Dagur - 08.10.1998, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 8. október 1998
Iðnað í Þorlákshöfn
og stærra Njálusafn
Idnadarráduneytið ætlar að veita hálfrar milljóna króna styrk í að úttekt á mögulegri upp-
byggingu iðnaðar í Þorlákshöfn þar sem betur mætti nýta góða hafnaraðstöðu og nægt
iandrými er til staðar. Hugmyndin er m.a. að kynna þessa möguleika fyrir erlendum fjár-
festum sem hafa áhuga á meðalstórum iðnfyrirtækjum.
Þrjú söguleg verkefni
á Suðurlandi og mögu-
leikar iðnaðar í Þor-
lákshöín eru meðal
verkefna semiðnað-
arráðherra veitti til
styrki.
Um 2,2 milljóna styrkur er veitt-
ur til áframhaldandi uppbygging-
ar verkefnisins „á Njáluslóð11 í
Sögusetrinu á Hvolsvelli, í
tengslum við nýtt og stærra hús-
næði, enda hefur Njálusýningin
verið fjölsótt af ferðamönnum.
Sögusetrið er samstarfsverkefni
sveitarfélaga á Suðurlandi og
fleiri aðila.
Annað sögusetur er í uppbygg-
ingu í Vík, í Brydebúð. Hálfrar
milljónar króna styrkur er veittur
þar til áframhaldandi uppbygg-
ingar verslunarminjasafns og
söguseturs sem tengist Brydebúð
og þeirri fjölbreyttu starfsemi
sem þar hefur farið fram.
Þriðja verkefnið er Kirkjubæj-
arstofa sem fær einnar milljónar
króna styrk til uppbyggingar,
reksturs og kynningar. Kirkju-
bæjarstofa er upplýsinga- og
fræðasetur sem leggur áherslu á
náttúruvísindi, landmótun og
ferðaþjónustu.
Góðir kostir í Þorlákshöfn
I Þorlákshöfn er veittur styrkur
til allt annars konar verkefnis.
Hálfrar milljónar króna styrk á
að verja til að gera úttekt á
mögulegri uppbyggingu iðnaðar í
Þorlákshöfn þar sem betur
mætti nýta góða hafnaraðstöðu
og nægt landrými er til staðar,
auk þess sem orkuvirki og jarð-
efnaauðlindir eru skammt und-
an. Hugmyndin er m.a. að
kynna þessa mögu-
leika fyrir erlendum
íjárfestum sem hafa
áhuga á meðalstór-
um iðnfyrirtækjum.
Þorlákshöfn virð-
ist líka geta gert sér
vonir um að njóta
síðar góðs af 3ja
milljóna króna styrk
til áframhaldandi
hagkvæmniathugana
á byggingu Polyol-
verksmiðju, því
hugsanlegir staðir
eru taldir: Þorláks-
höfn, Húsavík, Mý-
vatnssveit og Suður-
nes. Styrknum verð-
ur m.a. varið til að
gera kynningarefni
fyrir erlenda fjár-
festa og til kynning-
arfunda með þeim.
Til áframhaldandi
þróunar í hörvinnslu
er veittur 1,5 millj-
óna króna styrkur,
en hörræktartilraunir hafa farið
fram á Suðurlandi. Meiningin er
að gera frekari hagkvæmniat-
huganir á ræktun og framleiðslu
hörs, feygingartilraunir og athug-
anir á líklegum mörkuðum.
-HEI
Blómgim á
SóUiemnun
Sólheimar í Grímsnesi hafa
fengið að gjöf höggmyndina
Blómgun eftir Sigurjón Olafs-
son frá Vísa Island. Einar S.
Einarsson forstjóri Visa af-
hjúpaði listaverkið s.l. föstudag.
Um er að ræða eftirgerð úr
málmi eftir frummyndinni sem
er úr tré. A málmurinn að taka á
sig enn viðarlíkari áferð eftir því
sem hann veðrast. Blómgun er
nú komin í góðan félagsskap 7
annarra höggmynda sem prýða
höggmyndagarð Sólheima. List-
ir og menningarstarf hafa ávallt
skipað háan sess í starfi Sól-
heima allt frá stofnun 1930 og
sérstök áhersla lögð á leiklist,
tónlist og myndlist.
Sólheimar eru lítið þorp í skjól-
sælu gili í Grímsnesinu og þang-
að er fólk velkomið að koma og
líta á bæjarbraginn. Þar eru list-
hús og verslun með Iífrænt rækt-
að grænmeti, listmuni og kerti.
Að vetri til er aðeins opið virka
daga, svo gera þarf boð á undan
sér ef menn vilja versla um helg-
ar.
Stjórnarmenn Sólheima f.v. Gísli Hendriksson, Grétar Úlafsson, Pétur Sveinbjarnarson, Einar Einarsson, forstjóri
Visa og Svala S. Jónsdóttir, kona hans, Óðinn Helgi Jónsson, framkvæmdastjóri Sólheima og stjórnarmennirnir
Halldór Stefánsson og Bjarney Erla Sigurðardóttir, við gjöfina góðu.
7. árgangur - 4. Tólublað
Þorsteinn Pálsson, 7. þingmaður
Suðurlands.
Styttist í
ákvörðim
Kjördæmisþing Sjálfstæðis-
flokksins verður að líkindum
haldið um aðra helgi, 17. októ-
ber og flestir búast við að þar
muni þingmenn flokksins til-
kynna að þeir hyggist sækjast
eftir endurkjöri.
Þrálátur orðrómur hefur verið
uppi um að Þorsteinn Pálsson,
sjávarútvegsráðherra og fyrsti
þingmaður kjördæmisins, ætlaði
að hætta en hann hefur ævin-
lega vísað því á bug. Arni John-
sen og Drífa Hjartardóttir sem
voru í 2. og 3. sæti á lista flokks-
ins f síðustu kosningum ætla
bæði að gefa kost á sér áfram.
Skiptar skoðanir voru um það
á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna í Árnessýslu í fyrra-
kvöld hvort rétt væri að stilla
upp eða hafa prófkjör fyrir kosn-
ingarnar í vor. Ymsir telja að ef
efstu menn ætla allir að gefa
kost á sér, sé best að stilla upp
en ef fyrirsjáanlega verði mikil
endurnýjun eigi að hafa próf-
kjör.
Golfarar
áhyggjufullir
„Við getum lítið sagt meðan ekki
er vitað hver þetta er og hvað
hann ætlar sér,“ segir Jón Ágúst
Jónsson, formaður Golfklúbbs
Selfoss, en eins og fram hefur
komið er búið að selja jörðina
Laugadæli þar sem golfvöllurinn
er. Golfklúbburinn er með 30
ára leigusamning á 28 ha lands,
þar sem nú eru golfskáli og 9
holu golfvöllur. Búið er að
hanna 18 holu golfvöll sem
næði upp með ánni og gerði
Golfklúbburinn fyrst KA og síð-
an Samvinnulífeyrissjóðnum
kauptilboð á 45 ha Iands, en til-
boðum þeirra var hafnað.
- Nú eru golfvellir taldir mikill
plús fyrir bæði fasta byggð og-
sumarhúsabyggð. Heldur þú
ekki að nýi eigandinn vilji hafa
golfvöll?
„Það vonum við, en um leigu-
skilmála veit ég auðvitað ekkert.
En mér finnst að beitan eigi ekki
að borga veiðimanninum". Þetta
er fjórði staðurinn sem golfvöll-
urinn er á, á 25 ára starfstíma
Golfklúbbsins. „Ef við verðum
reknir þarna í burtu, þá mun ég
leggja til að félagið verði lagt
niður,“ sagði Jón Ágúst.