Dagur - 25.08.1998, Page 4
Æ-ÞRív'jurrAGVá 2sr xetrsr'iyw'
FRÉTTIR
Hafa miklar efasemdir iim
gagiiseini snjóflóðagarða
Arkitektafélagið hef-
ur efasemdir uin gagn-
semi nýrra vamar-
garða vegna snjóflóða
og vill að annarra
leiða verði leitað, t.d.
hvort hetra sé að
flytja hyggð.
„Þetta eru framkvæmdir upp á
tugi milljóna og okkur finnst
spurning hvort þetta sé endilega
rétta leiðin," sagði Guðmundur
Gunnarsson, formaður Arki-
tektafélags Islands.
Stjórn félagsins boðar til ráð-
stefnu 5. október undir nafninu
„Öruggari bæir“, þar sem fjallað
verður um þær umfangsmiklu
snjóflóðavarnir sem nú er unnið
að. Félagið hefur ákveðnar efa-
semdir um að varnarveggir séu
rétta leiðin og vill að aðrar leiðir
verði athugaðar.
„Okkur finnst að skoða beri
þann möguleika t.d. að flytja
byggð, þétta hana eða fylla út í
sjó ef þess þarf. Þetta eru stór
mannvirki fyrir ofan litla bæi og
breyta verulega ásjónu umhverf-
isins. Efnið í þeim er mjög þjapp-
að og því óvíst um hvernig tekst
að græða veggina. Þetta hlýtur
Iíka að vera stöðug áminning fyr-
ir fólkið um hættuna og því
óþægilegt,“ sagði hann.
Guðmundur sagði að síðast en
ekki síst væri það spurning hvort
þessir feiknaháu garðar séu í
raun öruggir. Þeir standi í brött-
um hlíðum og athuga beri hvort
þeir geti ekki valdið aurskriðum á
vetrum. Menn hafi séð hvernig
náttúran geti farið með mann-
virki, henni hafi ekki munað um
það að vinda upp á fleiri tonna
brúarstólpa í árhlaupi.
Umtæða er nauðsynleg
Guðmundur sagði líka að það
væri athyglisvert að þar sem nú
þegar væri búið að byggja garð,
væri líka búið að flytja byggðina.
Nú væri þar fyrir svæði sem eng-
inn vill byggja á.
„Við viljum leggja á það
áherslu að umræða um þessi mál
er nauðsynleg, við verðum fá að
heyra í fólkinu sem býr á þessum
stöðum og athuga hvort þetta sé
eina úrræðið. Við höfum heyrt
það gagnrýna fyrirkomulagið og
það er réttlátt að það fái að tjá sig
opinberlega um þetta. Við ótt-
umst líka að þetta gefi kannski
falskt öryggi, kannski mun vegg-
urinn eitthvað hreyfast," sagði
Guðmundur. -SEG
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf.,
Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG
bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Ertu sammála fagblöðunum?
Suzuki Crand Vitara hefur þá sjaldgæfu eiginleika, að geta raun-
verulega sameinað í einum bíl hinn hefðbundna lipra fjölskyldubíl
í bœjarumferðinni og jeppann án þess að sprengja kaupgetuna.
Ökuþór
... fær „Óskarsverðlaun":
Fyrir þœgindi og ánœgjulegan akstur ásamt góðum utanvega-
eiginleikum og lágum rekstrarkostnaði fœr Suzuki Grand Vitara
titilinn „Bestu 4X4 kaupin undir 200.000 SEK"
Motor (Svíþjóð)
Með Crand Vitara hefur Suzuki komiðfram með nýja kynslóð
jeppa sem er greinilega „fullorðnari" en sú á undan.
Auto Zeitung (Þýskaland)
2.5 V6 vélin... er áreynslulaus og öflug lágum snúning og hún
feykir Grand áfram á hraða sem kemur á óvart.
Car (Bretland)
Okkurfinnst hann vera réttur kosturfyrir kaupendur sem hugsa
um verð, útlit, og vilja njóta lífsins.
Truckworld online (Bandaríkin)
»ró 2.179.000 kr.