Dagur - 25.09.1998, Blaðsíða 5
Xfc^MT
FÖSTUDAGUR 2S. SEPTEMBER 1998 - 21
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Ekki basar íyrir feitar buddnr
Rassinn hefur vakið einna mesta lukku meðal sýningagesta enda nær hann til breiðs aldurshóps. Enda-
þarmsopið sjálft er með stöðuga munnræpu og grípum við niður í hana: „Þegar salernispappír liggur á
matarborðum manna sem munnþurrkur og þá jafnvel meðal þeirra stétta þjóðfélagsins sem síst skyldi. En
það er hins vegar ekkert launungarmál að einmitt á þessum sömu heimilum eru alls kyns sállíkamlegir
sjúkdómar með öllu óþekktir." mynd: e.ól.
Hví ekki taka sveigframhjá
húsdýragarðinum og bíóhúsun-
um um helgina og reka frekar
inn nefið á Nýlistasafninu með
fjölskylduna?
Ef marka má hugleiðingu Halldórs Björns
Runólfssonar, Iistfræðings, um sýninguna
Stöð til Stöðvar sem lýkur nú um helgina í
Nýlistasafninu, erum við listsnauðu eðjót-
arnir ekki einir um að finnast eitthvað klént
við opnanir myndlistarsýninga. Listfræðing-
urinn sjálfur segir „íslenskar sýningaropnan-
ir ámóta spennandi og framsæknar og lang-
ur laugardagur eða rýmingasölur upp-
þornaðra fataverslana. Einber basar til að
trekkja að feitar buddur."
Hinmasæng, svarthol, óskabrunnur...
Og hananú. En Halldór Björn ásamt erlend-
um kollega sínum ákváðu að kalla saman
hóp íslenskra, svissneskra og ungverskra
listamanna og gera eitthvað annað við fyrir-
bærið „sýningu". Verkefninu er að Ijúka
núna. Fimmtán Iistamenn eyddu saman
nokkrum dögum, í borg og íslenskri náttúru,
hristu saman hugmyndir og upp spratt sú
sýn að Nýlistasafnið „væri einskonar Iíkami
með sál, líffærum og taugakerfi ... og hver
krókur og kimi á sér samsvörun og samhljóm
utandyra," að sögn Halldórs.
Það er ekki allra að grafa sig í gegnum
merkingarlög verka á borð við þau sem eru
nú í Nýlistasafninu, en af þeim er hægt að
hafa gaman án þess, nú eða kippa til sín ein-
um eða tveimur Iistamannanna og biðja um
útskýringar. Egill Sæbjörnsson og Magnús
Sigurðarson voru gómaðir þegar Dagur
skrapp á staðinn enda verður leikmaður að
spurningamerki í framan við flest verkanna.
Niðrí kjallara er til dæmis himnasæng sem
átti að vera svarthol. Og er það í rauninni.
Ef þú leggst niður á IKEA gormabeddann og
horfir á dáleiðandi mynd rétt ofan við nefið
á ’þér þá dettur þú ofan í þitt eigið svarthol.
Magnús setti saman óskabrunn, sem dælir
vatni út og inn, út og inn... Hugmyndin er
hringferli óskanna, ég um mig frá mér til
mín: „Þú ert sú stöð sem óskar þér og óskin
snýst um sjálfa þig.“
Framsækin myndlist ekki fyrir alla
Talsvert af fólki hefur mætt - en aðallega
áhangendur myndlistar. Hvekktir á þvi'r „Það
er alltaf gaman að fá fjölda," segir Egill „en
það er staðreynd að myndlist er lagskipt og
það er smærri hópur sem fylgir framsæknari
myndlist og það hefur alltaf verið þannig og
það er bara eðlilegur hlutur. Svo eru þeir
sem eru að fylgjast með myndlist sem er
búin að vera að meltast í lengri tíma í þjóð-
félaginu. Og það bara á ekkert að vera
breyta því.“
En langar þá ekkert, bara upp á fúttið, að
lokka til sín húsfylli af fólki? „Ja, mér finnst
að myndlist eigi að geta verið jafnmikil
skemmtun og íþróttaviðburður eða bíó-
myndir. Það mætti alveg vera meira. Þess
vegna hafa verið gerðar tilraunir á síðustu
árum til að gera sýningar lagskiptar, ytra lag
sem laðar að stærsta hópinn, annað sem lað-
ar að minni hóp og eitthvað ennþá þrengra
sem Iaðar að örfáa."
Nýlistasafnið er opið alla daga nema
mánudaga frá Id.14-18 og þessari sýningu
lýkur á sunnudag.
Stóðrétt á Melgerðismelum
Sölusýning, stóðréttir,
skeiðkappreiðar, veit-
ingar, grill,fjör og
dans. Eyfirðingar
halda stóðréttirað
Melgerðismelum um
helgina.
Stóðréttir eru alltaf sannkölluð
hátíð hestamanna. Alltaf eitt-
hvað sérstakt við að fara í réttir
og heimta skepnurnar af fjöllum
eftir sumardvöl - gildir þá einu
hvort um fjár- eða stóðréttir er
að ræða.
Klukkan ellefu á laugardags-
morgun hefst dagskráin að Mel-
gerðismelum með sölusýningu á
vegum Hrossaræktarsamtaka
Eyfirðinga og Þingeyinga. „Sýn-
ingin verður á Melavelli við
stóðhestahús og þarna verða
sýnd öll þau hross sem eru hér á
sölumiðstöðinni og þar eru mörg
athyglisverð hross. Þau verða
kynnt sérstaklega á sýningunni,"
segir Sigfús Helgason fram-
kvæmdastjóri Melgerðismela og
formaður Léttis. „Það verður
sveitarstjóri eða einhver hér sem
vígir réttina. Síðan verður hleypt
inn í almenninginn með hefð-
bundinni réttarstemmningu. Eg
hvet alla til að koma til að sjá
nýja mannvirkið og líka í réttina
því hér verður obbinn af hross-
um í Eyjafirði." Sigfús sagðist
ekki hafa nákvæma tölu um
fjölda hrossa sem von væri á en
réttin tekur um 1.000 hross.
Skeiðkappreiðar fara fram kl.
17.00 og er skráning á staðnum.
„Hérna verða væntanlega fljót-
ustu vekringar Norðurlands,"
segir Sigfús. „Við ætlum að ná
upp mikilli stemmningu. Það
hefur aldrei áður verið haldið
mót svona seint hér í Eyjafirði.
Tíminn er að verða afstætt hug-
tak í hestamennsku og við von-
um bara að fólk komi, sjái og
taki þátt. Við ætlum að gera
þetta að verulegum hátíðisdegi
því það er sannarlega hátíðis-
dagur fyrir eyfirska hrossarækt
að þessi rétt skuli vera komin
hér upp. Hún er búin að vera
lengi í fæðingu en nú er hún
komin og við hestamenn eigum
að samfagna á þessum degi.
Þetta er gríðarleg viðbót við þá
aðstöðu sem hér er. Svo er nátt-
úrlega hefðbundinn réttardans-
leikur í Sólgarði með ólýsanlegri
stemmningu eins og allir sem
þangað hafa komið þekkja. Það
verður dansað eitthvað fram á
sunnudagsmorgun."
Hljómsveitin Cantabile heldur
uppi fjörinu á dansleiknum í
Sólgarði og verður húsið opnað
kl. 21.00. -Hi
Stóðréttir eru alltaf hátíðir fyrir hestamenn og marga aðra og nú um helgina
verður haldin stóðrétt að Melgerðismelum i Eyjafjarðarsveit.
HELGINA
Fyrirlestur um
Shamanisma
Dr. Júrgen W.
Kremer, pró-
fessor í sálar-
fræði við
California
Institute of
Integral Stu-
dies í San
Francisco,
flytur fyrir-
lestur á vegum endur-
menntunarnefndar Háskól-
ans á Akureyri laugardaginn
26. september kl. 14.00, að
Þingvallastræti 23, stofu 26.
Dr. Kremer mun í fyrirlestri
sínum Qalla um lækninga-
mátt shamanisma og frum-
byggjaþekkingu í nútímasam-
félagi. Hann mun skilgreina
frumbyggjahugsun, ræða um
hefðbundin störf seiðmanna,
aðallega meðal Sama, og
einnig sambærileg atriði í
fornnorrænni menningu.
Einnig leitast hann við að
skilgreina hugtakið frum-
byggjavísindi og fjallar um
viðhorf bandarískra frum-
byggja til hugarfars þeirra og
hvers virði það er að átta sig á
fornri menningu eigin kyn-
stofns og þjóðfélags.
Hann sýnir litskyggnur úr
rannsóknarferðum sínum og
ræðir efnið meðal annars út
frá þeim.
Fyrirlesturinn verður flutt-
ur á ensku. Allir velkomnir.
Nema Hvað!
Fyrsta sýning Myndlista- og
handíðaskóla Islands á þess-
um vetri, og jafnframt jóm-
frúrsýning í nýju húsnæði að
Skólavörðustíg 22c, verður
opnuð á morgun, laugardag,
kl. 16. Nemendagallerfinu,
Nema Hvað!, er ætlað að
hjálpa nemendum að kynna
almenningi verk sín og að-
standandendum gallerísins
þykir ekki til of mikils mælst
af landsmönnum „öllum að
mæta á að minnsta kosti eina
af þeim fjölmörgu sýningum
sem þar eru haldnar á hverju
ári“. Óvíst er að allir taki
áskoruninni en á sfðasta ári
voru haldnar 25 sýningar og
þykir sýningahaldið mikilvæg-
ur hlekkur í starfsemi skól-
ans.
Sýningunni lýkur 4. októ-
ber en Hrappur Magnússon,
sem stundar nám á þriðja ári
í skúlptúrskor skólans, verður
við opnunina með innsetn-
inguna: Þurrkaðir regnbogar
& fljótandi sólarljós. Hmm!?
V_____________________________