Dagur - 27.06.1998, Blaðsíða 6
VFJLA VÓ ARDAGUR 27. Jíf Níi $98
MINNINGAGREINAR
rD^tr
Steinimn Helga
Jónína Ámadóttir
Jónína Amadóttir var fædd á
Stóra-Hvarfi í Víðidal í V-
Húnavatnssýslu 28. nóvember
1900. Hún lést á Sjúkrahúsinu
á Hvammstanga 7. júní síðast-
liðinn.
Foreldrar hennar voru hjónin
Sigríður Guðmundsdóttir, f.
11.6. 1871 í Þormóðsdal í
Mosfellssveit, d. 4.2. 1960, og
Ami Vernharður Gíslason, f.
10.6. 1871 á Fremri-Fitjum í
Miðfirði, d. 26.10 1934. Þau
bjuggu fyrstu búskaparár sín á
Stórahvarfi í Víðidal, en síðan
allan sinn búskap á Neðri-Fitj-
um í Fitjárdal. Systkini Jónínu
eru: Gísli, f. 21.3. 1894, d.
19.8. 1955, Hálfdán, f. 15.3.
1897, d. 20.12.1959, Þuríður
Kristín, f. 7.6. 1898, d. 14.9.
1980, Finnur Arinbjörn, f.
16.8. 1904, Sæunn Ágústa, f.
25.8. 1906, d. 28.12. 1991,
Guðmundur Alexander, f. 8.6.
1908, d. 16.3. 1978,Jóhannes
Pétur, f. 30.6. 1911, d. 12.8.
1981. Uppeldissystkin: Jóhann
Benediktsson, f. 15.1. 1919,
Álfheiður Bjömsdóttir, f. 15.2.
1931.
Hinn 12. maí 1928 giftist
Jónína Kristófer Jóhannessyni
frá Fremri-Fitjum í Fitjárdal, f.
30.11. 1893, d. 15.9. 1966.
Þau hófu búskap á Þóreyj-
arnúpi í Vesturhópi og bjuggu
þar í eitt ár, en fluttust þá að
Barkarstaðaseli 1929. Árið
1939 fluttust þau að Finnmörk
í Fitjárdal og bjuggu þar á
meðan Kristófer entist heilsa
til. Jónína dvaldist nokkur ár
hjá syni sínum á Finnmörk og
hjá systur sinni, Þuríði Krist-
ínu, á Hvammstanga. Eftir erf-
ið veikindi árið 1975 dvaldi
hún á heimilum bama sinna,
lengst af á heimili Erlu dóttur
sinnar í Reykjavík. Síðan
haustið 1995 hefur Jónína
dvalist á Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga.
Böm Jónínu og Kristófers:
1) Jóhanna, f. 10.4. 1929, gift
Einari Long, sem er látinn. Jó-
hanna á einn son. 2) Erla, f.
17.6. 1930, gift Herði ívars-
syni frá Melanesi á Barða-
strönd og eiga þau tvö böm og
Ijögur bamaböm. 3) Jóhannes,
f. 4.6. 1931, kvæntur Sofflu
Pétursdóttur frá Geitafelli á
Vatnsnesi, og eiga þau fjögur
böm og sex barnabörn. 4) Sig-
ríður Amý, f. 15.7. 1932, gift
Skúla Axelssyni frá Valdarási í
Víðidal. Börn þeirra eru Qögur
og barnabörn tíu og eitt bama-
barnabarn. 5) Gunnar, f. 3.12.
1940, kvæntur Guðrúnu Sig-
urðardóttur frá Reykjavík og
eiga þau þijú böm.
Útför Jónínu fór fram frá
Melstaðarkirkju þriðjudaginn
16. júní sl.
Elsku mamma.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur
hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mina,
leiðir mig um rétta vegu
jyrir sakir nafns stns.
Jafnvel þótt égfari um
dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga
mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
]á, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mt'na,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Erla.
Sunnudaginn 7. júní sl. andaöist
á sjúkrahúsinu á Hvammstanga
Jónína Árnadóttir, merk og mæt
kona, eftir langa, reynsluríka og
farsæla starfsævi frá gamaldags
búskaparháttum til nútíma
tækni og vélvæðingar.
Hún var fædd á Stóra-Hvarfi í
Þorkelshólshreppi og fluttist
þriggja ára með foreldrum sínum
og þremur eldri systkinum að
Neðri-Fitjum þar sem hún elst
upp til fullorðinsára ásamt stór-
um hópi systkina, átta alsystkin-
um og tveimur fóstursystkinum.
Æskuárin var hún lengst heima í
foreldrahúsum þó kæmi fyrir að
hún væri um tíma á öðrum stöð-
um ef hjálpar var þörf. Einn
vetrartíma var hún í Síðumúla í
Hvítársíðu í Borgarfirði hjá þeim
hjónum Ingibjörgu og Andrési
Eyjólfssyni fyrir atbeina Nínu
Elíeserdóttur, fermingarsystur
sinnar og æskuvinkonu, er átti
þá heima á Signýjarstöðum í
Hálsasveit. Var það upphafið að
langri vináttu hennar við Síðu-
múlaheimilið. Þannig var hún,
þessi kæra systir mín, vinföst og
einlæg í öllum sínum háttum.
Hún var mér tæpum fjórum
árum eldri og eru því margar
bernskuminningar mínar við
hana tengdar. Tuttugu og átta
ára ræðst hún í það að festa ráð
sitt. Hún giftir sig nágranna sín-
um og gömlum leikfélaga á
næsta bæ sem var á líkum aldri,
Kristófer Jóhannessyni frá
Fremri-Fitjum, vænum manni
og dreng góðum. Hófu þau bú-
skap 1929 á Þóreyjarnúpi í Vest-
urhópi. Eftir eitt ár fluttust þau
að Barkarstaðaseli í Miðfirði, þar
sem búið var í tíu ár og búnaðist
vel. Þá fóru þau að Finnmörk í
sömu sveit, þar sem heimili þeir-
ra stóð upp frá því, á jarðnæði
sem langafi hennar, Finnur
Finnsson, hafði byggt upp sem
nýbýli úr heimajörð sinni
Fremri-Fitjum. Alla búskapartíð
sína búnaðist þeim hjónum vel,
þau voru samhent og mátu hvort
annað mikils og farsæld var í
garði þeirra. Mann sinn missti
hin dugmilda kona eftir 37 ára
sambúð. Þau hjón eignuðust
fimm börn, þrjár dætur og tvo
syni.
Nú við leiðarlok, þegar ég kveð
þessa kæru systur mína, þá er
svo margs að minnast: Vel man
ég eftir þegar við hjálpuðumst að
í fyrsta votabandinu mfnu,
hvernig þú hjálpaðir mér þá við
að koma blautum heysátunum á
klakkinn, sem flytja átti heim á
þerrivöllinn. Eg var þá ekki orð-
inn nógu stór eða sterkur, þótt
ég þættist vera fullfær, en er á
reyndi varstu alltaf viðbúin til
hjálpar. Eins minnist ég þess
þegar þið stelpurnar, systur mín-
ar, voruð að brýna okkur bærð-
urna við sláttinn og þóttust ætla
að raka okkur upp að Ijánum,
svo þið gætuð klórað í hælana á
okkur með þeim afleiðingum
sem þeirri athöfn átti að fylgja og
þótti fremur niðurlægjandi. Það
voru þá æskudagar í leik og
starfi. Stundum gat þó komið
fyrir að misfellur brutust út en
gott er þá að muna eftir, hvernig
þú afvopnaðir mig sökudólginn
með jafnaðargeði og glettni í til-
svari. Þetta eru aðeins skyndi-
leiftur, sem koma fram í hugann.
Eftir að við urðum eldri áttum
við saman skemmtilegar ferða-
stundir um helgar á sumrin, því
bæði áttum við góða hesta. Alltaf
varstu sami góði ferðafélaginn
sem gott er að minnast. Þú áttir
svo góða skaphöfn, glöð í við-
móti, jafnlynd og vinföst. Þegar
ég skrifa þessar minningar mínar
finnst mér sem ég sjái þig sem í
gamla daga, þegar dagurinn var
of stuttur til að sinna hugðarefn-
unum sem hugurinn snerist um,
hannyrðunum. Hvar hún ein við
Iitla ljóstýru sat uppi fram á nótt
við hekl og útsaum eða aðra því-
líka handiðn, sem var huganum
hugleikin á þeim árum.
Nú er önnur tíð, ævidagurinn
liðinn í sátt við lífið. Eg kveð þig,
kæra systir mín, með sárum
trega, og þakka allt sem varstu
mér, þú varst svo falslaus og ást-
rík og óeigingjörn, full af trú,
von og kærleika. Ég bið góðan
Guð að gefa þér ríkan ávöxt og
góða heimkomu í eilífðarríki sitt,
sem þú hefur henni tilbúið.
Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað veri nafn Drottins.
Þinn bróðir,
Arinbjörn.
Að fæðast um síðutu aldamót í
íslenskri sveit í fögrum dal norð-
ur í landi þar sem torfbærinn
stendur einsmall tilbúinn að
verja menn og dýr fyrir brigðul-
um veðrum Islands eins vel og
efni stóðu til. Að fæðast í samfé-
Iagi sem ekki hafði náð að þróa
sig og sína í samfélagi þjóðanna
um margar aldir þannig að allt
var eins og áður og aðeins var
hægt að tala um „fornaldar
frægð“. Hér mátti aldrei láta
deigan síga, aldrei láta verk úr
hendi falla, hver stund dýrmæt
svo hægt væri að nýta allt það
sem náttúran gaf í trogið. En
lögmál náttúrunnar var, er og
verður að gefa og taka. Það finn-
ur sá sem allt á undir náttúr-
unni. Fædd í fögrum dal norður
í landi um síðustu aldamót.
Þetta var veganesti og raunveru-
leiki Jónínu í upphafi þessarar
aldar og hana óraði ekki fyrir, né
aðra í fagra dalnum norður í
landi á eyjunni gleymdu, hvílíkar
breytingar þessi aldamótakyn-
slóð ætti eftir að upplifa. Já, og
allt mannkyn jarðar. En nú skyl-
di horft á nýja og betri tíma.
Tíma vísinda, tækni, samgangna,
sjálfstæðis, styrjalda, geimferða,
atóma og öreinda. Allt átti að
vera hægt, ekkert ómögulegt og
ekkert óyfirstíganlegt. Margra
alda stöðnun lögð af. Kannski
var þúfnabaninn sem kom í dal-
inn fagra norður í Iandi á öðrum
áratug aldarinnar upphafið að
nýjum tímum. Nú var hægt að
slétta úr grasgefnum þúfum svo
ljárinn færi Iéttar fyrir í sterkum
höndum bóndans og gúmmístíg-
vélið sem gerði börnum og full-
orðnum, öllum, fært að labba
um grundir án þess að vera vot-
ur í lappir. Þessir tveir hlutir
komu upp í huga Jónínu þegar
ég spurði hana hveijar hefðu
verið mestu tækniframfarirnar í
dalnum fagra norður í Iandi í
upphafi þessarar aldar. Þetta
kristallar lífssýn Jónínu sem varð
næstum jafngömul þessari öld
og sagði manni hve vel hún var
tengd við sinn uppruna. Menn
og dýr urðu að hafa nóg svo öll-
um Iiði vel og ekki bara þeir sem
næstir voru heldur allir í dalnum
fagra, á öllu Islandi og öllum
heiminum. Hvergi mátti hún
aumt sjá. Alltaf að gefa það besta
af hjarta sínu og því veraldlega
sem til var.
Islensk bóndakona, alþýðu-
kona sem tók öllu veraldarvafstri
með jöfnum höndum og horfði á
umhverfið sitt og allan heiminn
breytast svo mikið að engin kyn-
slóð hefur orðið vitni að öðrum
eins umskiptum. Hún var per-
sónugervingur tuttugustu aldar.
Allt það sem maður hafði lesið í
sögubókum um upphaf þessarar
aldar og meira til hafði hún upp-
lifað og tekið þátt í á einn eða
annan hátt. Og þrátt fyrir þessa
miklu reynslu og dugnað við að
halda lífshjólinu gangandi, koma
börnum og búi á Iegg og hlúa að
afkomendum og skömmu síðar
missa allt sitt bú í bruna. Ævi-
starfið farið. Þrátt fyrir langa ævi
var ekki verið að velta sér upp úr
spurningunni, „Var þetta til ein-
hvers?“ heldur aðeins reynt að
miðla sinni reynslu til þeirra sem
erfa eiga landið. I hvert skipti
sem ég talaði við Jónínu fannst
mér ég eftirá standa betur í báð-
ar lappir, horfa á tilveruna öðr-
um augum, meta betur það sem
til er og sættast við sjálfan mig
og aðra. Ekki af því að hún væri
með einhverjar predikanir um
hvernig maður ætti að haga líf-
inu, þó síður væri. Heldur þessi
ró og höfgi sem fylgdi henni
alltaf. Þessi mikla hlustun á ná-
ungann. Lífsspekin lá í loftinu,
Iá í hennar fasi og í handbragði
hennar. Já og vel á minnst, aldrei
mátti verk úr hendi falla. Sífellt
verið að prjóna og gefa afkom-
endum. Engum mátti vera kalt.
En núna á fardögum hefur Jón-
ína lagt sitt fallega og góða fas til
hvílu. Reynsla hennar og lífssýn
liggur eftir í huga okkar hinna
svo við getum lært. Þetta voru
mér ómetanleg kynni, ungum
manninum sem stend frammi
fyrir nýrri öld, nýjum tímum. Af
öllu hjarta - hvíl þú í friði.
Hinrik Ólafsson.
Minn hugurspannar
himingeiminn.
Mitt hjarta telur
stjömusveiminn,
sem dylur sig í heiðlofts hyl.
Svo hátt og vítt mérfinnst
ég skynja,
Guðs veröldl Andans hlekkir
hrynja
sem hjóm við þetta geislaspil.
Mér finnst ég elska allan
heiminn
og enginn dauði vera til.
(Einar Benediktsson.)
Það er dýrmætt fyrir börn og
ungt fólk að alast upp með
manneskju sem átti jafn langa og
viðburðaríka ævi og hún amma
okkar. Amma sem var fædd um
síðustu aldamót og upplifði svo
margar og stórfenglegar breyt-
ingar á Islandi. Þessarar miklu
reynslu sem hún gekk í gegnum
fengum við að njóta á svo marg-
an hátt ásamt öllum þeim vinum
okkar sem voru tíðir gestir
heima. Henni fannst gott að
hafa okkur unga fóklið í kringum
sig til að ræða málin og vita
hvort einhvern vantaði ekki
sokka. Og sokkar eða vettlingar
voru vel þegnir því þeir voru víð-
frægir á meðal vina okkar og á
fleiri stöðum. Oft gerðist það
þegar vinir okkar komu í heim-
sókn og við ekki heima að þeir
lentu í hrókasamræðum við
ömmu uppi í herbergi í langan
tíma og síðar þegar við komum
heim og búin að vera í drykk-
langa stund komu þeir út úr her-
berginu vel birgir af ullarvörum
og mettir af kökum. Út frá þess-
um og mörgum öðrum uppá-
komum sem vinir okkar áttu í
tengslum við ömmu fundum við
hve dýrmætt það var að alast upp
með henni. Ekki var það bara
fólk sem hændist að ömmu held-
ur var það Iíka heimilishundur-
inn, Snoddas, sem var hennar
besti vinur. Þau áttu það til með-
an amma prjónaði eða las að
deila með sér því konfekti sem
amma átti og meðan hún hafði
heilsu til þá fóru þau reglulega í
göngutúr saman. Mestan hluta
ævi sinnar var amma bóndakona
og tengsl við dýrin og náttúruna
voru henni hjartfólgin og þetta
skynjaði Snoddas.
I þau tuttugu ár sem Jónína
amma var hjá okkur var aðdáun-
arvert að sjá hve samrýmdar
mamma og hún voru. Móðir
okkar mátti varla sjá af henni.
Alltaf voru þær að leggja á ráðin
með heimsóknir eða annað
þvíumlíkt allan þann tíma sem
hún var hjá okkur. Og ekki má
nú gleyma því þegar verið var að
spekúlera í hvaða fötum ætti nú
að vera. Báðar eru þær
smekkkonur á föt og manni er
sagt að amma hafi alla sína tíð
verið eftirtektarverð til fara og
allt hennar heimili. Hún vildi
hafa alla hluti á hreinu í orðsins
fyllstu merkingu. Ef hún var
beðin um greiða stóð ekki á
henni. Og þannig vildi hún líka
að komið væri fram við sig. Sjálf-
sagt hefur amma ekki beðið
marga um hjálparhönd um æv-
ina þar sem hún var nægjusöm á
alla hluti í lífinu. Þar kemur til
það umhverfj sem hún kemur úr.
Oft þurfti að fara sparlega með
hluti sem okkur finnast sjálf-
sagðir í dag. Það var Iíka svo göf-
ugt að sjá hve matmálstímar í
hennar augum voru heilagir.
Alltaf var borðað á réttum tíma.
Þegar við systkinin Iítum til baka
þá munum við eftir öllum gesta-
ganginum á heimili okkar meðan
amma bjó hjá okkur. Því var oft
gert góðlátlegt grín þegar sfman-
um var svarað og sagt, „Hótel
59“. Mamma var alltaf með heitt
á könnunni og troðfulla skápa af
kökum. Við höfum alltaf dáðst
að foreldrum okkar, hversu góð
þau voru við ömmu. Hún hafði
óskaplega gaman af spilum og
komst stundum ekkert annað að.
Oft og tfðum gat hún setið við
spilin fram á rauða nótt þótt ald-
ur væri orðinn hár. Eftirlætið
hennar var að hitta vinkonur sín-
ar Helgu og Halldóru og spila við
þær í Bústaðakirkju eða heima
hjá einhverri þeirra. Þá varð
amma að vera fín og tók það tíma
að velja föt og skartgripi fyrir
þessi tækifæri. Amma var ein af
okkur og er enn þótt hún sé far-
in. En nú er hún amma gengin á
vit feðra sinna eftir langa ævi.
Elsku amma, þessar stundir
sem við fengum að deila með þér
voru ómetanlegar og þín verður
minnst af hlýju og væntumþykju.
Megi guð geyma þig!
Drífa og Geir.