Dagur - 23.09.1998, Síða 3

Dagur - 23.09.1998, Síða 3
 LÍFIÐ í LANDINU r 9 p v «'í a « m t m v .f. s » v' r. miiu'rrtiw - 81 MIDVIKUDAGVR 23. SF.PTEMBER 1998 - 19 ■menningar LÍFIÐ MIM bókrnn merka ætt Niðjatal Krossaættar í Eyja- firði er komið út og er ein mesta bók þeirrar gerðar sem þrykktar hafa verið. Bókin er í tveim bindum í stóru broti og telur á tólfta hundrað blaðsíður. I henni eru um 22 þúsund nöfn og á fimmta hundrað Ijós- mynda. Höfundur ættfræði- texta er Björn Pétursson. Krossaætt er kennd við bæinn Krossa í Arskógs- hreppi í Eyjafirði og er rak- in frá Þóru Jónsdóttur frá Krossum, sem uppi var á árunum 1780-1862, og Gunnlaugi Þorvaldssyni frá Ingvörum í Svarfaðardal, sem fæddist 1772 og dó 1831. Þóra fæddist á Krossum og voru foreldrar hennar Jón Jónsson bóndi þar og kona hans Guðlaug Vigfús- dóttir. Jón er skráður bóndi á Krossum frá 1772 til ævi- loka og var kallaður Jón ríki. Hann var sjálfseignar- bóndi og talinn allvel í áln- um. Þóra var eina barn þeirra sem upp komst en sonur þeirra Jón, sem var ári eldri en systir hans, dó sex ára gamall. Gunnlaugur Þorvaldsson fæddist á Ingvörum og voru foreldrar hans Þorvaldur Sigurðsson og Hólmfríður Þorvaldsdóttir. Þorvaldur var skráður bóndi á Þing- vörum frá 1760 til æviloka og var bú hans lítið. Eftir lát Þorvaldar bjó Hólmfríð- ur áfram á Ingvörum til 1788, síðan í Gljúfrárkoti í Svarfaðardal til 1798 og loks á Hverhóli í Svarfaðar- dal til 1803. Þeim hjónum búnaðist vel og Þóra sýndi góða búhyggni eftir lát manns síns og naut þess að vera einkabarn efnaðs föð- ur, eftir því sem fram kem- ur í formála bókarhöfundar. Margar sögur eru til af Krossáættarniðjum og er þar að finna fjölmarga þjóð- þekkta einstaldinga, sem koma kunnuglega fyrir sjónir af þeim á íjórða þús- und persónum sem myndir eru af í bindunum tveim. Auk þess er þar að finna fjölda gamalla mynda af bæjum eldri niðja og yfir- litsmyndir úr sveitum, þorp- um og kaupstöðum sem við sögu koma. Mál og mynd gefur verkið út og hefur hvergi til sparað að gera það hið besta úr garði, hvað snertir alla heimildasöfnun, útvegun mynda og að ytra útliti. V_________________> Fjórtán ár eru liðin síðan síðasta mynd Ágústs, Gullsandur, var frumsýnd og þarf víst ekki að tyggja hér ástæðuna fyrir því, fólki ætti að vera orðið Ijóst að kvikmyndagerð á íslandi er fjárglæfraspil. Þótt Dansinn sé að mestu fjármagnaður með erlendum styrkjum þurftu Ágúst og Kristín að leggja sjálfpeninga I myndina og verður faglegum metnaði því ekki eingöngu svaiað ef viðtökur verða góðar - heldur og húsinu þeirra við Óðinsgötuna borgið. N ærgætið háð Fjórtán árum síðar, frumsýnir Ágúst Guð- mundsson sína fimmtu kvikmynd fulla afdramatík, djöf ulgangi, dansi, brúð- kaupi, skipbroti og veðurofsa... Það er allt sem við á að éta í einni dramatískri mynd í Dans- inum, nýjustu kvikmynd Agústs Guðmundssonar, sem verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld, og er þetta í fyrsta sinn sem ein af útgefnum sögum Williams Heinesens, færeyska skáldjöf- ursins, er kvikmynduð. Ymsir af mætustu Ieikstjórum Dana hafa að vísu fest sér kvikmyndarétti á sögum hans hjá Gyldendal en það er ekki fyrr en nú sem mynd verður til. Það er kannski ekki ýkja undarlegt, linsa kvikmyndatöku- vélarinnar var eflaust víðsfjarri huga Heinesens þegar hann reit sínar bækur, nokkuð sem nú- tímahöfundar sem hyggja á frægð og frama eru Iíklega ekki fríir frá. Persónusafnið í sögum hans er iðulega stórt og frásögn- in breið. „Heinesen er Iítið í því að búa til formúlusöguþræði," segir Ágúst og þurfti meira að segja að stytta, einfalda og skera burt persónur þótt smásagan hafi upphaflega rúmast á 30 blaðsíðum í bók. Þessi stórmerkilegi hversdagsleiki En Ágúst var ekki einn um handritið, Kristín Atladóttir skrifaði það með honum. En hvers vegna þessi saga? „Formið hentar mjög vel, sagan hefur upphaf, miðju og næstum því endi. Þú þarft enga þekkingu á færeyskum veruleika til að kom- ast inn í söguna. Heinesen á það líkt með Laxness að gera stundum góðlátlegt grín að fólki. báðir hæðast, en þó á nærgætinn hátt að fólki og alltaf útfrá ákveðnum kærleika sem þeir bera í bijósti til persónanna sem þeir skrifa um. Mig langar ekki að skrifa eða gera mynd um andstyggilegt fólk. Það er kannski líka Krístín: Mig langar ekki aðgera mynd um andstyggilegtfólk. þessi hvers- dagsleiki sem hann Iýsir sem er svo stór- merkilegur," sagði Kristín. Ekki nokkur sólarglæta Nafn WiIIiams Heinesens kveikti ekki grænt ljós hjá er- lendum sjóðum enda Heinesen lítið þekktur utan Danaveldis. „Meira að segja norræni sjóður- inn tók ekkert sérstakt tillit til þess - sem kom mér á óvart,“ sagði Ágúst en að sögn Kristínar hefur norræni sjóðurinn meira lagt til mynda úr samtímaveru- leika undanfarið. Það var ein- faldlega handritið sem Iaðaði að íjármagnið og svo sem ekki að undra því það gengur mikið á í frumtextanum. Söguþráðurinn er í stórum dráttum að brúð- kaupsveisla Haralds (Dofri Her- mannsson, Sporlaust) og hinnar fögru en bráðlátu Sirsu (Pálína Jónsdóttir, Djöflaeyjan) stendur yfir á dæmigerðri færeyskri eyju, þessum einmana kletti úti í hafi. Veðurhamurinn er mikiil, Sirsa er ennþá dálítið veik fyrir Ivari (Baldur Trausti Hreinsson, Evíta), skip strandar í miðri veislunni og þrátt fyrir mann- skaða og trúarfestu nokkurra eyjarskeggja tekur veislukætin og lífsorkan völdin í færeyskum dansi. Eitthvert óskýranlegt æði grípur veislugesti og blóðið ólgar á hjara veraldar. „Sögumaður segir að jafnvel djöfullinn sjálfur hafi gerst boðflenna í brúðkaup- inu,“ segir Ágúst. „Djöfullinn er svo nákominn þessu fólki, hann er það sem ber að varast stöðugt, hann er allur mannleg- ur breyskleiki,“ segir Kristín. Til allrar lukku var sólin ekk- ert að ergja hópinn meðan tökur stóðu yfir í Færeyjum. „Við feng- um ekki einn einasta sólardag í Færeyjum sem er hið besta mál vegna þess að það á ekki að vera sólarglæta í þessari mynd,“ segir Ágúst, nema þá helst í sálum þessa fólks. Og það var víst nóg af rokinu og rigningunni. „Mað- ur fær það á tilfinninguna að fólk hafi hangið þarna utan í björgunum áður fyrr til að Ijúka bara ekki út í sjó,“ segir Kristín. Þau töldu þó ekki ráðlegt að taka myndina út í eynni Mykines, sem var líklega fyrir- mynd Heinesens að Stapaey í sögunni, enda afar erfitt að komast þangað sjóleiðina. „Ég hitti mann hvurs faðir var einu sinni sýslumaður þarna og þurfti að fara öðru hveiju út í eyna. Það liðu stundum mánuðir þar til hann kom heim aftur,“ sagði Kristín og virtist ekki hafa verið sólgin í að verða innlyksa á Mykines. „Maður getur alltaf misst hús“ I upphafi íslenskrar kvikmynda- gerðar var erlent fjármagn sárasjaldgæft en á móti var nán- ast skylduaðsókn íslenskra bíó- gesta. Aðsóknin hefur dvínað en erlent fjármagn aukist. Þótt meirihluti Ijármagnsins (rösk- Iega 72 af 120 milljónum) fyrir Dansinn komi að utan barst taugaveildunarhlátur frá þeim hjónum þegar þau voru spurð hvort þau ættu semsé ekkert á hættu að missa húsið að þessu sinni. „Maður getur alltaf misst hús,“ sagði Kristín og hló hvellt en þau lögðu fram tæpar 13 milljónir í púkkið. „Ef það kem- ur enginn að sjá þessa mynd þá stöndum við náttúrlega ekki undir okkar hluta. Þá er nú hætt við að Sigurður bankastjóri fari að hringja..." -LA

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.