Dagur - 02.10.1998, Side 3
FÖSTUDAGUR 2.0KTÓBER 1998 - 3
FRÉTTIR
Kísilþönmgar ergja
breiöflr ska sj ómenn
Sjávarhiti veldur því meðal annars að mikið er af marglyttu á Breiðafirði
og þekja gróðurbreiður nú stóran hluta fjarðarins.
Stórir, brlmir flekkir
mn allan Breiðafjörð
og mikið af marglyttu
í óvenju heitum sjón-
um.
Gróðurbreiður þekja nú stóran
hluta af Breiðafirði og gera neta-
veiði erfiða og jafnvel skemma
netin fyrir sjómönnum. Sjómenn
segjast ekki hafa séð neitt þessu
líkt, reynt sé að finna bletti þar
sem minna sé um þennan ófögn-
uð en það gangi treglega. Um
stóra, brúna flekki eða drullu sé
að ræða sem einna helst líkist
lopa, og liggi í netunum.
Örvar SH-777 hefur verið á
netaveiðum út af Látrabjargi og
þar norður af til þess að losna út
úr „lopanum" en aflinn er unn-
inn í frystihúsinu á Rifi. Reynir
Axelsson stýrimaður segir að afl-
inn sé um 4 tonn á dag. Þar séu
hrein net, en talsvert um mar-
glyttu. Auk þess virðist bolfiskur
forðast þau svæði þar sem mikið
er af þörungum, enda sér hann
þá netin betur þegar þau eru full
af óþverranum.
„Á þessum slóðum eru þrír
bátar frá Rifi sem allir hafa forð-
ast ófögnuðinn á Breiðafirði,
Saxhamar og Magnús auk Örv-
ars, sem landa á fiskmarkað auk
trollbátanna Hamars og Rifsness
og snurvoðabátsins Þorsteins.
Þeir hafa verið að fara út á
„Brjálahrygg" vestur af Breiða-
firði og í Víkurálinn og fengið
þar ufsa,“ segir Reynir Axelsson.
Útibú Hafrannsóknastofnunar
í Ólafsvík fékk sýni á miðvikudag
sem send hafa verið til rann-
sóknar hjá Hafrannsóknastofn-
un í Reykjavík. Starfsmaður þar
taldi líklegast að um þörunga
væri að ræða. Síðast þegar frétt-
ist af svona lituðum flekkjum og
slímmyndunum þá reyndust það
vera grænþörungar sem voru að
Ijölga sér svona mikið og sendu
út gró sem síðar settist á botn-
inn. Fréttir af því að flekkirnir
séu brúnir bendir til að um kísil-
þörunga sé að ræða. Mikill sjáv-
arhiti er á þessum slóðum, allt
að 10 stig sem er óvenju mikið.
Þessi hái sjávarhiti veldur því
að óvenju mikið er af marglyttu á
svæðinu. Ekld þarf þó að leita
lengra en norður fyrir Straum-
nes til að komast í mun kaldari
sjó með hitastig undir frost-
marki. — GG
Viltu kaupa
Hagkaup?
Fjárfestingarbanki atvinnulífs-
ins (FBA) og Kaupþing munu í
dag kynna útboð á bréfum í
Hagkaupsveldinu, sem ætlunin
er að selja almenningi. Sam-
kvæmt heimildum Dags má bú-
ast við allt að einum og hálfum
milljarði á markaðinn, en sú tala
gæti orðið Iægri þegar endanleg
svör frá svonefndum stofnana-
ljárfestum hafa verið reiknuð
saman. Kaupþing og FBA
keyptu 75% af verslanakeðjunni
Hagkaupi, Bónus, Nýkaupi. Fyr-
ir þessa viku var búið að selja
um 20% til ýmissa fjárfesta, og
reiknað með að 8-12% í viðbót
yrðu seld við lok viðskiptadags í
gær til lífeyrissjóða. Búast má
við að Hagkaupsveldið verði selt
með svipuðum hætti og Lands-
bankabréfin sem runnu út á
dögunum, en óvíst er hvort
áhugi verði jafn mikill. - SJH
Tveir af sex nemendum sem nú stunda nám í fiskveiðistjórnun og markaðsfræði við Sjávarútvegsháskóla
Sameinuðu þjóðanna á Akureyri. mynd brink
Ibúðalána-
sjóð til
Húsavíkur
Stjóm og trún-
aðarmannaráð
Verkalýðsfélags
Húsavíkur hefur
skorað á félags-
málaráðherra að
vinna að því að
Ibúðalánasjóður
verði staðsettur
á Húsavík. „Með
því ... væri stigið
stórt skref í _____
þeirri viðleitni
að treysta og efla byggð í land-
inu,“ segir meðal annars í álykt-
uninni. Ennfremur að það sé
ekki sjálfsagt mál „...að flestar
opinberar stofnanir séu staðsett-
ar á höfuðborgarsvæðinu, ekki
síst vegna góðra samgangna og
þeirrar mildu tækni sem er til
staðar í nútíma fjarskiptum."
Aðalsteinn A.
Baldursson
form.
Verkalýðsfélag
s Húsavíkur.
Læra uin sjávarútveg
Námið ætlað iiilltrú
iiiii þjóða þar sem
fiskveiðar eru að fær-
ast inn í alþjóðlegt
umhverfi.
Sjávarútvegsháskóli Sameinuðu
þjóðanna hóf fyrir skömmu
kennslu á Akureyri í samvinnu
við Háskólann á Akureyri og fór
bóklegi hluti kennslunnar fram í
húsnæði HA að Sólborg. Nám-
skeiðið, sem heitir „Management
of fisheries company and mark-
eting“ eða fiskveiðistjórnun og
markaðsfræði, er sótt af sex nem-
endum Sjávarútvegsháskólans
sem komu frá Afríkuríkjunum
Úganda, Gambíu og Mósambik
og er þetta fyrsti hópurinn sem
hingað kemur. Námið er ætlað
íbúum frá þróunarlöndunum og
eru nemendur fólk sem er komið
í áhrifastöður og frá löndum þar
sem fiskveiðar eru að færast inn
í alþjóðlegt umhverfi. — GG
Sjóvá borgi mistök lögmaims
Sjóvá-Almennar eiga að greiða
Lögmannafélagi Islands yfir 1,5
milljónir króna, auk 250 þúsund
króna málskostnaðar, samkvæmt
dómi Hæstaréttar. Tryggingafyr-
irtækið á að borga þetta til að
bæta Lögmannafélaginu tjón
vegna mistaka lögfræðings.
Málið á rætur að rekja til þess
að maður varð fyrir slysi í Fóget-
anum árið 1985. Honum voru
dæmdar 982 þúsund króna bæt-
ur ásamt vöxtum og kostnaði árið
1991 og var Fógetinn tryggður
hjá Sjóvá-Almennum. Lögfræð-
ingur mannsins, Guðný Hösk-
uldsdóttir, fékk í júní 1991 alls
3,6 milljónir króna frá trygginga-
félaginu sem lokauppgjör, en
Guðný lét manninn aðeins fá 1
milljón króna. Guðný varð síðar
gjaldþrota og maðurinn fékk ekk-
ert meira frá henni. Ábyrðasjóð-
ur Lögmannafélagsins greiddi
manninum það sem upp á vant-
aði og gerði í þessu máli endur-
kröfu á Sjóvá-Almennar. - FÞG
ALÞINGI
Ólafs Þ. Þórðar-
sonar minnst
S tarfsaldursfor-
seti Alþingis,
Ragnar Arnalds,
sem stýrði
fundi í upphafi
þingsetningar í
gær minntist
Ólafs Þ. Þórð-
arsonar, fyrrum
alþingismanns,
sem andaðist 6.
september sl.
Sagði Ragnar
að Ólafur hafi verið atkvæða-
maður þar sem hann kom að
málum. Hann hafi oft tekið til
máls á Alþingi og í ræðum hans
hafi komið fram að hann var
minnugur, víðlesinn og marg-
fróður. Honum hafí verið létt um
mál og að hann hafi verið ódeig-
ur í kappræðum, rökfastur og
hnyttinn.
Stutt þiug
Alþingi sem sett var í gær verður
afar stutt. Samkvæmt starfsáætl-
un verða þingfundir fyrstu 3 vik-
urnar í október en síðan kemur
kjördæmisvika. I nóvember
verða aðeins 10 þingfundir. Þá
verður ein nefndarvika og Norð-
urlandaþing fer fram í nóvem-
ber. Síðan verða þingfundir í
desember fram til 19. en þá
hefst jólaleyfí sem stendur til 19.
janúar. Eftir það verða aðeins 25
þingfundir til 10. mars er þingi
verður frestað vegna þingkosn-
inganna 8. maí.
Tölvuþróun
Alþingis
Ólafur G. Ein-
arsson, sem
kjörinn var for-
seti Alþingis í
gær, ræddi í
ávarpi sínu um
þá framþróun
sem orðið hefur
í upplýsinga-
miðlun af hálfu
Alþingis með
tilkomu vefsíðu
þess á Netinu. Frá og með gær-
deginum geta allir sem aðgang
hafa að Netinu, hvar sem er í
heiminum fylgst með útsending-
um af þingfundum frá tölvuskjá.
Þetta skipar Alþingi á bekk með
þeim þjóðþingum sem lengst eru
komin í að hagnýta sér mögu-
leika Netsins til að miðla upplýs-
ingum um starfsemi sína.
Alþingi á breið-
baudið
Undirritaður hefur verið samn-
ingur milli Alþingis og Lands-
símans hf. um að Alþingi fái til
afnota eina sjónvarpsrás á breið-
bandi Landssímans til útsend-
ingar á fundum Alþingis og öðru
sjónvarpsefni sem varðar störf
Alþingis. Þar með er tryggð sam-
felld útsending frá þingfundum í
gegnum miðil sem Landssíminn
áætlar að muni ná inn á hvert
heimili í framtíðinni. Ýmsir
möguleikar opnast við þetta til
að koma fræðsluefni um Alþingi
á Netið og sömleiðis geta þing-
flokkar notfært sér sjónvarpsrás-
inftýál að kynna sín mál. -S.DÓR
u