5

Dagur - 21.01.1998, Side 5
Xk^iir' MIÐVIKVDAGVR 2 l.JANVAR 19 9 8 - 21 MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU Áhugi íslendinga á Nálu virdist í algleymingi og áAkureyri hafa verið auglýst tvö nám- skeið um þá ágætu hók. að minnast gríðarlegs áhuga á námskeiðum Jóns Böðvarsson- ar. Bæði Erlingur og Haraldur leggja á það áherslu að enginn fari í föt Jóns Böðvarssonar, sem sé goðsögn þegar kennsla í fornbókmenntum er annars Farið óvarlega með eld Haraldur Bessason segist oft hafa kennt Njálu á ensku og segist hafa sérlega gaman af að bera saman hetjur Njálu við persónur sem koma fyrir í Eddukvæðum. „Ég hef líka gaman af því að bera lífssýn Njálu við miðaldabókmenntir annarra þjóða.“ Haraldur segist ekki vera svo mikill ferða- maður í sér svo hann sé enginn sérfræðingur í staðháttum. „Ég get nú varla talað um staðhætti neinstaðar nema í Skagafirði, en þangað komu Njálumenn ekki.“ Haraldur segir margt athyglisvert koma í Ijós þegar skoðuð er lífssýnin í Njálu annars vegar og Völuspá hins vegar. „Þeir fóru til dæmis óvarlega með eld í báðum þessum verkum.“ HH Erlingur Sigurðarson, forstöðumaður Sigur- hæða á Akureyri, heldur námskeið um Njálu á Sigurhæðum og Haraldur Bessason, fyrr- verandi rektor Háskólans á Akureyri, fjallar um Njálu og Völuspá á námskeiði á vegum endurmenntunarstofnunar Háskólans á Ak- ureyri. Erlingur segist gera ráð fyrir að Njálunám- skeið hans verði með sniði leshrings. Þátt- takendur ræði bókina, en hann segir sér ekki í mun að þröngva sínum skoðunum á bók- inni upp á þátttakendur. í Njálu er allt að finna MikiII áhugi er á Njálu og er þar skemmst Haraldur Bessason segir mann hafa farið óvarlega með eld bæði í Njálu og Völuspá. vegar. „Ahugi á fornum sögnum er blessunarlega að vakna, eins og gerist þegar farið er að halda einhveiju fram,“ segir Erlingur. „Þetta er sjóður sem stendur vel undir því að i hann sé sótt. Ég hef stundum sagt: Njála á svör við öllu, í Njálu er allt að finna.“ Erlingur segir það vera mark- mið sitt með starfseminni á Sig- urhæðum að tengja starfið al- menningi. Hann hefur haldið úti vikulegum dagskrám þar sem flutt eru Ijóð íslenskra skálda og fjallað um þau. „Til þess að miðla bókmenntum til almennings verður maður að leita í sinn stokk, og þá voru ljóðin og Njála sá stokkur sem var auðteknast úr.“ Erlingur segist ekki láta sig það miklu skipta hver sé höf- undur Njálu. Hann segist hafa meiri áhuga á að beina sjónum sínum að sögunni sjálfri. „At- burðir hennar, persónusköpun og glöggskyggni er með ólíkind- um.“ Hann segist leggja áherslu á að lesa söguna og njóta henn- ar á námskeiðinu. „Njála á svör við öllu, í Njálu er allt að finna, “ segir Erlingur Siguröarson, en hann er leiðbeinandi á öðru Njálunámskeiði af tveimur sem auglýst hafa verið á Akureyri. Njálumenn á norðurslóð List er ekki fölsun „Barnabók sem börnunum leið- ist að lesa er lítils virði, eins og raunar gildir um allt fólk og all- ar bækur. Ég hygg að skrifa megi fyrir börn um flest það sem fyrir ber í mannlegu lífi og engin nauðsyn sé að hlífa þeim við staðreyndum lífsins. Heimur barnanna er ekki mildu rósrauð- ari en foreldranna og fölsun á veruleikanum er andstæða allrar góðrar listar," segir Guðrún Helgadóttir í athyglisverðum pistli um barnabækur í timarit- inu Börn og menning. Börn og menning er fyrsta tölublaðið af breyttri útgáfu tímaritsins Börn og bækur. Blaðið er sérlegt mál- gagn íslandsdeildar IBBY. IBBY er skammstöfun á enska heitinu The International Board on Books for Young People, en það eru alþjóðleg samtök sem vilja efla útgáfu og Iestur barnabóka. Blaðinu er ætlað að verða einn af málsvörum menningar íyrir börn og ungt fólk á íslandi eins og segir í pistli ritstjóra, Kristín- ar Birgisdóttur. Auk áðurnefndrar greinar Guðrúnar er fjölmargt forvitni- legt efni í blaðinu og meðal þess er grein eftir Vigdísi Finnboga- dóttur, viðtal við Brian Pilk- ington og fjallað er um feril Astrid Lindgren sem varð níræð fyrir skömmu. KB Börn og menning er breytt og öflugri útgáfa timaritsins Börn og bækur og meðal áhugaverðs efnis þar er grein eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikfélag Akureyrar Á ferð með frú Daisy eftir Alfred Uhry Ujörtum mannatma svipar saman í Atlanta og á Akureyri. Úr leikdómum: „Sigurveig ... n;er lia'dum ... ekki síst í lokuatriðum í nánum samleik við Þráin Karlsson." Haukur Ágústsson í Degi. „Það er ótrúlegt hve Þráni tekst vel að komasl inn í persónuna.“ Sveinn Haraldsson í Morgunblaðinu. ...einlæg og hugvekjandi sýning sem fyllsta ástæða er til að sjá.“ Þórgnýr Dýrfjörð í Ríkisútvarpinu. Sýnt á Renniverkstæðinu að Strandgötu 39. 8. sýning 24. janúar kl. 20.30 9. sýning 31. janúar kl. 20.30 V Söngvaseiður 6. mars verður Samkomu- húsið \ið Hafnarstræti opnað gestum eftir gagngera endurnýjun á áhorfendasal með frumsýningu á þessu hugþekka verki þeirra Rodgers og Hammersteins. Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir Hinrik Ólafsson Hrönn Hafliðadóttir Jóna Fanney Svavarsdóttir. 4 Markúsar- guðspjall Einleikur Aðalsteins Bergdal. Frumsýning á Renniverk- stæðinu um páska. Gjafakort í leikhúsið. Gjöf sem gleður. Kortasala í miðasölu Leikfélagsins, í Blómabúð Akureyrar og á Café Karólínu. Sími 462 1400 cr styrktaraðili Leikfélags Akureyrar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.