Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 4
4- LAUGARDAGUR 10. OKTÚRER 1998 FRÉTTIR L A Burt með þi ónustugj öldin Þingflokkur óháðra nefur flutt á Alpingi frumvarp til laga um að fella niður þjónustugjöld í heilsugæslu. I greinargerð segir að álögur á sjúklinga hafi verið auknar jafnt og þétt síðan 1992 og því hafi kjara- rýrnun orðið mest hjá því fólki sem á við sjúkdóma að stríða. SjúWingatrygging Þrír þingmenn undir forystu Astu R. Jóhannesdóttur vilja að Alþingi feli heilbrigðis- og tryggingaráðherra að láta fara fram úttekt á regl- um um sjúklingatryggingu hér á landi og í kjölfarið verði lagðar fram tillögur sem miði að réttarbótum á þessu sviði. Hávaði- og hljóðmengun Hjörleifur Guttormsson, Lára Margrét Ragnarsdótt- ir, Lúðvík Bergvinsson, Kristín Halldórsdóttir, Asta R. Jóhannesdóttir og Ragnar Arnalds leggja til að rík- isstjórninni verði falið að láta fara fram víðtæka út- tekt á hávaða- og hljóðmengun hér á landi og Ieggja fyrir næsta þing niðurstöður hennar og úrbætur. Þau Hjörleifur benda á að hávaði og hljóðmengun fari sívaxandi frá Guttormsson. ári til árs. Bankaskyldur Jóhanna Sigurðardóttir og sjö aðrir þingmenn flytja frumvarp til laga um að ársreikningum ríkisaðila skuli fylgja sundurliðað yfirlit um launagreiðslur, bifreiða-, ferða- og risnukostnað. Segir í greinargerð að frumvarpið sé í samræmi við breytingar sem gerð- ar voru á lögum um Seðlabanka Islands, Lands- banka Islands, Búnaðarbanka Islands og Utvegs- banka Islands 1983. Þegar sett voru ný lög um við- skiptabankana 1986 var ákvæðið ekki með í þeim lögum. Úttekt á Schengeu-aðild Hjörleifur Guttormsson og Kristín Astgeirsdóttir hafa lagt ffam þingsályktunartillögu um útttekt á Schengen-aðild og innflutningi fíkniefna. Þau benda á að með aðild Islands að Schengan samkomu- laginu verði mönnum heimilt að fara yfir innri landamæri aðildar- ríkja án þess að þeir sæti nokkru eftirliti. Jóhanna Sigurðardóttir. Upplýsa skal um framlög Iðnláuasjóðs Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins (Iðnlánasjóði) er skylt að veita Einari S. Hálfdánarsyni endurskoðanda upplýsingar sem hann bað um með vísan til upplýsingaiaga. Einar vildi fá upplýsingar um úthlutun úr Iðnlánasjóði á óafturkræfum framlögum og styrkjum eftir nöfnum og upphæðum, sem sjóðurinn hafnaði að veita. Urskurðarnefnd um upplýsingamál úrskurðaði á sama veg í mars 1997, en Iðnlánasjóður áfrýjaði og taldi að undantekningarákvæði upplýsingarmála um banka og sparisjóði stæði í vegi fyrir því að sjóð- urinn veitti upplýsingarnar. Urskurðarnefnd og Hæstiréttur telja hins vegar að það beri að túlka þröngt, enda verði ekki séð að hagsmunir þeirra sem hafa fengið framlög vegi þyngra en réttur almennings til að fá upplýsingar. — FÞG Tölvunefnd engin gögn fengið Tölvunefnd hefur enn engin gögn fengið í hendum- ar vegna sjálfseignastofnunar á vegum lækna og Is- lenskrar erfðagreiningar um þjónustumiðstöð rann- sóknarverkefna við Nóatún. „Tölvunefnd hefur enn ekkert fengið um þetta og ég vil því ekkert segja til um okkar viðbrögð. Það skilyrði sem við settum var að hjá Islenskri erfða- greiningu yrði ekki unnið með nafngreind gögn. Við höfum ekkert skjalfest um hvaða leið á að fara að því marki, en ég vona að svo verði fyrir næsta fund Tölvunefndar," segir Sigrún Jóhannesdóttir, starfs- maður nefndarinnar. Tölvunefnd vildi aðgreina rekstur þjónustumið- stöðvarinnar frá Islenskri erfðagreiningu og hefur gefið aðstandendunum framlengdan frest til 15. október til að kynna áform sín. — FÞG Nýtt íþróttahiis í MosfeUsbæ Nýtt íþróttahús að Varmá i Mosfellsbæ verður vígt á sunnudaginn og af því tilefni stendur bærinn fyrir mikilli fjölskylduhátíð á svæðinu sem hefst kl. 13.00 á sunnudag. Nýja húsið er rúmlega helmingi stærra en núverandi íþróttahús. Það rúmar m.a. 2 handboltavelli, 6 blakvelli og 2 tennisvelli. Sigrún Jóhann- esdóttir, starfs- maður Tolvu- nefndar. Mjög styttist í að kísilgúrinn á leyfilegu vinnslusvæði á botni Mývatns verði uppurinn. Nýs framkvæmdastjóra bíður það verkefni að reyna að lengja líftíma verksmiðjunnar. F áar wnsóknir enmiMð spurt Kísiliðjan verður að líkmdiun að sanna nýja vinnsluaðferð til að ný vinnslusvæði verði heimiluð. Brýnt að ráða framkvæmda- stjóra sem fyrst. I dag rennur út umsóknarfrestur þar sem auglýst er eftir nýjum framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar. Þetta er í annað skipti á rúmu ári sem Kísiliðjan auglýsir þessa stöðu, en fyrirtækið hefur verið forstjóralaust frá því að Bjarni Bjarnason hætti og tók við stjórn Járnblendisverksmiðjunnar á Grundartanga. Annar tveggja staðgengla framkvæmdastjórans hefur sagt starfi sínu lausu og því er e.t.v. brýnni þörf en nokkru sinni að fá kall í brúna. Ovissa er um framtíð verksmiðjunnar. Hreiðar Jónsson, formaður stjórnar Kísiliðjunnar, segir tölu- verð vibrögð hafa orðið við auglýs- ingum um framkvæmdastjóra- stöðuna. „Það hefur mikið verið spurst fyrir en fátt um eiginlegar umsóknir. Þær berast enda yfir- leitt aldrei fyrr en á síðustu stundu,“ sagði Hreiðar um hádeg- isbil í gær. Hann segir mikilvægt fyrir fyrirtækið að fá fram- kvæmdastjóra sem fyrst. Höimim til frambúðar Eins og kunnugt er styttist mjög í að kísilgúrinn á leyfilegu vinnslu- svæði á botni Mývatns verði upp- urinn. Fyrirtækið hefur látið hol- lenskt fyrirtæki hanna grip þar sem gerð verður tilraun með nýja vinnsluaðferð, að líkindum næsta vor að sögn Hreiðars. Gripurinn, sem hægt er að líkja við kílplóg, kostar einhveija tugi milljóna kr., enda var ákveðið að smíða tæki sem hægt er að nota til frambúð- ar ef vinnsluaðferðin skilar ár- angri. Þarf að sanna sig En eru forráðamenn Kísiliðjunn- ar ekki dálítið brattir að taka slíka ákvörðun á meðan algjör óvissa ríkir um hvort stjórnvöld munu heimila vinnslu á nýjum svæðum'? „Jújú, en við höfum farið hægar við smíði þessa grips þar sem við reynum að rýna í framtíðina í leiðinni," segir Hreiðar. Nýja vinnsluaðferðin gengur í stuttu máli út á að efnið er tekið úr miðju botnlagsins en yfirborðið skilið eftir ósnert. Má segja að Kísiliðjan verði að sanna nýjar vinnsluaðferðir til að heimild fáist fyrir vinnslu á áður ósnertum svæðum á botni Mývatns? „Okkur finnst það a.m.k. öruggara," segir Hreiðar. — BÞ Geggjaður mark- aður á Akureyri Nýir aðilar hafa tekið við rekstri kjörbúðarinnar í Kaupangi. Hraðkaup bíður með breytingar til áramóta. Hraðkaup muu ekki opna nýja búð undir eigin merki fyrr en um áramót á Akur- eyri. Akureyrarmark- aðurinn að stækka meira en á höfuðborg- arsvæðinu. Ný verslun undir nafni Hrað- kaups mun ekki hefja rekstur í Kaupangi á Akureyri þar sem Kjörbúðin hf. er nú til húsa fyrr en að líkindum í fyrsta lagi um næstu áramót, að sögn tals- manns Hraðkaups. Hins vegar er búið að undirrita samkomulag um rekstrarskipti. Frá og með síðasta þriðjudegi rekur Hrað- kaup búðina en engar breytingar hafa orðið á starfsmannahaldi og er ekki ljóst hvort eða hvaða breytingar verða gerðar á því um áramótin þegar Hraðkaup hefur starfsemi sína. Um 15 heilsdags- störf eru í kring- um rekstur Kjör- búðarinnar. Jón Scheving Thorsteinsson, forsvarsmaður Hraðkaupsversl- ananna, segir að skrefið sé stigið vegna þess að Ak- ureyri sé ört vax- andi markaðs- svæði. „Við ætl- um að nota okk- ur tímann fram að áramótum og kynnast þörfum viðskiptavin- anna. Við erum ekki að koma þarna inn í eitthvert glórulaust stríð við KEA. Akureyri er bara geggjaður markaður. Hann er að vaxa hraðar en höfuðborgar- svæðið í prósentum talið. Eftir að Háskólinn kom inn hefur allt þetta samfélag tekið stakkaskipt- um. Þetta er gott viðskiptatæki- færi og hefur ekkert með slag Baugs við KEA að gera,“ segir Jón Scheving. Ekki er hægt að segja að KEA Nettó á Akureyri fái beina sam- keppni í lágvöruverði vegna til- komu nýju búðarinnar. Hrað- kaupsverslanirnar keyra á fersk- Ieika, flýti og löngum afgreiðslu- tíma. — BÞ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.