Dagur - 02.10.1998, Síða 4

Dagur - 02.10.1998, Síða 4
4- FÖSTUDAGVR 2. OKTÚBER 1998 FRÉTTIR i. Samdráttur hjá OTM Velta hlutabréfa á Opna tilboðsmarkaðnum (OTM) var aðeins um 190 milljónir á tímabilinu janúar/ágúst í ár, borið saman við um 2.790 milljónir á sama tíma í fyrra, samkvæmt frétt Viðskiptablaðs- ins. Samdrátturinn er rúm 93% milli ára. Viðskipti með bréf á aðal- lista Verðbréfaþings hafa líka minnkað milli ára, en bara um ríflega fimmtung - þ.e. úr rúmlega 9.210 milljónum í fyrra niður í rúmlega 7.460 milljónir í ár. Um áramót var skráð markaðsvirði hlutabréfa um 190 milljarðar en 178 milljarðar í ágústlok. - HEI Landshanldim ofmetinn? Gengi bréfa í Landsbankanum er ofmetið miðað við eðlilega ávöxt- unarkröfu og raunhæfar væntingar að mati Viðskiptastofu Islands- banka, að sögn Viðskiptablaðsins. Miðað við hæsta tilboð - gengi 2.566 - í bréf bankans sé hann metinn á 16,7 milljarða, eða um 3 milljörðum hærra en Islandsbanki. Landsbankinn muni þó líklega skila ívið minni hagnaði í ár en Islandsbanki, eða tæplega 1 milljarði, sem sé minna en 6% af markaðsvirði og mun lægra en vextir á pen- ingamarkaði (7,5%), þrátt fyrir að ytri skilyrði hagkerfisins séu með allra besta móti. Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins fór hlutur Landsbankans, bæði í innlánum og í útlánum og markaðsbréfum minnkandi í fyrra og áfram á þessu ári - sem að mestu hefur komið í hlut sparisjóðanna. — HEI Minnisvarði afhjúpaður að Hnjóti Minnisvarði um erlenda sjómenn sem fórust á breskum togurum út af Vestfjörðum fyrr á þessari öld verður afhjúpaður af utanríkisráð- herra, Halldóri Ásgrímssyni, næstkomandi laugardag. Minnisvarðinn stendur að Hnjóti í Orlygshöfn og er byggður fyrir þriggja milljóna króna Ijárveitingu frá íslensku ríkisstjórninni. Á laugardaginn rætist gamall draumur Egils Olafssonar bónda og flugvallarstjóra á Hnjóti, sem lengi hefur talað fyrir því að minnisvarði yrði reistur í Örlygs- höfn. í desembermánuði verða Iiðin 50 ár frá frækilegri björgun áhafnar breska togarans Dhoon við Látrabjarg. Minnisvarði um drukknaða, breska sjómenn var afhjúpaður í Vest- urbyggð fyrr á þessu ári. Þann minnisvarða gáfu þijár breskar útgerð- arborgir, þ.e. Grimsby, Hull, og Aberdeen, og afhjúpaði breski sendi- herrann á Islandi þann minnisvarða. — GG HRISALUNDUR of hespulopo frá Álofossi Hrísalundur fyrir þig. kjallarinn Hrísalundi \ Bréf Guðmundar Páls Úlafssonar til sýslumanns er „reiðilaust". Vill fánaim aftur! Giiðmimdur Páll Ólafsson náttúru- fræðingur og um- hverfisverndarsinni vill fánann sem sýslu- maður gerði upptæk- anaftur. „Ströndin“ eftir Guðmund kemur nú út á ensku. I bréfi til Friðjóns Guðröðarson- ar sýslumanns á Hvolsvelli gerir Guðmundur Páll Ólafsson þá kröfu að fá afhentan fánann sinn sem hann reisti við Fögru- hveri. Sýslumaður tók fánann niður þegar vatn óx í lóni við Há- göngumiðlun og sýnt var að hann færi í kaf. „...ég kannast ekki við að hafa beðið um slíkan erindisrekstur,“ segir Guðmund- ur Páll í bréfi sínu, enda ítrekar hann að hafa talið sér heimiit, og „raunar skylt“ að setja niður stöng með fána við hverina. „Hvað svo sem öllu Iíður ætla ég hvorki að erfa þetta við yður né embætti yðar, en bið um að þér skilið þessum eigum mín- um,“ segir Guðmundur Páll í bréfi sínu, „enda sýnist mér ærn- ar ástæður til að nota aftur bæði fána og stöng og af sama tilefni." „Ströndin“ á ensku Hið mikla verk Guðmundar, „Ströndin" kemur út þessa dag- ana hjá Máli og menningu í enskri þýðingu. Fjölmörg fyrir- tæki sem tengjast sjávarútvegi og stofnanir styrktu þessa ensku gerð. Áður voru „Perlur“ Guð- mundar þýddar á ensku. — SJH Of kalt fyrir loðnuna Um 790 þúsund toini óveidd af byrjimar- kvóta í loðnu nú þeg ar veiðar mega hefjast að nýju. Nótaskipið Víkingur frá Akranesi var á miðvikudag komið um 50 mílur norður af Straumnesi í Ioðnuleit, en loðnuveiði var að nýju leyfð frá miðnætti eftir 6 vikna veiðibann sem átti að vernda smáloðnu. Enga loðnu var að finna á þessum slóðum enda hitastig sjávar undir frost- marki, - 0,7 °C. Loðnan þarf 2-3 stiga heitan sjó til þess að finn- ast í veiðanlegu magni. Vitað var um fleiri báta á leið norður af Vestfjörðum, m.a. Höfrung, Börk og Hólmaborg, en fleiri er verið að gera klára. Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út 950 þúsund tonna byrj- unarkvóta á Ioðnu, en talið er að endanlegur kvóti geti orðið allt að 1.300 þúsund tonn. Búið er að veiða um 160 þúsund tonn. Verð á mjöli og lýsi hefur farið lækkandi að undanförnu. I vor fengust um 55 þúsund krónur fyrir tonnið af mjöli en nú er verðið komið í 51 þúsund krón- ur, og virðist enn á niðurleið. Fyrir Iýsi hafa fengist um 54 þúsund krónur. Lítil eftirspurn er eftir mjöli vegna lokunar Austur-Evrópumarkaðar og slæms efnahagsástands í Asíu, og því tregða á mörkuðum. Auk þessa hafa Norðmenn verið að koma inn á markaðinn. Síldveiðar íslenskra skipa við Noregsstrendur hafa gengið illa og þar voru í gær aðeins tvö skip, Vestmannaeyjaskipin Sigurður og Sighvatur Bjarnason. Síldin gengur nú hratt suður eftir strönd Noregs til hrygningar inni á Ijörðunum í Suður-Noregi og því erfitt að ná henni í nót eða flottroll. — GG „Fréttameim farið offari64 Engin ný húð opnuð á Akureyri í október á vegnm Baugs. „Við vorum ekki að opna neina búð og það liggur ekkert fyrir um að ný búð f eigu Baugs verði opnuð á Akureyri í október. Hins vegar hafa einhverjir fréttamenn búið það til. Þeir hafa vægast sagt farið offari,“ segir Jón Ás- geir Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Baugs sem rekur Hag- kaups- Nýkaups og Bónusversl- anirnar. Jón Ásgeir segir að alls ekki sé búið að ganga frá kaupum eða leigu á Kjörbúðinni í Kaupangi á Akureyri, en ýmsir fjölmiðlar hafa gert því skóna að undan- förnu að afhending búðarinnar lægi fyrir. Jón Ásgeír segir hins vegar að Baugur hafi augastað á verslunarhúsnæði í Kaupangi. Hann segir aldrei hafa staðið til að opna verslun í gær og kannast ekki við neinn ágreining um Jón Ásgeir Jóhannsson kannast ekki við neina samninga um opnun búðar í Kaupangi. Hér má sjá umrædda versiun á Akureyri. leigu- eða kaupsamning vegna málsins. 5 nýjar búðir Ymsir hafa bent á að fyrirætlanir Baugs um að bæta við verslun á Akureyri sé svar fyrirtækisins við innrás KEA á matvörumarkað- inn í Reykjavík. Því hafnar Jón Ásgeir alfarið: „Það er ekki rétt. Okkar áætlun byggir á því að opna 5-6 nýjar verslanir á Iands- byggðinni og Akureyri er einn af þeim stöðum. Það er vaxandi markaður á Akureyri en okkar hugmyndir hafa ekkert með það að gera hvar KEA stendur í verslunarrekstri." — Bl>

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.