Dagur - 12.03.1998, Side 11
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1998 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
Ingibjörg Haf-
stað verðurað
líkindum efstá
Skagafjarðarlist-
anum, sem
stofnaðurvarí
janúarsl. ef
marka má skoð-
anakönnun sem
gerðvarjyrír
stuttu.
Ingibjörg Hafstad, oddviti Staðarhrepps, kemur væntanlega til með að leiða Skagafjarðarlistann,
sem er sameiginlegt framboð Kvennalista, óháðra, Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og fleiri.
Skagafjörðurí
góðurn máhrni
„Það var farið að ræða um
Skagafjarðarlistann fyrir alvöru í
nóvember/1 segir Ingibjörg Haf-
stað, oddviti í Staðarhreppi. „En
á fjölmennum fundi í janúar var
listinn svo stofnaður og fólk
skrifaði sig í málefnahópa sem
hafa verið við vinnu síðan.“
Að Skagafjarðarlistanum
standa Alþýðubandalag, Alþýðu-
flokkur og Kvennalisti, sem allir
voru búnir að ákveða að bjóða
ekki fram undir merkjum flokk-
anna og svo bættust við óháðir
og fleiri sem vinna undir merkj-
um félagshyggjunnar.
Keimari og bóndi
Ingibjörg Hafstað er kennari að
mennt, en rekur kúabú í Vík
ásamt manni sínum. Hún segist
ekkert hafa kennt sl. tvö ár, enda
verið upptekin af starfi sínu sem
bóndi og oddviti. Hún varð
langefst í skoðanankönnun
þeirri sem gerð var til að undir-
búa uppstillingu og segir ýmis
mál í deiglunni. Þar megi helst
telja félagsþjónustukerfið og
skólamálin, en vegna tilvonandi
Að Skagafjarðarlistan-
um standaAlþýðu-
bandalag,Alþýðu-
flokkur og Kvenna-
listi.
sameiningar þurfi margt að
vinna á þeim vettvangi. Oddvitar
hafi verið að störfum og ráðið
menn til að vinna drög að hug-
myndum að nýju stjórnskipulagi,
svo auðveldara verði fyrir nýja
sveitarstjórn að taka til starfa
þegar þar að kemur.
- Eru einhver sérstök hitamál
hjá ykkur?
„Nei, ekki get ég sagt það,“
svarar Ingibjörg. „Það mætti
kannski helst minnast á um-
hverfismálin, en ég hef orðið vör
við það að fólk er tilbúið til að
leggja mikið á sig til að vinna að
sameiningunni og það hefur átt-
að sig á því að best sé að draga
úr pólitískum áherslum á meðan
þetta gengur yf ir.
Ekki bara fiskur
-Hvernig er atvinnuástandið í
Skagafirði?
„Þetta var frekar slæmt á síð-
asta ári á Sauðárkróki og Hofs-
ósi og dálítið um brottflutning
fólks þess vegna. En nú hefur
atvinnuástand verið að færast í
eðlilegt horf, þó svo auðvitað sé
um sveiflur að ræða hér eins og
annarsstaðar. En Skagafjörður
hefur þá góðu kosti að búa yfir
margþættri atvinnustarfsemi, að
vera ekki eingöngu háður fisk-
vinnslu," segir Ingibjörg. „Sauð-
árkrókur er orðinn mikill skóla-
bær og í Skagafirði hefur verið
komið upp sambýlum, bæði á
vegum unglingadeilda og fatl-
aðra. Það má segja að við séum
öfundsverð hvað snertir mikla
möguleika í uppbyggingu at-
vinnustarfsemi og mér finnst að
fréttaflutningur mætti gjarnan
vera jákv'æðari, að segja frá því
sem er gott að gerast og það er
svo sannarlega mjög margt."
-vs.
Kolla fer í bíó
Robin Williains stelur senunni
Good WUl Hunting 2'A*
Matt Damon er nýjasta eftirlæti
Hollywood eftir að hafa skrifað
handritið og leikið aðalhlutverk-
ið í Good Will Hunting. Damon
leikur þar hlutverk vand-
ræðaunglings sem reynist vera
stærðfræðiséní. Það kemur síð-
an í hlut sálfræðings, sem Robin
Williams Ieikur, að gera séníið
og vandræðagemlinginn að
manni.
Good WiII Hunting hefur ver-
ið tilnefnd til íjölda Oskarsverð-
launa, þar á meðal sem besta
mynd, fyrir bestu leikstjórn og
besta handrit. Þrír leikarar
hennar eru einnig tilnefndir til
verðlauna fyrir frammistöðu
sína. Vissulega er Good Will
Hunting að stærstum hluta
notaleg skemmtun. Hins vegar
stendur hún ekki undir merki
sem frammúrskarandi kvikmynd
og akademían virðist því full
rausnarleg í útnefningum sín-
um.
Matt Damon er annar hand-
ritshöfunda og almennt er búist
við þvf að hann fái Óskarinn fyr-
ir. Handritið er prýðilegt og í
fljótu bragði verður ekld annað
séð en að Damon sé hæfileika-
meiri handritahöfundur en leik-
ari. Hann stendur sig vel í hlut-
verki sfnu en sýnir þó engan
stjörnuleik. Minnie Drivers er
mun minnisstæðari í hlutverki
unnustu hans, ákaflega eðlileg,
blátt áfram og samúðarfull.
Robin Williams er stjarna
myndarinnar. Hann er frábær
gamanleikari en er ekki síðri í
dramatískum átakahlutverkum.
Innlifun hans er mikil og hann
býr yfir ríkum sannfæringar-
krafti. Þegar hann talar til sam-
leikara sinna er eins og hann sé
að tala beint til áhorfandans.
Það er ómögulegt annað en að
vera snortin af leik hans. Sann-
arlega er kominn tími til að
þessi fjölhæfi leikari hampi
Óskarnum og hann á verðlaun
skilið fyrir leik sinn í þessari
mynd.
í heild er myndin þokkaleg
skemmtun en á stundum skortir
hana kraft og tilfinningu. Það
sem stendur upp úr er frammi-
staða Robin Williams. Það er
mikið að gerast þegar hann er á
tjaldinu.
S.MÁTT OG STÓRT
Ameríkanaseringm
Anna Kristín Jónsdóttir, morgunhani á Rás 2,
var á þriðjudagsmorguninrt síðasta með viðtal
við bandarískah sagnfræðing um áhrif banda-
rískrar fjöldamenningar, eins og hann kallaði
það, á umheiminn. Þar inn í koma auðvitað
bandarískar kvikmyndir sem og dvöl þúsunda bandarískra her-
manna í löndum vítt og breitt um heiminn. Oft hefur verið talað
um mildl áhrif bandarískra hermanna hér á landi, jafnt og
bandarískra kríkmynda sem nær einoka markaðinn hér. Þetta
hefur stundum verið kölluð ameríkanasering. Fólk keppist við að
neita þessu og segir okkur verjast vel. En ætli það sé ekki besta
dæmið um ameríkanaseringuna hér á landi að þeim morgun-
hönum á Rás 2 þótti ekkert athugavert að útvarpa viðtali við
sagnfræðinginn á ensku óþýddu. Aðeins lítil endursögn, eins lítil
og hægt var að komast af með.
Körfuboltinn
Og talandi um ameríkanaseringu á Islandi. Körfubolti er eins og
flestir vita Ieikur sem fundinn var upp í Bandaríkjunum og hefur
breiðst þaðan út um heiminn. Ætli það sé tilviljun að þrjú bestu
körfuboltalið landsins, mörg undanfarin ár, koma úr þorpunum
þremur umhverfis Keflavíkurflugvöll, Keflavík, Njarðvík og
Grindavík?
Leynireglur
Á dögunum gerði minnihluti allsherjarnefndar tillögu um að
kannað yrði hvort banna ætti dómurum landsins að vera félagar
í leynireglum. Jón S. Bergmann var Húnvetningur og lista hag-
yrðingur. Hann orti eitt sinn um þetta mál:
Beittu í laumi kjafti og kló,
kærleika til vara,
þá ertu efni í Oddfellow
eða frímúrara.
Og imi ástina
Jón orti líka eina bestu vísu, sem ort hefur verið um ástina.
Ástin blind er lífsins lind
leiftur skyndivega.
Hún er mynd afsælu og s)>nd
samræmd yndislega.
Leiðrétting
Farið var rangt með nafn leikara í „Smátt og stórt“ í gær. Nafn
Þráins Karlssonar var nefnt í stað Aðalsteins Bergdal og eru
hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á því.
Vilhjálmur Egilsson.
mundur Hallvarðsson, sem er
andvígur klukkubreytingunni.
Hann lauk máli sfnu með
ágætri vísu eftir Piet Hein í
þýðingu Helga Hálfdanarson-
ar og sagði hana segja allt sem
þarf um málið:
Efklukkan er eitt hjá okkur
þá er hún á Spáni tvö,
en átta á lndlandsskaga
og austur hjá Volgu sjö.
Hve gæfan er okkur örlát
sem ekki verðskuldum neiit
að kjósa okkur land með þeim
kostum
að klukkan er eitt
klukkan eitt.
Ef klukkan er
eitt
Á dögunum urðu harðar um-
ræður um frumvarp Vilhjálms
Egilssonar um að hér á landi
verði klukkunni breytt vor og
haust eins og í Evrópulönd-
unum. Það hefur komið í Ijós
að þingmenn Austurlandskjör-
dæmis eru hlyntari því a?
þetta verði gert en margir aðr-
ir þingmenn. Þar má nefna
séra Gunnlaug Stefánsson,
fyrrum þingmann krata, og
Arnbjörgu Sveinsdóttur, þing-
mann Sjálfstæðisflokksins.
Þau áttu í orðaskaki út at
þessum máli á þinginu um
daginn Arnbjörg og Guð-
Arnbjörg Sveinsdóttir.