Dagur - 20.05.1998, Page 8
8-MIDVIKUDAGUR 20. MAÍ 1998
MIDVIKVDAGUR 20. MAÍ 1998 - 9
FRÉTTASKÝRING
% y
Spurning Ddgs:
Veróa þetta spenn-
andi kosningar á
Akureyri og hverju
spáirþú um úrslit?
Anna Lilja Bjömsdóttir
„Eg get ekki sagt að ég hafi
mikið hugleitt þessar kosn-
ingar en ég ætla samt að
nota atkvæðið mitt. Ég veit
ekkert hvernig þær fara en
þær verða efiaust spenn-
andi.“
Valborg Svavarsdóttir
„Auðvitað hef ég hugleitt
þær en ég veit ekki hvort
þær verða spennandi. Ég
hef ekki hugmynd um
hvernig úrslit geta orðið og
vil alls ekki spá um þau.“
Hálldór Tryggvason
„Ég hef lítið fylgst með
kosningabaráttunni,
kannski hefur hún verið
svo dauf. Ég held að Fram-
sóknarflokkurinn missi
fylgi en þori ekki að segja
til um hver verður sigurveg-
ari kosninganna. Ég er svo
lítill spámaður."
Baldur Þorsteinsson
„Ég hef Iítilsháttar fylgst
með kosningabaráttunni
hér og ætla að nota atkvæð-
ið mitt. Þetta verður efa-
laust spennandi barátta um
ellefta manninn, Fram-
sóknarflokkurinn tapar en
Sjálfstæðisflokkurinn verð-
ur sigurvegari, vinnur tvo
menn.
Skólamál í forgangi
GEIR
GUÐSTEINS-
SON
SKRIFAR
Vilji hjá öllum fram-
boðum á Akureyri að
Eyjafjörður sé valkost-
ur fyrir orkufreka
stóriðju.
Skólamál virðast vera sá mála-
flokkur sem frambjóðendur á Ak-
ureyri telja mikilvægast að komist
í viðunandi horf á næsta kjör-
tímabili og lestur stefnuskráa
framboðanna styður þá skoðun.
Því virðist vera lag nú til þess að
húsnæðisvanda grunnskólanna
verði komið í ásættanlegt horf,
jafnvel fyrir upphaf skólaárs
haustið 2000. Atvinnumál hafa
einnig verið töluvert í umræð-
unni og hefur núverandi meiri-
hluti bæjarstjórnar, Framsóknar-
flokkur og Alþýðuflokkur, tölu-
vert verið gagnrýndur af D, F og
L lista fyrir slælega frammistöðu
í þeim málaflokki. Þannig hafa
verið boðaðar Iántökur til fram-
kvæmda, t.d. við byggingu skóla
og til að leysa aðkallandi hús-
næðisvanda Amtsbókasafnsins,
sem reyndar hefur verið lengi á
stefnuskrá, m.a. fyrir síðustu
kosningar.
Umræðurnar á Akureyri hafa
einnig snúist um það að mark-
aðssetja Akureyri og Eyjafjörð
sem valkost fyrir orkufreka stór-
iðju, og þar hefur sérstaklega ver-
ið horft til Dysness í Arnarnes-
hreppi. Mörgum finnst yfirstjórn
Akureyrarbæjar vera þunglama-
Ieg og vilja sjá á því breytingar, að
stjórnkerfið verði gert aðgengi-
legra fyrir hinn almenna borgara.
Sameiningarmál hafa einnig ver-
ið í umræðunni, og möguleikan-
um á að Eyjafjörður verði f nán-
ustu framtíð eitt öflugt sveitarfé-
lag með yfir 20 þúsund íbúa hef-
ur síður en svo verið kastað fyrir
róða.
Bæjarstjórinn, Jakob Björns-
son, oddviti framsóknarmanna,
nýtur mun meira fylgis meðal
kjósenda sem bæjarstjóraefni en
oddvitar hinna framboðanna,
raunar nýtur hann fylgis Iangt
umfram það fylgi sem Framsókn-
arflokkurinn hefur verið að fá í
skoðanakönnunum. I næstu bæj-
arstjórn munu sjást nokkur ný
andlit hvernig svo sem kosningar
fara, og aðrir sem hafa verið þar
nokkur kjörtímabil hætta, eins og
t.d. Gísli Bragi Hjartarson,
Heimir Ingimarsson, Sigríður
Stefánsdóttir og Þórarinn E.
Sveinsson. Aðrir berjast fyrir
pólitisku lífi sínu, eins og t.d.
Sigurður J. Sigurðsson sem sæti
hefur átt í bæjarstjórn Akureyrar
í 24 ár.
Áhersla á atvtnnu- og skóla-
mál auk stjómsýslu
Sjálfstæðismenn vilja stofna Ak-
ureyrarþing til að auka þátttöku
bæjarbúa í stjórnun bæjarins og
það þing verði bæjarstjórn til ráð-
gjafar. Kristján Þór Júlíusson
skipar 1. sætið á D-Iista og hann
er jafnframt bæjarstjóraefni sjálf-
stæðismanna. Hann segir að
kosningabaráttan á síðustu dög-
um þess snúist um það hvort
bæjarbúar vilji breytingar á
stefnu bæjarstjórnar Akureyrar
síðustu fjögur ár.
„Hér hefur ríkt kyrrstaða og við
viljum rjúfa kyrrstöðuna og að við
taki að nýju tímabil lífs og gró-
anda í málefnum Akureyrarbæjar.
Við höfum lagt höfuðáherslu á
þrjá málaflokka; atvinnumál,
skólamál og stjórnsýslu sveitarfé-
lagsins. Við viljum reyna að auka
áhrif íbúanna á stjórnsýsluna og
draga úr þeirri miðstýringu sem
ríkt hefur f skólamálum. Bæjaryf-
irvöldum er nauðsyn að marka
sér stefnu til lengri tíma og það
viljum við gera í samráði við aðila
vinnumarkaðarins og mennta-
stofnanir bæjarins og því verki
skal vera lokið fyrir árslok.
Við viljum aflétta miðstýringu á
skólakerfinu með þvf að færa
valdið út til skólanna með skipan
nefndar. Þannig koma foreldrar,
kennarar og skólastjórnendur
meira að fjármagnsstýringu hvað
varðar rekstur og gjaldfærða fjár-
festingu í skólunum auk innra
starfs skólans," segir Kristján Þór
Júlíusson.
Kristján Þór segir að baráttan á
lokasprettinum snúist um að
tryggja 5. manni á D-lista, Vil-
borgu Gunnarsdóttur, sæti í bæj-
arstjórn. Kristján sagðist engu
vilja spá um árangur hinna fram-
boðanna.
Akureyringar verði ekki
sniðgengnir í stóriðjumálum
Akureyrarlistinn er nýtt framboð
félagshyggjuafla á Akureyri. I
stefnuskrá hans er m.a. lögð
áhersla á að næsta stórverkefni í
byggingu íþróttamannvirkja verði
yfirbygging yfir skautasvellið og
gerðar verði áætlanir um bygg-
ingu og rekstur fjölnota íþrótta-
húss á íþróttasvæði Þórs. Akur-
eyrarlistinn vill að lán Hitaveit-
unnar verði endurijármögnuð
svo hægt verði að lækka húshit-
unarkostnað.
Asgeir Magnússon, oddviti Ak-
ureyrarlistans, segir að kosningar
snúist um stefnu í skólamálum
og eins hafi atvinnumálin fengið
töluvert vægi í umræðunni þó
þau séu ekki beint í verkahring
sveitarstjórnarinnar, en þar hafi
þó skort forystuhlutverk.
ÚrsLit 1994
Atkv. fulltr.
Alþýðufl. 931 1
Eramsóknarfl. 3.194 5
Sjálfstæðisfl. 2.160 3
Alþýðubandal. 1.665 2
Meirihlutasamstarf er með Al- þýðuflokki (A) og Framsóknar-
flokki (B)
„Það á að móta stefnu í at-
vinnumálum og skapa atvinnulíf-
inu lífvænleg skilyrði. Bærinn
hefur t.d. tækifæri til að hafa
áhrif gegnum Landsvirkjun í
stóriðjumálum, en þar sitja tveir
Eyfirðingar i stjórn. Þrátt fyrir
það hefur aldrei verið gengið
harðar fram hjá Akureyri í stór-
iðjuumræðunni en á síðasta kjör-
tímabili. Bærinn á aðild að Iðn-
þróunarfélaginu og atvinnumála-
skrifstofu sem vinna að sömu
málum og þrátt fyrir að stefnt
hafi verið að sameiningu þeirra
fyrir síðustu kosningar að frum-
kvæði Framsóknar hefur það ekki
gerst enn.
Það vekur athygli mína á þess-
um síðustu dögum að Kristján
Þór, oddviti sjálfstæðismanna,
hefur skipt um skoðun á hverjum
degi svo fólk hlýtur að velta vöng-
um yfir því hvort að kraftbylgju
sjálfstæðismanna fylgi trúverðug-
ur kraftur," segir Asgeir Magnús-
son,
Hann segir að ekkert afgerandi
gerist í bæjarfélaginu nema Akur-
eyrarlistinn fái ótvírætt umboð.
F-listinn stefnir á að ná fjórum
bæjarfulltrúum.
Semja við kcimara í héraði
Listi fólksins telur að rödd fólks-
ins þurfi að fá að heyrast inn í
bæjarstjórn Akureyrar. Málefni
fjölskyldunnar eigi að hafa for-
gang og það gerist m.a. með
hraðri uppbyggingu grunnskóla
bæjarins. L-listinn vill umbætur í
hafnarmálum og staðið verði fyr-
ir umbótum i Sandgerðisbót fyrir
smábáta, t.d. með auknu viðlegu-
plássi og betri setningsaðstöðu.
Listi fólksins styður allar tilraun-
ir til sameiningar sveitarfélaga og
vill að stærsta sveitarfélagið við
Eyjafjörð, Akureyri, taki frum-
kvæði í sameiningarmálum á
svæðinu í sínar hendur.
Oddur Helgi Halldórsson, odd-
viti og „guðfaðir" L-Iistans, segir
að kosningabaráttan snúist um
það að fá fólk til að trúa mál-
flutningi L-Iistans, þ.e. að þeir
meini það sem þeir segi og vilji
framkvæma.
„Það er brýnast hér á Akureyri
að stefna að auknum framkvæmd-
um og strax eftir kosningar þarf að
ráðast í það að Ieysa þennan alvar-
lega vanda sem kennaramálin eru
komin í. I dag eru aðeins 28 kenn-
arar af um 215 tilbúnir að hefja
kennslu í haust og því þolir þetta
mál enga bið. Það þýðir ekkert
annað en að ganga hreint til verks
og semja við kennara beint, gera
við þá sérkjarasamninga, en benda
ekki stöðugt á Iaunanefnd sveitar-
félaga.
„Við viljum hraða uppbyggingu
grunnskólanna og við höfum
metnað til að gera það hraðar en
skólanefnd hefur lagt til. Við þurf-
um að taka okkur tak í fráveitu-
málum og það er allt of hægt farið
að „reyta" í þetta verkefni aðeins
um 60 milljónir króna á ári,“ segir
Oddur Helgi I lalldórsson.
Oddur telur að L-listinn fái tvo
bæjarfulltrúa en baráttan standi
um að halda honum. Sjálfstæðis-
flokkurinn verður stærsti flokkur-
inn í bæjarstjórn eftir kosningar
með fjóra fulltrúa, Framsókn með
þrjá og og Akureyrarlisti með tvo.
Lántaka til tekjuskapandi
verkefna
Framsóknarmenn á Akureyri styð-
ja stóriðjuhugmyndir á Eyjafjarð-
arsvæðinu og kynna eigi Eyjaljörð
sem valkost fyrir orkufrek lyrir-
tæki. Mikilvægt sé að standa að
stofnun fjárfestingarsjóðs í tengsl-
um við atvinnuþróunarfélag sem
hafi burði til áhættufjárfestinga.
Framsóknarmenn vilja að vægi
skólamála verði aukið verulega og
áfram verði haldið uppbyggingu
aðstöðu.
„Kosningabaráttan snýst þessa
dagana um hverjum kjósendum
treysta best til að halda um stjórn-
völinn næstu Qögur árin og stýra
þeirri sókn sem nauðsynleg er í
mörgum mikilvægum verkefnum
sem framundan eru á öllum svið-
um og nýta þau tækifæri sem bæj-
arfélagið hefur. Við höfum á þessu
kjörtímabili lagt mjög traustan
grunn að því að halda sókninni
áfram. Brýnustu verkefnin eru á
sviði skólamála, að leysa húsnæð-
isvandræði og efla innra starf skól-
ans, sem er mjög brýnt verkefni.
Framundan eru verkefni á sviði
umhverfis- og atvinnumála þó að
bæjarfélagið komi ekki með bein-
um hætti að atvinnumálum, held-
ur skapi rammann. Þá eru brýn
verkefni framundan, t.d. að byggja
yfir knattspyrnumenn og skauta-
menn. Ég hef verið gerður af and-
stæðingunum persónugervingur
þess að ekki megi taka lán til
framkvæmda en ef um tekjuskap-
andi framkvæmdir er að ræða hef
ég ekki verið því andmæltur. Við
höfum t.d. viljað fjármagna með
ríkinu byggingu rannsóknarhúss
við Háskólann og byggingu Borg-
arbrautar, en það þarf að fara var-
lega í að skuldsetja bæjarsjóð fyrir
hefðbundnum framkvæmdum,"
segir Jakob Björnsson.
Jakob segir það markmið fram-
sóknarmanna að halda sterkum
hlut í bæjarstjórn og þeir verði
áfram sterkt afl við stjórn bæjar-
ins. Það væri ásættanleg útkoma
að fá fjóra bæjarfulltrúa.
Listi fdlksins
1. Oddur Helgi Halldórsson
2. Marsibil Fjóla Snæbjarnardóttir
3. Agúst Hilmarsson
4. Nói Björnsson
5. Svanborg Guðmundsdóttir
6. Víðir Benediktsson
7. Hulda Stefánsdóttir
8. Þorsteinn Haraldsson
9. Helgi Snæbjarnarson
10. Ingibjörg Osk Pétursdóttir
11. Kristinn H. Ólafsson
Oddur Helgi
Halldórsson.
Akureyrarlistiiui, listi jafnaðar-
stefnu, félagshyggju og kvenfrelsis
1. Ásgeir Magnússon
2. Oktavía Jóhannesdóttir
3. Þröstur Ásmundsson
4. Sigrún Stefánsdóttir
5. Jón Ingi Cæsarsson
6. Kristín Sigfúsdóttir
7. Matthildur Sigurjónsdóttir
8. Kristján Halldórsson
9. Guðrún Magnúsdóttir
10. Björn Guðmundsson
11. Hilmir Helgason
Ásgeir
Magnússon.
Listi SjálfstæðisfLokksins
1. Kristján Þór Júlíusson
2. Valgerður Hrólfsdóttir
3. Þórarinn B. Jónsson
4. Sigurður J. Sigurðsson
5. Vilborg Gunnarsdóttir
6. Þóra Akadóttir
7. Steingrímur Birgisson
8. Páll Tómasson
9. Guðmundur Jóhannsson
10. Sunna Borg
11. Jóhanna H. Ragnarsdóttir
Kristján Þór
Júlíusson.
Listi FramsóknarfLokksins
1. Jakob Björnsson
2. Ásta Sigurðardóttir
3. Sigfríður Þorsteinsdóttir
4. Elsa B. Friðfinnsdóttir
5. Guðmundur Ómar Guðmundsson
6. Valgerður Jónsdóttir
7. Friðrik Sigþórsson
8. Konráð Alfreðsson
9. Mínerva Björg Sverrisdóttir
10. Einar Sveinn Ólafsson
11. Sunna Árnadóttir
Jakob
Björnsson.
Sýslumaðurinn á Húsavík
Útgarði 1, 641 Húsavík,
s. 464 1300
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálfum,
sem hér segir:
Austurvegur 6, Þórshöfn, efri hæð,
þingl. eig. Hjalti Jóhannesson,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Þórs-
hafnar og nágr., föstudaginn 29.
maí 1998 kl. 13.30.
Hjóttu ferðarinnar
♦
t Nú getur þú lesiö
S Dag í loftinu á öllum
áætlunarleiöum
Islandsflugs.
ÍSLANDSFLUG
gortr fíoinm taart oð fljúgtt
Brúnagerði 1, Húsavík efri hæð
0101, þingl. eig. Halldóra Gunnars-
dóttir, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður ríkisins, fimmtudaginn 28.
maí 1998 kl. 13.00.
Grundargarður 7, Húsavík íb. 103,
þingl. eig. Anton Sigmarsson, gerð-
arbeiðandi Olíuverslun íslands hf.,
fimmtudaginn 28. maí 1998 kl.
13.30.
Smiðjuteigur 7 b, Reykjahverfi,
þingl. eig. Stöplar hf., gerðarbeið-
andi íslandsbanki hf. höfuðst. 500,
fimmtudaginn 28. maí 1998 kl.
14.00.
Sæblik, Raufarhöfn, þingl. eig. Jóna
G. Nikulásdóttir, gerðarbeiðandi
Landsbanki íslands, Raufarhöfn,
föstudaginn 29. maí 1998 kl. 12.00.
Sýslumaðurinn á Húsavík,
19. maí 1998.
Halla Bergþóra Björnsdóttir,
fulltrúi.
Glerárkirkja
Messað verður á uppstigningardag kl.
14.00.
Vísbending
Lestu blaðið og taktuþdtt ileiknum!
5fyO oooo
Vy Þú gre
Þú greiðir ekkert umfram venjulegt símtal
Séra Kristján Róbertsson predikar og sóknarprestur
þjónar fyrir altari. Kvenfélagið Baldursbrá býður til
kirkjukaffis í safnaðarsal eftir messu.
Kór Glerárkirkju mun syngja nokkur
létt lög í kirkjukaffinu.
Eldri borgarar eru sérstaklega boðnir velkomnir.
ATH. nýtt hljóðkerfi er komið í kirkjuna.
Áskriftarsíminn er
Miðvikudaginn 20. maí
ki. 18:00
AsUrlftarsímlnn sr S1S 6100