Dagur - 27.06.1998, Qupperneq 7
LAJJtfíAROAfiVH ,2 7. ,l,Ú Kf ,,X 9JJI - Vg,T
t^tr____________________
^Í^lLÍClÍ'Us. u -i iL v21L 21
NAR
Ingium Baldursddttir
Ingunn Baldursdóttir fæddist
á Akureyri 27. október 1945.
Hún lést af slysförum 15. júní
síðastliðinn. Foreldar hennar
voru Baldur Guðlaugsson,
endurskoðandi, f. 30.8. 1912,
d. 24.6. 1952, og Anna Mar-
grét Björnsdóttir, f. 23.7.
1916, d. 31.3. 1990. Systkini
hennar eru Björn, Guðlaugur,
Anna Pálína, búsett á Akur-
eyri, og Agnes búsett í
Hollandi.
Eiginmaður Ingunnar er
Gunnlaugur Matthías Jónsson,
ketil- og plötusmiður, f. 12.11.
1940. Synir þeirra eru: 1) Jón
Birgir, skrúðgarðatæknir, f.
6.7. 1964, búsettur í Dan-
mörku, maki hans er Kolbrún
Erna Magnúsdóttir, f. 12.5.
1968. Dætur þeirra eru Karen
Lind og Hildur Björk. 2) Bald-
ur, skrúðgarðatæknir, f. 5.5.
1969, búsettur á Akureyri,
maki hans er Elva Dröfn Sig-
urðardóttir, f. 10.3. 1972.
Synir þeirra eru Halldór Krist-
ján og Kristófer Birkir. 3) Sæv-
ar, nemi, f. 19.11. 1979, bú-
settur á Akureyri, unnusta
hans er Kristín Dögg Jónsdótt-
ir, f. 7.9. 1981.
Ingunn lauk sjúkraliðaprófi
árið 1975 og vann eftir það á
Fjórðungssjúkrahúsinu áAkur-
eyri og síðar við hjúkrun aldr-
aðra. Ingunn tók þátt í félags-
störum, s.s. Félagi aðstand-
enda alzheimerssjúkra á Akur-
eyri og nágrenni. Einnig starf-
aði hún í Oddfellowreglunni.
Útför Ingunnar fór fram frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn
23. júní.
Oft er það svo að ákveðnir at-
burðir í lífi manns gleymast
aldrei - sama hve mörg æviárin
verða.
Einn slíkur atburður varð þeg-
ar foreldrum mínum fæddist
dóttir f annað sinn á fyrsta vetr-
ardag 1945. Ég man skýrt hve
okkur bræðrunum 8 og 10 ára
fannst hún falleg og örðuvísi en
við hin systkinin - með kolsvart
mikið hár og langar neglur.
Eitthvað hefur eldri systur-
inni, þá 4 ára glókolli, fundist at-
hyglin á sér minnka því hún seg-
ir: „Mamma, en finnst þér þá
ekkert vænt um mig lengur?"
Það var þó sannarlega ekki svo
og áttu foreldrar okkar nóg ást-
ríki fyrir okkur öll og er árin liðu
kom ný litla systir þannig að Ing-
unn átti bæði stóru systur, sem
allt vissi betur og litlu systur sem
hægt var að lúskra á. Eg tel að
við systkinin höfum tengst óven-
ju sterkum vináttuböndum, sem
ekki hafa minnkað með árunum.
Það er þ\a eins og að hafa misst
hluta af sjálfum sér þegar Guð
hefur nú, svo skyndilega, kallað
Ingunni til sín.
I bernsku okkar voru börn oft
send f sveit og var Ingunn engin
undantekning frá því. Var hún á
sumrin bæði hjá afa og ömmu í
Olafsfirði og í sveit hjá góðu
fólki í Kelduhverfi. Þar fékk hún
gott veganesti á Iífsbraut sinni.
Ingunn byrjaði snemma að vinna
og þá strax að umönnun sjúkra,
sem síðar varð svo snar þáttur í
lífsstarfi hennar sem sjúkraliði.
Ingunn vann alllengi í blóma-
verslun og hafði mikið yndi af
skreytingagerð, en við hana naut
hugmyndaríki og listfengi henn-
ar sín vel. Er ekki vafi á að þetta
tímaskeið setti mark á lífsviðhorf
hennar og bera heimili og garður
þeirra hjóna glöggt vitni þar um.
Ingunn naut við þetta dyggrar
hjálpar Matta og voru þau hjón-
in samhent og glöð í garðinum
sínum.
Það var því ekki undarlegt að
synirnir fengju „græna putta“ og
man ég glöggt hve óvenjulegt og
gaman var að sjá litla stráka
rækta pottablóm með mömmu
og pabba, en tveir þeir eldri eru
nú skrúðgarðatæknar.
Ekki verður systur minnar
minnst án þess að getið verði um
heimilishald hennar að öðru
leyti, svo sem eldamennsku og
bakstur, en við þau störf var hún
glöð og hamningjusöm og hafði
ánægju af að veita vinum og
gestum, sem ávallt voru margir í
ltringum hana. Glöðust var hún
samt þegar börnin og barnabörn-
in fóru södd frá hennar borði.
Ef til vill lýsir það dugnaði
hennar í bakstrinum best þegar
hún tók að sér að baka 3 tertur
fyrir erfidrykkju móður okkar -
en bakaði 13.
Nú þegar Ingunn er komin til
nýrra heimkynna bið ég Guð að
blessa hana og trúi því að hún
hvísli að okkur syrgjendum þess-
um orðum óþekkts höfundar:
„Þó ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum, hugsið eldd um
dauðann með harmi og ótta, ég
er svo nærri að hvert eitt ykkar
tár snertir mig og kvelur, þótt
látinn mig haldið. En þegar þið
hlægið og syngið með glöðum
hug, lyftist sál mín upp í mót til
Ijóssins: Verið glöð og þakklát
fyrir allt sem lífið gefur og ég
þótt látinn sé tek þátt í gleði ykk-
ar yfir lífinu.“
Fyrir hönd okkar systkinanna
vil ég þakka Ingunni fyrir allt,
allt, sem hún gaf okkur og bið
Drottin að milda með kærleik
sínum sorg Gunnlaugs Matthí-
asar og barna þeirra ásamt fjöl-
skyldum.
Sá sem eftir lifir
deyr þeitn sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir ern himnamir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Björn Baldursson.
„Gættu vináttunnar. Ekkert er
fegurra á jörðinni, engin huggun
betri í jarðnesku lífi, vini geturðu
ljáð hug þinn allan, og veitt hon-
um fyllsta trúnað.“
Þvílík harmafrétt er mér barst
15. júní að Ingunn mfn kæra
vinkona væri öll. Eg hef dvalist í
Reykjavík sl. 10 mánuði en var á
leið heim til Akureyrar næsta
dag. Við Ingunn kynntumst fyrir
um 30 árum en mann hennar
þekkti ég fyrir þar sem váð vorum
skólasystkin í 10 ár. Ingunn var
opin, glaðleg og sérlega tryggur
vinur. Hvergi hef ég komið þar
sem myndarbragur var þvílíkur.
Fyrstu árin bjuggum við í inn-
bænum, með okkar fjölskyldum
og mynduðust fljótt sterk tengsl
milli barna og maka. Hafa þau
tengsl aldrei rofnað. Seinna
byggðum við okkur sitthvort
húsið og fengum þá lóðir í sömu
götu með fimm húsa millibili.
Við drifum okkur báðar í sjúkra-
liðanám vdð FSA og tókum þar
til starfa að námi Ioknu. Einnig
eignuðumst við okkar yngstu
börn og átti ég dóttur mína á af-
mælisdaginn hennar þann 27.
október; kallaði hún mína oft
uppbótardóttur sína, þar sem
hennar börn voru drengir. Eg
ólst upp með vangefna systur svo
oft fannst mér mínar nánustu
vinkonur vera mínar systur og
var Ingunn svo sannarlega ein af
þeim. Ollum viðburðum í þrjá
áratugi deildum váð og var öll
samvera og samvánna sérlega
góð, oft eins og við vægjum hvor
aðra upp. Það voru skírnir, ferm-
ingar, afmæli, jarðarfarir, ferða-
lög, jól og fleira og fleira. Við
tókum slátur, fórum saman í
berjamó, sultuðum, söftuðum,
að ótöldu laufabrauðinu, sem
var árlegur viðburður með Ijöl-
skyldum beggja, oft um 20
manns og mikil stemmning. Það
væri of langt mál að telja upp allt
sem við gerðum saman. Ingunn
var mjög vinamörg enda með af-
brigðum gott að sækja hana
heim. Hún var dáð af öllum sem
hana þekktu fyrir sína miklu
hlýju og innileik. Ég á eftir að
sakna hennar mikið.
Oft, oft hef ég heyrt sjúldinga
tala um þessa góðu stúlku, sem
var mér svo góð er mér leið sem
verst og samstarfsfólk bar henni
einnig mjög gott orð, ljúf, lipur
og hörkudugleg í starfi. Blóm og
allur gróður óx og dafnaði í ná-
vist hennar og snillingur var hún
í öllum skreytingum, ekki
ástæðulaust að hennar tveir
elstu synir eru hámenntaðir inn-
an garðyrkjunnar, aldir upp við
að sá, planta og hlúa að gróðri,
úti og inni. Síðast hitti ég hana
30. desember er ég dvaldi hér
um jólin og stakk hún þá tveim
útsaumuðum jólahjörtum í Iófa
minn og sagði: Þú átt þetta
næstu jól. Eg vil að endingu
votta hennar nánustu mína inni-
legustu samúð, Matta, Jóni
Birgi, Baldri og Sævari, tengda-
dætrum hennar, barnabörnum
og systkinum. Mikill er missir
þeirra allra. í Biblíunni stendur:
Öllu er afmörkuð stund og sér-
hver hlutur undir himninum
hefur sinn tíma. Að fæðast hefur
sinn tíma, að deyja hefur sinn
tíma, að gráta hefur sinn tíma,
að hlæja hefur sinn tíma, að
kveina hefur sinn tíma, að dansa
hefur sinn tíma, að kasta steini
hefur sinn tíma, að tína saman
steina hefur sinn tíma, að elska
héfur sinn tíma, að hata hefur
sinn tíma, að faðmast hefur sinn
tíma, að halda sér frá faðmlög-
um hefur sinn tíma. Allt sem
Guð gjörir stendur að eilífu, við
það er engu að bæta, og af því
verður ekkert tekið.
Kæra vinkona, við áttum ein-
nig okkar tíma og hafðu þökk
fyrir allt og allt. Far þú í friði til
hins eilífa Ijóss og friður Guðs
varðveiti þig að eilífu.
Þín vinkona,
Helen.
Það dimmdi yfir þann 15. júní sl.
þegar okkur var tilkynnt um
hörmulegt fráfall hennar Ing-
unnar okkar. Á slíkri sorgar-
stundu er erfitt að átta sig á til-
gangi almættisins, það eina sem
veitir huggun er að einhver hann
sé. Með nokkrum orðum langar
mig og fjölskyldu mína að minn-
ast hennar Ingunnar okkar sem
v'ar svo stór hluti af lífi okkar, og
það fyrsta sem kemur upp í hug-
ann eru orð Einars Benedikts-
sonar, „eitt bros getur dimmu í
dagsljós breitt,“ orð sem lýsa
henni svo vel þessari brosmildu,
kærleiksríku konu sem alltaf var
til staðar fyrir okkur.
Það var ekki ósjaldan á upp-
vaxtarárunum að við systkinin
fórum í innbæinn að leika við
frændur okkar og settumst svo
inn í eldhús hjá Ingunni og feng-
um okkur eitthv'að gott að borða.
Hún var húsmóðir af guðs náð
og töfraði fram kræsingar að því
er okkur virtist án nokkurrar fyr-
irhafnar. Alltaf bauð hún okkur
jafn velkomin, faðmaði okkur að
sér og smellti kossi á kinn.
Árin liðu og alltaf sýndi hún
sama óþijótandi áhugann á þvd
sem við systkinin tókum okkur
fyrir hendur og hvatti okkur til
dáða. Eftir að ég fór að starfa
sem læknir var ég svo heppin að
fá að starfa henni við hlið um
tíma og fylgjast með hversu vel
hún sinnti sínu starfi af hlýju,
kærleika og alúð, sjá hvernig Iíf
og gleði færðist yfir dapurt and-
Iit þegar hún náígaðist. Hún var
smávaxin kona með stórt kær-
leiksríkt hjarta, og fengu allir
sem á hennar lífsleið urðu þar
sinn sess.
Alltaf var hún til staðar, bæði í
gleði og sorg og veitti okkur
þann styrk og uppörvun sem við
þurfum sv'o oft á að halda, ást og
hlýju. Hún var listræn kona og
unni öllu sem fagurt var og not-
aði þennan hæfiíeika til að búa
til fagra hluti sem hún fegraði
heimili sitt með, en flesta gaf
hún frá sér til að veita öðrum
gleði. Ekki grunaði mig að það
væri okkar hinsti fundur í þess-
um jarðneska heimi þegar ég
heimsótti hana þann 7. júní sl.
Þá eins og svo oft gaf hún mér
fallega gjöf til að sýna hversu
vænt henni þótti um mig og litla
strákinn minn, skjal sem hún
hafði skrautskrifað, vísu sem
sem sagði okkur svo margt:
Sem gull í öskjum gódir
eru vinir
þeir geymast þó ei stöðugt
lítum þá
og ávallt verða öðruvisi en
hinir
sem aðeins muna dveljum
við þeim hjá.
Fráfall hennar er fjölskyldunni
mikil sorg og stórt skarð situr
eftir sem ekki verður fyllt. Elsku
Ingunn við þökkum Guði fyrir
þann tíma sem við fengum að
hafa þig hjá okkur og allar þær
hlýju og góðu minningar sem við
eigum, og eiga eftir að styrkja
okkur í sorginni. Við sem þekkt-
um þig svo vel vitum og finnum,
að þrátt fyrir að þú sért horfin
sjónum oklcar og farin að sinna
öðrum verkefnum, að þú lítur
enn til með okkur og minning
þín mun lifa í hjörtum okkar um
ókomna tíð.
Elsku Matti, Nonni, Balli,
Sævar og ykkar fjölskyldur, miss-
ir ykkar er stór og fátt til hugg-
unar hægt að segja. Mamma
ykkar var vön að leita styrks í
trúnni og saman biðjum góðan
Guð að milda sorg okkar allra.
Fyrir hönd fjölskyldunnar í Álfa-
byggð 18 og sonar míns Huga, ósk-
um við þér ffiðar í landi ljóssins.
Þín Solla Dóra.
Okkur setti hljóðar, samstarfs-
konurnar á Dv'alarheimilinu
Hlfð, þegar við mættum til vinnu
mánudagskvöldið 15. júní síðast-
liðinn og okkur var tilkynnt að
samstarfskona okkar, hún Ing-
unn, hefði látist af slysförum þá
fyrr um daginn. Það sóttu hratt
að okkur ljóslifandi minningarn-
ar. Ingunn alltaf hress og kát,
allsstaðar fylgdu henni glaðværð
og hlýja bæði gagnvart vistfólki
og samstarfsfólki. AUtaf var hún
boðin og búin að rétta hjálpar-
hönd enda kom það sér vel í því
starfi sem hún vann á Dvalar-
heimilinu Hlíð sem sjúkraliði og
„flakkari" á næturvöktum, en
starfið felur í sér aðstoð á öllum
deildum heimilisins. Áhugamál
Ingunnar voru mörg og fengu
margir að njóta þeirra. Allt fönd-
ur lék í höndum hennar, t.d.
þegar hún framleiddi túlípana í
tugatali, kenndi þeim samstarfs-
konum sem gátu lært hand-
brögðin, en hinar fengu nokkra í
vasa og deildirnar líka. En fyrst
og síðast var hugur hennar hjá
fjölskyldunni, manni, börnum og
ekki síst barnabörnum, sem
henni var svo tíðrætt um og gáfu
henni svo mikla gleði. Er því
hugur okkar hjá þeim öllum á
þessum erfiða tíma og viljum við
senda Matta, Jóni Birgi, Baldri,
Sævari, fjölskyldum þeirra og
öðrum ástvinum Ingunnar okkar
dýpstu samúðarkveðjur með von
um að tíminn græði öll sár. Eftir
stendur minningin um mæta
konu.
Nú legg ég augun aftur,
Ó, Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sv.E.)
Kveðja frá samstarfskonum á
næturvöktum Dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri.
ISLENDINGAÞÆTTIR
íslendingaþættir birtast
í Degi alla laugardaga.
Skilafrestur vegna minningagreina er til
miðvikudagskvölds. Reynt er að birta allar
greinar eins fljótt sem verða má, en
ákveðnum birtingardögum er ekki lofað.