Dagur - 10.10.1998, Síða 9

Dagur - 10.10.1998, Síða 9
8- LAUGARDAGUR 10. OKTÓRER 1998 Tkyptr FRÉTTASKÝRING *ÍÁVé%Á*d-DA G'&R Íb."ÖsH‘frðé'Á TTIR hálfu leikmanna. Á síðasta kirkju- þingi sátu tvær konur sem fulltrú- ar Ieikmanna, þær Margrét Jóns- dóttir frá Löngumýri í Skagafirði og Halldóra Jónsdóttir frá Gríms- húsum í Aðaldal í Þingeyjarsýslu, en karlar koma nú í þeirra stað. Þetta kynjamisrétti er enn sér- kennilegra í Ijósi þeirra staðreynda að af sóknarprestum um 15% eru konur, og af formönnum sóknar- nefnda eru konur um 43% en af fullskipuðum sóknarnefndum er hlutfall kvenna enn hærra. Líklegt er að fyrsti fulltrúi leik- manna sem forseti kirkjuþings verði Jón Helgason frá Seglbúðum og fyrrum alþingismaður, enda enginn fulltrúi Ieikmanna kona. Áhyggjur landsbyggð armanna Sem fyrr segir mun Gunnlaugur Finnsson hætta í kirkjuráði, en Gunnlaugur er landsbyggðarmað- ur. Rætt hefur verið um að Guð- mundur Kr. Magnússon frá Reykjavík komi í hans stað. Hinn Ieikmaðurinn í kirkjuráði er Reyk- víkingurinn Helgi Hjálmsson svo ekki hugnast landsbyggðarfulltrú- um það alls kostar. Telja menn þá eðlilegt að Helgi, sem hefur lýst áhuga á endurkjöri, verði felldur út. Annar fulltrúi presta í kirkju- ráði, sr. Sigurjón Einarsson á Kirkjubæjarklaustri, gefur ekki kost á sér, en það gerir hinn full- trúinn sr. Hreinn Hjartarson í Fellasókn i Reykjavík. Nafn sr. Gunnars Kristjánssonar að Reymi- völlum í Kjós hefur verið í umræð- unni og kæmi þar landsbyggðar- maður í stað landsbyggðarmanns. Haukar og dúfur Svokallaðir „haukar'1 í prestastétt, sem m.a. studdu sr. Sigurð Sigurð- arson vígslubiskup í Skálholti til biskupskjörs og voru harðir gagn- rýnendur fyrrum biskups, sr. Olafs Skúlasonar, hafa haft samband við marga kirkjuþingsfulltrúa og ljóst að þeir ætla sér aukin áhrif, m.a. með kjöri í næsta kirkjuráð. Fyrir þeim hafa farið sr. Geir Waage í Reykholti, lyrrverandi formaður Prestafélags Islands, og sr. Halldór Gunnarsson í Holti undir Eyja- fjöllum. Endurkjör sr. Hreins Helgasonar sem ekki kemur úr þeim herbúðum kann því ekki að vera eins víst og ætla mætti. Hverjir stjóma kirkjuuni? En hverjir sitja kirkjuþing? Nöfn kjörinna fulltrúa fylgja hér með í stafrófsröð og geta Iesendur velt vöngum yfir því hvar í sveit þeir skipast, eða hvort þeir skipast yfir- leitt í einhverja sveit. Bjarni Grímsson, Bolli Gústavs- son, Dalla Þórðardóttir, Geir Waage, Guðmundur K. Magnús- son, Gunnar Kristjánsson, Gunn- ar Sveinsson, Gunnlaugur Finns- son, Halldór Gunnarsson, Hall- grímur Magnússon, Helgi K. Hjálmsson, Hjalti Zóphóníasson, Hreinn Hjartarson, Jakob Ág. Hjálmarsson, Jens Kristmanns- son, Jóhann Björnsson, Jón Helgason, Karl Sigurbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Magn- ús Erlingsson, Magnús Stefáns- son, Olafur Eggertsson, Pétur Pétursson, Pétur Þórarinsson, Sigfús J. Árnason, Sigurður Sig- urðarson, Sigurjón Einarsson og Þórarinn Sveinsson. Umfangsmiklar skipu- lagsbreytingar í mál- efmiin kirkj unnar og auMð sjálfstæði henn- ar valda því að kosn- ingar til Mrkjuráðs og forsætis á kirkjuþingi sMpta miMu fyrir það hvernig hin nýju valdahlutföll í kirkj- unni verða. í aðdrag- anda þingsins hafa verið átök þar sem ólikir hópar hafa vilj- að tryggja stöðu sína í hinni nýju kirkju. Kirkjuþing 1998 verður sett í Dómkirkjunni sunnudagskvöldið 11. október með upphafsmessu. Jafnframt því að vera upphaf kirkjuþings er með messunni í Dómkirkjunni verið að minnast 50 ára afmælis Alkirkjuráðsins og verður það m.a. gert með því að lesið verður upp úr Biblíunni á þölda tungumála. Innan vébanda Alkirkjuráðsins eru 330 kirkjur úr 100 löndum um víða veröld. Þingstörf hefjast á mánudag. val á presti er að ræða, þá er hún einskis rnetin," segir sr. Geir Waage. Pétur Þórarinsson, prestur í Laufási í Eyjafirði, situr nú kirkju- þing í fyrsta sinn. Hann segir að eflaust verði reynt að gæta jafn- vægis milli þéttbýlis og dreifbýlis hvað varðar kosningu til kirkju- ráðs, bæði úr röðum leikmanna og presta en hlutur kvenna á kirkju- þingi sé mjög dapur, aðeins ein kona, svo kosning konu úr presta- stétt í kirkjuráð komi vel til greina. Pétur segir ýmsa hafa hringt í sig til að kanna hug hans til einstakra „kandidata" en hann ætli að mæta á kirkjuþing án skuldbindinga í þessum efnum. Svokallaðir „hauk- ar“ hafi sig kannski eitthvað í frammi. Aðeins ein kona Fulltrúar á kirkjuþingi 1998, sem nú fer fram í Háteigskirkju í stað Bústaðakirkju eins og verið hefur til fjölda ára, eru alls 28 talsins, en aðein ein kona situr það, sr. Dalla Þórðardóttir í Miklabæ og prófast- ur Skagfirðinga. Slíkt veldur kon- um í kirkjunni nokkrum áhyggjum segja þær það afturför og ekki í anda jafnréttishugsjónarinnar. Bent er á að stöðugt fleiri konur eru vígðar til embætta hjá þjóð- 'drkjunni eða eru í störfum af Söguleg tímamót Þetta kirkjuþing hefur þá sér- stöðu að það starfar samkvæmt nýrri rammalöggjöf um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkj- unnar og verður æðsta stofnun þjóðkirkjunnar. Forseti kirkju- þings verður kosinn úr hópi Ieik- manna en allt frá fyrsta kirkju- þingi árið 1958 hefur biskup Is- lands verið forseti þess. Þar munu leikmenn verða í meiri- hluta, eða 12 á móti 9 prestum. Vígðir menn verða þó fleiri á þinginu án atkvæðisréttar en með málfrelsi og tillögurétt sitja þar biskup Islands, herra Karl Sigur- björnsson, tveir vígslubiskupar og fulltrúi guðfræðideildar. Þetta eru söguleg tímamót hjá kirkj- unni, sumir segja merkilegasta kirkjuþing aldarinnar vegna þess að kirkjan er að fá í sínar hendur ákvörðunarrétt um sín innri mál og þar með ákveðið ftjálsræði í íjármálum. Þann 4. september sl. var und- irritaður við hátíðlega athöfn á Biskupsstofu tímamótasamning- ur sem færir ríkinu jarðir kirkj- unnar til eignar og ráðstöfunar að vild en þær höfðu verið í umsýslu ríkisins frá árinu 1907. Þess í stað greiðir ríkið laun tiltekins fjölda presta og starfsmanna kirkjunnar og innheimtir sóknar- gjöld eins og áður. Samningurinn er niðurstaða á löngu ferli þar sem áberandi voru deilur um kirkjueignir og réttarstöðu þjóð- kirkjunnar. Sumir ganga svo langt að segja að með þessu sé skrefið stigið til fulls að aðskilja kirkju og ríkisvald. í Ijósi þess er athyglis- vert að í skoðanakönnun Gallup vilja færri Islendingar nú aðskiln- að ríkis og kirkju en var á sama tíma í fyrra. Af þeim sem taka af- stöðu með eða móti aðskilnaði eru tæplega 63% hlynnt aðskiln- aði en rösklega 37% andvíg. Á sama tíma í fyrra voru 66% þeirra sem tóku afstöðu hlynnt aðskiln- aði. Sjálfstæði kirkjumiar Biskup Islands, herra Karl Sigur- björnsson, segir að þjóðkirkjan standi á miklum tímamótum. Hún hafi fengið nýja löggjöf til að starfa eftir, nýkjörið kirkjuþing fái aukið vald og verksvið og samn- ingurinn við ríkið um Ijármál þjóðkirkjunnar staðfesti sjálf- stæði hennar. Þetta leggi kirkj- unni mikinn vanda á herðar við að skipa málum sínum og móta starfshætti að kröfum tímans. „Guð gefi okkur náð til þess að hefja nýja sókn til þjónustu sem sameinuð, sterk þjóðkirkja á Is- landi í nýrri sókn hins kristna málstaðar, hins kristna trúarlífs, þjóðinni til heilla," segir biskup Islands. Átakablokkir En þessar breyttu aðstæður í kirkjunni hafa einnig kallað á við- brögð ólíkra hópa innan hennar. Prósessía presta á prestastefnu. íslenskir prestar starfa nú í nýju umhverfi eftir breytingar á kirkjunni. Frá fundi kirkjuráðs í Kirkjuhúsinu í gær. Ungt fólk, kvenfólk, landsbyggð- arfólk, þéttbýlisfólk, „haukar" eða „svartstakkar" og „dúfur“, eru allt hópar sem vilja tryggja stöðu sína í hinni nýju kirkju. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hafa þessir hópar unnið heimavinnuna að undanförnu og gert sitt til að safna Iiði. Sá liðsafnaður verður jafnvel enn ákafari fyrir það að veruleg endurnýjun verður í hinu 4ra manna kirkjuráði sem starfar milli kirkjuþinga. Annar fulltrúi leikmanna, Gunnlaugur Finns- son á Hvilft £ Önundarfirði, og annar fulltrúi presta, sr. Siguijón Einarsson á Kirkjubæjarklaustri, ætla að hætta. Sr. Halldór Gunnarsson í Holti, einn kirkjuþingsmanna og jafnan flokkaður til hinna svonefndu „hauka" í prestastétt, talar í nokkrum véfréttastíl um hugsan- leg átök um nýja fulltrúa í kirkju- ráð og heldur öllum dyrum opn- um: „Menn verða að horfast í augu við það að þessi kirkjupólit- ík hlýtur að snúast um þéttbýli og dreifbýli og um vægi þeirra á kirkjuþingi og í kirkjuráði. Eg vil ekki segja að það séu flokkadrætt- ir í gangi hvað varðar kjör þessara fulltrúa en það væri mjög óeðli- legt að menn ræddu ekki saman og reyndu að horfast í augu við það hvaða áherslur ætti að hafa í fyrirrúmi. Það er ekki hægt að segja að hagur dreifbýlisins hafi verið fyrir borð borinn, en sé svo er nú Iag fyrir kirkjuna að ákveða lyktir þessara mála algjörlega sjálf." Mörg samtöl Sr. Geir Waage í Reykholti segir að þar sem aðeins 10 dagar séu ætlaðir til þinghalds muni mest af tímanum fara til að ganga frá gífurlega flókinni reglusetningu á grundvelli nýrra Iaga og því gefist minni tími til annarra kirkjumála. „Eg vil ekkert tjá mig um það hvort einhver átök verði kringum kosningar til kirkjuráðs en ég veit að margt hefur verið rætt um skipan bæði kirkjuþings og kirkjuráðs og hver væri hentugur í forsetastöðuna. Það verður að skoðast í Ijósi þess að mjög mikil endurnýjun hefur átt sér stað á fulltrúum á kirkjuþingi. Það hafa farið fram mörg samtöl og munu fara fram áður en kosið verður en ég vil ekki fullyrða að þar sé verið að tala fyrir einhverjum stefnum eða að vilji sé til þess að yngja upp í kirkjuráði. Reynsla er vel metin í kirkjunni nema þegar un Bretta- og hjóla- höll í Öskjuhlið Brettafélag, hjólreiða- félagog fjallahjóla- Múhburiim fara fram á að Reykjavíkurborg reisi fyrir þá 1200 fm fjölnota hús í Öskju- hlíð. „Reykjavíkurborg láti reisa 1200 fermetra fjölnota hús sem nýtist iðkendum línuskauta, hjóla- bretta, snjóbretta og reiðhjóla. Við þetta hús verði að auki lagt 1000 fermetra autt plan. Húsið verði reist við Öskjuhlíðina og sett í samhengi við þá uppbygg- ingu sem á sér stað í Nauthóls- vík. I aðstöðunni verði skrifstofa Brettafélags Reykjavíkur, Hjól- reiðafélags Reykjavíkur og ís- lenska fjallahjólaklúbbsins. Að auki verði til staðar innanhúss- aðstaða til iðkunar, verkstæði, setustofa, sturtuaðstaða og fundarsalur. Fulltrúar ofan- greindra félaga hafa vegna sam- eiginlegra hagsmuna ákveðið að sameinast um hugmyndir um sameiginlega uppbyggingu sem fram kemur í erindi þessu,“ seg- ir í bréfi þeirra til borgarráðs Reykjavíkur. Kúiiiur fermetri á félagsmann Félögin fara jafnframt fram á að Iþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur taki að sér umsjón og rekstur hússins líkt og gerist með íþróttamiðstöðvar á vegum ITR. Meðfylgjandi teikningar gera ráð fyrir 2ja hæða húsi, þar sem u.þ.b. 70% hvorrar hæðar verði salir. I félögunum öllum eru rúmlega 1.100 manns. Byggjum ekki yfir alla „Þetta mál er ennþá ekki á því stigi að búið sé að taka það til einhverrar meðhöndlunar. Þetta er hjá okkur núna, og við tökum það fyrir í tengslum við gerð ijár- hagsáætlunar í nóvember," sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður ÍTR. Hún sagðist þó fremur búast við að málið færi á þann veg að Ieitað yrði að húsnæði sem sé til staðar einhvers staðar annars staðar í borginni. „Við byggjum ekki yfir alla sem leita eftir hús- næði hjá okkur," sagði Steinunn Valdís. - HEI Laimamuná kynja verði Alnireyrarbær stendur fyrir róttækum breyt- mgum á stjómsýslu sem miða m.a. að því að bæta hlut kveuna hjábænum. Stjórnkerfisbreytingar eru fyrir- hugaðar hjá Akureyrarbæ og fela þær í sér betri tök á starfsmanna- málum og stjórnun verkefna að sögn Sigurðar J. Sigurðssonar, formanns bæjarstjórnar. Nýtt skipurit hefur verið í staðfest í bæjarstjórn og auk þess hefur stýrihópur fengið það verkefni að starfa að málinu áfram í sam- vinnu við starfsmenn bæjarins. „Það eru hugmyndir uppi um að snúið verði til baka frá þeirri ákvörðun að aðgreina fræðslu- og félagssvið, sbr. skólamálin, en sú ákvörðun var tekin þegar við yfirtókum skólaþjónustuna frá ríkinu. Núna er hugmyndin að renna þessu aftur saman en það er sýnilegt að mörg verkefni þarna skarast," segir Sigurður. Fleiri breytingar má nefna og sumar eru þegar komnar fram. Fjármálasviði hefur verið skipt upp f tvö svið, fjármála- og þjón- ustusvið. Dan Brynjarsson var ráðinn fjármálastjóri og Sigríður Stefánsdóttir stýrir þjónustustig- inu. Undir svið Sigríðar falla m.a. jafnréttismál sem verið hafa í lausu lofti að sögn Sigurðar og þar er brýn þörf á úrbótum. miíli eytt Gniiidvallarmimur „Vonir manna standa til þess að við verðum f betra vinnuum- hverfi þegar upp verður staðið. Við höfum tekið á okkur ýmis ný verkefni sem ekki hefur verið komið fyrir með formlegum hætti í pípunum og jafnframt er það sameiginlegt álit að við þurf- um að standa betur að starfs- mannamálunum. Sú launakönn- un sem gerð var hér meðal starfsmanna bæjarins í fyrra sýndi að konur búa við allt ann- að launaumhverfi en karlar. Það er óásættanlegt og einn þáttur- inn í þessum breytingum miðar að því að þessum mismuni verði eytt,“ segir formaður bæjar- stjórnar. — BÞ Tap á rekstri Borgeyjar Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæk- ið Borgey á Hornafirði var rekið með 44 milljóna króna tapi fyrstu sex mánuði ársins en í áætlunum var gert ráð fyrir að afkoma af reglulegri starfsemi yrði um 27 milljóna króna tap. Helstu ástæður þessa eru tald- ar vera meiri fjármagnskostnaður og kolavinnslan gekk mun ver en gert var ráð fyrir. í rekstraráætlun fyrir allt árið 1998 var gert ráð fyrir 45 milljóna króna hagnaði. Ymsar blikur eru á lofti í síldar- vinnslunni á þessu hausti, eink- um vegna bágs efnahagsástands í Rússlandi sem talið er að hafi áhrif á síldarmarkaðinn í Vestur- Evrópu. Það gerist vegna þess að ef síldarmarkaðurinn í Rússlandi muni lokast munu Norðmenn sækja með sína síld inn á markað- ina í Vestur-Evrópu. Verði hins vegar ákveðið að „bjarga" hinum almenna rússneska neytenda með þvf að kaupa síld fyrir þá með vestrænni aðstoð, breytast þessar forsendur. Af þessum ástæðum m.a. er ekki gert ráð fyrir að Borgey verði rekin með hagnaði á yfirstand- andi ári. - GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.