Dagur - 23.09.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 23.09.1998, Blaðsíða 2
18 - MIDVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 rDwptr LÍFIÐ í LANDINU ■ SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Hús Skinnaiðnaðarins á Akureyri. Hrepparígur? Erfíð útlutningsstaða sútunarfyrirtækja líkt og Loðskinns á Sauðárkróki og Skinnaiðnaðar á Akureyri hefur verið í umræðunni að undan- förnu. Margir hafa bent á hvort sameining þess- ara tveggja fyrirtækja væri ekki hið bcsta mál. Margt væri Iíkt með verkun og vinnslu, sömu markaðir og landfræðileg nálægð. Skagfirðingar höfðu frumkvæði að sameiningarumræðu í sumar en að sögn þeirra tóku'Akureyringar fá- lega í það. Maður sem þekkir til á Sauðárkróki segir að vonbrigði hafí orðið með viðbrögð Skinnaiðnaðar. Margt bendi til að þar á bæ hafí menn einfaldlega beðið eftir að Loðskinn færi á hausinn og þar með gæfist ódýrt tækifæri til að sölsa undir sig þrotabúið. Þessu neita forráða- menn Skinnaiðnaðar að sjálfsögðu, en hitt gæti verið staðreynd, nú sem oft áður að svonefndur hrepparígur spili hér inn í. GIILLKORN „Ferðin til Reykjavíkur var skemmtileg, allt var í góðu lagi þangað til ég kom á þetta skítahótel," Warren Ellis, teiknimyndagúrú, í viðtali við Morgunblaðið, en hann var ósáttur við viðtökurnar á Hótel Sögu. Bjóddu betur Það er tímanna tákn að Mammonsorrusta hafi verið háð að undanförnu um spurningakeppni framhaldsskólanna. Sjónvarpið hafði betur eins og kunnugt er, en þrælar Islands, skyldus- áskrifendur, borga brúsann. Einhverju sinni hefði verið hægt að ímynda sér að framhalds- skólanemar Iétu sér nægja að keppnin væri vitsmunaleg áskorun, sem fengur væri að fá að taka þátt í en nú eru breyttir tímar eins og of- anritaður varð vitni að á kaffíhúsi nýverið. Þar voru framhaldsskólanemar að Ijárfesta í verð- bréfum með aðstoð GSM-síma og hefði manni dottið það í hug á menntaskólaárunum? Fj ölskyldudagurmn Á fjölskyldudegi Dags á Hrísum um helgina. lenti prentsmiðjustjóri blaðsins í því óhappi í markskoti að knötturinn fór af miklu afli í höf- uðið á 6 ára gutta, síðasta varnarmanni. Næstu mínútur fóru í að hugga þann stutta og það var e.t.v. lán í óláni að tvímenningarnir þekktust vel. Þeir eru nefnilega feðgar. 8 ára hnokkí sem varð vitni að hamförunum sagði þegar hann fylgdist með feðgunum: „Mér finnst svona fjölskyldudagar ekki skemmtilegir. Eigum við ekki bara að fara heim?“ Eiun á gráu svæði Flugvélin er að hrapa og farþegar bíða örlaga sinna dauðdæmdir í sætunum. Rís þá kona skyndilega upp úr sæti sínu. Rífur sig úr hverri spjör og hrópar: „Mig Iangar að deyja eins og kona. Er einhver reiðubúinn til að Ieyfa mér í hinsta sinn að upplifa hvað það er að vera kona?“ Farþegar sýna þessu fálæti þangað til einn karlmaður stendur upp og fer úr skyrt- unni. Hendir henni síðan í konuna og segir: „Jæja, þú mátt strauja þessa skyrtu.“ Pétur Mogensen er hinn nýi fram- kvæmdastjóri ís- landssíma og hann lítur framtíð- ina björtum aug- um. Pétur er gift- ur Karitas Karls- dóttur og eiga þau þrjár dætur og tvö barnabörn. Íslandssími, kominn til að vera Fréttin um nýtt símafyrirtæki LtlJlclSTHCTlJl fcl&TlcL hara vegna áhuga míns á fjar- kom svolítið eins og köld vatns- J ö skiptum, heldur einnig vegna gusa yfir Iandsmenn, enda segja JTÚÍJJJJJI SÍJTltlfVTÍJlcCkÍ- Þess hve mikið mál Ijarskipti eru forráðamenn Íslandssíma, hins J J að verða í heiminum. Þetta er nýja fyrirtækis að ekki hafí átt að JJJJJ bcLT SCJJl cLU&lÍÓSt Þ3^ sem vex emna hraðast £ dag gefa upp neinar upplýsingar um * ö ’ og samkvæmt öllum spám verður það strax, en vegna upplýsinga- hykÍT clð SclTJlkCTJUTlÍTl nær þreföldun á verslun á Netinu leka reyndist óframkvæmanlegt r ** á ári, næstu árin. Þetta er ekkert lækki VCTÖ til JlCVt- smáræði og mikil atvinnutældfæri þarna." cndæ Um helgim Tölvan er að verða sjáifsagður ° miðill og gegnir margvíslegu hlut- komfrétt um að nýtt verki a heimilnrn- Pétnr telnr nð J þó svo mikið verði um verslun á símafyrirtæki hefði netinu 1 gegnnm toivur, muni J kaupmaðurinn á horninu eftir verið stofnaðjs- sem áður verða til staðar en hins vegar muni samskipti og kennsla landssími heitir það. verða æ meiri f gegnnm töivur. sr Varðandi framtíðarhorfur okkar hjá Islandssfma," segir Pétur, „er að halda því leyndu. „Eg hef alla tíð haft mikinn áhuga á Ijarskiptum hvers konar og má segja að þau hafí verið mitt aðaláhugamál íyrir utan að eyða tíma með fjölskyldunni,“ segir Pétur sem þessa dagana vinnur myrkranna á milli við ýmis framkvæmdaatriði og hefur lítinn tíma til annars. Pétur Mogensen kom til Is- landssíma frá Landssíma Islands þar sem hann hefur unnið í vöruþróunardeild fyrirtækisins. Þar áður var hann hjá Nýheija þar sem hann var sölustjóri, en hafði gegnt sama starfi hjá Rad- íóstofunni sem sameinaðist Ný- herja. SPJALL ljóst að það er rúm fyrir keppnisaðila sem um leið lækkar verð til neytenda. Við höfum aldrei almenninlega getað skilið það hvers vegna GSM símtöl miklu dýrari en venjuleg vera svona Vöxtur á Netinu „Ég var strax árið 1993 farinn að horfa til 1998 þegar ég vissi að ljarskipti yrðu gerð frjáls," segir Pétur. Þá þegar var ég með það á hreinu að ég myndi starfa á þeim vettvangi í framtíðinni, ekki þurfa að símtöl og teljum enga sérstaka þörf á stórri yfir- byggingu fyrirtækisins sem aðeins veldur því að aílur kostnaður er allt of hár. Sem aftur veldur því að neytandinn verður að greiða meira fyrir þjónustuna." -VS ■ FRÁ DEGI TIL DAGS Það er auðvelt að vera seinnitímamað- ur og finna upp skothvellinn þegar aðr- ir hafa fundið upp púðrið. Halldór Laxness: GRIKKLANDSÁRIÐ Þetta gerðist 23. sept. • 1241 var Snorri Sturluson veginn í Reykholti. • 1857 fórst rússneska herskipið Leffort í óveðri í Finnlandsflóa. 826 manns fór- ust. • 1942 hófust aftökur með gasi í útrým- ingarbúðunum í Auschwitz. • 1943 afhentu 270 kjósendur Alþingi áskorun um að slíta ekki sambandinu við Danmörku meðan stríðið stæði yfir. • 1978 fögnuðu 100.000 Egyptar heim- komu Sadats forseta frá leiðtogafundi í Camp David í Bandaríkjunum. • 1993 var nýi flugvöllurinn á Egilstöð- um tekinn í notkun. Þau fæddust 23. sept. • 1712 fæddist Ferdinand VI. Spánar- konungur. • 1916 fæddist Aldo Moro, ítalskur stjórnmálaleiðtogi sem hryðjuverka- menn rændu og myrtu árið 1978. • 1920 fæddist bandaríski leikarinn Mickey Rooney, • 1926 fæddist John Coltrane, djassari. • 1938 fæddist austurríska Ieikkonan Romy Schneider. • 1943 fæddist söngvarinn Julio Iglesias. • 1949 fæddist rokktónlistarmaðurinn Bruce Springsteen. Vísa dagsins Á þetta ekki við alla tíð? Karhnanns þrú er, vitum vér, vefja svanna ífangi. Kvenmanns þráin einkum er að hann til þess langi. Hattnes Háfstein. Afmælisbam dagsins Afmælisbarn dagsins er blindi tón- snillingurinn Ray Charles. Hann fæddist árið 1930, sem þýðir að hann er orðinn 68 ára gamall. Hann er enn að, syngur og spilar á píanóið „sál“ og „blús“ á sinn ein- stæða hátt. Og fer ekki á milli mála að hann hefur fullkomlega rétt fyrir sér þegar hann segir tón- listina vera sér jafh nauðsynlega og vatn og matur. Hjálp! Fred hafði alla tíð verið trúaður maður og var nú á spítalanum og lá fyrir dauðanum. Fjölskyldan kallaði til prest sem kom að sjúkrabeði Freds en það dró fljótt af hon- um eftir að prestur kom., Fred notað bend- ingar til að útskýra að hann þyrfti blað og blýant, og notaði síðustu kraftana til að skrifa eitthvað og dó svo. Presturinn taldi ekki við hæfí að líta á miðann að svo stöddu og lét hann í vasa sinnn. Þegar út- förin fór fram áttaði hann sig á því að hann var í sama jakkanum og fann mið- ann. Hann sagði við söfnuðinn: „Þið vitið að Fred var einstakur maður og hann skrifaði mér skilaboð rétt áður en hann dó. Þetta eru áreiðanlega einhver huggunar- orð okkur til handa." Og prestur tók upp miðann og las: „Farðu af súrefnisslöng- unni minni prestur." Veffang dagsins Indverjar eru næstljölmennasta þjóð í heimi og eru að sjálfsögðu búnir að dæla heilmiklu efni inn á Netið. Vænan skammt af því efni öllu er að finna hjá www.indi- aworld.com

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.