Dagur - 21.01.1998, Side 10

Dagur - 21.01.1998, Side 10
26 - M 1 IJ V I K II 1) A G' V II 2 1. J A N U /18 19 9 í> LÍFIÐ t LANDINU HESTAR Glæsilegur hópur ungfola á stöðiuul vartur frá Una/æk. Margt verdur dæmt undan Svarti í vor. Kári Arnórsson skrifar Á Stóðhestastöðinni í Gunnarsholti er allt komið í fullan gang. Hrossaræktarsamtök Suðurlands eru með stöðina á leigu eins og var í fyrra. Þórður Þor- geirsson hefur umsjón með og ber ábyrgð á öllum tamningum og þjálfun. Magnús Bene- diktsson verður starfsmaður stöðvarinn- ar og hefur auk þess 7 pláss á eigin veg- um. Þá er Inga Jóna Kristinsdóttir einnig ráðin hjá stöðinni. Nú er búið að gera sæðingarhúsið fokhelt svo hægt verður að nota það sem æfingapláss í vetur. Það bætir mjög úr vegna þess að stundum er nú stormasamt á Rangár- völlum og þá kunna dagarnir að verða ódrjúgir. Á stöðina er þegar kominn álitlegur hópur af unghestum sem verða ræki- lega skoðaðir með tilliti til sýningar í vor. Þá verða á stöðinni nokkrir hestar sem fengu dóm i fyrra og verða endur- sýndir í vor. Hestar Hrossaræktarsam- taka Suðurlands þeir Hrynjandi, And- vari og Sörli verða í þjálfun í vetur. Sömuleiðis kemur Kveikur inn þegar líður á vetur. Sex synir Svarts Númi frá Þóroddsstöðum, sem var hæst dæmdi 4ra vetra hesturinn í fyrra, er kominn á járn. Fleiri synir Svarts frá Unalæk verða á stöðinni í vetur. Erpur Snær sem hlaut góðan dóm í íyrra er rétt ókominn. Hann fer aftur í dóm í vor. Byijað er með móálóttan Svartsson undan Gyðju frá Gerðum. Sá heitir Þór og er frá Prestbakka á Síðu. Þór er myndarlegur foli og fer mjög vel af stað. Falur Svartssonur frá Strönd á Rangár- völlum undan Skerplu Sörladóttur, brúnn að lit. Hann er nýkominn á járn. Þórður Þorgeirsson á þennan hest. Þá er Svartssonurinn Njörður frá Hjarðar- holti í Hvolhreppi. Móðirin er Minning frá Stóra-Hofi. Öskuviljugur foli á fimmta vetur. Kormákur frá Kjarnholt- um undan Svarti og GlókoIIu frá Kjarn- holtum fékk mjög góðan byggingardóm f fyrra. Hann verður hjá Þórði. Einn Svartssonur enn, Sesar frá Hallldórs- stöðum í Skagafirði, sem er á fimmta vetur, mun vera væntanlegur fljótlega. Hamur frá Þóroddsstöðum verður líka á stöðinni. Þá eru Hrókur frá Glúmsstöðum og Stæll frá Austvaðs- holti þegar komnir. Þá mun sá fallegi hestur Ögri Stormssonur frá Háholti prýða hópinn. Álfur Gassasonur frá Ak- ureyri sem hlaut 1. verðlaun í fyrra er kominn til Þórðar. Þrlr synir Galsa á stöðinni Undan Orra eru komnir á stöðina tveir folar. Dropi frá Kílhrauni móvindóttur undan Dögg frá Kílhrauni og Dynur rauður glófextur sem Þórður á undan Djásn frá Heiði í Gönguskörðum. Þorri Orrasonur á þegar tvo syni á stöðinni þá Döggvar frá Laugarvatni sem er bleikálóttur undan Dáð Ófeigsdóttur frá Laugarvatni og svartur foli frá Búð- ardal undan Báru frá Grund. Þriðji fol- inn sem kemur undan Þorra er Kvittur frá Víðivöllum fremri móvindóttur und- an Mær frá Víðivöllum sem er hálfsystir Seims. Þá er kominn á stöðina fyrsti sonur Andvara frá Ey. Þessi foli er frá Ey og er spáð vel fyrir honum, þroska- mikill foli með góðar hreyfingar, dóttur- sonur Smára frá Ey. Leirljós sonur Mjölnis frá Sandhólaferju prýðir hóp- inn á stöðinni. Hann er frá Hellistúni í Ásahreppi og heitir Lýsingur. Þarna er á ferðinni mikill fótaburður og gott tölt. Bleikur foli slitrublesóttur frá Hrepp- hólum undan Galsa frá Sauðárkróki og Von frá Hrepphólum, sem sagt hálf- bróðir Hrynjanda, byrjar mjög fallega. Þetta er fyrsta afkvæmi Galsa sem kem- ur á stöðina. Annar Galsasonur hálf- bróðir Randalínar frá Torfastöðum er væntanlegur fljótlega. Hann er í eigu Torfastaðahjóna og er brúnn á litinn. Þá er væntanlegur Galsasonur frá Efstadal undan sömu hryssu og Erpur Snær. Móðir þeirra er Katla Þáttardótt- ir. Það verður gamnan í vetur að fylgjast með því hvernig fyrstu afkvæmi Galsa koma út. Frá Ytri-Skógum koma góð hross. Þar er gæðingshryssan Hrefna Hrafns- dóttir sem nú skilar hverjum gæðingn- um af öðrum. Á stöðinni er sonur Hrefnu og Pilts frá Sperðli. Sá heitir Þór. Þetta er mjög gerðarlegur hestur á fimmta vetur. Hann líkist móðurafa sín- um í útliti. Hörkuviljugur og greinilega mikið reiðhestefni. Þá er Þórður með tvo brúnskjótta hesta. Annar er Kórall frá Auðsholti sem hlaut 1. verðlaun í fyrra. Hinn er á fjórða vetur og nefnist Bliki. Ekki er byrjað að eiga við hann ennþá. Ilann er frá Vindási á Rangárvöllum. Sá er son- arsonur Sokka frá Kolkuósi. Þá kemur Ófeigur frá Flugumýri til með að eiga einn son á stöðinni. Það er Áll frá Húsatóftum bleikálóttur undan Hugsýn Adamsdóttur. Þá er einn Hrafnssonur Broddi frá Vindási í Hvolhreppi kominn á stöðina. Hann er rauðnösóttur gló- fextur undan Rák Ljóradóttur frá Vind- ási. Hrafnssonunum fer nú fækkandi eins og að líkum lætur. Víðir dökkjarpur frá Hrafnkelstöðum er nýkominn. Hann er undan Létti frá Sauðárkróki og Viðju frá Hrafnkelsstöðum, mjög fram- fallegur foli eins og hann á ætt til. Hann er á fimmta vetur og var frum- taminn í fyrra. Vísindamenn hafa lengi vitað að líkaminn stjórnast af einskonar klukku, sem aftur stjórnast af dagsbirtu eða Ijósmagni. En nýjar uppgötvanir sýna að ljósið þarf ekki að koma inn um augun, það nægir að láta smá ljósglampa skína á hnésbætur til að Ieiðrétta rugl sem kemur á líkams- klukkuna og oft vill verða við vaktavinnu, vetrarþunglyndi, svefnleysi og fleira. Enn sem komið er er slíkt meðhöndlað með því að láta ljós skína í augu fólks, en þessar nýju uppgötvanir gefa til kynna að það verði fljótlega hægt að láta skína á hnésbætur í staðinn. (Washington Post) Spice-girls peysa Framstykki: Fellið af 4 L í byrjun næstu 2ja umferða. Prjónið svo 7-11-11-11 umf. og prjónið saman 2 L í byijun hverrar umferðar = 40-40-46-46 L eftir. Næsta umferð: Prjónið saman 2 L, pijónið næstu 12-12- 14-14 L, snúið við og geymið L sem eftir eru á pijónanælu. Prjónið til baka brugð- ið. Prjónið 7-7-9-9- umferðir og prjónið saman 2 L í byrjun hvers prjóns. Prjónið 6 umf. og prjónið saman 1 L axlamegin í 2. hv. umf. þar til 2 L eru eftir. Prjónið þessar 2 L saman. Bak: Fellið af 4 L í byrjun næstu 2ja umferða. Prjónið 18-24-24-28 umf. og prjónið 2 L saman í byrjun hverrar umferðar. essi peysa er prjónuð á prjóna nr 3.5 og 4. I hana er notað Sirdar dk. garn, 1-1 -2-2 dk. aðallitur og 1 dk. aukalitur. Prjónfestan er 22 L og 22 umf. á 10 sm. Stærðir: 3-S-7-9 ára. Bolur: Fitjið upp á prj. nr. 3.5, 130-144-158- 164 L. Tengið í hring og prjónið stroff 1 sl. 1 br. í 6 umf. Skiptið yfir á prjóna nr. 4 og prjónið slétt 22 umf. Skiptið stykki í fram- og bakhluta og prjónið framstykki fyrst, fram og til baka. Háls: Prjónið eins og framstykki. Kantar: Takið upp 66-74-76-82 L jafnt meðfram ermaopi á prjóna nr. 3.5 og prjónið 4 umf. garðaprjón. Fellið af og prjónið eins hinu megin. Fitjið upp 14 L með aukalit, takið upp 43-43-47-47 L í hálsopi að framan, fitjið upp 14 L, takið upp 43-43-47-47 L í háls- opi að aftan = 114-114-126-126 L í allt. Prjónið 4 umf. garðaprjón. Fellið af. Saumið alla sauma og gangið frá endum. Saumið mynstur ef vill. Vigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdis svarar í símann kl. 9-12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080 Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgata 31 Ak. Netfang: ritstjori@dagur.is Æfiiigahjól Lesandi hringdi, sagðist vera orðin fullorðin en hafa keypt sér þrekhjól þar sem hún treysti sér ekki til gönguferða í kuldanum. Hún vildi vita hvort ekki væru einhverjar áætlanir sem segja til um hversu mikið og oft fólk á að æfa til að halda sér í formi og svo ef það ætlar að grennast. Dagur leitaði til Þorsteins Gunnarsson- ar hjá íþróttum fyrir alla. Hann sagði að þrekhjól væri gott til að byggja upp þol og til fitubrennslu en að engar almenn- ar upplýsingar lægju fyrir varðandi þjálf- un. Það væri á vegum íþróttaþjálfara. En hins vegar væri almenna regla sú, að til að viðhalda þreki og byggja upp þol, ætti fólk að æfa að minnsta kost 3svar í viku, 20 mín. í einu. Stíga petalann 70- 75 sinnum á mfnútu og stilla hjólið þannig að þegar petalinn er stiginn, þá á hnéð að vera aðeins bogið.Hann sagði að fullorðið fólk gerði rétt í því að leita til þjálfara til að fá nánari upplýsingar, því fólk væri svo misjafnlega á vegi statt.Síminn hjá Iþróttum fyrir alla er 553 8910 og þangað geta allir leitað.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.