Dagur - 20.05.1998, Qupperneq 13
"syr
MIDVIKUDAGUR 20. MAÍ 1998 - 13
ÍÞRÓTTIR
Frá undirritun samnings Fáks, Saga Film og Ríkssjónvarpsins um beinar útsendingar frá kappreiðum á Fáksvelli í sumar.
Beinar útsendingar
frá kappreiðum Fáks
I' ákur, Saga Film og
Ríkisútvarpið Sjón-
varp hafa gert með sér
samning iiin beinar
útsendtngar frá kapp-
reiðum á Fáksvelli í
sumar.
Eins og fram kemur í fréttatil-
kynningu frá Hestamannafélag-
inu Fáki er mikill áhugi fyrir
hestamennsku í landinu og flest-
ir sakna kappreiðanna sem fyrr á
árum voru grunnsteinninn í allri
starfsemi hestamannafélaganna.
Nútímatækni sjónvarps í beinum
útsendingum gefa kappreiðum
því nýtt tækifæri til að ná hylli
almennings.
Þetta er tilraun til að hefja
gamla og þjóðlega íþrótt til vegs
og virðingar og er markmið að-
standenda að þær verði sjálf-
sagður hluti af þeim íþróttum
sem sýndar eru reglulega í ís-
lensku sjónvarpi.
í sambandi við kappreiðarnar
rekur Fákur veðbanka á
Fáksvelli, sem er byggður á
gömlum reglum í lögum frá
1945 og reglugerð frá 1995.
Reglurnar eru öðruvísi en boðið
er upp á hjá getraunafyrirtækj-
um á Islandi, en keimlíkar því
sem gerist á veðhlaupabrautum
erlendis og því skemmtileg til-
breyting á íslenskum getrauna-
markaði.
Inn á milli kappreiðasprett-
anna sem verða a.m.k. sextán,
verður sýnt frá verðlaunaafhend-
ingu í gæðingakeppnum, sem fer
fram sömu helgi og sigurvegar-
arnir hlaupa sýningarhring í
beinni útsendingu. Einnig verða
kynnt þau kynbótahross sem fá
hæstu einkunnir á kynbótasýn-
ingunni.
Utsendingin um hvítasunnuna
ætti að vekja verðskuldaða at-
hygli, því þar sprettur íslenski
hesturinn upp í aðalhlutverki, á
fullri ferð og við hestaheilsu,
segir í fréttatilkynningu Fáks.
Ágúst þjálfar Þórsara
Þórsarar verða með
yngsta liðið í úrvals-
deildinni í
körfulmattleik í
haust. Nýráðinn þjálf-
ari hefur náð góðum
árangri með drengja-
ilokk félagsins.
Ágúst H. Guðmundsson, sem
síðustu fjögur árin hefur þjálfað
drengjaflokk Þórs á Akureyri,
hefur skrifað undir tveggja ára
samning um
þjálfun úrvals-
deildarliðs fé-
lagsins. Ágúst
hefur að undan-
förnu náð góð-
um árangri með
drengj aflokkinn
og eins og við
sögðum nýlega
frá í Degi, unnu
þeir Islandsmeistaratitilinn í ár.
Ágúst sagði í samtali við Dag
að sér litist vel á að taka við lið-
inu, enda þekkti hann það mjög
vel. „Liðið verður aðallega byggt
upp af ungum leikmönnum sem
eru að ganga upp úr drengja-
flokknum og við verðum senni-
lega með yngsta liðið í úrvals-
deildinni í haust. Verið er að
skoða erlenda leikmenn, en að
öðru leyti á ég ekki von á öðrum
aðkomumönnum til liðsins."
Ágúst, sem á að baki um 150
leiki með Þór, segir að mildð
uppbyggingarstarf hafi verið
unnið hjá félaginu síðustu árin,
sem nú væri að skila sér í ungum
og efnilegum leikmönnum. „Eg
er því bjartsýnn á framhaldið og
auðvitað er stefnan sett á úrslita-
keppnina að ári,“ sagði Ágúst.
Ágúst H. Guð-
mundsson.
ÍÞR ÓTTAVIDTALIÐ
Breiðablik deildarbikar
meistari
Breiðablik sigraði Val 3:2 í úrslitaleik deild-
arbikarkeppni kvenna, sem fram fór á Ás-
völlum í Hafnarfirði um helgina. Blikarnir
sigruðu nú í deildarbikarnum í þriðja sinn á
jafn mörgum árum og þurfti framlengingu
til að knýja fram úrslit.
Valsstúlkur voru fyrri til að skora, þó
Breiðablik byrjaði betur í leiknum. Ásgerður
H. Ingibergsdóttir skoraði á 17. mínútu
fyrra mark Vals eftir þunga sólcn. Þremur
mínútum síðar jafnaði Margét Olafsdóttir
fyrir Breiðablik með glæsilegu skoti úr víta-
teignum. Stuttu seinna bætti hún við öðru marki með skalla eftir
hornspyrnu og staðan þar með 2:1. Um fimm mínútum fyrir leikslok
jafnaði Ásgerður leikinn í 2:2 með sínu öðru marki og knúði fram
framlengingu.
I framlengingunni skoraði Margrét sigurmark Breiðabliks úr vfta-
spyrnu á 12. mínútu og þar með sitt þriðja mark í leiknum.
Sigrún Óttarsdóttir, fyrirliði
UBK.
Magnús Teitsson þjálfar kvennalið FH
Magnús Teitsson sem þjálfað hefur meistaraflokk kvenna hjá Hauk-
um síðustu tvö árin, hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks
kvenna hjá FH. Magnús hefur undanfarin ár náð góðum árangri sem
þjálfari og urðu bæði Stjarnan og Haukar Islandsmeistarar undir
hans stjórn.
FH-ingar eru með efnilegasta liðið f kvennahandboltanum í dag og
það vantar aðeins herslumuninn á að það komist á toppinn. Liðið
lenti í þriðja sæti deildarinnar á síðasta tímabili og má búast við lið-
inu á toppi deildarinnar á næsta tímabili.
Guðni Rúuar í Skallagrím
Guðni Rúnar Helgason, sem varð Islandsmeistari með IBV í fyrra,
hefur æft með Skallagrími undanfarið. Skallarnir eru í viðræðum við
miðjumanninn sterka um að hann leiki með liði þeirra í fyrstu deild-
inni í sumar. Guðni Iék í Þýskalandi í vetur og ekki er nokkur vafi á
að hann mun styrkja Skallana verulega fari svo að hann leiki með liði
þeirra í sumar.
Vormót IR í frjálsnm
IR-ingar halda sitt árlega vormót í 56. sinn á Laugardalsvellinum á
uppstigningardag. Mótið hefst kl. 18:30 og verður veglegt að vanda.
Keppt verður í sérstökum unglingagreinum og nöfn sigurvegara fara
í sérstakan útdráttarpott IAAF. I júnímánuði verður dregið úr þess-
um potti sigurvegara á sambærilegum mótum um allan heim og eru
vinningar dvöl á heimsbikarkeppninni í september nk.
Á mótinu verður keppt um tvo bikara sem sérstaklega hafa verið
gefnir til mótsins. Er það bikar sem gefinn var af afkomendum Sig-
urlaugar Hólm og er keppt um hann í 100 m hlaupi kvenna. Einnig
er keppt um bikar, gefinn af Kristni Sigurjónssyni, í 400 m hlaupi
kvenna.
Kaldalshlaupið er hápunktur mótsins, en það er tileinkað minn-
ingu Jóns Kaldal sem var margföldur Islandsmeistari í langhlaupum,
á þriðja áratugnum. Hlaupnir eru 3000 m og mæta allir bestu lang-
hlauparar landsins til keppni.
Stákamir stóðust prófið
Willum Þór
Þórsson
þjálfari Þróttar
Þróttur óheppinn að
tapa tveimur stigum tilís-
landsmeistaranna í sínum
fyrstaleikíLandssíma-
deildinni. Markmiðið að
halda sérí deildinni. Hóp-
urinnfráhærmeð hjartað
á réttum stað.
- Hvort á að óska þér til hatn-
ingju með jafnteflið eða gráta
með þér vegna tveggja tapaðra
stiga til íslandsmeistaranna?
„Eg veit það nú eiginlega ekki.
Við erum náttúrulega mjög
ósáttir við að hafa tapað þessum
stigum til Eyjamanna úr því sem
komið var. Við vorum búnir að
ná forystunni rétt fyrir leikslok
og það er alltaf sárt að tapa unn-
um Ieik niður í jafntefli. En
strákarnir stóðust prófið í
frumrauninni og léku ágætis fót-
bolta eftir að byrjunarskrekkur-
inn var farinn úr þeim.“
- Hvemig leggst framhaldið í
þig eftir fyrsta leik?
„Það hefur ekkert breyst eftir
einn leik. Nú ættu strákarnir að
vera búnir að ná úr sér mestu
spennunni og sjá að þeir geta
Ieikið í deild þeirra bestu. Mark-
mið okkar hlýtur að vera að
halda sæti okkar í deildinni og
það getum við gert ef allir gera
sitt besta. Ég get ekki kvartað
undan leikmannahópnum. Við
erum með stóran og hreiðan hóp
jafnra leikmanna en auðvitað
vantar marga leikmennina
reynsluna af þ\4 að spila \dð þá
bestu. Við förum bara í hvern
Ieik með því hugarfari að vinna
saman og gera okkar besta.“
- Fannst þér íslandsmeistar-
arnir eins sterkir og þú áttir
von á?
„Það má aldrei vanmeta Eyja-
menn. Þeir eiga mikið inni frá
þessum Ieik. Það vantaði sterka
menn f þeirra lið og þeir eiga eft-
ir að bæta sig mikið áður en
langt um líður. Við erum að
skora hjá þeim eftir hörmuleg
mistök hjá reynslulitlum varnar-
manni og þegar þeir verða búnir
að stoppa upp í götin f vörninni
verður IBV ekki auðunnið. Þessi
leikur verður ekki til að drepa
væntingar þeirra um að verja tit-
ilinn.“
- Hvernig líst þér á Lands-
stmadeildina og hvaða lið held-
urðu að skari fratn úr í sumar?
„Það eru mörg lið sem geta
skarað fram úr. Ef maður á að
miða við vorleikina verður deild-
in mjög jöfn. Eins og ég sagði
áðan verður Eyjaliðið í toppbar-
áttunni og þar verða Skagamenn
líka. KR, Keflavík og Fram geta
líka blandað sér í þá baráttu og
þar með er ég búinn að telja upp
helming liðanna í deildinni.
Leiftur verður spurningarmerki í
sumar og Valur hefur verið að
spila rnjög vel í vor. Spurning
hvort þeir halda því áfram. Eg
held að baráttan um að halda
sæti sínu í deildinni verði milli
okkar, Grindvíkinga og ÍR.
Grindvíkingar hafa reynsluna
fram yfir okkur og IR-inga en
það er ekki víst að það dugi þeim
nú þar sem þeir hafa misst mjög
góða leikmenn úr liði sínu með-
an við og IR höfum verið að
styrkja okkar lið. Við höfum
fengið fimm góða leikmenn til
liðs við okkur og meðan tið höld-
um trúnni á að við getum leikið í
Landssímadeildinni eygjum við
alltaf möguleikann á að halda
sæti okkar.“ - GÞÖ