Dagur - 10.10.1998, Síða 8
vm -LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
Andlát
Ásdís Sigurðardóttir
Holtsgötu 39, Reykjavík, andað-
ist á Landspítalanum laugardag-
inn 3. október.
Ásta Karítas Einarsdóttir
hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
áður Þórustíg 13, Njarðvík, lést
að morgni 6. október.
Björg Jóhanna Jónsdóttir
Miðbælisbökkum, Austur-Eyja-
fjöllum, andaðist í Sjúkrahúsi
Suðurlands aðfaranótt 2. októ-
ber.
Eiríkur Breiðfjörð Kristvalds-
son
Gránufélagsgötu 35, Akureyri,
andaðist að kvöldi laugardagsins
3. október.
Eiríkur Jónsson
Einlundi 6 E, Akureyri, andaðist
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, deild 1, fimmtudaginn 1.
október.
Elsebeth Vilhjálmsson
áður til heimilis á Hofsvallagötu
18, Reykjavík, lést þriðjudaginn
6. október á Hrafnistu í Reykja-
vík.
Gógó Gerström (fædd Zim-
senjer látin.
Guðrún Dóra Erlendsdóttir
Fífuseli 35, er látin.
Halldór Ásgrímsson
bóndi, Minni-Borg, lést þriðju-
daginn 6. október.
Hallgeir Bjami Sigurðsson
Hátúni lOb, Iést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur miðvikudaginn 30.
september.
Hildur Hafdís Valdimarsdóttir
Bláhömrum 2, Reykjavík, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur 3. októ-
ber.
íris Eggertsdóttir
Heiðarholti 12, Keflavík, lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 5. október.
Jenný Dagbjört Jóramsdóttir
hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
Garði, lést sunnudaginn 4. októ-
ber.
Jóhanna Sigurðardóttir
frá Köldukinn, Fellsströnd, Dala-
sýslu, lést laugardaginn 3. októ-
ber í San Diego, Bandaríkjunum.
Jóhanna Þorvaldsdóttir
frá Raufarfelli, Austur-Eyjafjöll-
um, Nóatúni 26, Reykjavík, lést f
Landspftalanum að morgni 1.
október.
Jón Jónsson
Þverá í Laxárdal, andaðist á
Landspítalanum að kvöldi 1.
október.
Júlíus Halldórsdóttir
Ægissíðu 86, andaðist á Land-
spítalanum 4.október.
Kristín E.H. Skúladóttir
Frostafold 135, lést áheimili sínu
laugardaginn 3. október.
Marfa Stefánsdóttir
Droplaugarstöðum, áður tilheim-
ilis í Bauganesi 38, Reykjavík,
lést laugardaginn 3. október.
Sigrfður Guðmundsdóttir
áður til heimilis á Grundarstíg 9,
lést á Hrafnistu laugardaginn 3.
október.
Sigríður Jóna Olafsdóttir
Engjavegi 67, Selfossi, andaðist
að Ljósheimum fimmtudaginn 1.
október.
Sigríður Jóna Ólafsdóttir
Engjavegi 67, Selfossi, andaðist á
Ljósheimum fimmtudaginn 1.
október.
Sigþrúður Jóhanna Karlsdóttir
Pérez
lést föstudaginn 25. september í
Mataró á Spáni.
Stefán Lúðvíksson
lést af slysförum að morgni
sunnudagsins 4.október.
Svanhildur Sigurgeirsdóttir
fyrrverandi deildarstjóri, lést á
Landspítalanum mánudaginn 5.
október.
Tómas Jónsson
frá Norður-Hvammi, Mýrdal,
fyrrum bátsmaður á Karls-
efni.lést mánudaginn 5. oklóber
á Hrafnistu í Reykjavík.
Viggó Nathanaelsson
Skjóli við Kleppsveg, Reykja\rk,
lést að morgni 1. október.
Þorgrímur Starri Björgvinsson
bóndi í Garði, Mývatnssveit, lést
á Sjúkrahúsinu á Húsavík aðfara-
nótt mánudagsins 5. október.
Þóra Guðmundsdóttir
Fossheiði 52, lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands föstudaginn 2. októ-
ber.
Þórdís Benediktsdóttir
frá Grænavatni er látin.
MINNINGARGREINAR
rO^tr
Grétar Rósantsson
Leó Grétar Rósantsson fæddist
á Akureyri 21. mars 1929.
Hann lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri 28. septem-
ber síðastliðinn. Foreldrar hans
voru hjónin Rósant Marinó Sig-
urðsson f. 17.12.1896 og Líney
Sigurðardóttir f. 4.9. 1900.
Grétar átti eina eldri systur,
Sveinbjörgu, sem búsett er á
Akureyri, f. 18.8.24. Eftirlif-
andi eiginkona Grétars er Dísa
Sigfúsdóttir frá Þórshöfn, f.
16.9.30. Börn þeirra eru
Hreinn f. 24.6.51, Heiða f.
14.11.52, Líney f. 2.9.57, Jó-
hanna f. 15.11.59, Rósant f.
24.11.61 og Sigmar f. 1.11.67.
Barnabörnin eru 14.
Grétar í Kálfagerði er fallinn
frá. Þessi mikli dugnaðarforkur.
Eg kynntist Grétari fyrst 9 ára
gamall þegar ég var sendur í sveit
til hans og frænku minnar Dísu.
Þá Ieigðu þau skika úr landi
Stokkahlaða f Hrafnagilshreppi.
Það sem ég man best þegar við
Grétar hittumst fyrst var hve
hann hafði þykka hönd, það var
eiginlega ekki hægt að heilsa hon-
um. Enda sannaðist það svo
margoft síðar að maðurinn var
gríðarlega sterkur. Mig dreymdi
fram eftir öllum aldri að geta ein-
hvern tímann orðið eins sterkur
og Grétar. Eftirminnilegur var
líka hláturinn hans sem var sér-
stakur. Hann gat oft verið glettinn
og leyfði sér að gera grín að sjálf-
um sér ekki síður en öðrum.
Á þessum tíma velti ég ekki
framburði talaðs máls mikið fyrir
mér en mér fannst einhvern veg-
inn maðurinn tala öðru vísi en ég
hafði átt að venjast. Og mér átti
til að sárna nokkuð undan at-
hugasemdum Grétars á linmæltri
reykvískunni minni. Grétar var
svo sterk fyrirmynd í tali að það
var mjög til þess tekið hvað ég tal-
aði furðulega þegar ég mætti í
Laugarnesskólann að hausti. Þá
hafði ég tileinkað mér fallegan
norðlenskan raddaðan framburð
eins og Grétar talaði manna best.
Árið 1957 festu þau hjónin
kaup á jörðinni Kálfagerði í Saur-
bæjarhreppi og voru flutt þangað
með tvö elstu börnin, Hrein og
Heiðu, þegar ég kom í sveitina
það vorið.
Mikið kapp var lagt á þessi
fyrstu ár í Kálfagerði að koma upp
stærri bústofni, stækka tún, grafa
skurði og byggja hlöðu og stækka
fjós. Þá voru ekki kvótar að þvæl-
ast fyrir mönnum. Ungir bændur
áttu sér mikla drauma um stærri
bú og minna basl. Grétar var einn
af þeim. Honum óx ekki margt í
augum. Þrátt fyrir létta lund hafði
maðurinn ólgandi skap og metn-
að til þess að standa sig og láta
ekki neina smámuni aftra sér.
Aldrei fann ég annað en að ég
væri tekinnn inn í þetta samfélag
sem fullgildur vinnumaður strák-
pattinn langt innann við ferm-
ingu. - Mér fannst ég vera afskap-
lega mikilvægur og var alltaf rok-
inn norður á vorin helst áður en
prófum lauk í skólanum. Eg naut
þess að vera með þessum hjónum
og börnunum þeirra Hreini og
Heiðu. Litlu dæturnar, Líney og
Jóhanna, voru svo litlar í augum
vinnumannsins að mér fannst
þær nú helst vera að þvælast íyrir
og tefja vinnandi fólk.
Haustið 1959 kom upp riða í
Kálfagerði og ágerðist er líða tók á
veturinn. Um vorið urðum við vör
við lasleika í nokkrum Iambánna
um sauðburðinn og þurftum að
fella þær. En það dugði ekki til því
faraldurinn hafði læst sig í stofn-
inn. Það voru okkur Grétari erfið-
ar ferðir að leita uppi fé í fjallinu
ofan við bæinn og koma því fár-
sjúku heim. Þá var þekking
manna á þessum sjúkdómi ekki
eins mikil og nú er og viðbrögð
við honum þvf misjafnlega mark-
viss. En Grétar skar allt sitt fé og
varð að fella gömlu fjárhúsin. Það
var hinum unga bónda þungt
högg á fyrstu búskaparárum
þeirra hjóna. Fyrir veturinn voru
komin ný íjárhús með heilbrigð-
um aðkeyptum gimbrum. Grétar
hafði mjög gott lag á hestum og
ég veit fyrir víst að hann þráði fátt
meir en ríða út á Snoppu sinni
sem var hans eftirlætis reiðhross.
En fáar stundir gáfust til sport-
ferða á þessum tímum búskapar-
anna og ekki tókst Grétari að
kveikja áhuga minn á hesta-
mennsku.
Það var notaleg stund er við
Grétar rifjuðum upp þessi sumur
saman um daginn. I hugum okkar
streymdi minningin um hlýjan
Eyjafjörðinn bakaðan í síðdegis-
sólinni. Myndin var skýr. Við að
taka saman hey af fullum krafti
fyrir neðan veg. Vinnutilhögunin
var fastmótuð við hirðinguna. Við
Gamla Jörp rökuðum, Dísa ýtti
görðunum saman með gamla All-
icinum og Grétar setti upp í galt-
ana með öllum sínum kröftum.
Fjöllin allt í kring með Kerling-
una hæsta, fuglasöngurinn, sætur
töðuilmurinn og Grétar kófsveitt-
ur og sæll með góðan heyfeng og
ég syngjandi eins og lungun
leyfðu um Stínu sem var lítil
stúlka í sveit. Svo var farið heim
að mjólka og þaðan inn í bæ að
borða. Það var mikið borðað og
hollt var fæðið og gott í Kálfa-
gerði. Dísa frænka er gæðakokkur
og skammtaði vel. Svo að loknum
matnum fékk Grétar sér í pípu.
Smáfólkið farið að sofa, síðkvöld-
ið bjart þar sem kvöldsólin fyllti
litla eldhúsið í Kálfagerði. Eg
man enn eftir gömlu pípunni sem
var tengd við munnstykkið með
rauðum gúmmíhólk og grúnó tó-
bakinu. Lyktin er enn fyrir vitum
mínum. Þetta voru góðir dagar.
Um það leyti sem ég hefði e.t.v.
mátt kallast nær fullgildur vinnu-
maður hætti ég að fara í sveit, var
orðinn táningur og vann næstu
sumur í málningarverksmiðju í
henni Reykjavík og fór í bíó á
kvöldin. Það voru öðruvísi sumur
og ekki eins sólrík og sveitt.Grét-
ar og Dísa byggðu sér nýtt einbýl-
ishús á jörðinni sinni en ekki var
vanþörf á þar sem gamla húsið
var orðið lélegt og þröngt og börn-
in orðin sex. Og Grétar þurfti
meira olnbogarými - honum
nægði ekki ein jörð. Þess vegna
keypti hann aðra, Guðrúnarstaði,
þar sem hann hýsti sauðféið og
fékk aukið beitiland.
Eg hef alltaf átt sterkar taugar
til Kálfagerðis og Eyjafjarðar enda
alltaf þar auðfúsugestur. Börnin
mín fengu að dvelja þar og kynn-
ast ögn sveitalífinu sem þó hafði
breyst æði mikið þessi ár frá því
ég var þar. Fyrir þetta er ég þakk-
látur.
Árið 1988 bregða Dísa og Grét-
ar búi eftir þrjátíu ára búskap í
Kálfagerði og flytja niður á Akur-
eyri þar sem Grétar fór að vinna
sem ýtustjóri hjá Akureyrarbæ.
Rósant sonur þeirra tók við búinu
og veit ég að hugur Grétars var oft
framfrá og ófáar ferðirnar átti
hann frameftir til að Iétta undir
og gefa góð ráð.
Grétar og Dísa hafa átt miklu
barnaláni að fagna. Sex börn,
hveiju glæsilegra og hafa notið
þess að hafa þau flest og barna-
börnin hjá sér í grenndinni. Fjöl-
skyldan er orðin stór með öllum
tengdabörnunum og barnaböm-
unum.
Já, Grétar fór að vinna fyrir Ak-
ureyrarbæ. Hann var fæddur Ak-
ureyringur, uppalinn í Búðargil-
inu í Gamla bænum. Ekki get ég
ímyndað mér traustari starfs-
mann og samviskusamari en
hann. Hann vildi þjóna sínum bæ
vel og lagði metnað sinn í allt sem
hann gerði. Þrátt fyrir stirðar
mjaðmir og kvalarfulla gigt
þijóskaðist hann við miklu lengur
en flestir hefðu látið bjóða sér.
Enn og aftur komu skapgerðar-
einkenni hans fram - að standa
meðan stætt var.
Stundum er sagt að Iífið fari í
hringi. Það má segja að líf Grétars
hafi farið einn hring um framan-
verðan Eyjafjörðinn - frá Búðar-
gilinu fram að Stokkahlöðum,
þaðan í Kálfagerði og Guðrúnar-
staði og hafi svo endað í Búðargil-
inu aftur þar sem hann hafði
hrossin sín síðustu árin og átti
sínar bestu stundir.
Tíminn líður og nú er Grétar
farinn frá okkur í aðra vist. Sá
staður er örugglega sólríkur og
hlýr eins og sveitin hans forðum.
Þegar okkar leiðir liggja saman að
nýju vonast ég til að Grétar verði
búinn að temja góðan klár og
verði tilbúinn að kenna mér að
sitja almennilega hest. Og þá er
aldrei að vita nema við fáum okk-
ur báðir í pípu og reykjum grúnó.
Við Hólmfríður og börnin send-
um frænku minni, Dísu, börnun-
um, tengdabörnum og afabörn-
unum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Friðrík Rúnar Guðmundsson.
Þorgrumir Starri Björgvmsson
Hægt nálgast haustið.
Af hvítum skýjum
rökkur þunguðum
rósir drjúpa.
Hvítar rósir
af hljóðum skýjum
hniga t húmi
á haustbleika jörð.
Þannig kvað Jakobína Sigurð-
ardóttir einhverntíma og nefndi
Haustfjúk. Nú að áliðnu hausti,
er náigast mörk þess og vetrar,
berast mér að morgni dags þær
frétíir að Starri bóndi hennar sé
allur. Einmitt svona er lífið; fá-
einum klukkustundum eftir að
lítill sólargeisli kom inn í fjöl-
skyldu okkar og nýju Iífi er fagn-
að sjáum við á eftir kærum vini.
Einn kemur þá annar fer, líf
vaknar og sofnar á víxl.
Þorgrímur Starri var um
margt, líklega má segja um flest,
óvenjulegur og stórbrotinn mað-
ur. Til samans voru þau hjónin,
hann og Jakobína, einstakt par
og heimilið í Garði þannig stór-
hýsi andagiftar og heitra tilfinn-
inga að ég hef engu sambærilegu
kynnst. Unnendur stíls og ljóða
þekkja Jakobínu gegnum verk
hennar. Eg varð einnig þeirrar
gæfu aðnjótandi að kynnast
henni persónulega en þó Starra
bónda hennar miklu nánar. I
rúma tvo áratugi lágu leiðir okk-
ar saman og samstarf í stjórn-
málavafstri þróaðist yfir í náinn
kunningsskap og vináttu sem ég
þakka af heilum hug nú þegar
samfylgdin tekur enda.
Starri í Garði voru margir
menn. Hann var ungmennafé-
Iaginn, ræktunarmaðurinn og
bóndinn sem unni jörð sinni,
sveitinni og Iandinu. Hann var
fjörkálfurinn, sögumaðurinn,
hagyrðingurinn og meinfyndinn
hrókur alls fagnaðar á góðri
stund. Starri var hinn harðskeytti
og hvassyrti baráttumaður i pólit-
ískum orrahríðum og gat verið
svo óvæginn að ýmsum þótti
meira en nóg um. Um leið var
hann blæðandi tilfinningaund
sem táraðist undir lestri fallegra
ljóða og fann til með öllu sem
lífsandann dró og átti um sárt að
binda. Hann var unnandi þjóð-
legrar menningar og funheitur
baráttumaður fyrir sjálfstæði og
fullveldi þjóðar sinnar en heims-
borgari og alþjóðaverkalýðssinni
um leið.
Þannig gæti ég reyndar haldið
lengi áfram svo ríkulega var
Starra veitt af gáfum sem hann
auðgaði með eldlegum áhuga
sínum á mönnum og aðskiljan-
legum málefnum. Mest um verð
var þó persónan sjálf, maðurinn,
hreinn og beinn, sem sagði um-
búðalaust og vægðarlaust mein-
ingu sína, fyrirleit alla tilgerð og
prjál. Annað hvort tóku menn
Starra í Garði eins og hann var
og lærðu að meta hann þannig
eða þeir hefðu betur aldrei hitt
hann.
Mývatnssveit hefur misst einn
besta son sinn og Mývatn sjálft
einn sinn trúasta gæslumann.
Það var rammíslenskt, heitt og
rautt blóð sem rann í æðum
Starra í Garði, og það rann svo
sannarlega.
Ég þakka honum að leiðarlok-
um framlag hans til sósíalískrar
baráttu, fyrir frelsi, jafnrétti og
bræðralagi og fyrir herlausu
Iandi. Við Bergný vottum börn-
um hans, eftirlifandi systkinum,
fjölskyldum þeirra og öðrum að-
standendum samúð okkar og
kveðjum kæran vin með þakklát-
um huga og eftirsjá.
Að lokum segi ég við minn
gamla \án: Þakka þér fyrir að vera
það sem þú varst og eins og þú
varst. Það gaf mér mikið að
kynnast þér. Farðu heill.
Steingrímur J. Sigfússon.