Dagur - 21.01.1998, Síða 11

Dagur - 21.01.1998, Síða 11
MIÐVIKUDAGUIt 21. ] AKÚAR 199 8 - 27 %<r- LÍFIÐ í LANDINU KjartanÁs- mundsson, 20 ára, hefurverið blindurfráfæð- ingu en sækir samtalla leiki með Grindavík í körfunni. Kjartan Ásmundsson er harður körfuboltaáhugamadur en æfir sjálfur boccia. Hann fer t keppnisferðalag til Svíþjóðar í byrjun febrúar og keppir á Malmö Open á afmælisdaginn sinn. Keppir í MaJmö á afinælisdagiim „Ég fer á alla leiki með Grinda- vík, bæði í körfunni og fótbolt- anum. Mamma og pabbi eru ekkert í þessu. Ég var bara svo klár að fylgjast með og þess vegna fékk ég áhugann. Þetta er svo spennandi," segir Kjartan Asmundsson, 20 ára Grindvík- ingur. Fer á hvern leik Kjartan er sonur Kolbrúnar Guðmundsdóttur og Asmunds Jónssonar bifvélavirkja. Kjartan á tvö systkini, Stefaníu, 17 ára, sem spilar körfubolta í Þýska- landi í vetur, og Guðjón, 23, sem spilar fótbolta með Grinda- vík og er númer 4. Kjartan hefur verið blindur frá fæðingu. Hann vinnur á tveimúr stöðum, fer yfir bæklinga fyrir Flugleiðir á Hæfingarstöðinni í Keflavík. Á Blindravinnustofunni í Reykja- vík merkir hann bursta og fieira þess háttar. Kjartan Ásmundsson fylgist vel með íþrótt- um þó að hann sé hlindur. Hannferá hvem leik með Grindavík. Kjartan er sérlegur áhugamað- ur um körfubolta, að sjálfsögðu harður stuðningsmaður Grinda- víkur, og fylgist líka með fót- bolta - Liverpoolaðdáandi af lífi og sál. Hann sækir hvern ein- asta leik með Grindavík sem hann mögulega kemst á og veit alveg nákvæmlega hvað er að gerast og hvernig liðinu gengur þó að hann sjái ekkert. Hann veit hver er besti maðurinn á vellinum því að hann skynjar þessa hluti út frá því sem er að gerast í kringum hann. Bubbi mundi eins og skot Kjartan fylgist líka með íþrótt- um í sjónvarpinu þó að hann segist „gera lítið af því“. Ein- hvern veginn hljómar það nú samt eins og heldur meira en bara „Iítið“. Hann er sjálfur virk- ur íþróttamaður, æfir Boccia og fer í keppnisferðalag til Svíþjóð- ar í byrjun febrúar, keppir á Malmö Open á afmælisdaginn sinn, 7. febrúar. Kjartan hefur mikinn tónlist- aráhuga, heldur upp á Bubba og segir hann hafa batnað með ár- unum. Hann heimsótti nýlega Stöð 2 og Bylgjuna og fékk þá að tala við Bubba í beinni út- sendingu. Hann segir að Bubbi hafi munað eftir sér eins og skot því að þeir hafi kynnst þegar Bubbi var eitt sinn að spila í Grindavík. -GHS NÝJAR ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR Ægivald Bjama Ben. í bókinni Ein með öllu, eftir Ás- geir Hannes Eirfksson, fyrrver- andi þingmann og pylsusala, má finna ágæta sögu, hafða eftir Haraldi Blöndal, Iögfræðingi. Segir þar frá fundi Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi þar sem Pétur Ottesen þingmaður, vermdi stól fundarstjóra, en sér- legur gestur fundarins var Bjarni Benediktsson, forsætis- ráðherra. Er saga þessi ágætt dæmi um það ægivald sem Bjarni hafði sem formaður í sín- um flokki. I bókinni segir: „...Að lokinni tölu dr. Bjarna um ástand og horfur í landinu var gengið til dagskrár um mál- efni héraðsins og þurfti að greiða atkvæði um eina tillögu. Pétur Ottesen Ieitaði því at- kvæða hjá fundarmönnum og greiddu þeir allir tillögunni at- kvæði sitt. Formsins vegna bað Petur svo um atkvæði á móti, en engin hönd sást á lofti nema hönd dr. Bjarna. Pétur Ottesen var fljótur að kveða upp úrskurð sinn og sagði: „Tillagan er felld með öllum greiddum atkvæðum“.“ Umsjón: Sigurður Bogi Sævarsson. UMSJÓN Sigundór Sigurdórsson Bílskiirinn Eins og skýrt var frá í Degi á dögunum hefur Ragnar Björnsson, bólstrari í Hafnarfirði, átt í glímu við Póst og síma vegna þess að nafn fyrirtækis hans, Ragnar Björnsson hf., var íjarlægt úr símaskránni og gert að leyninúmeri. Hins vegar var nafn Ragnars Björnsson bólstrara, heimilsfang og heimasímanúmer í skránni. Margir héldu að Ragnar væri hættur með fyrirtækið og farinn að dunda sér heima fyrir. Mikið var í hann hringt og einn kom með rúmið sitt heim til Ragnars, setti það fyrir framan bílskúrshurðina, hringdi síðan d>Tabjöllunni. Þegar Ragnar opnaði hurðina benti gestur- inn á rúmið sitt og spurði hann hvort hann gærti ekki lagað það fyrir sig. Þetta er eitt af mörgum dæmum um uppákomur vegna þess að nafni fyrirtækisins var kippt út úr símaskxánni. Jarðarfarir Miðaldra fólk hefur af eðlilegum ástæðum átt erfitt með að skilja hvers vegna því gengur jafn illa að fá atvinnu og raun ber \Ttni. Það hefur til að mynda komið í ljós að ungt fólk er miklu oftar veikt og því frá vinnu en þeir sem eldri eru. Þessi fullyrð- ing var af miðaldra manni nefnd við atvinnurekenda á dögun- um. „Þetta er alveg rétt,“ sagði atvinnurekandinn, „en þeir mið- aldra eru bara jafn oft frá vegna þess að þeir eru að fylgja vinum og kunningjum til grafar,“ svaraði atvinnurekandinn. Góðar óskir Halldór Ásgrfmsson, formaður Framsóknarflokksins, hélt ræðu til heiðurs Davíð Oddssyni, sem sögð var sú besta sem flutt var í Perlunni á laugardaginn. Meðal annars sagði Halldór frá því að þegar faðir hans, Ásgrímur Halldórsson, fyrrum kaupfélags- stjóri, útgerðarmaður og foringi framsóknarmanna á Höfn, átti fimmtugsafmæli fyrir ijörutíu árum síðan hafi hann fengið skeyti frá Ólafi Thors, þáver- andi formanni Sjálfstæðisflokksins. í skeytinu stóð: „Óska þér velgengni í Iífinu en ekki í pólitíkinni, Ólafur Thors." Grár köttur Enn yrkja menn urn forsætis- ráðherra og upplestur hans á Gráa kettinum fyrir jólin. Eftir- farandi bragur barst okkur fyrir skömmu: Aldamótasimdið Ýmsir hafa orðið til þess að benda á að sennilega hafi Ingi- björg Sólrún borgarstjóri Iofað upp í ermina á sér þegar hún sagðist ætla að synda úr Skerja- firði yfir á Álftanes 17. júní árið 2000 kl. 14.00. Margir halda að þá muni standa sem hæst trúar- hátíðin á Þingvöllum. Aðrir segja enga hættu á því. Sú hátíð verði ekki haldin fyrr en í júlí. Þingvellir séu ekki tilbúnir til að taka við miklum mannfjölda 17. júní. Þeir Indriði G. Þorsteinsson og Matthías Johannessen hafi látið reikna það út fyrir sig, þegar þeir sáu um þjóðhátíð á Þingvöllum 1974, að mestar lík- ur á góðviðri á Suðurlandi væri í síðari hluta júlí-mánaðar. Þess vegna yrði trúarhátfðin haldin þá en ekki 17. júní og því geti Ingibjörg Sólrún synt yfir Ijörð- inn í rólegheitum þann dag. Leitt er á þingi lúðir þegnar. Bók ek las á Bláum ketti laus við þras ok leiðan aga. Er att kurr í eigin búðurn. Fylkir skipar. Fyrðar hlýða ok þykjast eigi menn að minni. Illt er að egna óbilgjaman. Forðisk flumbnir okjleiri pústra. Skal því hverr sig hægan hafa.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.