Dagur - 10.07.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 10.07.1998, Blaðsíða 1
81. og 82. árgangur - 127. tölublað Verð í lausasölu 150 kr. Föstudagur lO.júlí 1998 Fyrstu ákærur í málverkamálinu Eigandi Gallerís Borg- ar kærður eftir ítar- lega rannsókn. Fðlsuð málverk enn á ferð- inni og falboðin gall eríiun. Gefín hefur verið út ákæra hjá embætti Ríkislögreglustjóra vegna meintra málverkafalsana á hendur Pétri Þór Gunnarssyni, eiganda Gallerís Borgar. Um er að ræða þrjú málverk sem fyrir- tækið seldi og lögreglan telur að séu fölsuð. Upprunalega hafi þau verið eftir danskan málara, en nafn Jóns Stefánssonar mál- ara falsað á verkin. Miklu fleiri verk hafa verið í rannsókn sér- fræðinga, en henni er ekki lokið. RLR og síðan Ríkislögreglan hafa unnið að rannsókn á upp- runa 25 málverka, sem grunur leikur á að séu fölsuð og seld sem verk gamalla íslenskra meistara: Jóhannesar S. Kjarval, Jóns Stef- ánssonar, Þórarins B. Þorláksson- ar, Svavar Guðnasonar og Muggs. Af þessum myndum eru ellefu í eigu Listasafns Reykjavíkur. Hundruð miUjóna? Samkvæmt heimildum Dags í gær má reikna með að þetta sé aðeins byrjunin, fleiri ákærur eigi eftir að líta dagsins ljós síð- ar, enda rannsókninni ekki lokið. I þessu máli eru í húfí miklir fjármunir og tala menn um tugi eða hundruð milljóna, sem gætu verið í fölsuðum verkum vítt um landið. Á dögunum þegar meiðyrða- mál Galler- ís Borgar gegn Páli Skúlasyni lögmanni var tekið fyrir áætlaði Olafur Ingi Jónsson forvörður að allt að 300 fölsuð málverk gætu hafa komist í umferð. Hann telur að eftir að málið komst upp hafi framleiðsla á nýjum fölsun- um stöðvast. Gamlar falsanir eru þó enn falboðnar. Tryggvi Páll Friðriks- son í Galleríi Fold sagði blaðinu í gær að fölsuð verk væru greini- lega enn í umferð. Örfáir dagar væru síðan maður kom með verk sem hann sagði eftir einn „gömlu meistaranna". Strax við skoðun hefði komið í ljós að svo gat ekki verið. Listfræðingur hefði staðfest að þarna væri á ferð afar illa gerð stæling á Jóni Stefánssyni. Tcnging við Danmörku Yfirgripsmikil rannsókn hefur verið í gangi í Danmörku vegna málverkafaisana og talið að teng- ing sé við þau mál sem hér eru í athugun. Dagur hefur heimildir fyrir því að falsanir sem í umferð eru hér á landi hafi að stórum hluta verið unnar í Danmörku og eins líklegt er að hér verði gefin út ákæra á hendur aðilum ytra. Málverkin sem nú hefur verið kært útaf koma frá Danmörku, keypt á uppboði þar að því er talið er, höfundarnafn afmáð, og þau merkt sem verk Jóns Stef- ánssonar áður en þau voru seld hér á landi. Ekki náðist í Pétur Þór Gunn- arsson í Galleríi Borg. Kæran verður tekin fyrir dóm í næstu viku. - fþg/jbp Pétur Þór Gunnarsson eigandi Gallerís Borgar hefur verið ákærður fyrir að selja þrjú fölsuð málverk. Landssímiim mismunar keppmautuni Samkeppnisráð hefur úrskurðað að Landssíminn mismuni keppi- nautum við dreifingu útvarps- merkja þar sem útsendingum RUV er dreift án endurgjalds á breiðbandinu en ekki útsending- um Fjölmiðlunar. Stofnunin telur að endurgjalds- laus dreifing á útvarpsmerki RUV hafi skaðleg áhrif á sam- keppnisstöðu Fjölmiðlunar gangvart RUV. Svo kunni að fara ef þróunin verður sem horfir að marga notendur skorti þann búnað sem til þarf. Því skuli Landssíminn veita sjónvarpsfyr- irtækjum aðgang að dreifikerfi sínu á sambærilegum kjörum svo lengi sem sömu forsendur eigi við um dreifínguna. Þá mælir ráðið einnig með fjárhagslegum og stjórnunarlegum aðskilnaði Breiðbandsins frá öðrum rekstri fyrirtækisins. Sól og sumar og sundlaugarbakki... getur það verið betra? mynd: jak Steingrímur J. Sigfússon. „Ég var kyrr!“ „Eg lít því svo á, og meina það i alvöru, að það er ekki ég sem er að fara neitt, heldur er verið að leggja af stað með Alþýðubanda- lagið upp í leiðangur inn á miðj- una,“ segir Steingrímur J. Sig- fússon í samtali við blaðamann Dags. Um orðróm þess efnis að óánægja hans séu leifar af for- mannsslag hans og Margrétar Frímannsdóttur segir Steingrím- ur: „... það er ekki á dagskrá hjá mér að færa orðasamskiptin við félaga mína og vini í Alþýðu- bandalaginu niður á þetta plan.“ 70% draga uppsögn iil baka Kostnaður Akureyrarbæjar vegna samkomulagsins við kennara er talinn vera á bilinu 15 og 20 milljónir króna. Nú- verandi meirihluti samdi síðan við samninganefnd kennara um Iaunauppbót sem fólst í 7 til 12 óunnum yfirvinnustundum, misjafnt eftir starfstíma viðkom- andi. Þessir tímar bæta laun kennara frá 70 þúsund kr. til 150 þúsund kr. á ári, en ef allir kennarar gangast inn á þessa launauppbót er kostnaður bæj- arsjóðs Akureyrar á bilinu 15 til 20 milljónir króna. Það er á valdi kennaranna sjálfra hvort þeir afturkalla upp- sagnir sínar og gangast inn á áð- urnefnt samkomulag. Reiknað var með að allflestir mundu gera það en í gær höfðu um 70% þeirra haft samband og dregið uppsögnina tii baka. Líklegt er talið að allnokkrir kennarar við Brekkuskóla bíði með sína ákvörðun þar til ljóst er hver verður skólastjóri þar, en skóla- nefnd fjallaði um umsóknir í gær, sem voru frá Birni Þórleifs- syni og Sigmari Ólafssyni. Skólanefnd samþykkti í gær að mæla með ráðningu Björn Þór- leifssonar — GG Með Baldri yfir Breiðafjörð Ferðir alla daga: Alltaf viðkoma í Flatey Frá Stykkishólmi kl. 09:00 og 16:00 Frá Brjánslæk kl. 12:30 og 19:30 Flateyjarpakkinn á góða verðinu. Dagstund í Flatey með útsýnissiglingu Ferjan Baldur 438 1120 og 456 2020 BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • 8REFASÍMI 562 1024 Alfa Laval airVDRI -sterkur í verki

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.