Dagur - 21.01.1998, Síða 7

Dagur - 21.01.1998, Síða 7
 MIÐVIKVDAGVR 21.JANÚAR 1998 - 23 LÍFIÐ í LANDINU fólkið í Óskariiin í HoIIywood eru menn farnir að geta sér til um hverjir verði til- nefndir til Oskarsverðlauna þetta árið. Titanic og L.A. Con- fidential eru taldar öruggar um tilnefningu sem bestu myndir ársins. Good Will Hunting í leikstjórn Gus Van Saint er mynd sem margir veðja á og það sama á við um nýjustu mynd Spielbergs, Amistad. Breska myndin The Full Monty er einnig talin eiga mikla mögu- leika. Sérfræðingarnir segja Matt Damon, Robert Duvall og Jack Nicholson örugga um tilnefn- ingu í flokk bestu karlleikara ársins. Leonardo DiCaprio kann að slást í hópinn og Peter Fonda, Dustin Hoffman og Kevin Kline slást einnig um sæti á Iistanum. Breskar leikkonur standa með pálmann í höndunum þegar kemur að tilnefningu í bestu kvenhlutverkin. Judi Dench þyk- ir standa sig frábærlega í Mrs. Brown. Helena Bonham Carter, Julie Christie, Emily Watson og Kate Winslet fylgja henni fast eftir. Einhver þeirra mun þó Kim Basinger. Liklegt þykir að hún verði tilnefnd til Úskarsverðlauna fyrir leik sinn i LA. Confidential. sennilega þurfa að þoka fyrir bandarískri leikkonu. Gömlu brýnin Robin Williams og Burt Reynolds þykja Ifklegir að verða tilnefndir fyrir bestan leik í aukahlutverki karla og Rupert Everett ætti sömuleiðis að vera öruggur með tilnefningu eftir frábæra frammistöðu í My Best Friend’s Wedding. Anthony Hopkins og Morgan Freeman þykja einnig sýna stjörnuleik í Amistad. Gloria Stuart á eftirminnilega endurkomu í Titanic og verður nær örugglega tilnefnd sem besta Ieikkona í aukahlutverki. Kim Basinger þótti sýna á sér nýja og óvænta hlið í L.A. Con- fidential. Sigourney Weaver og Christina Ricci stóðu sig vel í Ice Storm og Phyllida Law (mamma Emmu Thomson) hef- ur einnig hlotið mikið lof fyrir leik sinn í The Winter Guest. Miklu skiptir fyrir Reykvíkinga að til setu í borgarstjórn veljist ábyrgt og kraftmikið fólk. Guðjón Ólafur Jónsson uppfyllir þau skilyrði. Hann hefur mikla reynslu af félags- og stjórnunarstörfum. Hann hefur gegnt fjölda ábyrgðarstarfa, m.a. sem lögfræðingur hjá embætti ríkissaksóknara og stjórnarformaður Félagsstofnunar stúdenta frá 1993 á miklum uppbyggingartímum. Hann er nú aðstoðarmaður umhverfisráðherra. Guðjón Ólafur hefur sýnt að hann er traustsins verður. Tryggjum honum öruggt sæti í borgarstjórn. Stuðningsmenn Guðjón Ólafur Jónsson, 29 ára lögfræðingur. Störf: Framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna 1992-93. Lögfræðingur hjá embætti ríkissaksóknara 1993-95. Aðstoðarmaður umhverfisráðherra frá 1995. Félagsmál: í Stúdentaráði Hl fyrir Röskvu 1989-91. Stjórnarformaður Félgsstofnunar stúdenta frá 1993. Formaður Sambands ungra Framsóknarmanna 1994-96. Fjölskylda: í sambúð með Helgu Björk Eikríksdóttur. Á einn son, Hrafnkel Odda 4 ára. : • It - Öflugur baráttumaður - Reynsla af rekstri og stjórnun - Fulltrúi nýrra tíma - til i slaginn 4

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.